Morgunblaðið - 09.02.2005, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 33
DAGBÓK
Tónlist
Pravda | Sessý og Sjonni leika kl. 22.
www.sessy.net.
Myndlist
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – Stefnumót
lista og minja.
Gallerí Humar eða frægð! | Ásdís Sif Gunn-
arsdóttir sýnir vídeóverk.
Gallerí I8 | Finnur Arnar sýnir ýmis mynd-
verk.
Gerðuberg | Rosemarie Trockel sýnir ljós-
myndir, skúlptúra, teikningar og myndbönd.
Sigríður Salvarsdóttir í Vigur sýnir listaverk
úr mannshári í Boganum.
Grafíksafn Íslands | Rut Rebekka sýnir
vatnslita og olíumálverk.
Hafnarborg | Helgi Hjaltalín Eyjólfsson er
myndhöggvari febrúarmánaðar í Hafn-
arborg.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk í forkirkju.
Hrafnista Hafnarfirði | Tryggvi Ingvarsson,
rafvirkjameistari og heimilismaður á Hrafn-
istu, sýnir útsaum og málaða dúka í Menn-
ingarsal.
Kaffi Sólon | Óli G. Jóhannsson sýnir óhlut-
læg verk.
Listasafn Reykjanesbæjar | Kristín Gunn-
laugsdóttir – mátturinn og dýrðin, að eilífu.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Þórður
Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar. Bjargey
Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt útlit mitt ekki
blekkja þig. Erró – Víðáttur. Brian Griffin –
Áhrifavaldar.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Hörður Ágústsson – yfirlitssýning í vest-
ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur
Örn Friðriksson – Markmið XI. Samvinnu-
verkefni í miðrými. Yfirlitssýning Kjarvals í
austursal.
Safn | Stephan Stephensen – AirCondition.
Jóhann Jóhannsson – Innsetning tengd
tónverkinu Virðulegu forsetar. Á hæðunum
þremur eru að auki ýmis verk úr safneign-
inni, þ.á m. ný verk eftir Roni Horn, Pipilotti
Rist og Karin Sander.
Thorvaldsen Bar | Kristín Tryggvadóttir
sýnir samspil steina, ljóss og skugga.
Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson er
myndlistarmaður mánaðarins í samstarfi
Þjóðmenningarhússins og Skólavefjarins.
Sýning á verkum Braga í veitingastofu og
kjallara.
Dans
Borgarleikhúsið | Íslenski dansflokkurinn
kynnir verk eftir Ernu Ómarsdóttur og Emil
Hrvatin. Þetta er sýning fyrir hermenn í
friðargæslu, fyrir þá sem láta sig lífið varða
og þá sem stendur á sama. Miðapantanir í
Borgarleikhúsinu í síma 568 8000 eða
midasala@borgarleikhus.is www.id.is.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur | Opið hús að
Álfabakka 14a kl. 20.30 í kvöld og annan
hvern miðvikudag. Gömlu dansarnir.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Tónlistararfur Ís-
lendinga. Handritin. Þjóðminjasafnið á fyrri
hluta 20. aldar. Heimastjórnin 1904. Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi er skáld mán-
aðarins.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóð-
minjasafnsins, Þjóð verður til – menning og
samfélag í 1.200 ár. Opið frá kl. 11–17.
Mannfagnaður
Félagsheimilið Leikskálar | Miðvikudaginn
9. febrúar verður hið árlega grímuball hald-
ið í Leikskálum kl. 19.15–21. Aðgangseyrir
300 kr. fyrir grímuklædda. Veitt verða verð-
laun fyrir flottustu, frumlegustu, hóp og fal-
legustu búningana. Félagsmiðstöðin OZ.
Fréttir
Kínaklúbbur Unnar | Í dag hefst nýtt ár skv.
kínverska almanakinu, ár hanans. Í tilefni
þess verður Kínaklúbbur Unnar með uppá-
komu hjá Sævari Karli, í Bankastræti, kl. l5.
Allir fullorðnir velkomnir. Þá verður Unnur
Guðjónsdóttir með sýningu á kínverskum
búningum í glugga verslunarinnar í dag og
næstu tvær vikur.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun á miðvikudögum kl. 14–17 á
Sólvallagötu 48. Svarað í síma 551 4349
þri.–fim. kl. 11–16. Tekið við vörum og gjöfum
þri. og mið. kl. 11–16. netfang. mnefnd@mi.is.
Fundir
Geðhjálp | Fundir fyrir félagsfælna í Tún-
götu 7 öll miðvikudagskvöld í vetur kl. 20.
