Morgunblaðið - 09.02.2005, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 25
UMRÆÐAN
NOKKUÐ er síðan umræður um
sameiningu Tækniháskóla Íslands
(THÍ) og Háskólans í Reykjavík
(HR) urðu opinberar. Í því samein-
ingarferli gerðist margt sem ekki
hefur farið hátt, en varðar stöðu
ríkisháskólanna og
hlýtur að teljast eðli-
legt að háskólarnir
frétti af. Samkvæmt
háskólalögum flestra
ef ekki allra háskóla
hérlendis er há-
skólaráð æðsta stjórn-
vald skólans. Þótt há-
skólaráð ríkisháskóla
og einkarekinna há-
skóla séu í eðli sínu
ólík er í báðum til-
fellum um stjórn skól-
anna að ræða. Há-
skólaráð ríkisháskól-
anna eru skipuð
einstaklingum úr hópi starfsmanna
skólans, nemendum og ein-
staklingum tilnefndum af ráðherra.
Ráðherra er yfirvald stofnunar-
innar og fulltrúi ríkisins sem er
„eigandinn“ ef gerð er samlíking
við einkaháskólana. Vilji eigandi
leggja niður stofnun eða fyrirtæki
sem undir hann fellur, þá er það í
hans valdi. En það sem ég vil gera
að umtalsefni er hvernig staðið er
að því. Um aldir hefur það verið
stefna háskóla að vera óháðir
stjórnvöldum, þannig að ekki sé
hægt að beygja vísindin undir póli-
tískan vilja stjórnvalda á hverjum
tíma. Að óska háskóla þess hlut-
skiptis að pólitískt kjörinn ráð-
herra sé óskorað æðsta stjórnvald
hans er víðsfjarri frjálsri hugsun
háskóla og býður hættunni heim.
Engu að síður virðist það vera
hlutskipti rektors Tækniháskólans,
Stefaníu Katrínar Karlsdóttur, eins
og hún hefur sýnt í framkomu
sinni við háskólaráð Tækniháskól-
ans og fram kom í grein hennar í
Morgunblaðinu á milli jóla og ný-
árs.
Vinnulagið við fyrirhugaða sam-
einingu Tækniháskólans og Há-
skólans í Reykjavík fylgir þessu
sjónarmiði rektors Tækniháskólans
út í ystu æsar, eða svo vitnað sé í
orð rektors sjálfs: „Þó að há-
skólaráð sé stjórn stofnunar þá eru
það eigendur stofnunar (mennta-
málaráðuneytið) sem fer með hið
eiginlega vald sem stjórn fyr-
irtækis á almennum markaði fer
venjulega með, enda sitja þar þá
fulltrúar eigenda sem ekki á að
fullu við hér, í það
minnsta eru fulltrúar
kennara og fulltrúi
nemenda ekki í um-
boði eigenda í stjórn.“
Ef leggja á niður
stofnun hlýtur að telj-
ast eðlilegt að stjórn
hennar sé sú fyrsta
sem af því fær að vita,
jafnvel þótt hún fái
engu ráðið um ákvörð-
unina. Það er ein-
hvernvegin lýðræði-
legra! Eigi ráðherra
og rektor einir að
stjórna þarf ekkert
háskólaráð, ekkert lýðræði, enga
umræðu – bara vald. Og þannig
var staðið að málum hjá Tæknihá-
skólanum síðasta sumar.
Það er ljóst að umræða um sam-
einingu Tækniháskólans og Há-
skólans í Reykjavík hófst um mitt
sumar 2004. Aldrei var haft sam-
band við háskólaráð Tækniháskól-
ans um þessar viðræður eða fyr-
irætlan. Opinber tilkynning um
sameininguna var birt í lok ágúst.
Það var ekki fyrr en 30 mínútum
áður en tilkynningin var lesin op-
inberlega sem fulltrúum kennara í
háskólaráði Tækniháskólans var
sagt af fyrirhugaðri sameiningu.
Að ekkert samráð sé við stjórn
eða starfsmenn skólastofnunar við
slíkar breytingar er alveg ótrúleg
staðreynd. Auk rektors tók að
sögn aðeins deildarforseti tækni-
deildar þátt í þeim viðræðum fyrir
hönd Tækniháskólans, engir aðrir
voru upplýstir um málið, og há-
skólaráði ekki einu sinni kynnt
hvaða áform væru uppi um framtíð
skólans, frekar en því kæmi þetta
ekki við.
Hver er staða annarra háskóla?
