Morgunblaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Heiðarvegi
15, Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 3. febrúar 2005 kl. 9:30
á eftirfarandi eignum:
Ásavegur 7, íbúð 01-0001, þingl. eig. Auður Einarsdóttir, gerðarbeið-
andi Ríkisútvarpið, innheimtudeild.
Áshamar 63, fnr. 218-2513, þingl. eig. Sverrir Fannbergsson, gerðar-
beiðandi Fróði hf.
Boðaslóð 7, efri hæð, þingl. eig. Bogi Hreinsson, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður.
Foldahraun 37G, þingl. eig. Jóhann Pálmason, gerðarbeiðandi Íbúða-
lánasjóður.
Heiðarvegur 7, neðri hæð, þingl. eig. Anna Sigmarsdóttir, gerðarb-
eiðandi Vestmannaeyjabær.
Skúli fógeti VE-185 (skipaskrárnr. 1082), þingl. eig. Daníel Þorsteins-
son og Co ehf., gerðarbeiðandi Tollstjórinn í Reykjavík.
Vestmannabraut 49, þingl. eig. Guðný Svava Gísladóttir, gerðarbeið-
andi Kaupþing Búnaðarbanki hf.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
25. janúar 2005.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Birkihlíð 20, jarðhæð, 218-2701, þingl. eig. Árni Sigurður Pétursson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 2. febrúar 2005
kl. 15:00.
Birkihlíð 26, efri hæð og ris, 218-2709, 50% eignarhluti gerðarþola,
þingl. eig. Guðmundur Ingi Jóhannesson, gerðarbeiðendur Íslands-
banki-FBA hf. og Sparisjóður Hafnarfjarðar, miðvikudaginn 2. febrúar
2005 kl. 14:00.
Foldahraun 41, 2. hæð E, þingl. eig. Hanna Jóhannsdóttir, gerðarbeið-
andi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 2. febrúar 2005 kl. 14:30.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
25. janúar 2005.
Atvinnuauglýsingar
Óskum að ráða til starfa:
Trésmiði
Upplýsingar um störfin og
umsóknareyðublöð á skrifstofu
ÍSTAKS, Engjateigi 7
og í síma 530 2700
á skrifstofutíma kl. 8:15 - 17
www.istak.is
Sölumaður
Við hjá Timberland, sem er verslun með fatnað
og skó fyrir dömur, herra og börn, erum að
leita eftir hressum starfskrafti í sölustarf.
Vinnutími tveir til þrír eftirmiðdagar og einn
laugardagur í mánuði.
Upplýsingar gefur verslunarstjóri á staðnum.
Æskilegt er að leggja inn umsókn með mynd.
Timberland,
Kringlunni 8-12,
103 Reykjavík.
Tilkynningar
Tannlæknir
Hef flutt tannlæknastofu mína í Síðumúla 15,
Reykjavík.
Vegna bilunar í tölvubúnaði eru fastir við-
skiptavinir beðnir um að hafa samband.
Trausti Sigurðsson,
sími 553 1966.
Auglýsing
Tillaga að breytingu á Svæðisskipulagi
miðhálendis Íslands 2015 á svæðinu
sunnan Hofsjökuls
Samvinnunefnd miðhálendis auglýsir tillögu að
breytingu á Svæðisskipulagi miðhálendis Íslands
2015 er tekur til landsvæðis sunnan Hofsjökuls í
samræmi við óskir sveitarstjórna á svæðinu. Auglýs-
ingin er skv. 14. gr. a sbr. 13. gr. a í skipulags- og
byggingarlögum nr. 73/1997 m.s.br.
Gerð er tillaga um eftirfarandi breytingar
á svæðisskipulaginu:
A. Orkuvinnsla
Norðlingaölduveita, Ásahr., Rangárþing
ytra, Rang., Skeiða- og Gnúpverjahr., Árn.
Breytingar á Svæðisskipulagi miðhálendis 2015
er taka til Norðlingaölduveitu eru í samræmi við
úrskurð Jóns Kristjánssonar setts umhverfisráðher-
ra frá 30. janúar 2003 á mati á umhverfisáhrifum
Norðlingaölduveitu. Framkvæmdasvæðin skiptast
í meginatriðum í tvennt. Annar hluti þeirra er Norð-
lingaöldulón með tilheyrandi leiðiskurðum og að-
rennslisgöngum. Hinn hlutinn eru tvö lón norðaust-
an friðlands Þjórsárvera og er mótvægisaðgerð
vegna aursöfnunar í Norðlingaöldulóni.
Nýting jarðvarma
Hágöngur - Köldukvíslarbotnar, Holta-
mannaafrétti, Ásahr., Rang.
Gert er ráð fyrir nýtingu jarðvarma við Hágöngur.
Með rannsóknum hefur verið staðfest að undir nú-
verandi Hágöngulóni, Sveðju- hrauni og undirlendi
suðvestan Kvíslarhnjúka er öflugt háhitasvæði sem
nýta má til raforkuvinnslu. Framkvæmd er háð mati
á umhverfisáhrifum.
Háspennulínur
Háspennulína frá jarðvarmavirkjun við
Hágöngur, Holtamannaafrétti, Ásahr.,
Rang.
