Morgunblaðið - 09.02.2005, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Notaðu tímann til þess að hugsa
um vináttuna. Kona spurði vitring
eitt sinn að því hvernig hún gæti
aflað sér fleiri vina. Svar hans var:
Sýndu öðrum vinsemd.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Notaðu daginn í dag til þess að
velta fyrir þér afstöðu þinni til for-
eldra, kennara og yfirmannsins.
Þú vilt vera löghlýðin og sam-
vinnuþýð manneskja.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Veltu fyrir þér ferðalögum eða bú-
ferlaflutningum til fjarlægra staða.
Eða möguleikum til æðri mennt-
unar og verkefnum á sviði fjöl-
miðlunar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Á nýju tungli er ekki vitlaust að
hugsa um hvernig hægt er að
hnýta lausa enda í tengslum við
sameiginlegar eignir. Komdu ein-
hverju í verk sem þú hefur frest-
að.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nýtt tungl er beint á móti þínu
merki, sem þýðir að þú þarft að
leggja sérstaklega mikið á þig í
samskiptum við þína nánustu, ekki
síst maka og félaga.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Veltu því fyrir þér hvernig hægt
er að bæta vinnuaðstöðu þína.
Kannski er nóg að þú breytir við-
horfinu til vinnunnar. Ef þú hefur
gaman af viðfangsefnum þínum
þarftu aldrei að vinna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hugur þinn er hjá smáfólkinu
þennan mánuðinn. Listir, róm-
antík, orlof og skemmtanir eiga
líka hug þinn allan. Þig þyrstir í
tilbreytingu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Heimili og fjölskylda eru þér of-
arlega í huga um þessar mundir.
Þú vilt að nánasta umhverfi þitt sé
öruggt, ástríkt og í jafnvægi.
Sýndu gott fordæmi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Einhverjir í bogmannsmerki hafa
átt í vandræðum í samskiptum við
systkini að undanförnu. Hvernig
væri að rétta fram sáttahönd?
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hugsaðu um veraldlegar eigur
þínar á nýju tungli. Ert þú eigandi
dauðra hluta í kringum þig, eða
eiga þeir þig?
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn er sjálfur í fyrirrúmi
þennan mánuð. Fólk og tækifæri
sogast að þér. Það er í lagi að
hugsa stundum fyrst um sjálfan
sig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gættu þess að fá næga hvíld. Þú
getur ekki verið allt í öllu fyrir
alla öllum stundum, ef þú skilur.
Nú væri ráð að draga sig eilítið í
hlé.
Stjörnuspá
Frances Drake
Vatnsberi
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert spennandi, óvenjuleg og eftir-
minnileg manneskja sem vill koma
miklu til leiðar ef hægt er. Þú kýst frelsi og
vilt láta kylfu ráða kasti en ert jafnframt
vinnusöm og afkastamikil. Orð þín og
gerðir eru öðrum innblástur.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Náman, námsmannaþjónusta Lands-banka Íslands, veitir árlega náms-styrki til viðskiptavina sinna í fram-haldsskólum og jafnt innlendum sem
erlendum háskólum. Umsóknarfrestur um náms-
styrk rennur út 11. febrúar nk. en á síðasta ári
voru veittir styrkir til náms í afar fjölbreyttum
greinum.
Einn af styrkþegum Námunnar er Kristbjörn
Orri Guðmundsson líffræðingur, en hann vinnur
nú að doktorsrannsókn á sviði blóðmeina og
sameindalíffræði við læknadeild HÍ og er við-
fangsefni hans að kanna hvaða gen, þekkt og
óþekkt, eru tjáð í mismunandi undirflokkum
blóðmyndandi stofnfrumna úr mönnum og meta
breytingar sem verða á tjáningu þeirra þegar
frumurnar sérhæfast í átt til mismunandi
frumugerða blóðvefjarins. „Rannsóknin er
grunnrannsókn, eitt stykki í púsluspili líffræði
stofnfrumunnar, nokkurs konar innlit í líf frum-
unnar,“ segir Kristbjörn Orri og bætir við að
niðurstöður rannsóknanna geti veitt mikilvæga
innsýn inn í þá sameindalíffræðilegu ferla sem
stjórna vexti og sérhæfingu blóðmyndandi stofn-
frumna. „Aukin þekking á líffræði stofnfrumna
er mjög mikilvæg á mörgum sviðum líf- og
læknisfræði, m.a. í rannsóknum á hvítblæði og
við stofnfrumuígræðslur,“ segir Kristbjörn og
leggur um leið áherslu á farsælt samstarf við
fjölmarga aðila, bæði leiðbeinendur og sam-
starfsmenn.