Eru háskólaráðsmenn annarra há-
skóla meðvitaðir um stöðu sína í
ráðinu og stöðu ráðsins almennt
gagnvart „eigendum“? Er þetta
fordæmi sem hér er gefið þess eðl-
is, að hægt sé láta það fram hjá sér
fara? Ég bið starfsmenn annarra
ríkisháskóla að athuga, að sé slíkt
gert einu sinni átölulaust, þá má
líta á það sem fordæmisgefandi.
Tilgangur sameiningar Tæknihá-
skólans og Háskólans í Reykjavík
er ekki til umræðu hér. En það er
ljóst að með svona vinnubrögðum á
vettvangi háskóla er verið að
leggja lýðræðið undir, því kjörin
stjórn er stjórn, hvort sem for-
manni hennar líkar betur eða verr.
Um stjórn háskóla
Ragnhildur Þórarinsdóttir
fjallar um vinnulag við
fyrirhugaða sameiningu
Tækniháskólans og
Háskólans í Reykjavík
’Eigi ráðherra og rektor einir að stjórna
þarf ekkert háskólaráð,
ekkert lýðræði, enga
umræðu – bara vald.‘
Ragnhildur
Þórarinsdóttir
Höfundur er kennari við
frumgreinadeild THÍ og varamaður
kennara í háskólaráði THÍ.
Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég
er ein af þeim sem heyrði
ekki bankið þegar vágest-
urinn kom í heimsókn.“
Vilhjálmur Eyþórsson:
„Forystumennirnir eru und-
antekningarlítið menntamenn
og af góðu fólki komnir eins
og allir þeir, sem gerast
fjöldamorðingjar af hugsjón.
Afleiðingar þessarar auglýs-
ingar gætu því komið á
óvart.“
Jakob Björnsson: „Mann-
kynið þarf fremur á leiðsögn
að halda í þeirri list að þola
góða daga en á helvítis-
prédikunum á valdi óttans
eins og á galdrabrennuöld-
inni.“
Jakob Björnsson: „Það á að
fella niður með öllu aðkomu
forsetans að löggjafarstarfi.“
Ólafur F. Magnússon:
„Ljóst er að án þeirrar hörðu
rimmu og víðtæku umræðu í
þjóðfélaginu sem varð kring-
um undirskriftasöfnun Um-
hverfisvina hefði Eyjabökk-
um verið sökkt.“
Ásthildur Lóa Þórsdóttir:
„Viljum við að áherslan sé á
„gömlu og góðu“ kennsluað-
ferðirnar? Eða viljum við að
námið reyni á og þjálfi sjálf-
stæð vinnubrögð og sjálf-
stæða hugsun?“
Bergþór Gunnlaugsson:
„Ég hvet alla sjómenn og út-
gerðarmenn til að lesa sjó-
mannalögin, vinnulöggjöfina
og kjarasamningana.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
NÝLEGT svar heilbrigðis-
ráðherra við fyrirspurn á Alþingi
um utanlandsferðir lækna hefur
vakið nokkra athygli eins og alltaf
þegar landinn og ferðalög eru ann-
ars vegar. Morgunblaðið tekur
fréttatilkynninguna hráa, bara sett
stór fyrirsögn og engin tilraun gerð
til að rýna í efnið og athuga hvort
þarna leynist kannski
verðlaun fyrir rann-
sóknarblaðamann árs-
ins 2005.
Það að eitt fyr-
irtæki skyldi neita að
svara þar sem fyr-
irspurnin átti ekki til-
verurétt kom ekki
fram, heldur að fyr-
irtækið hefði ekki
svarað fyrirspurninni
sem merkir allt ann-
að.
Ég sá mig til-
neyddan að hringja í
blaðamann við mbl.is
og benda á okkar rök.
Þau voru tekin til
greina og koma fram í
sérstakri hliðargrein í
blaðinu föstudaginn 4.
feb. Þar með taldi ég
að málið væri afgreitt
en svo var ekki.
Laugardaginn 5.
feb. fjallar blaðið í
nafnlausri grein í mið-
opnu sem ber yfir-
skriftina „Læknar í
boði lyfjafyrirtækja“
um það að fyrirtæki
mitt Austurbakki hf.
hafi neitað að veita
heilbrigðisráðuneyti upplýsingar og
telur það fráleitt og hvorki hags-
munum lækna né lyfjaiðnaðar til
framdráttar.