Tenging að Sprengisandslínu. Gert er ráð fyrir að
byggðar verði tvær 420/245 kV háspennulínur að
Sprengisandslínu.
B. Náttúruvernd
1. Ný útfærsla að Norðlingaölduveitu gerir ráð fyrir
að almennt verndarsvæði stækki að austanverðu
að Norðlingaöldulóni og að vestanverðu stækkar
náttúruverndarsvæði að fyrirhuguðu orkuvinnslu-
svæði. Almenn verndarsvæði breytist í fyrirhugað
orkuvinnslusvæði vegna Grjótakvíslalóns og veitu
um Kjalöldu. Norðaustan friðlandsins í Þjórsárver-
um er gert ráð fyrir að verndarsvæði breytist í fyrir-
huguð orkuvinnslusvæði.
2. Breyting verður við Hágöngur vegna nýtingar
jarðvarma, gert er ráð fyrir að almenn verndarsvæði
við Hágöngulón breytast í fyrirhuguð orkuvinnsla
jarðhita.
C. Samgöngur
1. Tenging yfir Þjórsá.
Í samræmi við staðfest Svæðisskipulag miðhálendis
Íslands 2015 er lagður uppbyggður vegur í flokki
fjallvega frá núverandi Sprengisandsleið að mann-
virkjum við Norðlingaöldulón, breytingar verða á
legu vegar vestan við Illugaver á um 2 km kafla.
Gert er ráð fyrir akfærri brú yfir stífluna.
2. Hágönguleið, Vonarskarð - Sveðjuhraun,
Holtamannaafrétti, Ásahr., Rang.
Leiðrétting er gerð á korti á núverandi vegi að Há-
göngum og hann færður inn eftir nákvæmari grunn-
korti.
3. Leiðréttingar eru gerðar
á legu aðalfjallvegar milli Hágangna og núverandi
Sprengisandsleiðar sem er færður til suðurs í sam-
ræmi við nýjar mælingar og betri skipulagsgögn.
4. Kerlingafjöll - Norðlingaalda, Skeiða-
og Gnúpverjahr., Hrunamannahr.
Gert er ráð fyrir að núverandi einkavegur norðan
Kerlingafjalla að Norðlingaöldu sunnan Þjórsárvera
færist í flokk fjallvega.
5. Leppistungur - Bjarnalækjarbotnar,
Skeiða- og Gnúpverjahr., Hrunamannahr.
Gert er ráð fyrir að fyrirhugaður vegur á milli Bjarna-
lækjarbotna og Leppistungna færist til suðurs og
tengist núverandi afréttarvegi um Hrunamannaaf-
rétt.
D. Ferðamál
Hálendismiðstöð í Kerlingafjöllum, Hruna-
mannahr.
Gert er ráð fyrir að skálasvæði í Kerlingafjöllum
verði fært upp um flokk og verði hálendismiðstöð.
Markmið með breytingu á flokkun Kerlingafjalla
í hálendismiðstöð er að mæta fjölgun ferðamanna
sem njóta vilja svæðisins um leið og ætlunin er að
gera svæðið heilsteyptara og hagkvæmara í rekstri.
Breytingartillagan verður til sýnis á skrif-
stofutíma á eftirtöldum stöðum frá og með
mið- vikudeginum 26. janúar til og með miðvik-
udagsins 23. febrúar 2005.
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík
Skrifstofu skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu,
Dalbraut 12, Laugarvatni
Skrifstofu Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Árnesi
Skrifstofu Hrunamannahrepps, Flúðum
Skrifstofu Ásahrepps, Laugalandi í Holtum
Skrifstofu Rangárþings ytra, Laufskálum 2, Hellu
Sýslumanninum Seyðisfirði, Bjólfsgötu 7,
Seyðisfirði
Sýslumanninum á Höfn, Hafnarbraut 36, Höfn
Sýslumanninum á Selfossi, Hörðuvöllum 1,
Selfossi
Sýslumanninum í Keflavík, Vatnsnesvegi 33,
Keflavík
Þjóðarbókhlöðunni, Arngrímsgötu 3, Reykjavík
Sýslumanninum í Kópavogi, Dalvegi 18, Kópavogi
Sýslumanninum á Akureyri, Hafnarstræti 107,
Akureyri
Sýslumanninum á Ísafirði, Stjórnsýsluhúsinu,
Hafnarstræti 1, Ísafirði
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér gefinn kostur á að gera athugasemdir
við breytingartillöguna. Frestur til þess að skila inn skriflegum athugasemdum rennur út
miðvikudaginn 9. mars 2005.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu samvinnunefndar miðhálendis á Skúlagötu 21,
101 Reykjavík.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest, teljast
samþykkir henni.
Óskar Bergsson, formaður samvinnunefndar miðhálendis.
Félagslíf
Njörður 6005012619 III Hfj.
HELGAFELL 6005012619 VI
I.O.O.F.1818512688½ I*
I.O.O.F. 9 1851268½ Kk
I.O.O.F. 7 1851267½ O
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Amma/dagmamma
Við erum tveir eins árs strákar sem vantar barn-
góða, vana „ömmu“ til að passa okkur. Mamma
vinnur frá kl. 9—14. Endilega hafðu samband
við mömmu í síma 565 9596, evah@siminn.is.