Hvernig hefur styrkurinn frá Námunni hjálp-
að þér við þitt nám?
„Styrkurinn hefur m.a. nýst mér í tengslum
við þann hluta verkefnisins sem ég hef unnið að
og mun vinna að í Bandaríkjunum.“
Hvað getur orðið umsækjendum að vopni í
umsókninni?
„Að hafa umsóknina ítarlega og greinargóða
þ.e.a.s. skýra vel frá námsferli og fyrri reynslu.
Einnig að senda með umsókninni birtar greinar
og lokaritgerðir. Að auki tel ég mikilvægt að
skýra eins vel og hægt er frá framtíðaráformum
því þau sýna hvert námsmaðurinn stefnir. Að
lokum má nefna að það styrkir umsóknina að
senda með henni meðmælabréf.“
Hvaða þýðingu hafa svona styrkir fyrir rann-
sóknastarf hér á landi?
„Þar sem fjármagn til grunnrannsókna er af
skornum skammti hérlendis hafa styrkir sem
þessi mikla þýðingu, hvort sem þeir eru notaðir
til framfærslu eða til kaupa á vörum til rann-
sókna.
Að auki eru styrkirnir mikil viðurkenning til
nemenda og hvatning að halda áfram á sömu
braut.“
Námsstyrkir | Námsmannaþjónusta Landsbanka Íslands veitir námsstyrki til viðskiptavina
Styrkir hafa mikla þýðingu
Kristbjörn Orri Guð-
mundsson er fæddur í
Reykjavík 18. nóv-
ember 1970. Hann lauk
B.Sc.-námi í líffræði frá
líffræðiskor HÍ 1995 og
M.Sc. námi í lífvís-
indum frá læknadeild
HÍ 1999. Hann stundar
nú doktorsnám í lífvís-
indum við læknadeild
HÍ. Kristbjörn hefur
starfað í Blóðbankanum frá 1996 að ýmsum
rannsóknarverkefnum auk þess að vinna í
klínísku prógrammi sem snýr að ígræðslu eig-
in blóðmyndandi stofnfrumna. Kristbjörn er
kvæntur Björgu Guðmundsdóttur líffræðingi
og eiga þau þrjár dætur.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 brumhnappar, 8
hefja upp, 9 brotna, 10
mánaðar, 11 haldist, 13
pílára, 15 karlfugl, 18
sundfuglar, 21 bein, 22
slöngvuðu, 23 mjúkan, 24
geðslag.
Lóðrétt | 2 garm, 3 þurfa-
lingur, 4 tekur, 5 kjánum,
6 feiti, 7 hrun, 12 móðurlíf,
14 greinir, 15 síðast af
öllu, 16 rengdu, 17 gras-
flöt, 18 styrkir, 19 dútla,
20 brún.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 búbót, 4 nýtur, 7 lokið, 8 göfgi, 9 ala, 11 skap, 13
gata, 14 ostra, 15 fúlt, 17 tólf, 20 bar, 22 gifta, 23 ábata, 24
niðra, 25 apana.
Lóðrétt | 1 belgs, 2 bukka, 3 taða, 4 naga, 5 tafla, 6 reika,
10 litla, 12 pot, 13 gat, 15 fegin, 16 lyfið, 18 óraga, 19 flasa,
20 bala, 21 ráma.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 9, postu-
línsmálning kl. 9 og kl. 13 bókaormar,
leshringur kl. 13.30, vinnustofa opin.
