Morgunblaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Elín KatrínGuðnadóttir fæddist í Stykkis- hólmi 15. mars 1945. Hún lést á LSH við Hringbraut 17. jan- úar síðastliðinn. Móð- ir hennar var Helga Guðnadóttir, f. 3. jan- úar 1928, d. 11. des- ember 1979, og fóst- urfaðir var Marteinn Jónasson fv. skip- stjóri, f. 28. septem- ber 1916, d. 14. októ- ber 1987. Systur Elínar Katrínar eru: Hafdís Magnúsdótt- ir, gift Magnúsi S. Magnússyni, börn þeirra eru Helga Bryndís og Ragnar Ingi, og Jóhanna H. Mar- teinsdóttir, gift Smára Hilmars- syni, börn þeirra eru Marteinn Ingi og Thelma. Fyrri maður Elín- ar Katrínar var Hörður Heiðar Jóns- son, þau slitu sam- vistir. Sonur þeirra er Bjarki Heiðar, maki Guðmunda Jónsdóttir, dætur þeirra eru; Guðný Svava, Heiðdís María og Elín Katr- ín. Seinni maður El- ínar Katrínar er Bjarni Gunnarsson skipstjóri. Börn þeirra eru Helgi Már, unnusta Linda Rut Svansdóttir, og Rúna Lísa. Útför Elínar Katrínar fer fram frá Búðakirkju í Staðarsveit í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku Ella systir. Stríðinu er lokið, hetjuleg barátta þín við krabbameinið tók ekki lang- an tíma. Við vissum að þetta yrði erfitt en ekki grunaði okkur að þetta yrði svona stutt, tók ekki nema sex mánuði. Þú kenndir okkur svo margt á þessum mánuðum og síðustu vikuna lærði ég meira en á mörgum árum. Það hugrekki og æðruleysi sem þú sýndir var með ólíkindum og alltaf vissi ég hvert svarið yrði þegar ég spurði þig hvernig þú hefðir það. Svarið var ávallt: „Ég er stálslegin, það er ekkert að mér.“ Þú kenndir okkur hvað það er nauðsynlegt að eiga fjölskyldu sem getur staðið þétt saman á svona stundum og í mínum huga er eng- inn efi að þú vildir gefa okkur þessa viku í lokin til að undirbúa okkur í sameiningu, undir styrkri stjórn Bemba. Hann stóð eins og klettur í brúnni og vék aldrei frá og bar líð- an þína og okkar allra mjög fyrir brjósti. Á meðan á veikindunum stóð misstir þú aldrei þitt einkenni sem var húmorinn. Alltaf svaraðir þú okkur með einhverju gríni eða glensi, alveg sama hversu þjáð þú varst, og reyndum við að halda þeim anda allan tímann sem við sát- um hjá þér síðustu vikuna. Þú hefur örugglega verið hlæjandi að öllu þessu gríni okkar, allt þar til yfir lauk. Þó 20 ára aldursmunur væri á okkur þá talaðir þú alltaf við mig eins og við værum jafnaldrar þó stundum segðir þú við mig að ég væri nú „lillan“ af okkur systrunum og minntir mig á ýmis atvik úr bernsku þegar þú varst að passa mig, litla barnið. Oft var glatt á hjalla þegar við systurnar þrjár, þú, ég og Hafdís, hittumst yfir kaffibolla. Þá flugu margar grínsögurnar og rifjuðum við iðulega upp ýmis prakkarastrik sem við höfðum framkvæmt saman eða hver við aðra. Þar varst þú yfir- leitt fremst í flokki. Þú tókst að þér að „reyna“ að kenna mér réttu handtökin í fisk- vinnslu þegar ég var ung að árum, þú vildir að ég lærði þetta því okkur væru þessi handbrögð í blóð borin. Þú varst óþreytandi að standa með mér dag eftir dag og sýna mér hvernig þetta væri gert. Ekki var nú bónusinn mikill hjá okkur það sumarið enda gekk mér ákaflega illa að ná þessum fimu handbrögð- um sem þú kunnir svo vel. En ekki gafst þú upp á mér, litlu systur. Þú sagðist viss um að þetta tækist fyrir rest. Það er mikil sorg og söknuður í hjörtum okkar allra en við ætlum að standa þétt saman og styðja hvert annað. Við Smári skulum eftir fremsta megni reyna að hjálpa Bemba og krökkunum þau þungu spor sem framundan eru. Hetja er fallin frá, ættmóðirin sjálf eins og við kölluðum þig oft, og við hin tökum ofan og lútum höfði. Mig langar að þakka