Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 53
WILL Smith gerði sér lítið fyrir og setti nýtt „frumsýningamet“ er hann mætti á þrjár frumsýningar samdægurs. Smith þykir manna duglegastur við að fylgja eftir myndum sínum og lætur hann ekki deigan síga við kynningu á nýjasta smellinum sín- um Hitch. Fyrr í vikunni var hann staddur í Bretlandi og setti það ekki fyrir sig að mæta sama dag á frumsýningu myndarinnar í Man- chester, Birmingham og síðan alla leið suður í Lundúnum þar sem hann mætti á galasýningu í ULC- kvikmyndahúsinu við Leicester- torgið. Tilstandið mun skila honum í Heimsmetabók Guinness, sem manninum sem mætt hefur á flestar frumsýningar á 12 tímum. „Þetta er búinn að vera æðisleg- ur dagur,“ sagði hann að lokinni þriðju sýningunni í Lundúnum. „Viðbrögðin frá fólkinu eru búin að vera frábær og ég er svo þakklátur fyrir að það skuli hafa lagt það á sig fara út í snjóinn til að hitta mig.“ Hundruð aðdáenda tóku fagn- andi á móti Smith er hann mætti á Leicester-torgið en Smith segist meðvitaður um að Stóra-Bretland er meira en bara Lundúnir. „Ég hlýt að hafa komið til Lundúna 50 sinnum, en ég átta mig á að Stóra- Bretland er stærra en Lundúnir.“ Enn á toppnum vestra Í Hitch leikur Smith stefnumóta- sérfræðing sem lendir sjálfur í ástarflækju. Myndin hefur slegið í gegn í Bandaríkjunum, hélt í topp- sæti listans um síðustu helgi og er búinn að ná í 95 milljónir dala í tekjur síðan hún var frumsýnd fyrir 10 dögum. Þykir því næsta víst að þetta verði áttunda mynd með Will Smith sem nær yfir 150 milljóna dala markið. Hitch hélt þannig aftur af vís- indatryllinum Constantine, með Keanu Reeves sem fór beint í annað sæti með rúmlega 33 milljónir dala í tekjur. Sýningar á henni hefjast hér á landi um helgina en sýningar á Hitch hefjast þarnæstu helgi. Reuters Will Smith á þremur frumsýningum, í Manchester, Birm- ingham og Lundúnum – alltaf jafn hress. Nýtt „frumsýningamet“ Kvikmyndir | Will Smith er dugnaðarforkur MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 53 AKUREYRI kl. 6. Ísl tal  H.L. Mbl. ÁLFABAKKI kl. 3.45 og 6.20. Ísl tal ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45 og 6. m. ísl tali/ kl. 3.45. m. ensku tali. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45, 6, 8.15 og 10.30. Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum Clint Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk. Besta mynd hans til þessa. Kvikmyndir.is DV KRINGLAN kl. 6. Ísl tal kl. 6. Enskt tal Yfirnáttúrulegur spennutryllir af bestu gerð sem vakið hefur gríðarleg viðbrögð og slegið rækilega í gegn í USA og víðar. Varúð: Ykkur á eftir að bregða. B.i 16 ára AKUREYRI Sýnd kl. 10. ÁLFABAKKI kl. 6, 8.15 og 10.30. Disneyhetjurnar Bangsímon, Grísli, Tígri og félagar lenda í stórkostlegu nýju ævintýri! KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 ára. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.10. J A M I E F O X X  Kvikmyndir.is Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun   VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI  s.  Kvikmyndir.is.S.V. Mbl.  T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A Frumsýnd á morgun Á MÁNUDAGINN var fór fram blaðamannafundur í London vegna gamanmyndarinnar Hitch sem er nýjasta kvikmynd Wills Smiths. Myndin hefur setið á toppi að- sóknarlistans í Bandaríkjunum undanfarnar tvær vikur. Strákarnir á Stöð 2, þeir Auddi, Sveppi og Pétur Jó- hann voru viðstaddir blaðamannafundinn og svo gott sem yfirtóku hann, brugðu á leik eins og þeim einum er lagið og viðhöfðu galgopahátt að séríslenskum hætti. Viðstaddir voru furðu lostnir í fyrstu en lágu fljótlega í gólfinu af hlátri. Að sögn Audda, Auðuns Blöndal, náðu þeir viðtölum við aðalleikara myndarinnar, þ.e. Will sjálfan, Kevin James (Doug í King of Queens), Evu Mendez og Amber Valleta auk leikstjórans Andy Tennant. Strákarnir munu birta þjóðinni þetta efni frá og með morgundeg- inum er spjall þeirra við Evu Mendes verður sent út. „Við höldum svo áfram með Mendes á mánudaginn, enda var spjallið langt og gott,“ segir Auddi. „Við klárum svo restina út næstu viku en í enda hennar erum við flognir til Boston með Icelandair í efnisleit, tökum upp falda myndavél og þess háttar.