Morgunblaðið - 09.02.2005, Side 36
36 MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna
Jónssonar eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Fim 10/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 11/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 12/2 kl 20,
Fi 17/2 kl 20,
Fö 18/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 19/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 25/2 kl 20,
Lau 26/2 kl 20,
Fö 4/3 kl 20,
Lau 5/3 kl 20
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 13/2 kl 14
Su 20/2 kl 14
Su 27/2 kl 14
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
SÍÐASTU SÝNINGAR VERÐA Í APRÍL
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Lau 19/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20
Ath: Miðaverð kr. 1.500
AUSA -
Einstök leikhúsperla
NÁMSKEIÐ UM VESTURFARANA STENDUR YFIR Í BORGARLEIKHÚSINU
Kennarar: Gísli Sigurðsson, 9/2 Sagnalist Vestur Íslendinga
Helga Ögmundardóttir, 16/2 Lífskjör og aðstæður frumbyggjanna
Böðvar Guðmundsson, 23/2 Bréfin frá Vestur-Íslendingum
Skráning hjá Mími Símenntun á www.mimi.is eða í síma 5801800
Þátttakendum verður boðið á sýningu á Híbýlum vindanna
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Lau 12/2 kl 20 - UPPSELT
Su 13/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 17/2 kl 20,
Su 20/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 24/2 kl 20,
Fö 25/2 kl 20 - UPPSELT
SÝNINGUM LÝKUR Í FEBRÚAR
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS
Lau 12/2 kl 20,
Fö 18/2 kl 20
Íslenski dansflokkurinn sýnir:
VIÐ ERUM ÖLL MARLENE DIETRICH FOR
eftir Ernu Ómarsdóttur og Emil Hrvatin
Í kvöld kl 20
Fi 10/2 kl 20
Fö 11/2 kl 20 - LOKASÝNING
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Su 13/2 kl 20,
Su 27/2 kl 20
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana
Forsala aðgöngumiða hafin
15:15 TÓNLEIKAR - BENDA NÝTT EFNI
Lau 12/2 kl 15:15
Í Borgarleikhúsinu
Sýning í kvöld
Aðrar sýningar:
Fim. 10 feb. kl. 20:00 Fös. 11 feb. kl.20:00
sími 568 8000 eða midasala@borgarleikhus.is
Eftir Ernu Ómarsdóttir og Emil Hrvatin
Við erum öll
Marlene
Dietrich FOR
geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON
☎ 552 3000
www.loftkastalinn.is
“HREINLEGA BRILLJANT”EB DV
• Föstudag 18/2 kl 21 LAUS SÆTI
Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18
2. sýn. 13. feb. kl. 19 örfá sæti laus - 3. sýn. 18. feb. kl 20 örfá sæti laus
4. sýn. 20. feb. kl. 19 nokkur sæti laus – 5. sýn. 25. feb. kl. 20 nokkur sæti laus
6. sýn 27. feb. kl. 19 – 7. sýn. 4. mars kl. 20 – 8. sýn. 6. mars kl. 19 – 9. sýn. 12. mars kl. 19
Vivaldi - Trúarleg verk og óperur
Hádegistónleikar þriðjudaginn 15. feb. kl. 12.15 – Marta Hrafnsdóttir, alt,
Sigurðar Halldórsson, selló og Kurt Kopecky, sembal flytja verk eftir Vivaldi.
Miðasala á netinu: www. opera.is
Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga.
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„Hrein
og klár snilld “
H.Ö.B. RÚV
Óliver! Eftir Lionel Bart
Fös. 11.2 kl 20 UPPSELT
Lau. 12.2 kl 20 UPPSELT
Sun. 13.2 kl 14 aukasýn. Örfá sæti
Fös. 18.2 kl 20 Örfá sæti
Lau. 19.2 kl 20 Örfá sæti
Fös. 25.2 kl 20 Nokkur sæti
Lau. 26.2 kl 20 Örfá sæti
Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega!
Ath! Sýningum lýkur í febrúar
LEIKFÉLAG Selfoss hefur á sinni
löngu starfsævi glímt við ýmis
stórvirki úr leikbókmenntunum, en
líka lagt sig eftir að skemmta bæj-
arbúum og öðrum með hreinrækt-
uðu gríni, gjarnan úr smiðju
heimamanna. Náttúran kallar er
sýning sem má líta á sem nokkurs
konar bræðing úr þessum hefðum.