öllu því yndislega hjúkrunarfólki og starfs- fólki sem starfar á deildum 11E og 11G á Landspítalanum við Hring- braut fyrir þá góðu umönnun sem það veitti Ellu þann tíma sem hún dvaldi þar og ekki síður þá hlýju og hjálpsemi sem það sýndi okkur fjöl- skyldunni síðustu vikuna sem við vorum hjá henni. Guð geymi okkur öll. Þín systir, Hanna Dóra. Ella Kata er dáin, það er komin kveðjustund, nú svo löngu áður en nokkur er tilbúinn til að kveðja. Við hugsum til baka og þökkum þær stundir sem við áttum saman og þær góðu minningar sem við eig- um eftir. Það er mikil gæfa þegar fólk finnur ástina, og eignast um leið sinn besta vin og félaga, það hlotn- aðist Ellu og Bemba. Ella var svo skemmtileg og spaugsöm, hún gat alltaf kallað fram bros, og Bembi, þessi trausti klettur í hafinu, það var eins og þau löðuðu fram það besta hvort hjá öðru. Þau komu sér upp fallegu húsi í Rifi og sést þar í verki hve samhent þau voru. Þau nutu þess að búa sér og sínum nota- legt heimili, þar sem gömlu góðu gildin voru í heiðri höfð. Ella naut þess að geta verið heima og snúist í kringum Bemba og börnin sín, hún bar þau öll á höndum sér, var alltaf til staðar og hugsaði fyrir öllu. Og við sem áttum leið um gátum alltaf komið við í kaffi, gott spjall og vel útilátið af brosi og bakkelsi. Það geislaði af Ellu gleðin þegar hún sagði frá afrekum krakkanna, þótt hún reyndi að setja upp alvarlegan svip þegar prakkarastrikin bar á góma, þá átti hún mjög erfitt með að leyna brosinu, hún hafði svo gaman af uppátækjunum og axar- sköftunum sem þau gátu fundið upp á, fjölskyldan hennar var henni allt. Okkur var öllum brugðið í sumar þegar það varð ljóst að „ótuktin“ hafði gert sig heimakomna hjá Ellu Kötu. Enn vanmáttugri erum við nú þegar Ella hefur lotið í lægra haldi fyrir þessum vágesti, þrátt fyrir hetjulega baráttu með fjölskylduna sér við hlið. Elsku Bembi, Ella gaf þér yndis- lega fjölskyldu og ómetanlegar minningar sem þú átt nú eftir þegar hún hverfur á braut. Missirinn er mikill og söknuðurinn sár, en við biðjum góðan Guð að gefa öllum ástvinum Ellu styrk til að lifa með sorginni án þess að hún skyggi á góðar minningar um yndislega eig- inkonu, mömmu, ömmu, tengda- mömmu, systur, mágkonu, frænku en ekki síður góðan vin og skemmtilegan félaga, konu sem stóð með sínum gegnum súrt og sætt. Ellu Kötu kveðjum við öll með söknuði og þökkum fyrir allt og allt. Algóður Guð þín gætir nú, hann gefur okkur styrk og veitir öllum von og trú er veröldin er myrk. Hann lýsir leið á lífsins braut og ljósið þerrar tár. Hann sefar sorg, hann linar þraut hann læknar hjartasár. Hans elsku þiggjum þúsundfalt þá ást sem felst í trú. Við kveðjum þig og þökkum allt þig drottni felum nú. (Eva Ásrún Albertsdóttir.) Tengdafjölskyldan frá Böðvarsholti. Nú þegar dimmasta skammdegið er að baki og daginn farið að lengja kvaddi þennan heim frænka mín og vinkona, hún Elín Katrín, eða Ella Kata eins og ég hef alltaf kallað hana. Við kynntumst sem litlar stúlkur í Hrísdal hjá ömmu minni og afa. Þar var hún um nokkurra ára skeið með móðurafa sínum, Guðna, en amma mín, hún Margrét í Hrísdal, var ömmusystir Ellu Kötu. Í heimsóknum mínum í Hrís- dal var það tilhlökkunarefni að hitta frænku mína. Mér fannst hún svo skemmtileg og þá fékk ég að fara upp á loftið, þar sem hún hafði her- bergi með afa sínum. Fyrir ferm- ingu fór Ella Kata til Reykjavíkur til móður sinnar og þá slitnaði þráð- urinn um þó nokkurn tíma. En allt- af vissi ég hvar hún var, þótt ekki hefðum við samband. Aftur áttu leiðir okkar eftir að liggja saman, þegar hún kemur vestur í Staðarsveit í