Morgunblaðið - 09.02.2005, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÚR VERINU
FORSTJÓRASKIPTI urðu í HB
Granda í gær. Sturlaugur Stur-
laugsson lét af störfum og í stað
hans var Eggert Benedikt Guð-
mundsson, sem hefur verið mark-
aðsstjóri fyrirtækisins, ráðinn.
Samhliða hættir Kristján Þ. Dav-
íðsson aðstoðarforstjóri hjá fyrir-
tækinu.
„Að sjálfsögðu er ég ekki sáttur
við það að hætta en þetta er nið-
urstaða af hálfu þeirra sem stjórna.
Það nær ekki lengra,“ sagði Stur-
laugur í samtali við Morgunblaðið í
gær. Hann vildi ekki tilgreina nánar
ástæður þessara umskipta og vísaði
á stjórnarformann félagsins.
Árni Vilhjálmsson, formaður
stjórnarinnar, vildi lítið tjá sig um
málið og vísaði í tilkynningu sem
send var Kauphöll Íslands í gær-
morgun. Í henni kemur ekki fram
af hverju farið var í þessar manna-
breytingar. Aðspurður hvort ekki
væri ástæða til að skýra málið bet-
ur fyrir hluthöfum HB Granda
sagði Árni að hann hefði tekið það
fram í tilkynningunni væri hann á
þeirri skoðun.
Í tilkynningunni segir að í kjölfar
sameiningar HB Granda við Tanga
hf og Svan RE hafi stjórnin gert
breytingar á yfirstjórn fyrirtækis-
ins. Með breytingunum sé lögð enn
frekari áhersla á markaðsmál fyr-
irtækisins og fylgt eftir þeirri
stefnu sem mörkuð hafi verið á síð-
asta ári með stofnun sérstakrar
markaðsdeildar.
Á fundum með starfsfólki
Eggerti B. Guðmundssyni líst
sérlega vel á að taka við stjórnun
fyrirtækisins eftir að hafa verið
markaðsstjóri í rúmt hálft ár. Það
hafi bæði verið gleðilegur og lær-
dómsríkur tími. Fyrirtækið sé vel
mannað og valinn maður í hverju
rúmi. Hann hafi verið að kynna sig
fyrir starfsfólkinu í Reykjavík og á
Akranesi og fari til Vopnafjarðar á
næstu dögum.
„Þessar breytingar tengjast eng-
um stefnubreytingum sem ákveðnar
hafa verið,“ segir Eggert. Hann
geti lítið sagt til um aðdraganda
þessara breytinga. Ákvörðunin sé
ekki hans. Honum hafi verið boðið
starfið og taki því.
Haraldur Böðvarsson hf. og
Grandi sameinuðust formlega 1.
janúar 2004 eftir að Grandi hafði
keypt allt hlutafé HB. Í byrjun maí
tók Sturlaugur Sturlaugsson við
starfi forstjóra félagsins. Tangi og
Svanur RE voru síðan sameinuð
undir sameiginlegum hatti HB
Granda frá 1. október á síðasta ári.
Eiga áfram í HB Granda
„Ég hef tekið þátt í því af heilum
hug að búa til eitt stærsta sjáv-
arútvegsfyrirtæki á Íslandi og er
stoltur af því. Ég held að það hafi
verið rétt,“ segir Sturlaugur og á
ekki von á öðru en að fjölskylda
hans verði áfram hluthafar í HB
Granda. Framtíðin stjórni þeirri
ákvörðun og hvernig spilað verði úr
þeim gæðum sem fyrirtækið ráði
yfir. „Auðlindin er ekki bara í haf-
inu og kvótanum. Hún liggur líka í
fólkinu og hvernig menn ná að
virkja það. Það er það sem skiptir
máli.“ Sturlaugur segist vona að
stjórn og stjórnendur HB Granda
finni farsæla leið inn í framtíðina.
Fyrirtækið eigi mikla og góða fram-
tíð fyrir sér, en það sé auðvitað háð
því hvernig spilað sé úr þeim spil-
um sem á hendi séu.