Hótel Bjarg | Sjálfstæðisflokkurinn heldur
stjórnmálafund á morgun kl. 20. Yfirskrift
fundarins er: Með hækkandi sól – lægri
skattar – aukin hagsæld. Framsögumenn:
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og
Arnbjörg Sveinsdóttir alþingismaður.
Höllubúð | Slysavarnadeild kvenna í
Reykjavík heldur aðalfund á morgun kl. 20.
Að aðalfundastörfum loknum verður boðið
upp á þorramat.
Fyrirlestrar
Háskólinn á Akureyri | Félagsvísindatorg
kl. 12, í stofu L201 Sólborg við Norðurslóð.
Birgir Guðmundsson fjallar um mikilvægi
verðlauna BÍ fyrir íslenska fjölmiðlun. Til-
kynnt verður hverjir hljóta verðlaunin laug-
ardaginn 12. febrúar. Birgir Guðmundsson
er aðjunkt við Félagsavísinda- og lagadeild
Háskólans á Akureyri.
Háskóli Íslands | Daniel Chartier, kennari og
fræðimaður (Université du Québec à
Montréal), flytur opinn fyrirlestur í stofu 101
í Lögbergi. Titill fyrirlestrarins: „Norh as an
aesthetic: northern perspectives on
Québec culture and identity.“
Háskóli Íslands | Anne Maria Sparf heldur
fyrirlestur um lokaverkefni sitt til meist-
araprófs í umhverfisfræðum: Samanburður
á frammistöðu í umhverfismálum: Um-
hverfisviðmiðun í litlum og meðalstórum
fyrirtækjum í norrænni ferðaþjónustu. Fyr-
irl. er kl. 16.15, í stofu N–132, í Öskju.
Kennaraháskóli Íslands | Samuel Lefever
fjallar um þætti sem varða framtíð-
arhlutverk tungumálanáms og tungumála-
kennslu í fjölmenningarsamfélagi í Kenn-
araháskólanum kl. 16.15–18. Rætt verður
um nýtt hlutverk tungumálakennslu sem
stuðlar að aukinni menningarfærni og
þroska einstaklingsins.
Sögufélag | Kristín Einarsdóttir heldur fyr-
irlestur á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra
fræða kl. 20. Fyrirlesturinn nefnist „Er ein-
hvers að sakna? Öskudagssiðir Íslendinga
frá sveit í borg.“
Verkfræðideild Háskóla Íslands | Bergþór
Ævarsson heldur fyrirlestur um verkefni
sitt til meistaraprófs í rafmagns- og tölvu-
verkfræði. Fyrirlesturinn verður haldinn kl.
16, í stofu 158 í VR–II, húsakynnum verk-
fræðideildar Háskóla Íslands og nefnist:
Svaranir línulegra kerfa og bestunarverk-
efni.
Kynning
Hitt húsið | FFA – fræðsla fyrir fatlaða og
aðstandendur – heldur kynningarkvöld kl.
20–22, á möguleikum ungs fólks með
þroskahömlun til þátttöku í námi, leik og
starfi á erlendri grund. Fatlaðir og aðstand-
endur þeirra hvattir til að koma og kynnast
þeim möguleikum sem bjóðast.
Málstofur
Viðskipta- og hagfræðideild HÍ | Sigrún
Kjartansdóttir, forstöðumaður markaðs- og
sölusvið Íslandsbanka, kynnir niðurstöður
rannsóknar á því hvort fyrirtæki á íslensk-
um hlutabréfamarkaði séu að skrá, meta og
upplýsa um þekkingarverðmæti sín í mál-
stofu viðskipta- og hagfræðideildar kl.
12.20, í Öskju, stofu 132.
Börn
Greiningarstöð ríkisins | Öskudagsgleði kl.
15.30–17. Kötturinn sleginn úr tunnunni. All-
ir velunnarar, bæði börn og fullorðnir vel-
komnir. Mætum öll í búningum.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Köllum þá kvislinga
VORIÐ 1940 gerðu Þjóðverjar inn-
rás bæði í Danmörku og Noreg,
lönd sem hvorugt hafði óskað eftir
þýskum hernaði og svo var ábyggi-
lega um fleiri lönd sem hernumin
voru. Strax í upphafi hernámsins
fór að bera á andstöðu við Þjóðverja
meðal þessara þjóða. Norðmenn
leyndust í skógum og ekki síður í
fjalllendi, þar sem þeir voru vel
kunnugir. Þaðan gerðu þeir leift-
ursóknir á þýska herinn sem var
ókunnugur öllum staðháttum. Sama
var upp á teningnum í Danmörku.
Þar læddust menn um skógana, þar
voru þeir kunnugastir, og biðu
Þjóðverjar mikið afhroð í árásum
þar.
Í báðum þessum löndum voru
þessir andspyrnuhópar kallaðir
frelsishetjur. Ekki hryðjuverka-
menn eins og nú er tíska. Líkt og í
Írak kom innrásarherinn upp lepp-
stjórn sem var þeim þóknanlegur. Í
Osló var dubbaður upp forsætisráð-
herra, maður þeim þóknanlegur,
Quisling að nafni. Hér heima var
talað um kvislinginn.
Þegar tímar liðu varð kvislinga-
nafnið samheiti á öllum föðurlands-
svikurum sem studdu innrásarheri
á Norðurlöndum. Væri því ekki
ágætt að láta þetta nafn haldast yfir
þá sem vinna fyrir erlenda innrás-
arheri, hverjir og hvar sem þeir
eru? Köllum þá kvislinga.
Fordæmið er til staðar.
Sigursteinn Ólafsson,
Grænumörk 5, Selfossi.
Úrræðin eru engin
ÉG VIL taka undir orð Helga Áss
Grétarssonar sem hefur, ásamt
konu sinni og börnum, þurft að þola
áreiti og ofbeldishótanir geðsjúks
manns síðustu ár. Úrræðin í svona
málum eru engin þrátt fyrir kærur,
nálgunarbann og dóma. Maður sem
gerir svona er greinilega veikur á
geði og þarfnast hjálpar en ekki
fangelsisdóm. Lögreglan tekur mis-
alvarlega á svona málum og væmir
jafnvel fórnarlambið um móðursýki.
„Hvað segir þú og gerir sem æsir
manninn svona upp,“ segir lög-
reglan, sérstaklega ef málið varðar
fyrrverandi/núverandi sambýlisfólk
eða annarra tengdra aðila.
Anna Káradóttir.
Grimmhildur er týnd
GRIMMHILDUR hefur ekki sést
heima hjá sér að Mjóstræti 2, 101
Reykjavík, síðan þann 3. febrúar
síðastliðinn. Hún er alveg svört, fyr-
ir utan örfá hvít hár á bringunni og
er frekar smávaxin. Hún er merkt
með rauðri hálsól. Þeir, sem vita
eitthvað um ferðir hennar, hafi vin-
samlegast samband í síma 899 8855.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
H
rin
gb
ro
t
BRAUÐBÆR - SÍMI 511 6200 - FAX 511 6201
ODINSVE@ODINSVE.IS - WWW.ODINSVE.IS
SMURT BRAUÐ veisla í hverjum bita
ferming 2005
Fermingarblað Morgunblaðsins
kemur út laugardaginn 5. mars.
Fermingarblaðið hefur verið ein af vinsælustu
sérútgáfum Morgunblaðsins í gegnum árin og
verður blaðið í ár sérstaklega glæsilegt.
Fjallað veður um allt sem tengist fermingunni
svo ekki láta þetta blað framhjá þér fara.
Hvað vilja fermingarbörnin?
Maturinn
Tískan
Hárgreiðslan
Skreytingarnar
Myndatakan
Þekktu fermingarbarnið
Myndaleikur með glæsilegum verðlaunum
auglýsingar 569 1111
Umsjón: Hildur Loftsdóttir
Auglýsingar: Katrín Theódórsdóttir sími 568 1139
Panta þarf auglýsingar
fyrir kl. 16 mánudaginn 28. febrúar.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
„GEFJUNAR-sýningarnar
1942 – Jónas frá Hriflu og
sönn íslensk myndlist“ er
yfirskrift fyrirlestrar sem
Guðni Tómasson listsagn-
fræðingur flytur í Lista-
safni Íslands í dag kl. 17.30
í tengslum við sýninguna
Íslensk myndlist 1930—
1945.
Í fyrirlestrinum mun
Guðni segja frá myndlistar-
sýningum Jónasar Jóns-
sonar frá Hriflu á vormán-
uðum árið 1942, hinni
svokölluðu háðungarsýn-
ingu og einnig því sem Jón-
asi þótti frekar við hæfi
þegar kom að íslenskri
myndlist. Sagt verður frá tilraunum þessa merkilega stjórnmálamanns til að hafa áhrif á
framþróun íslenskrar myndlistar sem formaður menntamálaráðs Alþingis og hörðum
viðbrögðum listamanna við þeim tilraunum. Einnig verður fjallað um stýringartilburði
ráðamanna í Þýskalandi nasismans til að „bæta“ þýska myndlist og samanburður gerð-
ur á þessum tveimur tilraunum til þjóðnýtingar listanna.
Fyrirlestur um myndlist og Jónas frá Hriflu