vinnu. Þar kynnist hún sínum góða lífsföru- naut, honum Bjarna frá Böðvars- holti, og flytja þau vestur í Rif, þar sem Bjarni gerðist skipstjóri. Þar bjó hún honum og börnunum, þeim Helga Má og Rúnu Lísu, gott heim- ili. Á heimili þeirra Ellu Kötu og Bemba var gott að koma. Þar var spjallað um menn og málefni og ekki kom maður að tómum kof- unum hjá Ellu Kötu, hún hafði ákveðnar skoðanir og ekki síður skemmtilegar á öllu sem um var rætt. Hún hafði einstakan hæfileika til að sjá alltaf skemmtilegu hlið- arnar á öllum málum, sagði skemmtilega frá og hafði svo smit- andi hlátur, að allir hrifust með. Mörg voru þau kvöldin sem við töl- uðumst við í síma og alltaf var mað- ur í góðu skapi þegar símtalinu lauk. Margar ferðirnar voru einnig farnar út í Rif og alltaf var maður velkominn. Þá var yndislegt að sitja í sólskálanum hjá þeim hjónum og spjalla yfir kaffibolla með Snæfells- jökul og allan fjallahringinn í kring. Hún Ella Kata var afskaplega vinmörg og margir komu í heim- sókn til hennar. Kom það til af því að hún átti svo gott með að tala við alla og var svo mikill félagi, allir fóru glaðir af hennar fundi. En nú er skarð fyrir skildi. Ekki eru nema sex mánuðir frá því að hún greindist með illkynja sjúkdóm. Hún var því að mestu á sjúkrahúsi frá því í endaðan ágúst. Alltaf var hún vongóð og reyndi að halda í vonina um að kraftaverkið gerðist, undir niðri veit ég að hún var með- vituð um að hverju drægi. Elsku Ella Kata, ég er þakklát fyrir þá stund, sem við áttum sam- an nokkrum dögum fyrir andlát þitt, þá varst þú hress, en næsta dag varst þú orðin fársjúk. Elsku Bjarni, Rúna Lísa, Helgi Már, Bjarki og fjölskylda, þið eigið öll góðar og skemmtilegar minn- ingar um ykkar elskulegu eigin- konu, móður, systur, ömmu og vin, sem mildar ykkur sorgina og verð- ur ykkur ljós á veginum framundan. Kæra frænka, hafðu þökk fyrir allt og guð geymi þig. Gréta. Elsku Ella frænka. Það er svo margt sem ég get skrifað til minningar um þig. Ég man svo vel eftir þegar ég fór stundum til þín á sumrin þegar ég var yngri og var hjá ykkur í viku eða svo. Þá var nú margt sem við gerðum saman, þú og ég. Fórum í búðina, skoðuðum kríurnar, fórum í bíltúra, berjamó og margt fleira. Þú sýndir mér Rif og sveitina alla og fræddir mig um alla mögulega hluti. Þú varst alltaf svo hress og skemmtileg og hafðir gaman af öllu gríni og glensi. Alltaf þegar þú hringdir heim og ég svaraði, þá spurðir þú mig hvað væri að frétta af mér, hvað ég væri að gera og hvernig gengi. Þú hafðir áhuga á því öllu. Ég á alltaf eftir að sakna þín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þín systurdóttir, Thelma. Ég trúi varla að þú sért farin en nú ertu komin á betri stað. Seinustu mánuðir hafa verið erfiðir og lítið um gleðidaga og því þakka ég fyrir stundirnar sem við áttum saman annan í jólum. Ég man þegar ég var yngri og kom alltaf vestur á sumrin til ykkar. Mér fannst Rif vera nafli alheimsins, og þegar það kom að því að fara aftur heim vildi ég það engan veginn. Ég þakka fyrir allar samverustundirnar og ferðalögin sem ég fór með ykkur í. Mér finnst svo sárt að hugsa til þess að sjá þig ekki aftur og sakna þín gífurlega. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Ég elska þig að eilífu. Þín systur- dóttir, Helga Bryndís. Í dag kveðjum við góða vinkonu og samstarfskonu Elínu Katrínu Guðnadóttur sem lést 17. janúar sl. eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu. Ella Kata hóf störf hjá Sjávariðj- unni Rifi sumarið 1997 og setti hún fljótt mark sitt á andrúmsloftið með sinni einstöku glaðværð. Hún hafði góða kímnigáfu og hafði alltaf hnyttnar athugasemdir og tilsvör á reiðum höndum. Á kaffistofunni sem og annars staðar var hún hrókur alls fagn- aðar. Hún hafði brennandi áhuga á þjóðmálum, fylgdist vel með og hafði ákveðnar skoðanir. Hún vildi hag sinnar heimabyggðar sem mestan og lét sig varða það sem þar var efst á baugi hverju sinni. Deilur og þras var ekki að hennar skapi og beitti hún sér fyrir sáttum ef svo bar undir. Sumarið 1999 dvöldu hjá okkur daglangt franskir kvikmyndagerð- armenn sem voru að gera heimild- armynd um Halldór Laxness. Beindu þeir vélum sínum oftast að Ellu Kötu og í myndinni líkja þeir henni við Sölku Völku. Þessi minnig yljar okkur nú um hjartarætur. Síðasta samverustund okkar með henni var í óvissuferð fyrirtækisins sl. sumar inn í eyjar. Þar lék Ella Kata á als oddi, sagði gamansögur og reytti af sér brandara. Ella Kata tók veikindum sínum af miklu æðruleysi og þótt hún sjálf væri fársjúk síðustu vikur var henni umhugað um hvernig aðrir hefðu það. Við þökkum Ellu Kötu samfylgd- ina og samstarfið, hennar verður sárt saknað. Elsku Bembi, Helgi Már, Rúna Lísa og aðrir aðstandendur, megi Guð vaka yfir ykkur og veita ykkur styrk á erfiðum tímum. Samstarfsfólk Sjávariðjunni Rifi hf. Elsku Ella Kata. Ég vil kveðja þig með fáeinum orðum og þakka þér fyrir allar sam- verustundirnar. Þú varst svo mikið hjá okkur hjónum í Stykkishólmi, til að hjálpa mér að passa börn, fara í sendiferðir og bara vera hjá mér, því vegna vinnu eiginmanns míns var ég oft ein með vaxandi barna- hóp. Þú varst ekki gömul þegar þú komst fyrst, tæplega 10 ára, og svo af og til fram að unglingsárunum. Okkur þótti gott að hafa þig svona stálpaða stelpu og þú varst sannur gleðigjafi, alltaf í góðu skapi og allt- af til í smáprakkaraskap. Ég man þegar ég sendi þig og Þuríði vin- konu þína með nesti í beitiskúrinn til bónda míns, þá var nú hug- myndaflugið í lagi og voru karlarnir í skúrnum lengi hlæjandi á eftir og höfðu á orði að þessar litlu hnátur yrðu einhvern tímann miklar val- kyrjur. Ég þakka þér allar heimsóknirn- ar þegar þið Hörður bjugguð í Grundarfirði og þú keyrðir leigubíl. ELÍN KATRÍN GUÐNADÓTTIR Ég elska þig amma Ella og mig langar að kyssa þig oft. Bless. Elín Katrín. Góði Guð. Passaðu ömmu uppi á himni og láttu henni líða vel hjá þér. Viltu skila bæninni til hennar og viltu láta mig sjá ömmu einn dag á lífi og ekki vera veika. Sérstaklega leyfðu mér að knúsa og kyssa hana. Viltu láta pabba, afa Bemba, Helga, Rúnu, Lindu, mömmu, Ellu litlu, Guðnýju og öllum sem amma Ella þekkti líða vel. Amen. Heiðdís María. Elsku Ella Kata. Nú hefur þú kvatt eftir erfið veikindi. Takk fyrir það sem þú gafst okkur, með því að vera þú sjálf. Þú varst ekki allra, en við eigum margar góðar minn- ingar, um skemmtilegar sam- verustundir með þér. Guð geymi þig og vaki yfir eiginmanni þínum, börnunum og fjölskyldunni allri. Þess óska þínir kunningjar, Arnheiður og Kristján. HINSTA KVEÐJA Útför ástkærrar móður okkar, KRISTÍNAR J. ÞORSTEINSDÓTTUR frá Eskifirði, síðast búsett í Reykjavík, fer fram frá Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn þann 27. janúar klukkan 15.00. Marteinn Þór Viggósson, Perla Guðmundsdóttir, Þorsteinn Freyr Viggósson, Gytte Viggósson, Kristín Ágústa Viggósdóttir, Birgir Dýrfjörð, Sigurður Líndal Viggósson, Bryndís Sigurjónsdóttir, Sigvaldi Viggósson, Þórunn Guðmundsdóttir, Unnur Rósa Viggósdóttir, Eiríkur Þorsteinsson, Sigfús Smári Viggósson, María Guðmundsdóttir, Haukur Viggósson, Sigríður Sigurðardóttir, Anton Viggó Viggósson, Katrín Stefánsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.