Hér er hreinræktað skop á ferð-
inni, en alvaran sem felst í leiðinni,
hinni krefjandi aðferð sem beitt
var við gerð sýningarinnar, mun
efla og styrkja leikhópinn svo um
munar.
Hér er sem sagt um sýningu
unna í spuna að ræða. Langur að-
dragandi og æfingaferill þar sem
leikararnir, lífsreynsla þeirra ekki
síður en leikreynsla, eru virkjuð
sem sköpunarafl. Viðfangsefnið er
tjaldmenning landans í öllum sín-
um óhugnanlega mikilfengleik, og
um leið auðvitað ýmis einkenni
fjölskyldu- og mannlífs sem birtast
við þessar aðstæður í skýru ljósi
eins og tjaldsvæðið sé einhvers
konar tilraunastofa þar sem sam-
félagið er skoðað í smækkaðri
mynd og helstu klisjur viðraðar.
Afraksturinn er alveg stór-
skemmtileg sýning hjá leikfélaginu
og þarf afar staðfastan og sann-
færðan fýlupoka til að njóta henn-
ar ekki.
Rót skemmtilegheitanna er, eins
og gjarnan þegar spunavinna er
annars vegar, í persónunum og
einföldum samskiptum þeirra. Því
miður hefur hópurinn leiðst út í
það að reyna að smíða gamanleiks-
fléttu utan um efni sitt, og þar
bregst þeim stundum illa boga-
listin. Atburðarásin er enda að
mestu óþörf þar sem lífið sem
kviknar á sviðinu stendur algerlega
fyrir sínu án farsabrellna. Eins
heppnast illa nokkrar tilraunir til
að klófesta alvöruna innan um gal-
gopalegt og ýkjuskotið grínið.
Allir leikendur ná að skapa
sannfærandi og skemmtilegar per-
sónur. Margir þátttakendur eru lítt
reyndir og má reikna með að vinn-
an við þessa sýningu skili þeim
dýrmætum höfuðstóli til frekari af-
reka. Þrátt fyrir þennan almenna
góða árangur er ómögulegt annað
en að tilgreina nokkra sem koma
sýningunni á sérstakt flug með
innlifun sinni og sköpun. Bjarni
Stefánsson og Íris Árný Magn-
úsdóttir eru algerlega dásamleg
sem nýríku hjónin Lárus og Guð-
finna. Líkamstjáning og raddbeit-
ing beggja óviðjafnanlega skýr og
hlægileg. Líka sögu er að segja af
þeim Stefáni Ólafssyni og Erlu
Dan Jónsdóttur sem yngra parið.
Sérstakt hrós á Erla skilið fyrir
stórskostlega frammistöðu í því
sem samkvæmt leikskrá er frum-
raun hennar.
Leikmyndin er snjöll, litlu tjöld-
in frábær hugmynd og vel útfærð,
og hljóðmynd Eyjólfs Pálm-
arssonar skemmtilegt krydd, sér-
staklega áhrifshljóðin, sönglögin
hefðu að mínum smekk mátt missa
sín.
Náttúran kallar er metn-
aðarfulllt skemmtiverk, alvörugefin
tilraun til að búa til galgopalegt
listaverk. Sigrún Sól Ólafsdóttir
sýnir enn og aftur að hún er með
öflugustu listrænu stjórnendum
sem íslenskum áhugaleikhúsum
standa til boða. Það má reikna með
að árangur þessarar sýningar verði
ekki einungis fjöldi ánægðra áhorf-
enda heldur eldmóður og sjálfs-
traust í röðum félagsmanna. Segiði
svo að græskulaus grínleikrit skilji
ekkert eftir sig!
LEIKLIST
Leikfélag Selfoss
Spunaverk unnið af leikhóp og leikstjóra,
Sigrúnu Sól Ólafsdóttur. Leikhúsinu við
Sigtún, Selfossi, 25. janúar 2005.
Náttúran kallar
Troddu þér nú inn í tjaldið …
Þorgeir Tryggvason
LEIKGERÐ Sögunnar af bláa
hnettinum eftir Andra Snæ Magna-
son var frumsýnd vestanhafs í síð-
ustu viku, í Lorraine Kimsa-
ungmennaleikhúsinu í Toronto. Sýn-
ingin hlaut mikla athygli og afar
góða dóma í dagblöðum ytra, eins og
greint hefur verið frá hér í Morgun-
blaðinu.
Standandi klapp
Höfundurinn sjálfur, Andri Snær,
var viðstaddur frumsýninguna og
segir sýninguna í alla staði vel
heppnaða og viðtökur með ólík-
indum góðar. „Þetta gekk alveg
rosalega vel, standandi klapp og
læti,“ segir hann en segist ekki hafa
farið upp á svið, enda tíðkist það
ekki í leikhúsum í Kanada. „Ég sá
líka nokkrar skólaforsýningar þar
sem var fullur salur af 11–15 ára
krökkum. Þar sér
maður líka hvort
það virkar eða
ekki og það var
mjög mikil
stemmning.“
Andri Snær
segist mjög hrif-
inn af uppsetn-
ingunni eins og
hún var gerð
þarna úti. „Það
var mjög merki-
legur, áttræður Svíi sem bjó til flug-
búnaðinn fyrir sýninguna,“ segir
Andri Snær, en í henni er flogið um
allan salinn. „Hann starfaði sem
hreindýrahirðir í Lapplandi og norð-
urhéruðum Kanada áður en hann
sneri sér að því að búa til flugbúnað
fyrir nútímadans.“
Sýningin verður sýnd 1–2 sinnum
á dag fram til 20. mars. „Leikhúsið
hefur selt upp skólasýningarnar á
virkum dögum að mestu, en síðan er
búist við almennum áhorfendum um
helgar,“ segir Andri Snær. Sagan
um Brimi og Huldu hefur því greini-
lega farið vel í kanadískt leikhúsfólk,
sem marka má af áhuga á sýning-
unni og góðum dómum sem birst
hafa í fjölmiðlum. Andri Snær segir
þó einn gagnrýnanda hafa tekið
henni mjög illa. „Sýningin hittir á
mjög viðkvæma tíma í pólitík, vegna
þess að nú er umræða um gróður-
húsaáhrif mikil, kosningar í Banda-
ríkjunum nýafstaðnar og stríðið í
Írak yfirstandandi. Sumir halda að
sýningin fjalli um þetta og sé ein-
faldlega skrifuð sem viðbrögð við
þessu. Þessi gagnrýnandi tók þann
pól í hæðina,“ segir hann.
Bjartsýnn á útgáfu
Andri Snær segist bjartsýnn á að
bókin með Sögunni af Bláa hnett-
inum komi út í Kanada á næstunni.
Hún hefur þegar komið út í fjórtán
löndum, en ekki neinu enskumæl-
andi enn. Greint var frá því í kan-
adíska dagblaðinu Globe and Mail
fyrir skemmstu að útgefandi nokkur
í Toronto hefði verið fús til að gefa
bókina út, en með nokkrum skil-
yrðum. Andri Snær staðfestir þetta.
„Það eina sem var eftir var að und-
irrita samninginn, en þá þurfti ég að
samþykkja að þeir myndu fjarlægja
alla seli og alla snertingu milli
krakkanna úr bókinni,“ segir hann.
„Mér fannst það frekar skrýtið og
hálfkjarklaust eitthvað. Þannig að
ég ákvað að bíða bara eftir öðrum út-
gefanda, og þegar þessi grein birtist
höfðu mörg stór forlög samband við
mig. Ég er að tala við þau núna.“
Ekkert er í höfn ennþá í útgáfu-
málum bókarinnar, en Andri Snær
er vongóður. „Í raun er uppfærslan
á leikritinu miklu meiri vinna en að
gefa út eina bók. Það eru þrjátíu
manns að vinna við hana á hverjum
degi í tvo mánuði og ef menn eru til-
búnir að leggja það á sig, er ég sann-
færður um að einhver vilji prenta
eina bók.“
Andri Snær hefur verið úti í Kan-
ada um nokkurn tíma og fylgdist
með lokaferlinu í æfingum fyrir leik-
ritið. „Ég þurfti lítið að grípa inn í,
enda þurfti engan varðhund yfir
þeim, því þau skildu þetta alveg. Ég
gat því notað tímann líka til að
skrifa,“ segir hann að lokum, en
hann hefur í vinnslu bók sem vænt-
anlega kemur út á næstu mánuðum.
Bókmenntir | Blái hnötturinn nýtur velgengni í Kanada
Standandi klapp og læti
Sagan af bláa hnettinum hefur greinilega farið mjög vel í kanadískt leik-
húsfólk, en það má marka af áhuga fyrir sýningunni og góðum dómum.
Andri Snær
Magnason
ingamaria@mbl.is