Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 47
DJASSINN verður í algleym- ingi á Café Rósenberg í kvöld kl. 22, en þá mun Þórunn Pál- ína Jónsdóttir söngkona stíga á stokk ásamt hljómsveit sinni, sem skipuð er þeim Kjartani Valdimarssyni, Þórði Högna- syni og Birgi Baldurssyni. Þórunn Pálína hefur stund- að söngnám í FÍH og er þetta í fyrsta skipti sem hún heldur tónleika á eigin forsendum. „Lögin eru ekki endilega djasslög að uppruna, þó þarna sé að finna marga djassstand- arda. Sum þeirra eru lög úr öðrum áttum sem við höfum sett í djassbúning,“ segir Þór- unn Pálína, en rödd hennar liggur á sviði mezzósóprans. Aðspurð um uppáhalds söng- lög segir hún Chet Baker, Tom Waits og Ellu Fitzgerald vera í miklu uppáhaldi. „Það sem einkennir mína uppá- haldsmúsík er einlægni, að fólk sé að segja góða og fallega sögu. Það eru í rauninni lögin sem skipta mig mestu máli, ekki endilega lista- mennirnir, heldur sögurnar, tilfinn- ingin og melódíurnar.“ Eins og áður segir er Þórunni til aðstoðar einvala lið tónlistarmanna og kveðst Þórunn afar ánægð með liðsheildina. „Ég hringdi í akkúrat þá menn sem ég vildi hafa með mér og þeir sögðu allir já. Ég bjóst ekki við því, en ég tel mig mjög heppna að það var áhugi á að láta þennan draum rætast.“ Þórunn Pálína debúter- ar á Café Rósenberg Tónleikarnir hefjast eins og áður segir kl. 22 og kostar 1.000 kr. inn. Einnig er á Café Rósenberg Tarot- spákona sem spáir fyrir gestum. Morgunblaðið/Jim Smart MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 47 DAGBÓK Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Myndlist kl. 13 víd- eóstund kl. 13.15 í matsalnum, jóga kl. 9, boccia kl. 10, opið er fyrir frjálsa spilamennsku alla daga. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, böðun, hárgreiðsla, leikfimi, myndlist, bókband, söngur, fótaaðgerð, félagsvist á morgun. Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breiðfirðingabúð sunnudaginn 27. febrúar kl. 14. Þriðji dagur í fjögurra daga keppni. Kaffiveitingar. Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og dag- blöð, baðþjónusta og hárgreiðslustofan opin, kl. 10–14 handavinnustofan opin, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14.30–15.30 kaffi. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, félagsvist kl. 20. Sinfóníu- hljómsveit Íslands býður eldri borg- urum á tónleika 18. mars kl. 10.30, mið- ana er hægt að sækja á skrifstofu FEB í Faxafeni 12. Fyrirhugað er námskeið í framsögn ef næg þátttaka fæst, leið- beinandi Bjarni Ingvarsson, skráning á skrifstofu FEB, s. 588–2111. Félag kennara á eftirlaunum | EKKÓ æfir í KHÍ kl. 17. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Brids- deild FEBK spilar mánu- og fimmtu- daga. Skráning kl. 12.45. Allir velkomn- ir. Þátttökugjald kr. 200. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 9.15, golf á sama stað kl. 11.30, karlaleikfimi og málun kl. 13, spænska 400 kl. 12, trélist kl. 13.30, spænska byrjendur kl. 18. Félagsvist í Grafarholti kl. 19.30. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30 helgistund, kl.12.30 vinnustofur opnar, kl. 13.15 „Kynslóðir saman í Breiðholti“ félagsvist í samstarfi við Hólabrekku- skóla, allir velkomnir. Furugerði 1 | Kl. 9 aðstoð við böðun, alm. handav., smíðar og útskurður, kl. 13.30, boccia. Ferð á Ástandið í Iðnó 2. mars. Skrán. í s. 553–6040. Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa- vinna, bútasaumur, perlusaumur, korta- gerð, keramik og nýtt t. d. dúkasaumur, dúkamálun, sauma í plast, hjúkr- unarfræðingur á staðnum, kl. 10, boccia, kl. 11, leikfimi, kl. 12, hádeg- ismatur, kl. 14 félagsvist. kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi frá kl. 9, pútt kl. 10, leikfimi í Bjarkarhúsinu kl. 11.20, glerbræðsla kl. 13 og bingó kl. 13.30. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl. 9–13 búta- og brúðusaumur, umsjón Sigrún, hannyrðir hjá Halldóru kl. 13– 16.30, félagsvist kl. 13.30 góðir vinn- ingar, kaffi og meðlæti. Böðun virka daga f.h.. Fótaaðgerðir – hársnyrting. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll- um opið, s. 568–3132. Betri stofa og Listasmiðja 9–16, frjálst handverk og glerskurður, leikfimi kl. 10, aðstoð við böðun, sönghópurinn Dísirnar kl. 13.30. Hárgreiðslustofa 568–3139. Fótaað- gerðarstofa 897– 9801. Ferð í Gljúfra- stein 1. mars kl. 13. Korpúlfar Grafarvogi | Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug kl. 9.30 á morgun. Langahlíð 3 | Bingó í dag kl. 15. Laugardalshópurinn í Þróttarheim- ilinu | Leikfimi fyrir eldri borgara í dag kl. 12.15. Norðurbrún 1, | Opin vinnustofa, kl. 9 leir og smíði, kl. 10 ganga, kl. 13 leir. Bandalag kvenna í Reykjavik verður með kvöldskemmtum kl. 20, gam- anmál, söngur og dans, kaffiveitingar. Skrán. í s. 568 6960. SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og dans verður lau. 26. feb. í sal I.O.G.T að Stangarhyl 4 og hefst spilamennskan kl. 20. Eftir spilamennsku verður dans- að fram eftir nóttu. Sjálfsbjörg | Skák í kvöld kl. 19.30. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–14 aðstoð v/ böðun, kl. 9.15–15.30 hannyrðir, kl. 9–10 boccia, kl. 10.15–11.45 enska, kl. 10.15– 11.45 spænska, kl. 11.45–12.45 hádeg- isverður, kl. 13–14 leikfimi, kl. 13.16, gler- bræðsla, kl. 13–16 kóræfing, kl. 14.30– 15.45 kaffiveitingar. Vitatorg | Smiðja kl. 8.45, bókband, pennasaumur og hárgreiðsla kl. 9, morgunstund og fótaaðgerðir kl. 9.30, boccia kl. 10, glerskurður, handmennt og frjáls spil kl. 13. Þórðarsveigur 3 | Bingó kl. 13.30. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyr- irbænastund kl. 12. Léttur hádeg- isverður á eftir. Árbæjarkirkja | Starf með 10–12 ára börnum kl. 14.30 og 7–9 ára börnum kl. 15.30. Söngur, sögur, leikir og ferðalög. Áskirkja | Opið hús milli kl. 14 og 17 í dag. Samsöngur undir stjórn organista, kaffi og meðlæti. Allir velkomnir. TTT- starfið, samvera Kl. 17-18 í dag. TEN-SING-starfið, æfingar leik- og sönghópa milli 17 og 20. Biblíuskólinn við Holtaveg | Fræðslu- kvöld um Prédikarann, eina af bókum Gamla testamentisins, kl. 20–22 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg. Fræðsla kvöldsins verður í umsjá Kristínar Sverrisdóttur. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Bústaðakirkja | Foreldramorgunn kl. 10–12. Foreldrar koma saman með börn sín og ræða lífið og tilveruna. Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl 10 til 12. Umsjón Anna Arnardóttir. Leik- fimi Í.A.K. kl. 11.15. Bænastund kl 12.10. Foreldrafundur fermingarbarna Pálma- sunnudags og annars í páskum kl. 20, Skírdags kl 21. Fella- og Hólakirkja | Foreldramorg- unn kl. 10–12. Stelpustarf, 3.–5. bekkur, kl. 16.30–17.30. Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í Vídalínskirkju kl. 22. Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar. Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam- verustundir, ýmiskonar fyrirlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla kl. 17.30–18.30 fyrir 7–9 ára. „Á leiðinni heim“. Helgistund kl.18. Guðrún Ög- mundsdóttir les Passíusálm. Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12 á hádegi. Orgelleikur, íhugun, bæn. Létt- ur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 6–9 ára börn hittast kl. 16.30–17.30. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | „Eld- urinn“ kl. 21 fyrir fólk á öllum aldri. Lof- gjörð, vitnisburðir og kröftug bæn. Allir velkomnir. www.gospel.is. KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUM í kvöld kl. 20. „Kirkjugarðar Reykjavík- ur“ sr. Þórsteinn Ragnarsson, frkvstj. Hugleiðingu hefur sr. Sigurður Pálsson. Kaffi. Allir karlmenn velkomnir. Langholtskirkja | Samvera foreldra ungra barna í safnaðarheimili kl. 10-12. Fræðsla, spjall, kaffisopi, söngstund. Verið velkomin. Umsjón: Rut G. Magn- úsdóttir. Laugarneskirkja | Kl. 12, Kyrrðarstund í hádegi. Að samveru lokinni bíður létt- ur málsverður í safnaðarheimilinu allra sem lyst hafa. Kl. 17.30 KMS (14-20 ára) Æfingar fara fram í Áskirkju og Fé- lagshúsi KFUM & K við Holtaveg. Njarðvíkurprestakall | Spilakvöld aldr- aðra og öryrkja kl. 20. í umsjá félaga úr Lionsklúbbi Njarðvíkur, Ástríðar Helgu Sigurðardóttur, Natalíu Chow Hewlett og sóknarprests, Baldurs Rafns Sig- urðssonar. Aðalsafnaðarfundur Innri- Njarðvíkursóknar verður haldinn í kirkj- unni kl. 18. Venjuleg aðalfundarstörf. Sveitakeppni Bridshátíðar. Norður ♠G87 ♥K4 V/NS ♦ÁK108542 ♣Á Vestur Austur ♠KD2 ♠9643 ♥DG108653 ♥2 ♦96 ♦DG73 ♣2 ♣DG75 Suður ♠Á105 ♥Á97 ♦-- ♣K1098643 Í þriðju umferð Flugleiðamótsins kom upp hættulegt skiptingarspil, þar sem NS-pörin fóru sér iðulega að voða eftir opnun vesturs á hindrunarsögn í hjarta. Vestur vakti ýmist á þremur eða fjórum hjörtum eftir kjarki og stíl. Yfir fjórum hjörtum er eðlilegt að segja fimm tígla á norðurspilin, sem setur suður í óskemmtilega aðstöðu. En það er sama hvað hann gerir – passar, reynir sex lauf eða jafnvel sex tígla – ekkert vinnst. Yfir þremur hjörtum kemur vel til álita að segja þrjú grönd á norðurhöndina, en sá samningur vinnst ekki heldur, auk þess sem suður mun taka út og reyna við slemmu. Eina geimsögnin sem hægt er að vinna er fimm lauf. Vinningsleiðin er fögur. Segjum að vestur komi út með spaðakóng. Suður tekur slaginn, spilar hjarta á kónginn og hendir tveimur spöðum niður í ÁK í tígli. Spilar svo hjarta úr borði að Á9. Ef austur tromp- ar, fær hann aðeins einn slag til á lauf, svo sennilega hendir hann í slaginn. Þá tekur suður með ás og stingur hjarta- níuna með trompásnum! Millispilin í trompinu eru nógu þétt til að tryggja að austur fái einungis tvo slagi á DG. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is H ön nu n: G un na r S te in þó rs so n / M ar ki ð / 0 2. 20 05 Frábær tilboð á skíða- og brettapökkum 20-30% afsláttur NORRÆNA húsið, Stofnun Sig- urðar Nordals, Íslensk málstöð og Íslensk málnefnd gangast fyrir um- ræðufundi í Norræna húsinu, um drög að yfirlýsingu um norræna málstefnu, sem lögð hafa verið fyrir Norrænu ráðherranefndina. Fund- urinn hefst kl. 11.00 og stendur til 13.30. Frummælendur verða Guðrún Kvaran, forstöðumaður Orðabókar Háskólans og formaður Íslenskrar málnefndar, Ari Páll Kristinsson, forstöðumaður Íslenskrar mál- stöðvar, Michael Dal, lektor í dönsku við Kennaraháskóla Íslands, og Úlfar Bragason, forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals. Gro Kraft, forstjóri Norræna hússins býður fundargesti vel- komna. Rannveig Guðmundsdóttir, alþingismaður, forseti Norður- landaráðs, flytur ávarp. Að loknum framsöguerindum verða almennar umræður. Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur, for- maður lýðræðisnefndar Norrænu ráðherranefndarinnar, tekur saman niðurstöður umræðnanna. Í hádegisverðarhléi bjóða Nor- ræna húsið og Stofnun Sigurðar Nordals veitingar. Nánari upplýsingar má finna á www.nordals.hi.is. Norræn málstefna í brennidepli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.