Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ALHEIMSFARALDUR? Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigð- isstofnunarinnar (WHO) hafa miklar áhyggjur af því að fuglaflensan sem kostað hefur 45 manns lífið í þremur Asíulöndum stökkbreytist og að í kjölfarið brjótist út alheimsfaraldur sem kynni að kosta þúsundir manna lífið. Á Íslandi hefur verið reynt að safna birgðum af veirulyfi sem dreg- ur úr einkennum veirunnar. Sjón verðlaunaður Tilkynnt var í gær að rithöfund- urinn Sjón, Sigurjón Birgir Sigurðs- son, hljóti Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Verðlaunin hlýtur hann fyrir skáldsögu sína Skugga-Baldur. Sjóvá áfrýjar úrskurði Tryggingafélögin Sjóvá, TM og VÍS þurfa að greiða alls 60,5 milljónir í stjórnvaldssektir fyrir ólögmætt samráð í tengslum kerfi sem notað var við mat á bílatjónum. Sjóvá hefur ákveðið að áfrýja úrskurðinum til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. 4.000 skammtar af LSD Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík fann 4.000 skammta af LSD í tösku sem tilheyrði einum sak- borningi í stóru amfetamínmáli sem verið er að rannsaka. Nýtt hljóð í strokkinn George W. Bush Bandaríkjaforseti fundar í dag með Vladímír Pútín, for- seta Rússlands, í Slóvakíu en Bush er á ferðalagi um Evrópu. Bush átti fund með Gerhard Schröder, kansl- ara Þýskalands, í gær og lögðu leið- togarnir tveir sig fram um að sýna fram á að þeir hefðu ákveðið að leggja til hliðar ágreining sinn um Íraksmálin. Bush og Schröder lýstu sig sammála um nauðsyn þess að koma í veg fyrir að Íranir hæfu fram- leiðslu kjarnorkuvopna. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 30 Erlent 14/15 Bréf 31 Heima 16 Minningar 32/38 Suðurnes 17 Skák 39 Höfuðborgin 18 Brids 39 Austurland 18 Hestar 40 Akureyri 19 Dagbók 44/47 Daglegt líf 20/21 Menning 48/53 Neytendur 22/23 Bíó 50/53 Listir 24 Ljósvakamiðlar 54 Umræðan 26/31 Veður 55 Forystugrein 28 Staksteinar 55 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " #            $         %&' ( )***                            STEFNT skal að því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á kjörtímabilinu og bera niður- stöður þeirra undir þjóðaratkvæði í næstu alþingis- kosningum, samkvæmt drögum að ályktun um utanríkismál sem lögð verða fyrir flokksþing fram- sóknarmanna, sem hefst á morgun. Þá er lagt til að flokksþingið hvetji til endurskoðunar á varnar- samningi Íslands og Bandaríkjanna, í ljósi breyttr- ar heimsmyndar og friðvænlegs umhverfis í Vest- ur-Evrópu. Drög að ályktunum 28. flokksþings Framsókn- arflokksins, sem haldið verður á Hótel Nordica í Reykjavík 25.–27. febrúar, voru birt í gærkvöldi. Flokksþingið hefst með setningarathöfn kl. 10 að morgni föstudagsins 25. febrúar og verður hún sýnd í beinni sjónvarpssendingu á sjónvarpsstöð- inni SÝN, í opinni dagskrá. Í drögum að ályktun um stjórnskipun og stjórn- sýslu er talið eðlilegt að við endurskoðun stjórn- arskrárinnar beinist athyglin fyrst að köflum sem fjalla um hlutverk forseta, Alþingis, ríkisstjórnar og dómstóla í stjórnskipuninni. Þá segir: „Mikil- vægt er að tryggja í stjórnarskrá lýðræðislegan rétt almennings til að fá fram atkvæðagreiðslur um mál sem miklu skipta.“ Vilja að stofnað verði matvælaráðuneyti Lagt er til að stjórnskipulag matvælaframleiðslu í landinu verði einfaldað með því að sameina sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðuneyti í matvælaráðu- neyti. Kemur þetta fram í drögum að ályktun um sjávarútvegsmál. Þar er einnig lagt til að gerð verði heildarúttekt á kostum og göllum íslenska fiskveiði- stjórnunarkerfisins og það borið saman við stjórn- kerfi fiskveiða t.d. í Færeyjum, Noregi, Kanada og ESB. Hvað varðar samgöngumál er lagt til í ályktunar- drögum að nú þegar verði hafin hagkvæmniathug- un á því að flytja innanlandsflug frá Reykjavík til Keflavíkur. Þá er og lagt til að veggjald í Hvalfjarð- argöng verði lækkað eða lagt niður í samvinnu rekstraraðila og ríkissjóðs. Í drögum að ályktun um höfuðborgarstefnu Framsóknarflokksins er einnig komið inn á samgöngumál. Þar er m.a. lagt til að Reykjavíkurflugvöllur víki fyrir byggð, eins og ráð- gert er í aðalskipulagi Reykjavíkur, þannig að norð- ur-suður braut verið lögð af 2016. Þá er lagt til að hluti af söluandvirði Símans verði varið í Sunda- braut og hún lögð í einni framkvæmd. Tengingu verði komið á við Kjalarnes, Vestur- og Norðurland eins og fyrirheit voru gefin um við sameiningu Reykjavíkur