Morgunblaðið - 09.02.2005, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
HEIMILDARMYND Michaels
Moore Fahrenheit 9/11 var ein um-
talaðasta mynd síðasta árs, bæði um-
deild mynd og lofuð en þar ræðst
Moore af fullum – og að margir töldu
óvægum – krafti gegn Bush Banda-
ríkjaforseta, ríkisstjórn hans og
framgöngu hennar í utanríkismálum.
Hefur verið brugðist við þeirri mynd
á allnokkrum víg-
stöðvum, skrif-
aðar bækur og
gerðar heimild-
armyndir. Fahr-
enhype 9/11 er
ein þeirra en
Samband ungra
sjálfstæðismanna
sýnir þá mynd í
Háskólabíó, sal 3, í kvöld kl. 19.30.
Telur Hafsteinn Þór Hauksson,
formaður SUS, að mynd Moores
hefði átti nokkurn þátt í því að móta
skoðanir Íslendinga á stjórnvöldum í
Bandaríkjunum, að því er fram kem-
ur í tilkynningu.
„Fahrenhype 9/11 lýsir öndverðu
sjónarmiði við mynd Moores og er
ætlað að leiðrétta rangfærslur í
mynd hans. Ungir sjálfstæðismenn
telja mikilvægt að gefa fólki kost á að
kynna sér allar hliðar málsins.“
Í Fahrenhype 9/11 er rætt við
marga sem komu fram í mynd
Moore sem og marga „áhrifamikla
þátttakendur í bandarískum stjórn-
málum“. Helsta má nefna Zell Mill-
er, fyrrverandi öldungadeildarþing-
mann demókrata frá Georgíufylki,
Edward I. Koch, fyrrverandi borg-
arstjóra í New York, David Frum,
fyrrverandi ráðgjafa G.W. Bush og
Dick Morris, fyrrverandi ráðgjafa
Bill Clinton.
Að lokinni sýningu myndarinnar
verða umræður um efni hennar og
munu Ólafur Teitur Guðnason,
blaðamaður, og Hafsteinn Þór
Hauksson, lögfræðingur og formað-
ur SUS, stýra þeim.
Í tilkynningunni kemur jafnframt
fram að SUS hafi sýnt myndina 13.
janúar síðastliðinn og síðan þá hafi
eftirspurnin verið það mikil að SUS
hafi ekki séð sér annað fært en að
endursýna hana.
Kvikmyndir |
Fahrenhype 9/11
sýnd í
Háskólabíói
Það sem
Moore
„lét ósagt“
Fahrenhype 9/11 er sýnd í Há-
skólabíói, sal 3, í kvöld kl. 19.30.
Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir.
Einar Þór er núna að hefja tök-ur á tveimur myndum; heim-ildamynd um snjóflóðin á
æskustöðvum hans fyrir tíu árum og
leikinni mynd með Guillaume Depar-
dieu í aðalhlutverki. Gerard, faðir
hans, hefur lýst yfir áhuga á að taka
þátt í gerð myndarinnar, „þótt maður
vilji helst ekki vera með svoleiðis yf-
irlýsingar fyrr en búið er að undirrita
samning. En hann hefur áhuga,“ seg-
ir Einar Þór.
Tökur á heimildamyndinni um
snjóflóðin á Flateyri eru í þann mund
að hefjast, en þó eru sjö ár liðin síðan
Einar tók fyrstu myndirnar fyrir
hana. „Þá stóðu ennþá rústir, sem
ekki hefði verið hægt að mynda
seinna. Ég hef verið að safna efni sem
hefur sögulegt gildi á síðustu árum.
Við erum að klára þetta tæknilega
ferli; gagna- og heimildasöfnun, en
byrjum núna á hinum mannlega
þætti, þ.e.a.s. viðtölum við eftirlif-
endur.“
26. október verða tíu ár liðin frá því
að tuttugu manns fórust í snjóflóð-
unum á Flateyri. Einar Þór segist
hafa þekkt alla þá sem létust, nema
eina aðflutta fjölskyldu. „Þetta var at-
burður sem hafði djúpstæð áhrif á allt
mannlíf á staðnum; atvinnulíf og fé-
lagslíf, viðhorf fólks, t.a.m. gagnvart
jarðgöngunum og hvaða not væru af
þeim.“
Ekki hugmynd uppi í sófa
Ákveðinn tími varð að líða frá at-
burðinum þar til hægt væri að taka
viðtölin. „Á sínum tíma, fyrir átta ár-
um, var ljóst að það þyrfti að líða tími
þar til hægt væri að hefjast handa. Þó
er það auðvitað þannig að erfitt er að
segja að einhver tími sé „réttur“ í
heimildamyndagerð,“ segir Einar.