Ásgarður | Þorrablót SÁÁ verður
haldið laugardaginn 12. febrúar í Ás-
garði, Glæsibæ. Húsið opnað kl. 19.
Miðasala hjá SÁÁ í Síðumúla 3–5.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, glerlist, spil-
að bridge, vist, fótaaðgerð.
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í
Breiðfirðingabúð sunnud. 13. feb. kl.
14. 2. dagur í 4. daga keppni.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús kl. 13–16.
Vilborg Gunnarsd. leiðbeinir við leir-
vinnu og málun á gler. Spilað, teflt,
spjallað. Kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofa félagsins er opin kl. 10 til 11.30.
Félagsvist er spiluð kl. 13 í Gjábakka.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Sam-
félagið í nærmynd kl. 11, þáttur um
málefni eldri borgara á RÚV, síðdeg-
isdans kl. 14.30–16.30, húsið opnað kl.
14, Guðmundur Haukur leikur, kaffi og
terta, dansstjórar Matthildur Guð-
mundsd. og Jón Freyr Þórarinss.,
söngfélag FEB, kóræfing kl. 17.
Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu-
starf í Ármúlaskóla kl. 16.20 í stofu
V24. Bridgeklúbbur í KÍ-húsi kl. 14.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Lax-
dæla í umsjá Arngríms Ísbergs heldur
áfram á miðvikudögum kl. 16.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, kl. 10 og kl. 11
glerskurður kl. 13. Í Garðabergi er
handavinnuhorn og bridge kl. 13,
Hrafnkell Helgason með fyrirlestur kl.
16 FEBG. Opið hús í Holtsbúð kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 10.30 undirbún-
ingur fyrir íþróttahátíð F.Á.Í.A. sem
hefst kl. 14 í Íþróttamiðstöð v/
Austurberg, frá hádegi spilasalur op-
inn, kl. 14.30 kóræfing.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna, bútasaumur, útskurður og hár-
greiðsla, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 11 banki,
kl. 12 hádegismatur, kl. 13 bridge, kl. 15
kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi frá kl.
9, myndmennt kl. 10, línudans kl. 11,
myndmennt og glerskurður kl. 13, pílu-
kast kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–15 klippimyndir kermik o.fl., um-
sjón Sigrún. Jóga kl. 9–12. Sam-
verustund kl. 10.30. Námskeið í mynd-
list kl. 15–18. Böðun virka daga fyrir
hádegi. Fótaaðgerðir–hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið öllum
opið. Listasmiðja og Betri stofan; Gler-
skurður og frjáls handavinna. Fótaað-
gerðarstofa 897–9801. Hárgreiðslu-
stofa 568–3139. Bókmenntaklúbbur
annað kvöld kl. 20–21.30. Uppl. í s.
568–3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Keila í Mjódd á
morgun, fimmtudag, kl. 10.
Laugardalshópurinn í Þróttarheim-
ilinu | Jóga, teygjur slökun fyrir eldri
borgara í dag kl. 12.10.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–16.30 op-
invinnustofa, kl. 14 félagsvist–kaffi–
verðlaun opin fótaaðgerðastofa.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–16 myndmennt,
kl. 10–12 sund (Hrafnistulaug), kl.
10.15–11.45 spænska, kl. 11.45–12.45
hádegisverður, kl. 12.15–14 versl-
unarferð í Bónus, Holtagörðum, kl. 13–
14 Spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurð-
ur, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg | Smiðja kl. 8.45, bókband,
handmennt og hárgreiðsla kl. 9, fót-
snyrting kl. 9.30, morgunstund kl. 10,
kóræfing kl. 13, verslunarferð kl. 12.30,
lesklúbbur kl. 15.30 í setustofu á 3.h.
Þórðarsveigur 3 | Opið hús, handverk
kl. 13.30–16.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn
kl. 10–12. Kirkjuprakkarar (1.–4. bekk-
ur) kl. 15.30–16.30.
