Morgunblaðið - 09.02.2005, Page 18
Suðurnes | Höfuðborgin | Akureyri
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Leiðsögumenn læra | Nám fyrir verð-
andi svæðisleiðsögumenn er hafið á Austur-
landi. Þetta er í þriðja sinn sem slíkt nám
fer fram í fjórðungnum. Námskeiðið er
samstarfsverkefni framhaldsskólanna og
Fræðslunetsins og kennt er samkvæmt
námskrá Leiðsöguskólans. Kennt er í gegn-
um fjarfundabúnað og sitja nemendur í tím-
um í Neskaupstað, á Fáskrúðsfirði, á Egils-
stöðum og á Hornafirði. Frá þessu er sagt á
vef Fræðslunetsins, fna.is.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Öryggi í fyrirrúmi | Íþróttamiðstöð Bol-
ungarvíkur barst á dögunum myndarleg
gjöf er kvennadeild slysavarnafélagsins
Landsbjargar í Bolungarvík gaf stofnunni
hjartarafstuðtæki. Búnaður til að gefa raf-
stuð ef um hjartaáfall er að ræða hefur
hingað til nær eingöngu verið inni á sjúkra-
húsum og í sjúkrabílum.
Nú er komið á markað tæki sem auðveld
eru í notkun og geta skipt sköpum þegar
bregðast þarf við hjartaáfalli enda hafa við-
brögð og góður búnaður mikið að segja
fyrstu mínúturnar, þangað til þjálfað hjálp-
arlið kemur á vettvang. Tækið er þannig
búið að það leiðbeinir hjálparmanni með tali
og textaskjá hvað beri að gera.
Með tilkomu þessarar gjafar slysavarna-
kvenna er búnaður í Íþróttamiðstöð bæjar-
ins til að bregðast við slysum og áföllum
með allra besta móti en þar á bæ hefur ver-
ið markvisst unnið að bættum slysavörnum
með ýmsum hætti og hefur kvennadeild
slysavarnafélagsins komið myndarlega að
málum.
Strandamaður ársins | Sverrir Guð-
brandsson á Hólmavík var kjörinn Stranda-
maður ársins 2004 með nokkrum yfirburð-
um í kosningu sem fréttamiðlarnir
Fréttirnar til fólksins og strandir.is stóðu
fyrir nú í upphafi nýja ársins. Var tilkynnt
um úrslit á Spurningakeppni Stranda-
manna, að því er fram kemur á strandir.is.
Sverrir sem gaf út æviminningar sínar
fyrir síðustu jól í bókinni Ekkert að frétta,
tók þar við viðurkenningu og blómvendi,
auk verðlaunagrips. Það var Sparisjóður
Strandamanna sem styrkti kosninguna á
Strandamanni ársins.
Til stendur að haldaþriggja daga langa
ráðstefnu um áhrif útlend-
inga á Austurlandi í gegn-
um tíðina. Verður hún
haldin á Eiðum fyrstu
helgina í júní og standa að
henni Sagnfræðingafélag
Íslands og Félag þjóð-
fræðinga á Íslandi, auk
heimamanna.
Fyrirlestrar munu m.a.
fjalla um síldveiðar Norð-
manna, Kolskegg fróða og
landnám á Austurlandi,
virkjanir og náttúrusýn,
kynni Norðfirðinga af
mönnum af framandi slóð-
um, sögu Eiðastóls og er-
lend áhrif í þjóðsögum á
Austurlandi. Ráðstefnur
af þessum toga hafa reglu-
bundið verið haldnar á
landsbyggðinni frá árinu
1999.
Útlendingar
Félag íslenskra bókaút-gefenda hefur gefið
eina milljón kr. til hjálp-
arstarfs ABC-barnahjálp-
ar vegna hamfaranna í
Indlandshafi. Sigurður
Svavarsson og Benedikt
Kristjánsson afhentu Guð-
rúnu Margréti Pálsdóttur
gjöfina sem notuð verður
til að koma upp bókasafni
á El Shaddai-barnaheim-
ilinu við Chennai á austur-
strönd Indlands. For-
stöðukona heimilisins
hefur verið beðin um að
taka við munaðarlausum
börnum í kjölfar flóð-
bylgjunnar. Áfram er
unnið að uppbyggingu
heimilisins og er reikn-
ingur vegna söfnunar til
þess 515-14-280000, kt.
690688-1589.
Styrkja hjálparstarf ABC
Davíð Hjálmar Haralds-son er með slungnari
limrusmiðum landsins.
Hann yrkir um Lárus:
Lárus var ljómandi djókari,
lunknari flestum og klókari.
Úr skensi hann dó,
þá skríkti og hló
skrattinn, sá nákvæmi
bókari.
Hann yrkir um Njál:
Misvitran nefndu menn Njál,
nýsinn og sleipan sem ál,
ók skarni á hóla,
var alltaf að spóla
því helvítis drullan var hál.
Og að síðustu yrkir Davíð
Hjálmar Haraldsson um ís-
öldina:
Um ísöld menn ýmislegt vita,
þá öllum var nauðsynleg fita,
menn komu upp búðum
úr beinum og húðum
með heimtaugargjöldum og
hita.
Af limrum
og ísöld
pebl@mbl.is
Fljót | Heimilisfólkið á Mið-Mói í
Fljótum varð þess vart á dög-
unum að fjölgað hafði hrossunum
á bænum. Að morgni bóndadags
hafði ein hryssan kastað og
þannig bæst við lítið folald í hóp-
inn. Hefur því verið gefið nafnið
Þorri og er hann að öllum lík-
indum fyrsta folald ársins 2005.