“ Auddi segir þá hafa dælt út spurningum á fundinum og þeir hafi náð að vekja talsverða athygli. „Þetta vakti meira að segja það mikla lukku að aðrar sjónvarpsstöðvar fóru þess á leit við okkur að fá að sýna frá atganginum. Ég og Sveppi náðum t.d. að mana Pétur upp í það að taka „köttinn“ en þá hermir hann eftir katt- armjálmi og við létum ekki fara fram hjá neinum að við værum frá Íslandi. Will Smith sjálfur var mjög nettur á því og hafði gaman af ruglinu og ruglaði bara á móti.“ Auddi segir að stjörnurnar hafi tekið þeim vel og segir að þeir félagar brjóti vanalega ísinn með því að faðma þær að sér og sá háttur virki iðulega vel. Hitch verður frumsýnd um land allt fimmtudaginn 3. mars. Sjónvarp | Strákarnir komu Will Smith til að hlæja í Lundúnum Strákarnir eru farnir að flytja út æringjahátt að íslenskum sið. Hleyptu upp blaðamannafundi Strákarnir eru á dagskrá Stöðvar 2 frá mánudegi til fimmtudags klukkan 20.00. SÖGUSAGNIR hafa verið á kreiki um að fimmta Harry Potter- myndin verði mögulega tekin að hluta upp á Íslandi. Þetta munu þó vera lítið meira en sögusagnir því samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum Morgunblaðsins hefur ekkert verið ákveðið í þeim efnum. Rætur þessara sögusagna felast í því að sá sem ráðinn hefur verið til að leikstýra Harry Potter og Fönix- reglunni, Bretinn David Yates, er sá hinn sami og stjórnaði tökum á BBC-myndinni Girl in the Café sem tekin var upp að hluta hér á landi í janúar og febrúar. Að sögn talsmanna Pegasus, ís- lenska fyrirtækisins, sem kom að framleiðslu myndarinnar þá á Yates að hafa líkað svo vel við aðstæð- urnar hér á landi að hann hefði lýst yfir að hann hefði áhuga á að vinna fleiri verkefni á Íslandi. Á þá að hafa komið til umræðu að hann væri að fara að vinna að næstu Harry Potter-mynd og þeim mögu- leika velt upp hvort hægt yrði að taka atriði fyrir hana á Íslandi. Yates leist vel á þá hugmynd og hefur óskað eftir því að fá sendar ljósmyndir og frekari upplýsingar um Ísland, sem mögulegan töku- stað. Ítreka menn þó að ekkert hafi verið ákveðið í þessum efnum og að málið sé klárlega á byrjunarreit. Umræddur David Yates er ann- álaður sjónvarpsmyndaleikstjóri og á að baki verðlaunaðar sjónvarps- myndir á borð við Sex Traffic og State of Play. Gert er ráð fyrir að tökur á myndinni hefjist snemma árs 2006 og stendur til að frumsýna myndina í júní 2007. Fjórða myndin um Harry Potter, Eldbikarinn, verður frumsýnd næstkomandi jól. Verður fimmta Harry Potter-myndin tekin upp á Íslandi? Fönixreglan á Íslandi? UPPSELT er á sýningu gríndávalds- ins Sailesh í Broadway sunnudaginn 17. apríl, þó að enn séu um það bil 2 mánuðir í sýninguna. Síðustu mið- arnir seldust í gær og í dag verða ósóttar pantanir seldar í verslunum Skífunnar frá kl. 10.00. Ennþá eru nokkrir miðar lausir á seinni sýn- inguna, 18. apríl. Gengið hefur verið frá tveimur sýningum á landsbyggðinni, í Vest- mannaeyjum og á Akureyri. Miðviku- daginn 20. apríl, síðasta vetrardag, heldur Sailesh til Vestmannaeyja og mun dáleiða áhugasama Eyjamenn á sýningu í Höllinni. Miðasala fer fram í verslun Símans í Eyjum. Sumardaginn fyrsta, 21. apríl, mun Sailesh svo halda norður yfir heiðar og halda sýningu í Sjallanum á Ak- ureyri. Miðasala fer fram í verslun BT á Akureyri, á Event.is og í síma 575 1522. Miðasala á báðar þessar sýningar hefst mánudaginn 7. mars kl. 13.00. Sem fyrr er 18 ára aldurstakmark. Þá hefur selst upp á fjölda nám- skeiða sem Sailesh hyggst halda til að aðstoða fólk við að losna við auka- kílóin og að hætta að reykja. Að sögn skipuleggjenda seldist upp á fyrstu námskeiðin sem auglýst voru á örfá- um mínútum. Senn varð einnig upp- selt á aukanámskeið sem ákveðið var að halda og hefur nú verið áformað að bæta enn við námskeiðum. Sala á þau hefst þriðjudaginn 29. febrúar kl. 11.00, eingöngu í síma 575-1522. Sem fyrr er hámarksfjöldi 15 manns og verð 15 þúsund krónur. Skemmtun | Eftirsóttur dávaldur Sailesh til Akureyrar og Eyja Engum sögum fer af því hvort „Strákurinn“ Pétur Jóhann sé bú- inn að skrá sig á námskeið hjá vini sínum Sailesh. http://www.event.is/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.