Árbæjarkirkja | Kyrrðar- og bæna-
stund kl. 12. Fyrirbænir, hugleiðing og
tónlist. Hádegishressing á eftir. Opið
hús fyrir eldri borgara kl. 13.–16. Spil,
föndur, ferðalög, spjall og fræðsla.
Starf með 7–9 ára börnum í Sel-
ásskóla kl. 15–16. Starf með 10–12 ára
börnum í Selásskóla kl. 16–17.
Áskirkja | Hreyfing og bæn í neðri
safnaðarsal milli 11 og 12 í dag.
Bessastaðasókn | Foreldramorgnar í
Haukshúsum frá kl. 10–12. Opið hús
eldri borgara er frá kl. 13–16. KFUM&K
barnastarf fyrir 9–12 ára börn frá kl.
17.30–18.30.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Tónlist – altarisganga – fyrirbænir.
Léttur málsverður. Kirkjuprakkarar,
7–9 ára kl. 16.30. TTT, 10–12 ára kl.
17.30. Æskulýðsfélag KFUM&K og
kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja | Barnastarf 69 ára kl.
17.15 –18 á neðri hæð.
Dómkirkjan | Bænastund í hádegi alla
miðvikudaga 12.10–12.30. Léttur há-
degisverður á kirkjuloftinu á eftir.
Prestar og kirkjuverðir taka við fyr-
irbænaefnum.
Garðasókn | Foreldramorgnar á mið.
kl. 10 til 12. Fyrirlestur mánaðarlega.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir.
Léttur hádegisverður eftir stundina.
Þjónað fyrir altari, orgelleikari Hörður
Bragason. Æskulýðsfélag í Engjaskóla
kl. 20–21, fyrir 8. bekk.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa alla
mið. kl. 8. Hugleiðing, altarisganga.
Einfaldur morgunverður í safnaðarsal
á eftir. Námskeiðið Lifandi steinar
hefst kl. 20. Fræðsla og upplifun af
leyndardómum messunnar. Skráning á
Biskupsstofu, sími 535 1500.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Fjöl-
skyldusamvera hefst kl. 18 með léttri
máltíð. Kl. 19, Biblíulestur fyrir alla fjöl-
skylduna. Vörður Leví Traustason tal-
ar. Barna- og unglingastarfið er fyrir
1–2 ára, 3–4 ára, 5–7 ára, 8–9 ára, 10–
12 ára og 13–17 ára.
Kálfatjarnarkirkja | ALFA-námskeið
um grundvallaratriði kristinnar trúar,
haldin í þægilegu umhverfi á manna-
máli. Miðvikud. kl. 19–22 til 23. mars.
Kristniboðssalurinn | Samkoma kl.
20. „Guð sér allt“ Lúk 12.4–7. Ræðu-
maður: Jónas Þórisson, Hanna Gísla-
dóttir segir frá dvöl sinni í Ástralíu.
Langholtskirkja | Kl. 12.10 hádeg-
isbænagjörð með orgelleik – fyr-
irbænir. Kl. 12.30 súpa og brauð (300
kr.). Starf eldri borgara kl. 13–16. Fjöl-
breytt dagskrá. Leitið upplýsinga í
síma 520–1.300. Markúsarguðspjall
lesið og rætt frá kl. 19.30–20.15 í safn-
aðarheimili Langholtskirkju. Umsjón
hefur sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Laugarneskirkja | Kl. 10 mömmu-
morgunn. Kl. 10.30 gönguhópurinn
Sólarmegin leggur af stað frá kirkju-
dyrum. Kl. 13.30–16 öskudagsgleði for-
eldrafélags Laugarnesskóla og kirkj-
unnar. Kl. 19, fermingar-Alfa. Kl. 20.30
unglingakvöld Laugarneskirkju.
Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10.
Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lár-
usdóttir. Fyrirbænamessa kl. 12.15.
Prestur dr. Sigurður Árni Þórðarson.
Opið hús kl. 13. Passíusálmarnir, gildi
og merking þeirra. Umsjón dr. Sig-
urður Árni. 7 ára starf kl. 14.30. Sögur,
leikir og föndur. Kór Neskirkju, æfing
kl. 19.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos