Morgunblaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2005 15 ERLENT Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Prag 15. mars Kr.19.990 Flugsæti m.v. 2 fyrir 1. Netverð. Róm 12. maí Kr. 39.990 Flugsæti með sköttum. Netverð. Dubrovnik 12. maí Kr. 39.990 Flugsæti með sköttum. Netverð. Búdapest 25. apríl Kr. 28.890 Flugsæti með sköttum. mánud. til fimmtud. Netverð. Sorrento 19. maí Kr. 39.710 Flugsæti með sköttum. Netverð. Barcelona 17. apríl Kr. 36.910 Flugsæti með sköttum. Netverð. STJÓRNVÖLD í Indónesíu áætla nú, að allt að 220.000 manns hafi farist í hamför- unum í Suður-Asíu fyrir mánuði og er þá heildartalan þar og í öðrum löndum við Indlandshaf komin í 280.000 manns. Fadilah Supari, heilbrigðisráðherra Indónesíu, sagði, að í þessari nýju tölu væru jafnt þeir, sem hefðu fundist látnir, rúmlega 96.000 manns, og þeir, sem enn væri saknað, um 132.000 manns. Stefnt er að því að halda áfram skipulegri leit að lík- um í mánuð enn þótt ljóst þyki, að líkams- leifar margra, jafnvel nokkurra tuga þús- unda manna, muni aldrei finnast. Viðkomandi fólk verður þó ekki formlega talið látið fyrr en að ári liðnu. Mikill eldur í Banda Aceh Manntjónið í Indónesíu er að lang- mestu leyti í Aceh-héraði á Súmötru og of- an á allar hörmungarnar þar geisaði í gær mikill eldur í rústum höfuðborgarinnar, Banda Aceh. Kynti mikill vindur undir honum og öðru hverju kváðu við miklar sprengingar í gaskútum. Í gær hafði eld- urinn brunnið í sólarhring og borgarbúar, sem lifðu af flóðbylgjuna, voru margir flúnir. Talið er, að allt að hálf milljón barna í Aceh þjáist af þunglyndi, kvíða og svefnt- ruflunum af völdum hamfaranna og ást- vinamissisins en í héraðinu eru aðeins fimm sálfræðingar. Er óttast, að alls kon- ar geðkvillar og aðrir erfiðleikar muni gera vart við sig hjá þeim og öðru fólki á næstu mánuðum og árum. Talið að yfir 280.000 hafi farist í hamförunum Minnst 220.000 eru sögð hafa farist í flóðbylgjunni í Indónesíu einni Reuters Kona í Aceh á Súmötru með son sinn við leifarnar af húsi fjölskyldunnar sem eyðilagðist í flóðbylgjunni. Jakarta. AP, AFP. ÞESS var minnst víða um heim í gær að á morgun verða liðin 60 ár frá frelsun Auschwitz-fangabúð- anna árið 1945 en um ein og hálf milljón gyðinga lét lífið í gasklef- um nasista í seinni heimsstyrjöld. Talið er að allt að sex milljónir gyðinga hafi látið lífið í ofsóknum nasista og bandamanna þeirra auk milljónar sígauna, samkyn- hneigðra, fatlaðra og fjölda ann- arra sem nasistar töldu réttdræpa. „Við segjum með réttu: aldrei aft- ur. En erfiðara reynist að fylgja orðum eftir með athöfnum. Ríki heims hafa, eftir að Helförinni lauk, sér til vansæmdar oftar en einu sinni látið hjá líða að koma í veg fyrir þjóðarmorð – til dæmis í Kambódíu, í Rúanda og í löndum fyrrverandi Júgóslavíu,“ sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, í gær. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, heiðraði í gær minn- ingu fórnarlambanna í Auschwitz, sem er á svæði er nú tilheyrir Pól- landi. Hann sagði nasista hafa haft mikinn stuðning í Þýskalandi og hét því að Þjóðverjar myndu ekki gleyma glæpum stjórnar Adolfs Hitlers. „Ég stend frammi fyrir ykkur sem fulltrúi lýðræðislegs Þýska- lands,“ sagði kanslarinn á sam- komu í Berlín en viðstaddir voru m.a. nokkrir sem lifðu af vistina í Auschwitz. „Ég blygðast mín vegna hinna myrtu – og einkum frammi fyrir ykkur sem lifðuð af vítisdvölina í einangrunarbúðun- um.“ Enn til gyðingahatur Minningarstofnun um Helförina verður opnuð í Berlín í maí og er hún við Brandenborgarhliðið. Schröder sagði leiðtoga Þýska- lands myndu beita sér fyrir því að vernda gyðinga í landinu en þeim hefur fjölgað síðustu árin. „Það er ekki hægt að neita því að enn sé til gyðingahatur. Baráttan gegn því er hlutverk allra í samfélaginu,“ sagði hann. Israel Singer, forseti Heimssam- bands gyðinga, fordæmdi í ræðu sinni á samkomunni viðhorf sem hann sagði gyðinga mæta í Evr- ópu. Sagði Singer að þær lexíur sem lærst hefðu af Helförinni væru teknar að gleymast. Því væri nú víða haldið fram að fólk væri búið að fá nóg af Helfarartalinu og þeir sem neituðu því að glæpirnir hefðu í reynd verið framdir fengju óáreittir að breiða út þann boð- skap. „Og við sjáum að unga kynslóðin í Evrópu hefur ekki skilning á Helförinni,“ sagði Singer, að því er virtist með skírskotun til þess er Harry Bretaprins bar hakakross- armband í teiti fyrir skömmu. „Ég blygðast mín vegna hinna myrtu“ Schröder heitir því að Þjóðverjar muni ekki gleyma Helförinni Berlín, París, SÞ. AFP, AP. AP Gyðingur í Jerúsalem skoðar myndir af fórnarlömbum ofsókna nasista í Auschwitz. Myndirnar voru teknar sama dag og sovéskar hersveitir frels- uðu búðirnar 1945. Um ein og hálf milljón manna var myrt í Auschwitz. STJÓRN Anders Fogh Rasmussen styrkir stöðu sína í kosningunum sem fram fara í Danmörku 8. febrúar ef marka má skoðanakönnun sem birt var í gær. Samkvæmt könnun Gallup fyrir Berlingske Tidende munu stjórnarflokkarnir tveir og Danski þjóðarflokkurinn, DF, fá 102 menn kjörna en 179 fulltrúar sitja á þingi Dana. Flokkar þessir fengu samtals 98 sæti í kosningunum 2001 og myndu því bæta við sig fjórum sætum. Venstre, frjálslyndur flokkur for- sætisráðherrans þrátt fyrir nafnið, og Íhaldsflokkurinn eru við völd en DF, sem er lengst til hægri á þingi, styður og stjórnina. Raunar myndu Venstre og Radik- ale Venstre, RV, teljast sigurvegarar kosninganna samkvæmt könnuninni. Flokkur Foghs bætir við sig sex mönnum og RV fengju nú fjórtán menn en fengu níu 2001. Þar með gætu stjórnarflokkarnir tveir boðið miðjuflokknum RV að eiga við þá samstarf og mynda meirihlutastjórn án stuðnings Þjóðarflokksins. Slík stjórn hefði 93 menn á þingi. Reynist könnun Berlingske Tid- ende rétt verða jafnaðarmenn fyrir áfalli í kosningunum. Því er spáð að þeir fái 47 menn og tapi fimm fulltrú- um sem yrði versta útkoma flokksins frá 1973. Samtals fær stjórnarand- staðan 73 menn í könnuninni. Þeir fjórir sem eftir eru af 179 þingfulltrú- um skiptast jafnt á milli Færeyinga og Grænlendinga. Lykketoft í miklum vanda Könnunin þykir sýna vel veika stöðu jafnaðarmanna og einkum for- ingja þeirra, Mogens Lykketofts. Um liðna helgi sneri Paul Nyrup Ras- mussen aftur til Danmerkur til að taka þátt í kosningabaráttu Jafnaðar- mannaflokksins en Nyrup, sem var forðum forsætisráðherra, situr nú á þingi Evrópusambandsins. Mjög er deilt um forystuhæfileika Lykketofts innan flokksins og sjálfur hefur hann viðurkennt að á „brattann [sé] að sækja“. Aukið fylgi við Fogh

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.