og Kjalarness 1997. Drög að ályktunum 28. flokksþings Framsóknarflokksins lögð fram Aðildarviðræður við ESB hefjist á kjörtímabilinu  Meira á mbl.is/itarefni Hvatt til endurskoð- unar varnarsamnings- ins við Bandaríkin ALLT fór löglega fram á aðalfundi Freyju, félags fram- sóknarkvenna í Kópavogi, í gærkvöldi að sögn Maríu Mörtu Einarsdóttur, formanns félagsins. „Það voru 139 konur sem skráðu sig nýjar í félagið, þar af 121 á þriðjudag,“ segir María. Nú eru félagar í Freyju alls 239. Um tvö hundruð manns sótti fundinn þar sem ný stjórn var kjörin auk fulltrúa á flokksþing Framsókn- arflokksins, sem fer fram um næstu helgi. Stjórnin helst óbreytt að öllu leyti nema Ólöf Pálína Úlfarsdóttir tók sæti Birnu Árnadóttur varamanns. Freyja á níu fulltrúa á flokksþinginu auk fjögurra sem eru sjálfkjörnir að sögn Maríu. Una María Óskarsdóttir, varaformaður Freyju, segist telja að átökin í Freyju á síðasta fundi séu augljóslega ástæðan fyrir þessum mikla fjölda nýrra félaga. „Konur hafa greinilega áhuga á að starfa með Freyju. Annars verður bara hver og einn að túlka þetta fyrir sig.“ Morgunblaðið/Þorkell Forystukonur í Framsóknarflokknum við upphaf aðalfundar Freyju í gærkvöldi. Fjölgaði í Freyju um 139 konur SÆMUNDUR Pálsson, vinur og stuðningsmaður skákmeistarans Bobbys Fischers, reiknar með að halda á fund Fischers í Japan á morgun eða laugardag. Sæmund- ur taldi víst að Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, Kristinn Hrafnsson blaðamaður og senni- lega einnig Einar S. Einarsson, fv. forseti Skáksambands Ís- lands, færu með honum. Sæmundur segir að John Bosnitch, forsvarsmaður stuðn- ingshóps Fischers í Japan, vilji fá sig sem fyrst út. Sæmundur átti þriggja stundarfjórðunga langt símtal við Fischer í gær- morgun. „Hann er voðalega spenntur að sjá mig og trúir að ég komi að frelsa sig,“ sagði Sæmundur. „Honum líður vel þegar hann tal- ar við mig og sér mikið eftir því að hafa ekki haft meira samband við mig í gegnum tíðina. Hann segir að ég sé svo jákvæður og vinni á neikvæðni hans. Það var notalegt að tala við hann.“ Sæmundur segir að Fischer sé mjög ánægður með gang mála varðandi útlendingavegabréfið. „Ég hef sagt honum að þetta eigi að duga og við verðum að láta reyna á þetta, þar sem við höfum ekki ríkisborgararéttinn.“ Sæmundur segir að það sé sitt hjartans mál að frelsa þennan vin sinn úr haldi í Japan. Hann sjái hvorki eftir tíma né fjár- munum sem í það fari. Þessi bar- átta snúist um hugsjón og vin- áttu. Fischer spenntur að hitta Sæmund Sæmundur Pálsson Bobby Fischer SAMNINGUR verður innsiglaður í dag milli nýs bílaumboðs, Bíla- umboðsins Öskju ehf., og Daiml- er-Chrysler, um sölu og þjónustu fyrir Mercedes-Benz-bifreiðar. Formleg opnun fyrirtækisins verður þriðjudaginn 1. mars næstkomandi. Askja er í eigu sömu aðila og eiga bílaumboðið Heklu. Tryggvi Jónsson, forstjóri Heklu og stjórnarformaður Öskju, segir að stjórnendur hjá Daimler-Chrysler hafi haft sam- band við hann fyrir um ári og óskað eftir viðræðum um hugs- anlega þjónustu fyrir Mercedes- Benz. Þetta sé þó einungis fyrsta skrefið af þremur hjá Öskju. Síð- ar á þessu ári muni fyrirtækið hefja innflutning og bjóða alla þjónustu fyrir aðrar bifreiðar Daimler-Chrysler, Dodge, Chrysl- er og Jeep. Einnig muni fyrir- tækið setja upp fullkomna að- stöðu fyrir þjónustu vörubíla og sendibíla Mercedes-Benz. Salan á þeim bílum hefjist hins vegar formlega við opnun Öskju./B2 Nýtt bíla- umboð fyrir Mercedes-Benz LÖGREGLAN í Reykjavík leitar enn ræningja sem talinn er hafa framið rán í tveimur söluturnum í fyrrakvöld. Í öðru tilvikinu var varnarúða beitt gegn afgreiðslu- stúlku en í hinu tilvikinu var ógn- að með úðanum og telur lögregla fullvíst að sami maður hafi verið að verki í bæði skiptin. Fyrra ránið var framið í sölu- turninum Bettís við Borgarholts- braut í Kópavogi á tíunda tím- anum í fyrrakvöld. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi spraut- aði ræninginn varnarúða framan í afgreiðslukonuna áður en hann hrifsaði fjármuni og hvarf á braut. Konan var flutt á slysadeild þar sem úðinn var þveginn úr andliti hennar. Henni var þó ekki mjög meint af og mætti til vinnu í gær- morgun. Seinna ránið var framið í Vídeóspólunni við Holtsgötu. Þar ógnaði ræningi með varnarúða en beitti honum ekki. Hann komst undan með lítilræði af peningum, að sögn lögreglunnar í Reykjavík. Lögreglan leitar enn sjoppu- ræningja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.