Morgunblaðið - 23.01.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 2005 45
MINNINGAR
fyrir þig og allt sem þú varst mér.
Nú veit ég að þér líður vel.
Þín
Hanna Lilja.
Æ, elsku amma, hvað það er
erfitt að kveðja þig. þegar ég
kvaddi þig um jólin vissi ég svo
sem að þetta væri í síðasta sinn
sem ég gæti knúsað þig og sagt
þér hvað mér þætti vænt um þig.
Það er mér ómetanlegt að hafa
náð að kveðja þig.
Þótt þú sért farin og búin að fá
hvíldina verður þú alltaf svo mikill
partur af mér og mér þykir svo
vænt um að fá að hafa kynnst þér
svona vel og eytt miklum tíma
með þér.
Ég var svo stolt af að eiga þig
sem ömmu. Þú fylgdist alltaf svo
vel með og hafðir svo mikinn
áhuga á öllu sem maður tók sér
fyrir hendur.
Þú varst svo glæsileg kona og
hvert sem maður fór með þig
vaktir þú athygli og fólk talaði um
hvað þú værir ungleg og glæsileg.
Ég geymi á góðum stað í hjarta
mínu minningarnar um alla
göngutúrana okkar og kaffihúsa-
ferðirnar. Þú hafðir svo gaman af
að ferðast og var gaman að hlusta
á þig tala um gamla daga og svo
slettirðu alltaf á dönsku eða
þýsku.
Þú varst svo örlát og ert þú fyr-
irmynd okkar allra varðandi
listina að vera góður gestgjafi og
láta gestunum líða vel. Þegar ég
var ekki heima um jól sástu til
þess að ég fengi sent hangikjöt og
ýmislegt með því.
Elsku amma, ég kveð þig með
miklum söknuði og veit að þú ert
komin á góðan stað og fylgist með
okkur.
Þín,
Hjördís Hildur.
Elskuleg tengdamóðir mín hef-
ur nú kvatt okkur og flutt sig um
set í tilverunni. Ég er viss um að
hún gleðst yfir að vera laus úr
sjúkum líkama sem skerti lífsgæði
hennar svo mjög hin síðari ár.
Ég minnist þess oft þegar ég sá
Sigurlaugu eða Laugu eins og hún
var oftast kölluð, í fyrsta sinn, það
var í fimmtugsafmæli pabba míns,
en Ólafur Jóhannsson læknir, eig-
inmaður hennar og pabbi voru
skólabræður úr menntaskóla og
góðir kunningjar. Þarna sat
Lauga í stofunni heima hjá for-
eldrum mínum í vinahópi, einstak-
lega glæsileg og falleg, og klæða-
burðurinn eftir nýjustu tísku. Hún
var smágerð, með svart slétt hár,
beint nef, há kinnbein og skásett
augu. Mér, unglingnum, var star-
sýnt á þessa glæsikonu. Ég vildi
fá að vita allt um hana, þá var mér
sagt frá ævintýralegu lífshlaupi
hennar, sem gerði hana enn
áhugaverðari í mínum huga. Á
góðum stundum kallaði pabbi
hana Audrey Hepburn, enda var
hún töluvert lík þeirri glæsilegu
leikkonu. Næst sá ég Laugu u.þ.b.
6 árum síðar þegar Leifur, sonur
hennar, kynnti okkur formlega og
mig þá sem kærustuna sína. Mér
stóð dálítill stuggur af þessari
heimskonu, sem talaði svo mörg
tungumál, sem var svo víðlesin,
sem var svo fáguð og menning-
arleg og sem söng lög á þýsku,
sænsku eða ensku á góðum stund-
um í boðum á glæsilegu heimili
þeirra Ólafs í Hörgshlíð 14. Það
tók okkur dálítinn tíma að átta
okkur hvor á annarri en þegar við
náðum saman varð ekki aftur snú-
ið, við urðum vinkonur. Hún varð
mér mjög góð tengdamóðir og
vildi allt fyrir mig gera. Hún
fylgdist t.d. vel með því hvenær
Leifur var með spilaklúbb heima
hjá okkur og hringdi þá og sagðist
vera búin að baka fyrir klúbbinn
svo ég þyrfti ekki að standa í því,
ég hefði víst nóg annað að gera.
Hún tók 3 ára gamalli dóttur
minni Ingibjörgu Helgu opnum
örmum frá fyrstu stundu. Faðm-
urinn hennar rúmaði síðan öll hin
barnabörnin og barnabarnabörnin
sem á eftir komu. Á fyrstu
tengdaárunum okkar vorum við
oft ósammála um menn og málefni
en það breyttist einhvern veginn í
áranna rás. Við vorum t.d. mjög
sammála um ágæti forsetans okk-
ar heitins, Kristjáns Eldjárns og
síðar Ingibjargar Sólrúnar borg-
arstjóra svo ég tali nú ekki um
Clinton forseta Bandaríkjanna og
frú Hillary.
