Morgunblaðið - 09.02.2005, Side 1
Mynd um
snjóflóðin
Einar Þór Gunnlaugsson vinnur að
tveimur kvikmyndum | Menning
Íþróttir í dag
Stjarnan og Grótta/KR í bikarúrslit
Handboltinn aftur á ferðina
Arnar tennisleikari vikunnar
STOFNAÐ 1913 38. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Foreldrar með kornabörn í
ungbarnaleikfimi | Daglegt líf
Ungviðið
þarf örvun
„NÝR tími friðar og vonar blasir við,“ sagði
Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínumanna,
er hann og Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, lýstu yfir í gær, að bundinn yrði
endi á blóðug átök Ísraela og Palestínu-
manna á síðustu árum.
Samkomulagi leiðtoganna, sem þeir
gerðu með sér á fundi sínum í Sharm el-
Sheikh í Egyptalandi, hefur verið fagnað
víða um heim. Condoleezza Rice, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær, að
um væri að ræða „besta tækifærið“ lengi til
að koma á friði í Mið-Austurlöndum og Jav-
ier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusam-
bandsins, hrósaði leiðtogunum fyrir hug-
rekki. Það gerði líka Gerhard Schröder,
kanslari Þýskalands, sem bar einnig lof á
Rice og Bandaríkjastjórn fyrir sitt framlag.
Voru viðbrögð annarra þessu lík.
Heita samvinnu við
lausn ágreiningsefna
Í yfirlýsingum þeirra Sharons og Abbas
sagði, að blóðugum átökum Ísraela og Pal-
estínumanna væri lokið en þau hafa staðið í
fjögur ár og kostað þúsundir mannslífa.
Kváðust þeir mundu vinna saman að lausn
ágreiningsefna.
„Í fyrsta sinn í langan tíma eygjum við
von um betri framtíð fyrir okkur, börnin
okkar og barnabörn,“ sagði Sharon og bætti
við, að Ísraelar vildu að Palestínumenn
fengju sjálfstæði. „Við viljum ekki skipa
ykkur fyrir verkum.“
Reuters
Sharon og Abbas takast í hendur fyrir
fundinn í Sharm el-Sheikh í gær.
„Nýr tími
friðar og
vonar“
Sharm el-Sheikh. AP, AFP.
Nýtt fyrirheit/17
ORSÖKIN fyrir því að Jökulfellinu
hvolfdi og það sökk norðaustur af
Færeyjum í fyrrakvöld er sú að
farmurinn færðist skyndilega til í
lest skipsins. Þetta hafa skipverjar
sem komust lífs af sagt áhöfn
danska herskipsins Vædderen, að
sögn Felix Ebbestad, skipherra
skipsins.
Jökulfell var að flytja um 2.000
tonn af stáli frá Liepaja í Lettlandi
til Reyðarfjarðar. Allt var með eðli-
legum hætti þar til skömmu fyrir
slysið en eftir að skipið byrjaði að
halla ískyggilega á aðra hliðina liðu
innan við fimm mínútur þangað til
því hvolfdi, segja skipverjarnir.
Samkvæmt þessu er því ljóst að
skipverjarnir höfðu afar lítið ráð-
rúm til að yfirgefa skipið. Þeir sem
björguðust voru allir í flotgöllum
en Ebbestad hafði fregnir af því að
þeim, sem fundust látnir, hefði ekki
tekist að klæðast flotgöllunum til
fulls. Það hefði þeim sem björguð-
ust á hinn bóginn tekist. Þá hefðu
skipbrotsmennirnir greint frá því
að einhverjir skipsfélagar þeirra
hefðu setið fastir í braki við skips-
hlið.
Aðstæður á slysstað voru afleit-
ar þegar þyrla Vædderen kom
þangað skömmu fyrir ellefu í fyrra-
kvöld, mikil ókyrrð í lofti og hauga-
sjór. Ebbestad sagði ljóst að áhöfn
þyrlunnar hefði unnið afrek með
björgun mannanna.
Versnandi veður
Vædderen er væntanlegt til
Þórshafnar í Færeyjum á tíunda
tímanum í dag með skipverjana
fimm sem komust lífs af. Allir í ell-
efu manna áhöfn skipsins voru bú-
settir í Eistlandi en þrír með rúss-
neskan ríkisborgararétt. Af þeim
sem björguðust voru fjórir Eist-
lendingar og einn Rússi. Lík fjög-
urra skipverja fundust á floti í
sjónum í gær og er því tveggja enn
saknað. Um 2.000 metra dýpi er
þar sem Jökulfellið sökk.