Þarna er þetta ágæta blað komið
út í rekstrarráðgjöf að mínu mati
og ber að þakka allar góðar ábend-
ingar. Hins vegar er ég mjög ósam-
mála hvernig blaðið tekur á málinu
því þarna voru embættismenn
Lyfjastofnunar að fara fram úr
sjálfum sér og biðja um upplýs-
ingar, sem þeir hafa ekkert með að
biðja um. Þarna er klárlega um of-
túlkun á reglugerðum að ræða og
allar lagaheimildir skortir.
Nýlega skrifaði Sigmundur Ernir
grein í Fréttablaðið, þar sem hann
tekur svo djúpt í árinni að íslenskir
embættismenn séu sýnu verri en
þeir dönsku kollegar sem þeir tóku
við af.
Morgunblaðið er af
mörgum talið frjáls-
hyggjublað og hefði ég
því átt von á að það
stæði með borgurunum
gegn yfirgangi emb-
ættisvaldsins. Í dag
eru það læknar sem
verða fyrir þessum yf-
irgangi. Oft eru það al-
þingismenn og lax-
veiðiferðir þeirra,
bankamenn að blaða-
mönnum sjálfum
ógleymdum. Læknar
eru sú stétt sem fer
hvað nákvæmast eftir
skráðum siðareglum
hvað varðar samskipti.
Mættu blaðamenn, al-
þingismenn og aðrir
taka þá sér til fyrir-
myndar.
Þar sem ég starfa á
mörgum sviðum við-
skiptalífsins get ég full-
yrt að þær ferðir sem
læknar og annað heil-
brigðisstarfsfólk tekur
þátt í á vegum míns
fyrirtækis eru sam-
kvæmt reglum og öll-
um til sóma. Mikið
væri gott ef sama væri hægt að
segja um alla þjóðfélagsflóruna. En
eitt er víst að útþráin er rík í okkur
og virðist það eiga jafnt við um háa
sem lága.
Morgunblaðið
á villigötum
Árni Þór Árnason gerir
athugasemd við skrif
Morgunblaðsins
Árni Þór
Árnason
’Morgunblaðiðer af mörgum
talið frjáls-
hyggjublað og
hefði ég því átt
von á að það
stæði með borg-
urunum gegn
yfirgangi emb-
ættisvaldsins.‘
Höfundur er forstjóri
Austurbakka hf.
Í DAG og á morgun ganga stúd-
entar við Háskóla Íslands til kosn-
inga og leggur Vaka,
félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, við Háskóla
Íslands, verk sín í dóm
kjósenda. Starfsárið
sem senn er að renna
sitt skeið á enda er
sögulegt því sjaldan
hefur starf ráðsins
verið jafnviðburðaríkt.
Það hefur ekki farið
fram hjá neinum að
tímabilið hefur ein-
kennst af baráttu og
hefur Stúdentaráð
ítrekað gripið til að-
gerða til að verja hags-
muni stúdenta.
Ósanngjarnar regl-
ur voru settar um
greiðslufrest skrán-
ingargjalda. Stúd-
entaráð undir forystu
Vöku mætti málinu af
fullri hörku og vann
sigur í því máli. Frest-
ur var gefinn fram í
byrjun júní sem hafði
mikið að segja fyrir
stúdenta enda flestir
orðnir blankir í lok
vetrar.
Til tíðinda dró í
skólagjaldaumræðunni
í vor. Forysta Stúd-
entaráðs mótmælti
skólagjöldum og virkj-
aði stúdenta með sér í
baráttuna. Stúdentar
sýndu samstöðu í verki
og skrifuðu 4.705 stúd-
entar undir yfirlýsingu
gegn skólagjöldum. Þá
fjölmenntu þeir fyrir utan að-
albyggingu í öflugum fjöldamót-
mælum og sigur vannst þegar
menntamálaráðherra lýsti því yfir
að ekki yrðu tekin upp skólagjöld í
grunnnámi við Háskóla Íslands.
Í sumar boðaði Háskólinn skert-
an þann tíma sem Þjóðarbókhlaðan
er opin þar sem sjálfu Háskóla-
bókasafninu, helstu vinnu- og rann-
sóknaraðstöðu háskólastúdenta,
var skellt í lás klukkan 19 í stað 22
áður. Forysta Stúd-
entaráðs tók þann
slag og vann sigur í
því máli. Tíminn sem
haft var opið var
lengdur á ný og
tryggði Stúdentaráð,
undir forystu Vöku,
enn og aftur jákvæða
niðurstöðu fyrir stúd-
enta.