Lauga og Ólafur fluttu sig um
set, minnkuðu við sig á flestum
sviðum þegar Ólafur hætti að
vinna upp úr sjötugu. Þá varð
heimili þeirra að Hellulandi 14 og
eftir andlát Ólafs flutti Lauga í
blokkaríbúð í Gautlandi og fyrir
tveimur árum fékk hún inni á
Hjúkrunarheimilinu að Sóltúni,
þar sem hún naut góðs atlætis þar
til yfir lauk. Lauga glímdi við erf-
ið veikindi um 10 ára skeið og
þurfti mikla aðstoð, sérstaklega
þegar hún bjó ein í Gautlandinu.
Ragnar sonur hennar og hans fjöl-
skylda sinnti henni af einstakri al-
úð og hlýju, sem varð til þess að
hún gat verið lengur heima hjá
sér en ella hefði verið.
Maður drúpir höfði á kveðju-
stund sem þessari í virðingu fyrir
andstæðunum, lífinu og dauðan-
um. Maður fellir tár og syrgir en
gleðst jafnframt yfir frelsinu sem
felst í dauðanum þegar ekki er
lengur vært í lúnum líkama.
Ef eitthvað bjátaði á hjá okkur
Laugu í áranna rás vorum við van-
ar að biðja hvor fyrir annarri og
nú ætla ég að biðja Guð um góða
heimferð fyrir Laugu tengdamóð-
ur mína. Guð veri ávallt með þér,
elsku Lauga mín, og hvíl þú í friði.
Þín tengdadóttir
Anna Harðardóttir.
Sigurlaug tengdamóðir mín lést
11. janúar síðastliðinn stuttu fyrir
88 ára afmælisdag sinn.
Sigurlaug eða Lauga eins og
hún var alltaf kölluð innan fjöl-
skyldunnar var sérlega falleg
kona sem bjó yfir mikilli reisn og
sterkum persónuleika. Hún var
mikil húsmóðir og góð heim að
sækja. Gestrisnin á heimili hennar
og Ólafs tengdaföður míns heitins
var mikil og ótrúlegt hvað hún gat
töfrað fram með engum fyrirvara
þegar gesti bar að garði. Minn-
isstæð eru jóla- og páskaboðin hjá
Ólafi og Laugu gegnum árin, þeg-
ar synir, tengdadætur og barna-
börn fjölmenntu til þeirra fyrst í
Hörgshlíðina og síðar í Helluland-
ið. Hún bjó fjölskyldu sinni ein-
staklega fallegt heimili enda mikill
fagurkeri og var garðvinna og
blómarækt hluti af þeim áhuga.
Mikla umhyggju bar Lauga fyrir
fjölskyldu sinni og barnabörnum
og fylgdist ávallt vel með hvað
hver og einn hafði fyrir stafni.
Áhugamál Laugu voru fjölmörg.
Fylgdist hún af áhuga með þjóð-
og heimsmálum og hafði sínar
fastmótuðu og ákveðnu skoðanir í
þeim efnum. Bókalestur veitti
Laugu margar ánægjustundir og
var með ólíkindum hvað yfirferð
hennar var mikil í þeim efnum.
Auk íslenskra bóka voru þær
enskar, danskar og þýskar enda
bjó hún yfir góðri tungumálakunn-
áttu. Lauga starfaði hjá Rauða
krossi Íslands sem sjúkravinur á
meðan kraftar entust. Hún var
lengi á bókasafni þeirra samtaka
og sameinaði þannig tvö áhugamál
sín, að sinna góðgerðarmálum og
miðla um leið af þekkingu sinni
um bækur. Tónlistin skipaði einn-
ig stóran sess í lífi Laugu og þá
sérstaklega klassísk tónlist og óp-
erur þar sem hún var vel heima.
Þá hafði hún mikið yndi af stutt-
um gönguferðum úti í náttúrunni.
Að anda að sér sjávarloftinu
fannst henni sérstaklega endur-
nærandi fyrir líkama og sál og
hefur hugurinn þá eflaust reikað
til æskuáranna á Vestfjörðum.
Fyrir um þremur árum varð
Lauga að flytja úr íbúð sinni
vegna heilsubrests og við það varð
talsverð breyting á högum hennar.
Sú breyting hafði margar jákvæð-
ar hliðar. Í Sóltúni þar sem hún
dvaldi síðustu árin hafði hún góða
aðstöðu og naut alveg einstakrar
hlýju og umhyggjusemi hjá öllu
hjúkrunar- og starfsfólki sem hún
náði góðum tengslum við. Við ætt-
ingjar Sigurlaugar þökkum öllu
þessa góða fólki fyrir hvað það
reyndist henni vel, alveg til hinstu
stundar. Við vitum að fyrir það
var hún mjög þakklát.