„Ég fer að leita að vinnustað þar
sem ég er velkominn og get nýtt þá
orku og reynslu sem ég bý yfir,“
segir Sturlaugur aðspurður hvað
bíði hans. „Ég bíð bara spenntur
eftir að takast á við ný tækifæri.“
Aðrar breytingar
Svavar Svavarsson, sem verið
hefur framleiðslustjóri, verður
markaðsstjóri. Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri Tanga hf., verður yf-
irmaður uppsjávarsviðs. Torfi
Þorsteinsson, sem verið hefur yf-
irmaður uppsjávarsviðs, verður
yfirmaður landvinnslu bolfisks.
Stofnað hefur verið nýtt svið við-
skiptaþróunar, sem mun ná yfir
starfsemi fyrirtækisins í fiskeldi,
sem og ný rannsókna- og þróun-
arverkefni. Ekki hefur verið ráðið í
stöðu forstöðumanns þess sviðs.
Aðrar stöður yfirstjórnenda verða
óbreyttar.
Eggert Benedikt Guðmundsson
er Dipl.-Ing. í rafmagnsverkfræði
frá háskólanum í Karlsruhe, Þýska-
landi, og MBA frá IESE við-
skiptaháskólanum í Barcelona á
Spáni. Eggert starfaði sem verk-
fræðingur hjá Íslenska járnblendi-
félaginu árin 1990–1995. Að námi í
IESE loknu vorið 1997 hóf Eggert
störf hjá Philips Electronics í Belg-
íu, en flutti sumarið 2000 til Philips
í San José, Kaliforníu. Hjá Philips
vann Eggert við vörustjórnun,
markaðsstjórnun og viðskiptaþróun.
Frá Kaliforníu flutti hann til Ís-
lands í júní 2004 og hóf þá störf sem
markaðsstjóri HB Granda.
Eggert er kvæntur Jónínu Lýðs-
dóttur hjúkrunarfræðingi og á þrjú
börn.
„Að sjálfsögðu ekki
sáttur við að hætta“
Sturlaugur Sturlaugsson víkur fyrir Eggerti B.
Guðmundssyni sem forstjóri Granda – Kristján Þ.
Davíðsson hættir einnig sem aðstoðarforstjóri
Sturlaugur
Sturlaugsson
Árni
Vilhjálmsson
Eggert B.
Guðmundsson
ÞINGMENN Frjálslynda flokks-
ins, með Gunnar Örlygsson í
broddi fylkingar, hafa lagt fram
á Alþingi þings-
ályktunartillögu
um að endur-
skoðaðar verði
reglur um
klæðaburð al-
þingismanna í
þingsal og
ávarpsvenjur
þeirra í ræðu-
stól á Alþingi.
Vilja þeir að
forsætisnefnd verði falið að end-
urskoða þessar reglur og að hún
skili tillögum fyrir þinglok í vor.
„Markmið tillögunnar er í
fyrsta lagi að gera alþingis-
mönnum kleift að klæðast al-
þýðlega í þingsal og um leið að
færa venjur um klæðnað þing-
manna til nútímalegra horfs,“
segir í greinargerð tillögunnar.
Er því bætt við að venjur og
hefðir í þessum málum séu með
nýtískulegra sniði í danska
þinginu.
„Í annan stað snýr markmið til-
lögunnar að breyttum ávarps-
venjum í ræðustól Alþingis.
Flutningsmenn tillögunnar telja
að einungis sé þarft að ávarpa
forseta sérstaklega, t.a.m. með
orðunum „virðulegur forseti“.
Orðin „hæstvirtur ráðherra“ og
„háttvirtur þingmaður“ muni þá
heyra sögunni til.
Að mati flutningsmanna eru
ávarpsreglurnar í raun barns síns
tíma og eðlilegt að taka þær til
endurskoðunar. Með því að tak-
marka notkun orðanna „hæstvirt-
ur“ og „háttvirtur“ mun ræðutími
þingmanna í ræðustól Alþingis
nýtast til muna betur.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Jakkafataklæddir þingmenn. Frjálslyndir vilja að venjur um klæðnað þingmanna verði færðar í nútímalegra horf.
