Morgunblaðið - 09.02.2005, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 9
FRÉTTIR
60% afsláttur
eða meira
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Lagersala 1. - 12. febrúar
40-70% afsláttur
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Fermingarmyndartökur
Óhefðbundnar myndatökur
Fjölskyldumyndatökur
Pantið tímanlega
Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020
Mynd, Hafnarfirði s. 565 4207
www.ljósmynd.is
iðunn
tískuverslun
Seltjarnarnesi
Lagersala
Lagersala
Lágmark
50%
afsláttur
Aðeins á
Seltjarnarnesi
Glæsibæ, sími 588 4848
tískuvöruverslun
Útsölulokin nálgast – Nýjar vörur streyma inn
Frábært verð – Komið og sannfærist
Réttu stærðirnar
Hlíðasmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460
www.belladonna.is
Erum að
taka upp
nýjar vörur
frá
Ágústa Pétursdóttir Snæ-land, auglýsingateiknariog listakona með meiru,er níræð í dag. Ágústa er
fædd í Reykjavík 9. febrúar 1915.
Foreldrar hennar voru Pétur Hall-
dórsson, bóksali og síðar þingmaður
og borgarstjóri, sem átti og rak
bókaverslun Sigfúsar Eymunds-
sonar um árabil, og Ólöf Björns-
dóttir, dóttir Björns Jenssonar, en
Jens var Sigurðsson og bróðir Jóns
Sigurðssonar forseta.
Ágústa ólst upp á Túngötu 38 frá
þriggja ára aldri og bjó þar áfram
eftir að hún stofnaði fjölskyldu. Hún
er tvígift, átti einn son úr fyrra
hjónabandi og þrjá syni með síðari
eiginmanni sínum, Pétri V. Snæ-
land, fyrrv. forstjóra og stofnanda
svampverksmiðjunnar, en hann lést
árið 2002. Síðustu ár hefur hún búið
á Litlu-Grund í Vesturbæ, skammt
frá æskuslóðunum, og unir hag sín-
um vel, að eigin sögn.
„Ég er búin að
elska þrjá menn“
Ágústa var brautryðjandi á sínu
sviði. Hún lærði fyrst Íslendinga
auglýsingateiknun í Kunstværker-
skolen í Kaupmannahöfn þar sem
hún dvaldi í þrjú ár en hún var jafn-
framt fyrsta konan sem lauk námi í
faginu. Að loknu námi sneri hún aft-
ur til Íslands og stofnaði teiknistofu
í Aðalstræti 12 ásamt Halldóri Pét-
urssyni bróður sínum. Það var þó
ekki fyrr en börnin uxu úr grasi
sem Ágústa fór að sinna faginu af
alvöru.
Á ferlinum hefur hún hannað
fjöldann allan af merkjum sem hafa
greypst í vitund þjóðarinnar og
nægir að nefna merki Listahátíðar
og Landsvirkjunar. Þá hefur hún
unnið ýmiss konar handverk, s.s.
kríurnar frægu sem gerðar voru úr
fiskbeinum og fjörulalla, úr fjöru-
grjóti, auk þess að mála myndir,
teikna og yrkja ljóð.
Ágústa er ern og sinnir hugð-
arefnum sínum, þrátt fyrir háan
aldur.
„Ég er alltaf að, ég væri dauð ef
ég væri ekki að gera eitthvað,“ seg-
ir hún sposk á svip. Ágústa segist
yrkja en er hætt að mála myndir
núorðið. Þá er hún að sýsla við að
raða saman minningarbrotum, ljós-
myndum og ljóðum sem hún orti
þegar hún var yngri, í „ævisögu“
fyrir sjálfa sig og afkomendur sína.
„Ég er öll í sjálfri mér. Ég hef
verið að fara yfir líf mitt síðan ég
kom hingað. Ég er búin að elska
þrjá menn og þetta er allt komið í
eina sögu, skulum við segja, í
continuity (samhengi), sem er fal-
legt. Þetta er þroskasaga mín og
allra annarra sem hafa komið við á
minni lífsleið,“ segir Ágústa, og
flettir þykkri möppu fullri af hand-
skrifuðum blöðum, úrklippum og
ljósmyndum.
Vildi ekki verða
borgarstjóri
Faðir Ágústu, Pétur Halldórsson,
var þingmaður Sjálfstæðisflokksins
frá 1932–40 og borgarstjóri frá 1935
til dánardægurs, 1940. „Hann var
yndislegasti maður sem til er,“ seg-
ir Ágústa hugsi. Þrátt fyrir pólitísk-
an feril hans líti hún fyrst og fremst
á sig sem dóttur Péturs Halldórs-
sonar bóksala, en ekki „borgar-
stjóradóttur“.
Ágústa minnist þess að Ólafur
Thors forsætisráðherra, sem var
náinn vinur Péturs og giftur frænku
hans, hafi í dánargrein við andlát
föður hennar, minnst þess með sam-
viskubiti hvað þeir félagar hans
hefðu lagt hart að honum að verða
borgarstjóri. „Hann vildi ekki vera
borgarstjóri. Fyrir fjölskylduna var
það disaster (stórslys). Við misstum
hann alveg og við vissum að hann
var veikur.“ Pétur var þá bæði þjáð-
ur í baki, hafði ofreynt sig sem ung-
lingur norður í landi, auk þess sem
hann var með lungnakrabba, að
sögn Ágústu. Ágústa segir föður
sinn hafa verið mikinn heimsmann
sem kom berlega í ljós þegar hann
var erlendis. Heima á Íslandi voru
erfiðir tímar þau ár sem Pétur
gegndi borgarstjórastarfi. Fátækt
var mikil og pólitíkin harðskeytt.
Ágústa minnist þess þegar hún
var á leið heim til Íslands í sum-
arleyfi með skipi er hún var við nám
í Danmörku, þá 18 ára, að í Ed-
inborg rakst hún á gamla vinkonu,
Gerði Jónasdóttur, dóttur Jónasar
frá Hriflu, sem var með henni á
skipinu.
„Við stöndum og tölum saman
þegar karlinn kemur inn og spyr
hvaða stúlka þetta sé og bendir á
mig. „Þetta, pabbi minn, er Ágústa
Pétursdóttir, dóttir Péturs Hall-
dórsonar,“ lýsir Ágústa með til-
þrifum og síðan hvernig Jónas
strunsaði út úr káetunni þegar hann
heyrði hverra manna hún var.
„Svona var pólitíkin þá,“ segir
Ágústa, sem ætlar að fara út að
borða í hádeginu með nokkrum
barnabarna sinna og um kvöldið út
að borða með bestu vinkonu sinni.
Þá hyggst fjölskyldan halda henni
boð um helgina.
Ágústa P. Snæland auglýsingateiknari og listakona er níræð í dag
Morgunblaðið/ÞÖK
„Ég er alltaf að,“ segir Ágústa Pétursdóttir Snæland sem
hefur búið á Litlu-Grund í Vesturbæ síðustu sex ár.
Ágústa með föður sínum, Pétri Halldórssyni bóksala,
síðar þingmanni og borgarstjóra, á Túngötunni.
Myndin er tekin 1930 en þá er Ágústa 15 ára.
Pólitíkin harðskeytt í þá daga
kristjan@mbl.is
Fréttasíminn
904 1100