Morgunblaðið - 08.02.2005, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2005 7
FRÉTTIR
ÁFALLIN lífeyrisskuldbinding
vegna Lífeyrissjóða alþingismanna
og ráðherra nam tæpum 6,7 millj-
örðum króna í árslok 2003 þegar
sjóðirnir voru lagðir niður og skuld-
bindingar þeirra formlega færðar yf-
ir á ríkissjóð. Eignir sjóðanna til
þess að mæta þessum skuldbinding-
um voru hverfandi eða innan við 300
milljónir króna, sem er um og innan
við 4% af skuldbindingum sjóðanna
vegna þessara réttinda.
Sjóðirnir voru lagðir niður þegar
ný lög um eftirlaun forseta Íslands,
ráðherra, alþingismanna og hæsta-
réttardómara tóku gildi í ársbyrjun
2004. Þá nam lífeyrisskuldbinding
vegna réttinda alþingismanna
5,5 milljörðum króna og áfallin
skuldbinding vegna Lífeyrissjóðs
ráðherra nam 1,1 milljarði króna til
viðbótar. Nýrri upplýsingar um þró-
un þessarar skuldbindingar liggja
ekki fyrir, en nýju lögin fólu það
meðal annars í sér að ellilífeyrisrétt-
ur jókst og makalífeyrisréttur
minnkaði, samkvæmt mati trygg-
ingastærðfræðings á þeim tíma.
270 milljónir í
lífeyrisgreiðslur á árinu 2003
Á árinu 2003 fengu 188 lífeyris-
þegar greiðslur úr lífeyrissjóði al-
þingismanna, samtals að upphæð
232 milljónir króna. Tæp 60% voru
vegna ellilífeyris og var meðal-
greiðslan í árlegan ellilífeyri 1.264
þúsund kr. Tæp 40% voru vegna
makalífeyris og var meðalgreiðslan í
makalífeyri lítið eitt hærri eða 1.291
þúsund kr. á árinu.
Á sama tíma fékk 31 lífeyrisþegi
greiðslur úr Lífeyrissjóði ráðherra,
samtals að fjárhæð 37 milljónir kr.
Meðalgreiðslan í ellilífeyri var 1.057
þúsund kr. á árinu 2003 og meðal-
greiðslan í makalífeyri var 1.512 þús-
und kr.
Samanlögð greiðsla lífeyris vegna
lífeyrisréttinda ráðherra og alþing-
ismanna nam þannig tæpum 270
milljónum króna á árinu 2003.
Lífeyrisréttindi alþingismanna og ráðherra
6,7 milljarða
skuldbinding KARLMAÐUR var fluttur með sjúkra-bifreið á slysadeild Landspítalans með
grun um reykeitrun eftir eldsvoða í tví-
lyftu timburhúsi á Kársnesbraut 7 um
miðjan dag í gær. Maðurinn var í haldi
lögreglunnar á sjúkrahúsinu þar sem
hann var grunaður um íkveikju í húsinu
að sögn lögreglunnar í Kópavogi. Var
hann fluttur með meðvitund á sjúkra-
húsið og hafður í lögregluvörslu á með-
an hann gekkst undir læknisrannsókn.
Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins var kallað á vettvang eftir
tilkynningu til Neyðarlínunnar kl.
14:21. Voru fjórir reykkafarar sendir
inn til leitar að fólki en enginn fannst
inni í húsinu. Hinn grunaði sem staddur
var fyrir utan húsið var hinsvegar flutt-
ur á sjúkrahús.
Þegar að var komið var eldur um víð
og dreif innandyra og var húsið alelda.
Um klukkustund tók að ráða nið-
urlögum eldsins. Húsið er mjög mikið
skemmt að sögn lögreglunnar. Þar voru
tveir íbúar skráðir til búsetu. Vett-
vangsrannsókn fór fram við brunarúst-
irnar í gær og verður málið tekið til
frekar rannsóknar hjá lögreglunni í
Kópavogi.
Handtekinn
vegna gruns
um íkveikju
Morgunblaðið/Golli