Morgunblaðið - 09.02.2005, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
SJÓSLYSIÐ
AÐSTÆÐUR til þyrlubjörgunar
við Jökulfellið voru gríðarlega erf-
iðar, mikil ókyrrð í lofti og ólgu-
sjór.
Í samtali við Morgunblaðið í
gær sagði Felix Ebbestad, skip-
herra Vædderen, að það hefði ver-
ið mikið afrek hjá þyrluáhöfn
skipsins að bjarga fimmmenning-
unum.
„Veðrið var hræðilegt. Aðstæður
voru þolanlegar þegar þyrlan tók á
loft en þegar hún kom yfir slys-
staðinn voru aðstæður til flugs af-
leitar. Það var mikil ókyrrð í lofti
og hnútasjór þannig að sigmað-
urinn var meira eða minna á kafi í
sjó meðan á þessu stóð. Þyrlu-
bjarganir eru alltaf hættulegar en
ég verð að segja að þetta var mjög
átakamikið og miðað við aðstæður
var það mikið afrek hjá áhöfn
þyrlunnar að ná að bjarga svona
mörgum,“ sagði hann.
Gámar og brak allt í kring
Þegar þyrlan kom á slysstað
skömmu fyrir ellefu í fyrrakvöld
voru fjórir skipverjar í hnapp
skammt frá skipinu og einn flaut
þar einsamall skammt frá. Þegar
þarna var komið sögu höfðu skip-
verjarnir verið tæplega þrjár
klukkustundir á floti í sjónum.
Um tugur gáma og alls kyns
brak flaut í kringum þá. Eftir að
fimmmenningarnir höfðu verið
hífðir um borð flaug þyrlan yfir
slysstaðinn en áhöfnin kom ekki
auga á fleiri menn í sjónum.
Skipbrotsmennirnir voru allir
ágætlega á sig komnir miðað við
aðstæður og gátu allir gengið
óstuddir frá þyrlunni, að sögn
Ebbestad. Í áhöfn Jökulfells voru
Rússar og Eistlendingar. Nokkrir
sjóliðanna um borð í Vædderen
eru frá Eystrasaltslöndunum og
gátu þeir túlkað orð skipbrots-
mannanna en að læknisráði gáfu
þeir ekki kost á viðtölum í gær.
Ebbestad sagði að skipbrots-
mennirnir hefðu greint frá því við
áhöfn Vædderen að orsök slyssins
hefði verið sú að farmurinn hefði
skyndilega færst til í lestinni. Allt
hefði verið með eðlilegum hætti
þar til skömmu fyrir slysið og
skipið vaggað til og frá með venju-
bundnum hætti. Úr einni veltunni
hefði skipinu ekki tekist að rétta
sig af heldur haldið áfram að halla
á aðra hliðina og eftir tæplega
fimm mínútur hefði það lagst á
hliðina og því hvolft.
Vædderen tók þátt í leitinni að
skipverjunum sem enn er saknað
fram undir myrkur. Veður hafði þá
versnað, vindur var af suðvestri,
um 20–25 m/s og 5–6 metra öldu-
hæð, að sögn Felix Ebbestad.
Hann sagði að samvinna leitar-
manna á færeysku varðskipunum
Brimli og Tjaldri, norsks og rúss-
nesks togara og flugvélar Land-
helgisgæslunnar hefði gengið afar
vel. „Við höfum lagt mikla vinnu í
þessa leit og reynt mikið til að
finna þá sem enn er saknað,“ sagði
hann.
!
!" !
## $"% &'( ! & )
! * +
,-
! "
#
$ !% &
+
('
'(
)$ * "
""+
,$
-
$ !% &
.- /$00&-
(
& $-
1( %-& *$ %/
2$&&%
-
$ !% &
.-
$
3-
' $ * $ $
45 3% 6
5 3 $ *
7
0&,% /8 ( 3
63 !% &
-
9 %
7%- & % - ( !
! 3
& $/-
.- "
& $-
.
/*&'(
$(
,4 :0&; 9 &$8
/8 < (&5
3 ! 3 !%- &
- $ (6 /-
& $-
.- 0( 0&
$ (= *
/-
*$ % .-
$0 !9 ()2
/
> ( ?9
Skipherra Vædderen segir aðstæður við björgun skipverja af Jökulfellinu hafa verið gríðarlega erfiðar
Afrek hjá þyrluáhöfninni
að bjarga mönnunum
Morgunblaðið/Golli
Danska varðskipið Vædderen öslar sjóinn á leitarsvæðinu norðan við Færeyjar. Skipbrotsmönnunum fimm var bjargað um borð við erfiðar aðstæður.
Sigmaðurinn
meira eða minna
á kafi í sjó meðan
á björgun stóð