„Heimildamyndagerð,“ segir Ein-
ar, „snýst um að segja frá atburðum,
hvort sem þeir eru viðkvæmir eða
ekki og hvort sem langt er um liðið
eða ekki. Ekki má líða of langur tími
frá því atburðir verða þar til myndin
um þá er gerð. Stór hluti heim-
ildamyndagerðar felst í að eiga sam-
skipti við samfélagið; menn sitja ekki
uppi í sófa heima hjá sér og fá hug-
mynd, heldur hlera samfélagið og
vinna eftir því,“ segir hann.
Hann býst fastlega við því að erfitt
verði að taka viðtölin, enda viðfangs-
efnið viðkvæmt. „Það er eiginlega
ekki hægt að segja frá árinu, 1995,
nema nefna öll snjóflóðin sem urðu á
því ári, og þess vegna er líka fjallað
um flóðin í Súðavík og Tungudal í
myndinni, þótt þau verði ekki í for-
grunni. Þetta er hluti sögu þessa
landshluta á þessum tíma,“ segir Ein-
ar Þór.
Hin myndin sem Einar Þór hefur á
prjónunum heitir Grunsamlega
venjulegur. Aðalleikari hennar er
Guillaume, sonur hins heimsfræga
Gerards Depardieu. „Guillaime hefur
verið frá vinnu þetta misserið, í
heilsubætandi fríi eftir slys sem hann
lenti í fyrir einu og hálfu ári. Hann er
byrjaður að vinna aftur; lék í end-
urgerð á gömlum frönskum fram-
haldsþáttum, en tökum á þeim er
reyndar ekki enn lokið. Við bíðum
bara rólegir og sinnum öðrum verk-
efnum á meðan.“
Mikilvægt að fá fræga leikara
Einar Þór segir að þegar frægir
leikarar fáist í verkefni eins og þetta
hafi það tvíþætta þýðingu. „Annars
vegar hjálpar það við fjármögnun
myndarinnar og sölu hennar. Hins
vegar eru þeir einfaldlega góðir leik-
arar. Í þessu tilfelli er um hvort
tveggja að ræða. Auk þess er ég bú-
inn að þekkja Guillaume í tvö ár og
samband okkar er á frekar hvers-
dagslegum nótum. Hann var ekki
ráðinn í gegnum umboðsmann,“ segir
Einar.
„Við erum til dæmis ekkert endi-
lega bara að ræða kvikmyndir. Hann
var núna síðast að reyna að sannfæra
mig um að Lyon væri besta liðið í
frönsku knattspyrnunni og að allir
bestu frönsku fótboltamennirnir
væru komnir til Bretlands. Ég sagði
honum að Frakkar gætu bjargað
franskri knattspyrnu með því að
flytja inn íslenska knattspyrnumenn í
stórum stíl,“ segir Einar Þór.
Að sögn Einars er um svokallaða
„konsept“-mynd að ræða. Leikstjór-
inn styðst við beinagrind og vinnur í
kringum hana með leikurunum. „Ég
veit ekki hvað skal segja um umfjöll-
unarefnið. Þetta er ástarsaga, sett
fram með háði. Við notum meðvitað
ýmsar klisjur úr kvikmyndum, til að
segja sögu sem allir þekkja með okk-
ar eigin stíl,“ segir hann, „það er al-
veg frábærlega skemmtilegt að vinna
svona í rólegheitunum með aðalleik-
aranum. Þá er ekki lengur þessi 9–5
stemning, heldur frekar 12–12.“
Myndin verður tekin upp í Ungverja-
landi og Englandi.
Gerard vill vera með
Gerard Depardieu, faðir Guillaum-
es, er búinn að lesa handritið og líst
vel á. „Ég þori varla að segja frá því á
meðan það er ekki staðfest skriflega,
en hann vill vera með. Ef hann verður
laus þegar tökur fara fram verður
hann með.“
Meint átök þeirra feðga voru mikið
í fréttum fyrir u.þ.b. einu ári. „Þessar
fréttir voru töluvert ýktar, held ég.
Kjaftasagan var að Guillaume hefði
ógnað manni með byssu og Gerard
síðan slitið öllu sambandi við son sinn
þegar hann frétti af því. Mér skilst
hins vegar að málið hafi verið þannig
vaxið að bresk blaðakona, frá Daily
Telegraph, hafi tekið viðtal við hann
og hann mætt með byssu í buxna-
strengnum. Byssan var víst aðeins
leikfang og Guillaume að stríða henni.
Svo getur vel verið að Gerard hafi lát-
ið þessi ummæli falla í einhverri
stundarbræði þegar hann heyrði
kjaftasöguna,“ segir Einar Þór.
Guillaime sendi svo frá sér bók í
mars í fyrra, sem var eins konar upp-
gjör hans við föður sinn. „Þeir hafa
alltaf talað saman, þótt sambandið
hafi á stundum verið stirt. Ef einhver
getur sýnt mér hina fullkomnu fjöl-
skyldu, þar sem allir tala alltaf sam-
an, á sá hinn sami skilið mann-
fræðiverðlaun,“ segir Einar Þór.
„Þeir eru báðir miklir ástríðumenn,
en alveg ofsalega kurteisir og al-
mennilegir í alla staði.“
Milli London og Parísar
Einar Þór var í fríi hér á landi í síð-
ustu viku, en hann býr í London „og í
Eurostar-lestinni,“ segir hann. „Mað-
ur er alltaf á þvælingi á milli London
og Parísar. Ég er að hugsa um að
reyna að fá að leigja herbergi í lest-
inni.“ Einar var hér til að hitta fólk
sem vinnur við undirbúning að snjó-
flóðamyndinni, auk þess að hitta vini
sína og borða þorramat. „Það er al-
veg rosaleg þrekraun að borða hvorki
þorramat né annan íslenskan mat í
heilt ár.“
Kvikmyndir | Mynd um snjóflóðin á Flateyri og önnur með Guillaume Depardieu
Enginn tími er
„réttur“ fyrir
heimildamynd
Einar Þór Gunnlaugsson kvikmyndagerðar-
maður hefur mörg járn í eldinum, eins og
Ívar Páll Jónsson komst að í stuttu spjalli.
ivarpall@mbl.is
Reuters
Gerard Depardieu hefur að sögn
Einars Þórs mikinn áhuga á að vera
með í næstu mynd hans.
Morgunblaðið/RAX
Einar Þór segist búa í London og Eurostar-lestinni.
Eldaskálinn
Brautarholti 3
105 Reykjavík
Sími: 562 1420
www.invita.com
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
ÍSLANDSBANKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
kl. 3.45 B.i. 10 ára
VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ
20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
I I I I Í L F
20 F L F I I
SIDEWAYS
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 14 ára
WWW.BORGARBIO.IS
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna
þ.á.m. besta mynd,
leikstjóri og handrit
il f i r til
. . . t ,
l i tj ri rit
Óskarsverðlauna
„Fullkomlega ómissandi mynd“ S.V. MBL.
5T.V. Kvikmyndir.is
tilnefningar til
óskarsverðlauna
þ.á.m. Besta mynd, besti
leikstjóri, besti
leikari-Leonardo Dicaprio, bestu
aukaleikarar-Cate Blanchett og
Alan Alda.
11
Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 11. B.i. 14 ára
Svakalega flott
ævintýraspennumynd með
hinni sjóðheitu og sexý
Jennifer Garner
l fl tt
i t r
i i j it
if r r r
Fædd til að berjast þjálfuð til að drepa
Áður en hún finnur frið verður hún að heyja stríð
Fædd til að berjast þjálfuð til að drepa
Frá þeim
sem færðu
okkur X-
Men
kemur
fyrsta
stórmynd
ársins
i
f
-
f
i
Svakalega
flott
ævintýraspen
numynd með
hinni
sjóðheitu og
sexý Jennifer
Garner
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 14 áraSýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i.16
Sýnd kl. 5.50
LEONARDO DiCAPRIO
Frá
fram
leiða
nda
Tra
ining
day
Þeir
þur
fa a
ð st
and
a sa
man
til a
ð ha
lda
lífi!
Fráb
ær s
pen
nutr
yllir!
kl. 5.30, 8 og 10.30.
tilnefningar til
Óskarsverðlauna
þ.á.m. besta mynd, leikari
og handrit
Ó.Ö.H. DV
Frumsýnd 11. Febrúarr . r r
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 6
H.L. Mbl.
Kvikmyndir.is
Ein vinsælasta grínmynd allra tíma
þrjár vikur á toppnum í USA!
7
MMJ kvikmyndir.com Ó.H.T. Rás 2
SV Mbl.
Baldur Popptíví
Ó.H.T Rás 2
Yfir 30.000 mannsfir .
Ó.Ö.H. DV
Vinsælasta myndin á Íslandi