Þá barðist forysta
Stúdentaráðs gegn
hækkun skráning-
argjalda og sendi for-
ystan frá sér vandaða
greinargerð þar sem
forsendur hækkunar-
innar voru hraktar.
Sú greinargerð var
uppistaða í röksemd-
arfærslu stjórnarand-
stöðunnar sem and-
mælti hækkuninni á
Alþingi. Sá slagur er
ekki búinn því við
munum halda áfram
að berjast gegn hækk-
uninni enda hefur for-
ysta Stúdentaráðs
sýnt fram á að for-
sendur hækkunar-
innar eiga ekki við rök
að styðjast.
Vaka sýndi það
margsinnis á starfs-
árinu hve mikilvægt
það er að innan skól-
ans sé öflugur mál-
svari starfandi fyrir
stúdenta. Vaka mun
áfram láta verkin tala,
enda hafa aðferðir
Vöku skilað árangri.
Ég hvet stúdenta til að koma á
kjörstað og setja við X við A.
Frábær árangur
Vöku
Jarþrúður Ásmundsdóttir
skrifar vegna kosninga
í Stúdentaráð HÍ
Jarþrúður
Ásmundsdóttir
’Í sumar boðaðiHáskólinn
skertan þann
tíma sem Þjóð-
arbókhlaðan er
opin þar sem
sjálfu Háskóla-
bókasafninu,
helstu vinnu- og
rannsóknar-
aðstöðu há-
skólastúdenta,
var skellt í lás
klukkan 19 í
stað 22 áður.‘
Höfundur er formaður Stúdentaráðs
Háskóla Íslands.
Bridsfélagið Muninn,
Sandgerði
Aðalsveitakeppni félagsins er lok-
ið með sigri Ný-ungar. Keppnin að
þessu sinni var óvenju jöfn en aðeins
munaði 13 stigum á sveit Ný-ungar
sem hlaut 140 stig og sveitarinnar
sem varð í sjötta sæti með 127 stig.
Í sveit Ný-ungar spiluðu Garðar
Garðarsson, Kristján Örn Kristjáns-
son, Grethe Iversen, Gunnar Guð-
björnsson, Óli Þór Kjartansson og
Kjartan Ólason. Sveit VÍS varð í
öðru sæti með 134 stig en síðan komu
sveitir Sparisjóðsins í Keflavík,
Toyota, Benna pípara og SG-bíla.
Nk. miðvikudag 9. febrúar hefst
aðaltvímenningur félagsins. Spilað
verður í 3 kvöld og hefst spila-
mennskan kl. 19.30. Spilað er í fé-
lagsheimilinu á Mánagrund.
Bridsfélag Kópavogs
Þegar einni umferð er ólokið í
sveitakeppninni, eru Siggi Sigurjóns
og félagar í vænlegri stöðu.
Staða efstu sveita:
Sigurður Sigurjónsson 171
Ragnar Jónsson 148
Vinir 130
Jens Jensson 130
Bridsfélag Selfoss
og nágrennis
Aðalsveitakeppni félagsins er nú
rétt rúmlega hálfnuð, en fjórða um-
ferðin í þessari skemmtilegu keppni
var spiluð 3. febrúar sl. Úrslit um-
ferðarinnar voru þessi:
Örn Guðjónsson – Anton Hartmannsson21-9
Eyjólfur Sturlaugsson – Gísli Hauksson 21-9
Garðar Garðarsson – Birgir Pálsson 9-21
Grímur Magnúss. – Össur Friðgeirss. 19-11
Staða efstu sveita að loknum 4 um-
ferðum er þessi:
Grímur Magnússon 90
Birgir Pálsson 76
Örn Guðjónsson 67
Efstir í fjölsveitaútreikningi spil-
ara eftir 4 leiki eru:
Vilhjálmur Þór Pálsson 1,48
Björn Snorrason 1,26
Kristján Már Gunnarsson 1,26
Nánar um gang mála á heimasíð-
unni www.bridge.is/fel/selfoss.
Eldri borgarar í Hafnarfirði
Föstudaginn 4. febrúar var spilað
á 6 borðum.
Úrslit í N/S:
Einar Markússon - Sverrir Gunnarsson 114
Stígur Herlufsen - Sigurður Herlufsen 106
Bjarnar Ingimarss - Kristján Ólafsson 104
A/V
Anton Jónsson - Einar Sveinsson 113
Jón R. Guðmunds - Kristín Jóhannsd. 105
Sófus Berthelsen - Haukur Guðmunds 104
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson