Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 13
FRÉTTIR
STYRKTU STÖÐU ÞÍNA
með framhaldsnámi við Háskóla Íslands
Umsóknarfrestur um framhaldsnám er til 15. mars.
Nánari upplýsingar á www.hi.is.
Námskynning sunnudaginn 27. febrúar kl. 11-16.
D
EL
TA
LI
G
H
T
RÝMINGARSALA
Á VÖLDUM DELTALIGHT LJÓSUM
30-50% AFSLÁTTUR
OPIÐ LAU.: 11 - 17
OPIÐ SUN.: 13 - 17
z
e
t
o
r
„MÉR finnst afar
ánægjulegt að tekist hafi
að bjarga kindunum í
land,“ segir Sigríður Ás-
geirsdóttir, formaður
Dýraverndunarsam-
bands Íslands, um þá
ákvörðun fyrr í vikunni
að flytja níu kindur, sem
gengið höfðu úti í Hafn-
areyjum á Breiðafirði
upp á fast land. „Vegna
ötullar baráttu tókst
þarna víðtækt samstarf
með yfirdýralækni, bú-
fjáreftirliti, sýslumönn-
um á svæðinu og héraðs-
dýralæknum. Að mínu
mati er samvinna á borð við þessa
ómetanleg og lofar góðu um fram-
haldið.“
Að sögn Sigríðar hefur Dýra-
verndunarsamband Íslands sl. tutt-
ugu ár barist gegn eftirlitslausri
eyjabeit þar sem ekki er farið að lög-
um varðandi umhirðu skepnanna.
Segir hún flesta bændur hugsa vel
um skepnur sínar, en að of margir
fari hreinlega ekki að lögum. „Við
höfum mjög góð lög og reglugerðir
um það hvernig eigi að fara með
búfé. Vandamálið er bara að láta
fylgja þeim eftir,“ segir Sigríður, en
meðal þess sem kveðið er á um í lög-
um er að þegar búfé
sé haldið úti að vetr-
arlagi þurfi að vera
fyrir hendi skjól, eft-
irlit með skepnunum,
nægilegt hreint vatn,
auk þess sem það
verður að gefa þeim
reglulega.
Að sögn Sigríðar
bar eiganda fjárins að
skipa því tilsjónar-
mann, en í lögum er
kveðið á um slíkt þeg-
ar búfé er haft á eyði-
jörðum eða landspild-
um þar sem ekki er
föst búseta. „Vegna
þessarar vanrækslu vissi búfjáreft-
irlitið ekki af kindunum þarna fyrr
en upp komst að eigandinn ætlaði að
flytja hrút til þeirra og hefja undan-
eldi.“
Í fréttaskýringu í blaðinu í gær
kom fram að kindur ganga í eyjabeit
á tveimur stöðum á landinu, í Breiða-
fjarðareyjum og Vestmannaeyjum.
Að sögn Sigríðar náðist á fundi fyrr í
vikunni samkomulag um að herða
eftirlitið og tryggja að búfjáreftirlitið
fari í allar þær eyjar þar sem búfénað
er að finna. Segir Sigríður það góða
þróun mála sem muni verða til bless-
unar fyrir dýrin og þá sem þau eiga.
Sigríður Ásgeirsdóttir, formaður
Dýraverndunarsambands Íslands
Ánægjulegt að
tókst að bjarga
kindunum í land
Sigríður Ásgeirsdóttir
FYRIR viku auglýsti Morgunblaðið
eftir skemmtilegum fermingar-
veislumyndum til að gefa innsýn í
sögu íslenskra fermingarveislna í
stóru og glæsilegu fermingarblaði
sem kemur út 5. mars.
Morgunblaðið leitar til lesenda
sinna um aðstoð við að finna sem
bestar myndir.
Senda þarf myndirnar ásamt
upplýsingum um eiganda og fólkið
á myndunum, auk annarra nauð-
synlegra skýringa. Allar myndir
verða endursendar. Utanáskriftin:
Morgunblaðið
Fermingarmyndir
Kringlunni 1
103 Reykjavík
Einnig má senda þær umsjón-
armanni blaðsins, Hildi Lofts-
dóttur, á netfangið hilo@mbl.is.
Enn leitað
að fermingar-
myndum