Eigandi Þorra er Guðmundur
Pálsson, lögregluþjónn á Sauð-
árkróki, en hann er með nokkur
hross á jörð foreldra sinna í
Fljótum. Vart þarf að taka fram
að afar fátítt er að folöld fæðist
um hávetur. Það vildi hins vegar
svo heppilega til að tveim dögum
eftir að folaldið leit dagsins ljós
gekk í hlýindi og hláku þannig að
nú er nánast allur snjór á bak og
burt og þannig hefur veðráttan
verið afar hagstæð fyrir ung-
viðið. Guðmundur sagðist vonast
til að tíð verði það góð hér eftir
að ekki þurfi að taka folaldið og
móður þess á hús. Hrossin á Mið-
Mói sem raunar eru ekki mörg
eru á fullri gjöf og hafa auk þess
aðgang að húsi sem þau geta far-
ið inn í ef veður er vont.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Fékk folald á bóndadaginn
Þorri
Bláskógabyggð | Byggingarnefnd skóla í
Bláskógabyggð hefur ákveðið að ganga til
viðræðna við Þverás ehf. um byggingu nýs
leikskóla á Laugarvatni. Framkvæmdir
hefjast á næstunni. Þá voru í gær opnuð til-
boð í stækkun Grunnskóla Bláskógabyggð-
ar í Reykholti.
Leikskóli Bláskógabyggðar á Laugar-
vatni er í gömlu húsnæði sem fullnægir ekki
kröfum sem gerðar eru í dag, að sögn Sveins
A. Sæland, oddvita sveitarstjórnar. Var
ákveðið í sveitarstjórninni á síðasta ári að
byggja nýjan leikskóla. Niðurstaðan var að
byggja hann við það húsnæði sem Grunn-
skóli Bláskógabyggðar hefur yfir að ráða á
Laugarvatni. Fær grunnskólinn um leið
nýjan inngang.
Verkið var boðið út í alútboði og komu
fimm tilboð. Langlægsta tilboðið var frá
Þórðarsveig ehf., 76 milljónir kr. Næstu til-
boð voru frá Þverási ehf., 96 milljónir kr., og
Hagleiksmönnum ehf. upp á 98 milljónir.
Sveinn segir að þessi þrjú tilboð hafi jafn-
framt fengið bestu umsagnirnar um teikn-
ingar og fyrirkomulag í matsferli útboðsins.
Hann segir að Þórðarsveigur hafi ekki haft
forsendur til að standa við tilboð sitt og fallið
frá því og því hafi verið ákveðið að ganga til
samninga við Þverás.
Framkvæmdir hefjast fljótlega og þeim á
að ljúka fyrir 1. september í haust.
Í leikskólanum eru nú um 25 börn og 50
til 60 í grunnskólanum á Laugavatni. Sveinn
segir að með því að byggja leikskólann við
grunnskólann vonist sveitarstjórnin til að
ákveðið hagræði náist í rekstri skólanna.
Hluti starfsmanna nýtist í þágu beggja skól-
anna og jafnvel verði unnt að nota sumar
kennslustofurnar fyrir báðar stofnanirnar.
„Þá teljum við okkur fá skemmtilegt vinnu-
umhverfi fyrir starfsfólk og nemendur,“
segir oddvitinn.
Lægsta tilboð í grunnskóla
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur
einnig ákveðið að stækka húsnæði grunn-
skóla sveitarfélagsins í Reykholti. Maggi
Jónsson arkitekt hefur teiknað liðlega 300
fermetra viðbyggingu fyrir sex kennslustof-
ur og tvö vinnuherbergi.
Tilboð í verkið voru opnuð í gær. Selás-
byggingar ehf. áttu lægsta tilboð, 41,4 millj-
ónir kr. sem er um 300 þúsund kr. undir
kostnaðaráætlun. Tvö önnur tilboð bárust,
bæði um 47 milljónir kr. Sveinn kvaðst
ánægður með tilboðin.
Framkvæmdir eiga að hefjast fljótlega og
er gert ráð fyrir að viðbyggingin verði tekin
í notkun um áramót. Fjölgað hefur í grunn-
skólanum og var farið að vanta skólastofur.
Liðlega 130 börn eru í skólanum, hluti
þeirra úr Grímsnes- og Grafningshreppi.
Nýr leikskóli á
Laugarvatni og
skólastofur í
Reykholti
w w w . h i b y l i o g s k i p . i s
Þuríður Halldórsdóttir hdl., lögg. fasteignasali
Stóriteigur - Mosfellsbæ
Mjög vel staðsett einbýli á einni hæð með
sambyggðum bílskúr, alls 206 fm. Íbúð
156,5 fm og bílskúr 50,0 fm. Húsið er
teiknað af Kjartani Sveinssyni og byggt
árið 1979. Fjögur til fimm herbergi, stofa,
borðstofa og rúmgott eldhús. Tvær snyrtingar eru í húsinu og rúmgott þvotta-
hús. Endalóð í jaðarbyggð í rólegu umhverfi. Verð 32 millj.
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar allar gerðir eigna á söluskrá.
Við getum boðið mjög sanngjarna söluþóknun fyrir fulla þjónustu.
Lán endurfjármögnuð | Bæjarráð
Fjarðabyggðar hefur samþykkt að heimila
endurfjármögnun á óhagkvæmum lánum
sveitarfélagsins, allt að 550 milljónum
króna og að hafinn verði útboðsferill á end-
urfjármögnun. Lánsheimildir ársins eru
rúmar 725 milljónir króna og ótekin lán frá
fyrra ári tæpar 253 milljónir, alls tæpar 978
milljónir króna.
Fréttasíminn 904 1100