Morgunblaðið - 09.02.2005, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 19
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
Reykjanesbær | Mikil fagnaðarlæti
brutust út hjá á fjórða hundrað fund-
argestum í Stapa í fyrrakvöld þegar
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra gaf vilyrði fyrir því að tvöföldun
næsta áfanga Reykjanesbrautarinn-
ar, frá þeim kafla sem nú hefur verið
tvöfaldaður og að Njarðvík, verði flýtt
og hann verði boðinn út í vor.
Boðað var til fundarins af Áhuga-
hópi um örugga Reykjanesbraut og
til hans mætti fjöldi þingmanna, auk
þriggja ráðherra, fjölda bæjarfulltrúa
og á fjórða hundrað almennra gesta.
Góð stemning var á fundinum eftir yf-
irlýsingu samgönguráðherra, og mál
manna að sjaldan hefði sést jafngóð
samstaða meðal þingmannahóps
kjördæmisins.
„Ég hef tekið þá ákvörðun, að
höfðu samráði við fjármálaráðherra
og formann og varaformann sam-
göngunefndar Alþingis, að verkið
verði boðið út nú í vor þegar sam-
gönguáætlun liggur fyrir og þá í heilu
lagi. Verklok munu ráðast af þeim til-
boðum sem berast,“ sagði Sturla, og
hlaut gríðarlegt klapp að launum.
Síðasti áfanginn frá þeim stað þar
sem tvöföld Reykjanesbraut endar í
dag og allt til Njarðvíkur er um 10,5
km, og sagði Sturla að kostnaður við
tvöföldun á þessum kafla yrði að lík-
indum tæpir tveir milljarðar króna,
en inni í þeirri tölu er kostnaður við
mislæg gatnamót. Spurður um hvar
ætti að fá fé til þess að flýta fram-
kvæmdunum sagði Sturla að það
mundi koma betur í ljós þegar sam-
gönguáætlun yrði samþykkt, en hún
er nú í vinnslu.
Ekki langt að bíða
Sturla sagði hagkvæmast að bjóða
út allan 10,5 km kaflann í einu, og
meta framkvæmdahraðann á grund-
velli þeirra tilboða sem berast. „Fáist
hagstæð tilboð verður þess ekki langt
að bíða að við getum fagnað verklok-
um.“
Í ræðu sinni sagði Sturla Böðvars-
son samgönguráðherra að það hefði
síður en svo komið honum á óvart að
sjá slíkan mannfjölda á fundinum, það
endurspeglaði áhuga á bættu öryggi í
umferðinni. „Betra vegakerfi er stór
þáttur í umferðaröryggi og engum
dylst að í þeim efnum skiptir miklu
máli hvernig staðið er að uppbygg-
ingu og endurbótum á Reykjanes-
braut.“
Guðmundur Hallvarðsson, formað-
ur samgöngunefndar Alþingis, sagði
að erfitt væri að toppa yfirlýsingu
ráðherra, en sagðist fagna henni, og
því að verklok yrðu fyrr en áætlað
hefði verið. Hann sagði kaflana þar
sem tvöföld braut breyttist í einfalda
hættulega ef athygli ökumanna væri
ekki við aksturinn og því brýnt að þar
yrði bætt úr.
Samstaða Suðurnesjamanna vegna
tvöföldunar Reykjanesbrautar varð
Drífu Hjartardóttur, þingmanni
Sjálfstæðisflokks, að umræðuefni og
sagði hún afar ánægjulegt að sjá að
menn tækju höndum saman um mál
sem þetta, bæði almenningur og þing-
menn kjördæmisins. „Þingmanna-
hópurinn hefur verið afskaplega sam-
stæður og samhuga í þessu verki. […]
Við munum svo sannarlega beita okk-
ur fyrir því að halda ráðherra og
vegamálastjóra við efnið, hálfnað er
verk þá hafið er, verkinu verður lokið,
skóflan er tilbúin og vel brýnd. Tím-
inn er mannslíf.“
Vantar 1 milljarð króna
Jón Gunnarsson, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, fagnaði því að verkið
verður boðið út í heild sinni í vor. „En
ég saknaði þess að heyra hvaða fjár-
muni ráðherra mun leggja til að tekn-
ir verði til hliðar í þetta verkefni, mér
sýnist að það vanti um það bil 1 millj-
arð króna miðað við þau tilboð sem við
höfum séð undanfarna daga, og miðað
við þær fjárhæðir sem til eru í þetta á
þessu ári og því næsta. Eitt er að
bjóða út og annað að eiga fyrir því
þegar tilboðin koma.“
Þriðji áfangasigurinn að því að
Reykjanesbrautin öll verði tvöfölduð
vannst á fundinum, að mati Hjálmars
Árnasonar, þingmanns Framsóknar-
flokks og varaformanns samgöngu-
nefndar. Fyrstu tveir áfangasigrarnir
voru að ná viðurkenningu á verkinu
inn á samgönguáætlun, og að taka
þann hluta sem nú er tvíbreiður í
notkun á síðasta ári.
„Þriðji áfanginn vannst í kvöld með
yfirlýsingu samgönguráðherra um að
verkið yrði með vordögum boðið allt
út,“ sagði Hjálmar. „Það þarf enginn
að efast um stuðning allra þing-
manna, hvar í flokki sem þeir standa,
við þetta. […] Vilji ríkisstjórnarinnar
liggur hér fyrir, því hér talar sam-
gönguráðherra sem fulltrúi ríkis-
stjórnar, og um vilja þingsins þarf
ekki að efast.“
Magnús Þór Hafsteinsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins, fagnaði
yfirlýsingu ráðherra, svo langt sem
hún náði. Hann benti á að skera ætti
vegafé verulega niður á næstu árum
og vildi fá skýrari svör frá ráðherra
um hvaðan ætti að taka það fé sem
fara ætti í að flýta tvöföldun Reykja-
nesbrautar. Ráðherra svaraði spurn-
ingum þingmannsins en sagði ekki
hægt að segja nákvæmlega til um
fjármögnun fyrr en samgönguáætlun
yrði samþykkt, sem gerðist á vordög-
um.
Brautin upphituð með
hjólastíg og reiðstíg
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, sagði að erfitt væri að slá
við yfirlýsingu samgönguráðherra,
nema þá kannski með því að segja að
Reykjanesbrautin yrði ekki bara upp-
lýst, heldur einnig upphituð og hjól-
reiða- og göngustígur öðrum megin
við brautina og reiðstígur hinum meg-
in og hlaut að launum hlátrasköll
fundargesta. Hann sagði að rökin fyr-
ir því að breikka brautina væru frekar
tengd öryggi vegfarenda en umferð-
arþunga og fagnaði orðum sam-
gönguráðherra um að útboðinu yrði
flýtt enda með því verið að ráðast í
framkvæmd sem yrði varanleg.
Á fjórða hundrað sótti borgarafund um tvöföldun Reykjanesbrautar í Stapa í fyrrakvöld
Næsti áfangi verð-
ur boðinn út í vor
Morgunblaðið/Árni Torfason
Yfirlýsingarfundur Fundargestir á fjórða hundrað voru að vonum ánægð-
ir með yfirlýsingu samgönguráðherra og þingmanna á fundinum.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Fékk skófluna Steinþór Jónsson,
formaður áhugahóps um örugga
Reykjanesbraut, afhenti sam-
gönguráðherra skóflu til að fram-
kvæmdir gætu hafist sem fyrst.LEIKHÓPURINN Voxarena úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja gladdi fund-
armenn með því að dreifa bollum, kaffi og gosdrykkjum fyrir fundinn,
enda bolludagur á mánudag. Krakkarnir voru allir klæddir í trúðsbúninga,
og sagði Máni Ingólfsson það tengjast leikriti sem hópurinn ætlar að frum-
sýna í 88-húsinu á föstudag.
Leikritið sem hópurinn ætlar að sýna er verkið Er tilgangur, en hópur-
inn mun leika nokkuð aðra útgáfu af verkinu en þá alvarlegu uppsetningu
sem sett var upp fyrir um 15 árum í Keflavík. „Við erum búin að setja dans
og söngva og trúða inn í verkið. Við köllum þetta sirkus-söngleik með stór-
hættulegum áhættuatriðum,“ segir Máni, áður en hann heldur aftur af stað
í að taka á móti gestum.
Stórhættuleg áhættuatriði
brjann@mbl.is
0 1 2 3 4 5 106%
2
%
$!!
3
2+
0."
456,7/
78 +
,-
(
&
9* "!
!
3
- !
**+
&
+
&! !!
7."% 8
"