Nú, þegar komið er að kveðju-
stund og minningarnar hrannast
upp, er mér efst í huga þakklæti
fyrir að hafa orðið þeirrar gæfu
aðnjótandi að eiga þessa yndislegu
konu að. Hún var mér meira en
bara tengdamóðir, hún var einnig
vinkona sem ég á mikið að þakka.
Blessuð sé minning hennar.
Anna Jónsdóttir.
Elsku amma okkar. Það eru ótal
minningar sem rifjast upp nú þeg-
ar þú hefur kvatt okkur. Þær voru
margar og góðar stundirnar sem
við áttum saman. Við munum allt-
af minnast þín sem yndislegrar
ömmu sem fylgdist vel með öllu
því sem við tókum okkur fyrir
hendur, sama hvort það voru
áhugamálin eða námið. Þú varst
glæsileg kona og alltaf svo fín. Þér
var umhugað um að við bærum
okkur vel og værum kurteisar,
kenndir okkur að vera dömur.
Það var gaman að koma í Hellu-
landið og gista hjá þér og afa. Þið
áttuð fallegt heimili og mikið af
fallegum hlutum sem okkur fannst
gaman að skoða með þér. Alltaf
áttir þú jólaköku eða annað góð-
gæti handa okkur þegar við kom-
um í heimsókn. Þér var þó mikið í
mun að við borðuðum hollan mat
og sendir okkur reglulega fullan
poka af ávöxtum sem gladdi okkur
mikið. Þú spáðir í spil fyrir okkur,
kenndir okkur bænir og ljóð og
varst með okkur í garðinum að
laga beðin og tína rifsber. Okkur
leið vel með þér úti í náttúrunni
og fórum við oft saman í göngu-
túra og lautarferðir þar sem mikið
var sungið og hlegið.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
(Höf. ók.)
Elsku amma okkar, takk fyrir
allt.
Þínar
Brynja, Edda Björk og
Kristín Hildur.
Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýnduð
okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts
og útfarar elskulegrar móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Görðum,
Ægisíðu 52,
Reykjavík.
Ólafur Rúnar Jónsson, Steinunn María Valdimarsdóttir,
Ólöf Kristín Sigurðardóttir, Sigurþór Heimisson,
Dóra Ragnheiður Ólafsdóttir,
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Sigríður Ólafsdóttir,
Ólafur Már Ólafsson,
Kolbrún Hrund Ólafsdóttir,
Sigríður Regína Sigurþórsdóttir,
Ólafur Gísli Sigurþórsson,
tengdabörn og barnabarnabörn.
Hugheilar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður okkar, tengdaföður og afa,
JÓNS BJARNA ÓLAFSSONAR,
Borgarbraut 65a,
Borgarnesi.
Guð blessi ykkur öll.
Kristrún Jóna Jónsdóttir, Guðmundur Arason,
Sæmundur Jónsson, Kristín Anna Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
STEFÁNS ÞÓRÐARSONAR,
Reykjahlíð 10.
Sérstakar þakkir viljum við færa Jóni Eyjólfi
lækni, starfsfólki á öldrunardeild Landspítala
Fossvogi og á líknardeild Landspítala
Landakoti fyrir góða umönnun.
Ólöf Stefánsdóttir, Hannes Þór Ragnarsson,
Þóra María Stefánsdóttir,
Kristinn Stefánsson,
arnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, systir og amma,
ELÍN KATRÍN GUÐNADÓTTIR
frá Rifi,
sem lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi við
Hringbraut að kvöldi mánudagsins 17. janúar,
verður jarðsungin frá Búðakirkju, Staðarsveit,
miðvikudaginn 26. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á Slysavarnadeildina Björg, Hellissandi.
Bjarni Gunnarsson,
Helgi Már Bjarnason, Linda Rut Svansdóttir,
Rúna Lísa Bjarnadóttir,
Bjarki Heiðar Harðarson, Guðmunda Jónsdóttir,
Hafdís Magnúsdóttir, Magnús S. Magnússon,
Jóhanna Marteinsdóttir, Smári Hilmarsson
og barnabörn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
PÉTURS V. SIGURÐSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við félögum hans í
Glímufélagi Ármanns sem heiðruðu minningu
hans.
Arnheiður Hjartardóttir,
Sigrún Hjördís Pétursdóttir, Kristinn Kristjánsson,
Sigurður J. Pétursson,
Sverrir Pétur Pétursson, Ólöf Birna Garðarsdóttir,
Kristín Pétursdóttir, Brynjólfur Smárason
og barnabörn.
Skemmuvegi 48, Kópavogi.
Simi 5576677
www.steinsmidjan.is