Þingsályktunartillaga þingmanna Frjálslynda flokksins
Alþingismenn fái að
klæðast alþýðlega
Gunnar Örlygsson
ANNA Kristín Gunnarsdóttir, þing-
maður Samfylkingar, kvaddi sér
hljóðs við upphaf þingfundar á Al-
þingi í gær, þar sem hún spurðist
m.a. fyrir um þingmál frá landbún-
aðarráðuneytinu. Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra svaraði því
m.a. til að það hefði legið fyrir að
ekki kæmu mörg mál frá ráðuneyt-
inu á þessum vetri. Fleiri mál
myndu hins vegar koma frá ráðu-
neytinu næsta haust.
Anna Kristín sagði í upphafi máls
síns að fimm fundir hefðu verið
haldnir í landbúnaðarnefnd þingsins
á þessum vetri. „Eins og nú stend-
ur,“ sagði hún „hafa fjórir fyrirhug-
aðir fundir í röð verið felldir niður
og á næsta fundi sem boðaður er eft-
ir viku er eingöngu á dagskrá mál
tveggja sláturhúsa.“
Hún sagði enn fremur að nefndin
hefði verið verkefnalítil meirihluta
síðasta vetrar „enda engin mál til
umfjöllunar frá ráðuneytinu“, upp-
lýsti hún. „Undir vorið helltist yfir
okkur hvert málið af öðru, stórir
málaflokkar og þeirra á meðal nýr
samningur við mjólkurframleiðend-
ur til sjö ára og tilheyrandi
milljarðaútgjöld. Um málin var
fjallað í kapp við tímann, algjörlega
að þarflausu ef betur hefði verið
staðið að málum af hálfu ráðuneyt-
isins.“
Þingmaðurinn tók fram að ekki
væri við formann nefndarinnar,
Drífu Hjartardóttur, að sakast held-
ur við verkstjórn Guðna Ágústsson-
ar landbúnaðarráðherra.
Langt til vors
Guðni Ágústsson svaraði því til að
þau mál sem ráðuneytið hefði boðað
væru enn í vinnslu. „Það er langt til
vors, eins og menn þekkja, þannig
að það er alls hins besta að vænta
hvað það varðar.“ Hann minnti þó á
að ráðuneytið hefði að undanförnu
verið undirlagt í vinnu við stofnun
Landbúnaðarháskóla Íslands. Jafn-
framt tók hann fram að ráðuneytið
væri fáliðað og að mikið álag væri á
embættismönnum þess.
„Það hefur alveg legið fyrir í vet-
ur að ekki yrði mikið um mál af
minni hálfu að ræða, þau væru mörg
í undirbúningi og vinnslu, bæði lax
og silungur. Ég mun halda áfram
með stofnanabreytingar þannig að
hér verður mikið að gera næsta
haust þegar ég kem til þings aftur.
Þá verða hér mörg mál. Þau verða
hins vegar ekkert mjög mörg á
þessum vetri og það er kannski ekk-
ert alltaf aðalmálið að fylla allar
nefndir af málum þegar atvinnu-
greinin er í jafnágætri þróun á
mörgum sviðum og hún hefur verið
og mikil nýsköpun í íslenskum sveit-
um.“ Bað hann síðan menn um að
halda ró sinni.
Spurt um þing-
mál frá landbún-
aðarráðuneytinu
Anna Kristín
Gunnarsdóttir
Guðni
Ágústsson
ÞINGFUNDUR hefst kl. 12 í
dag. Á dagskrá eru nítján fyr-
irspurnir til ráðherra. Meðal
annars verður spurt um brott-
vísun útlendinga úr landi, raf-
orkuverð til garðyrkju, neyð-
armóttöku fyrir þolendur
heimilisofbeldis, samgöngur
milli Keflavíkurflugvallar og
höfuðborgarsvæðisins og há-
markshraða á tvöfaldri
Reykjanesbraut.