Veður fór versnandi eftir því
sem leið á gærdaginn, vindstyrkur
var um 20–25 m/s og ölduhæð 5–6
metrar. Leit var hætt um sólsetur í
gær og sigldu Vædderen og fær-
eysku varðskipin tvö af svæðinu
áleiðis til Þórshafnar, samkvæmt
upplýsingum frá Björgunarmið-
stöðinni í Þórshöfn. Ákvörðun um
hvort leit verði haldið áfram verður
tekin í dag.
FLUGVÉL Landhelgisgæslunnar leitaði á 500 fer-
kílómetra hafsvæði í gær, en mikil ölduhæð og erf-
iðar aðstæður gerðu leitina erfiða. Auðunn F. Krist-
insson, stýrimaður og leiðangursstjóri sem hér
horfir yfir hafið, segir að úr vélinni hafi sést nokkrir
gámar og annað brak, auk þess sem björgunarhring-
ur og björgunarvesti sáust. Hann segir að ólíklegt sé
að finna skipverjana sem saknað er á lífi.
Morgunblaðið/Golli
Erfiðar aðstæður til leitar
Segja farminn hafa
færst til í lest skipsins
Jökulfellinu hvolfdi á örfáum mínútum Lík fjögurra skipverja
fundin, tveggja saknað Ákvörðun um frekari leit tekin í dag
Sjóslysið/4, 6, 7
RÍKISSTJÓRN borgara-
flokkanna undir forystu
Anders Fogh Rasmussens
hélt meirihluta sínum í
kosningunum í Danmörku í
gær. Venstre, flokkur
Rasmussens, tapaði þó fjór-
um þingsætum en á móti kom,
að Íhaldsflokkurinn bætti við
sig þremur mönnum og öllum
á óvart bætti Danski þjóð-
arflokkurinn við sig tveimur
þingsætum. Stóru tíðindin að
öðru leyti eru annars vegar
mikill ósigur jafnaðarmanna
og hins vegar glæsilegur
sigur Radikale Venstre.
Venstre, flokkur Rasmus-
sens forsætisráðherra, fékk
nú 29% atkvæða í stað 31,2%
fyrir fjórum árum og 52 þing-
menn í stað 56. Var leiðtog-
anum ákaft fagnað er hann
kom á kosningavöku flokksins
í gærkvöld en þrátt fyrir
nokkurt tap eru úrslitin mjög
söguleg fyrir hann. Er þetta í
fyrsta sinn í heila öld, sem
Venstre-forsætisráðherra er
endurkjörinn og í öðrum
kosningum í röð er flokkurinn
stærstur á þingi.
Íhaldsflokkurinn fékk
10,3% á móti 9,1%, bætti við
sig þremur mönnum og er nú
með 19. Danski þjóðarflokk-
urinn, sem stutt hefur stjórn-
ina og tryggt henni meiri-
hluta á þingi, fékk nú 13,2%
og bætti við sig tveimur
mönnum þvert ofan í spár.
Hefur hann nú 24 þingmenn
alls. Saman hafa því flokk-
arnir þrír 95 af 179 þingsæt-
um alls.
Jafnaðarmenn fengu 25,9%
atkvæða, töpuðu 3,2 pró-
sentustigum og fimm mönn-
refsa stóru flokkunum, sem
hafi reynt að stilla baráttunni
upp sem einvígi á milli þeirra
Rasmussens og Lykketofts.
Sósíalíski þjóðarflokkurinn
fékk 11 í stað 12 áður en Ein-
ingarlistinn bætti við sig
tveimur og hefur sex. Hvorki
Miðdemókratar né Minni-
hlutaflokkurinn komu manni
að og þá gerðist það, að
Kristilegir demókratar náðu
ekki 2% og misstu þar með
sína fjóra menn. Kjörsókn var
84,4%, um þremur prósentu-
stigum minni en 2001.
um. Hafa nú 47. Er þetta
versta útreið, sem þeir hafa
fengið um áratugaskeið. Það
kom því ekki óvart er Mogens
Lykketoft, leiðtogi jafn-
aðarmanna, tilkynnti, að hann
myndi ekki leiða flokkinn í
næstu þingkosningum.
Stóru flokkunum refsað
Mesti sigurvegari kosning-
anna er Radikale Venstre,
sem fór úr 5,2 í 9,2% og með
þingmannatöluna úr níu í 16.
Segja dönsku fjölmiðlarnir,
að kjósendur hafi verið að
Dönsku borgaraflokkarnir áfram við völd
Reuters
Anders Fogh Rasmussen
fagnar með sínu fólki.