Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 45 DAGBÓK Sextíu ár eru nú liðin síðan heimsstyrjöld-inni síðari lauk í Evrópu, en Rússar háðugríðarlega harða rimmu við þýska herinná austurvígstöðvunum og er sigursins minnst með ýmsum hætti þar í landi. Næsta laug- ardag kl. 15 heldur félagið MÍR (Menningartengsl Íslands og Rússlands) fund af þessu merka tilefni þar sem Haukur Hauksson, magister í alþjóða- málum frá Moskvuháskóla, fer yfir gang styrjald- arinnar auk þess að fjalla um nýjustu stöðu mála í stjórnmálum Rússlands; Úkraínu og fleiri landa A-Evrópu. Fundinum lýkur svo með ferðakynn- ingu á Rússlandsferð í sumar. Sýning verður á sov- éskum áróðursplakötum úr seinni heimsstyrjöld og upptökur leiknar úr fréttum Ríkisútvarpsins um gang styrjaldarinnar; fréttin um dauða Adolfs Hitlers; ræður íslenskra ráðamanna af svölum Al- þingis og ávarp Winstons Churchills. Auk þess heyrist í Jósep Stalín; leiknar verða glefsur úr ræðu hans í maí 1945 þar sem hann óskar þjóðum Sovétríkjanna til hamingju með sigurinn. Hversu þýðingarmikil var vörn Rússa gegn Rauðskeggsárás Þjóðverja? „Vendipunktur í styrjöldinni var orustan við Stalíngrad veturinn 1942–’43 þegar stórsókn Þjóð- verja til austurs var stöðvuð af Rússum, hefði þýska hernum tekist að ýta Rauða hernum ofan í Volgu, en þar munaði einungis um 200 metrum, liti Evrópa sennilega öðruvísi út í dag. Þá værum við líklega gangandi hér um í leðurstígvélum, syngj- andi Horst Wessel Lied eða Deutschland Deutsch- land über alles. Annars ganga nýjustu söguskýr- ingar út á það að Stalín hafi ætlað sér að ráðast vestur á bóginn, frelsa Evrópu undan Þjóðverjum og leggja undir sig álfuna að Ermarsundi. Sérstaklega verður rætt um hlutverk skipalest- anna sem fóru hér í gegnum Ísland á leiðinni til N-Rússlands með hergögn frá BNA, en þar var Ísland í lykilhlutverki og þetta er atriði sem alls ekki má vanmeta, á fyrirlestrinum kemur fram ís- lenskur sjómaður sem var í skipalestunum. Það er ljóst að skipalestirnar áttu mikinn hlut að máli í því að brjóta hernaðarmaskínu Þjóðverja á bak aftur. Hinsvegar lá hitinn og þunginn á venjulegu rússnesku fólki en þeir misstu þarna 27 milljónir manna, þar sem Þjóðverjar gengu yfir af mikilli villimennsku. Þetta var ekkert eins og í París þar sem þeir stunduðu kaffihús og næturklúbba.“ Hvaða lærdóm getum við dregið af sögunni? „Pólitískir öfgar og hatur sem enn vaða uppi víða um heim er greinilega nokkuð sem mann- skepnan á erfitt með að losa sig við, sagan er allt- af að endurtaka sig, það sýnir sig hvað eftir ann- að, þetta er greinilega eðli mannsins. En við vorum vissulega heppin að rússneski veturinn var kaldur við Volgubakka og að Rússarnir gáfu sig ekki.“ Stríðssaga | Fyrirlestur um vörn Sovétríkjanna gegn árás Þjóðverja í seinni heimsstyrjöld Mest mæddi á almenningi  Haukur Hauksson er fæddur í Reykjavík árið 1966. Hann lauk stúd- entsprófi frá MK 1987 og stundaði síðan nám í sögu og málfræði við Óslóarháskóla. Þá nam hann alþjóðamál og fjöl- miðlafræði við Moskvu- háskóla og útskrifaðist sem magister í alþjóða- málum 1996. Haukur var fréttaritari RÚV í samveldisríkjunum frá 1990 og hefur m.a. starfað hjá ferðaskrif- stofum í Moskvu og sem leiðsögumaður fyrir botni Miðjarðarhafs. Þá hefur hann tekið á móti fjölda rússneskra ferðamanna hingað til lands og staðið fyrir ferðum Íslendinga til Rússlands. Haukur á eina dóttur. Leitað að revíutexta KÆRI Velvakandi. Eins og svo oft áður þegar mað- ur er í vandræðum leita ég til þín um aðstoð. Ég er að leita að „rev- íutexta“ sem að ég kunni fyrir margt löngu síðan. Því er semsé þannig varið að ég man bara hrafl úr honum og vil þess vegna biðja lesendur að rifja hann upp og senda mér. Textinn var eitthvað á þessa leið: Áður fyrr gekk ég í ullarbrókum ein- um Gott og vel, í ullarbrókum einum. Nú geng ég í næstum ekki nein- um. Gott og vel, það gerir ekkert til Áður fyrr gekk ég með lömbin út í haga Gott og vel, með lömbin út í haga. Nú geng ég með börnin mín í maga. Gott og vel, það gerir ekkert til. Með fyrirfram þökk, Sigríður Fr. Halldórsdóttir, Selási 13, 700 Egilsstöðum. Ljótar myndir í sjónvarpi ÉG vil mótmæla því hvað sýndar eru ógeðslegar glæpamyndir í sjón- varpinu, og þá sérstaklega á föstu- dögum og laugardögum. Er sjón- varpið að stefna að því að bæta við geðvandamál hjá fólki og þá sér- staklega hjá börnum og unglingum með því að sýna mikið af ljótu efni. Það hlýtur að vera hægt að sýna myndir sem allir geta horft á án þess að það sé mannskemmandi. Ég vona að fleiri láti heyra frá sér sem eru mér sammála og mótmæli þessum sýningum sjónvarpsins. Gógó. Áskorun ÉG vil koma á framfæri áskorun til Björgúlfs og allra hinna millj- arðamæringanna. Hvernig væri að byggja eins og 1-2 stykki hjúkr- unarheimili eins og svo sárlega vantar. Eins vantar bæði óperuna og sinfóníuhljómsveitina húsnæði. Vil ég benda á að danskur millj- arðamæringur gaf sinni borg nýtt óperuhús. Með von um góðar und- irtektir. Reykvíkingur. Kettlingur fæst gefins ELLEFU vikna, grá og hvít læða sem er lítil, fíngerð og mjög fjörug fæst gefins á gott heimili. Upplýs- ingar í síma 567 0410. Kettlingar fást gefins ÞRIGGJA mánaða, fallegir og kassavanir, kettlingar fást gefins. Tveir svartir og hvítir fressar, tvær marglitar og tvær bröndóttar læð- ur. Upplýsingar í síma 562 6527 og 690 0138. Tinni er týndur TINNI er tæplega 2 ára fress, hann týndist frá Seljahverfi um síð- ustu helgi. Hann er svartur, mjög loðinn og eyrnamerktur með end- urskinsól sem er líka merkt. Hans er sárt saknað. Þeir sem hafa orðið hans varir vinsamlegast látið vita í síma 557 8011. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 50 ÁRA afmæli. 28. febrúar nk.verður fimmtug Líney Jós- efsdóttir. Af því tilefni tekur hún á móti ættingjum og vinum laugardag- inn 26. febrúar frá klukkan 18 á heimili sínu, Skólabraut 3 í Mosfellsbæ. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 50 ÁRA afmæli. Í dag, 24. febrúar,verður fimmtugur Ingi Hans Jónsson, Fagurhóli 8a, Grundarfirði. Ingi Hans opnar af því tilefni sýningu á verkum sínum í Sögumiðstöðinni kl. 18 í dag, undir yfirskriftinni Orð og litir. Hann og eiginkona hans, Sigurborg Kr. Hannesdóttir, taka síðan á móti gestum á sagnakvöldi í veitingahúsinu Krákunni nk. laugardagskvöld kl. 21. Brúðkaup | Gefin voru saman 4. sept- ember sl. í Fríkirkjunni í Reykjavík þau Sólrún Ásta Steinsdóttir og Trausti Jónsson. Ljósmyndastofan Ásmynd Myndlistarkonan Brynhildur Guð- mundsdóttir opnar í dag kl. 17 mynd- listarsýningu í Sparisjóðnum á Garðatorgi, undir yfirskriftinni „koma og fara“. Á sýningunni eru sýnd 23 olíu- málverk. Þetta er fjórða einkasýning Bryn- hildar sem hefur auk þess tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hér heima og erlendis. Brynhildur er með meistarapróf í myndlist frá University of British Columbia í Vancouver í Kanada. Sýningin er opin alla virka daga á afgreiðslutíma Sparisjóðs- ins 9.15–16 og stendur til 31. mars. Komið og farið í Sparisjóðnum í Garðabæ Fréttir á SMS Dóróthea Magnúsdóttir, sími 892 5941 Hugrún Stefánsdóttir, sími 861 2100 Náttúruvænir hárlitir frá Ítalíu Láttu lita þig með náttúrulitum hjá fagfólki eða fáðu faglega ráðgjöf og litaðu þig sjálf. Herbatint er lausnin. Skólavörðustig 10, s. 511 2100 HÁR & HEILSA Kringlunni, sími 553 2888 Gabor Vorum að taka upp glæsilegt úrval af Gabor skóm sjk@sjk.is Morguntímar frá 7:15 Fáir einstaklingar í hóp, þverfaglegt eftirlit Skráning í síma 554 5488 og 564 1766 eða sjk@sjk.is HEILSUÁTAKSNÁMSKEIÐ Sérhæfð heilsuátaksnámskeið fyrir börn, unglinga og fullorðna að hefjast Morgun-, hádegis- og síðdegistímar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.