Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
Ránið í Árbæjar-
apóteki upplýst
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur upplýst ránið
í Árbæjarapóteki síðastliðinn laugardag. Mað-
ur um tvítugt var handtekinn síðdegis í gær og
hefur hann viðurkennt sinn þátt í ráninu. Hann
rændi apótekið í félagi við annan mann og er
hans nú leitað. Lögreglan hefur þó vitneskju
um, um hvern er að ræða. Við ránið ógnuðu
mennirnir tveir starfsfólki með hnífum og flúðu
með lyf og eitthvað af peningum.
FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar
í Reykjavík fann 4.000 skammta af
LSD í tösku sem tilheyrir einum sak-
borninganna í stóru amfetamínmáli
sem nú er til rannsóknar. Lagt var
hald á töskuna í Hollandi en hol-
lenska lögreglan fann ekki eiturlyfin
og sendi töskuna til Íslands. Þetta er
mesta magn af LSD sem lagt hefur
verið hald á hér á landi.
Málið sem um ræðir snýst um
smygl á um 11 kílóum af amfetamíni,
600 grömmum af kókaíni og 2.000
skömmtum af LSD. Megnið kom
með vörusendingum í Dettifossi og
sitja nú fimm manns í gæsluvarð-
haldi vegna þess. Rannsókn málsins
er á lokastigi.
Taskan umrædda tilheyrir ís-
lenskum manni sem var handtekinn í
Rotterdam í Hollandi í september í
tengslum við málið. Um leið var lagt
hald á 900 grömm af amfetamíni og
um 20 kíló af kannabisefnum sem
voru í íbúð sem maðurinn dvaldi í.
Hann var síðar framseldur til Ís-
lands og hefur setið í gæsluvarðhaldi
síðan. Munir sem tilheyrðu mannin-
um bárust hingað til lands frá hol-
lensku lögreglunni upp úr áramótum
og við leit í þeim fann fíkniefnadeild
lögreglunnar LSD-skammtana fjög-
ur þúsund sem hollensku lögreglu-
mönnunum hafði yfirsést. Skammt-
arnir voru á pappírsörkum og voru
geymdir í umslögum í töskunum.
Meðhöndlaði einn töskuna
Að sögn Ásgeirs Karlssonar yfir-
manns fíkniefnadeildarinnar er
LSD-ið af sömu gerð og lagt var hald
á hér á landi 13. september sl. í
tengslum við rannsókn smyglmáls-
ins. Aðspurður segir hann að mað-
urinn sem átti töskuna hafi ekki ját-
að að hafa ætlað að smygla LSD-inu
til landsins. Fíkniefnadeildin hefur
fengið staðfest að enginn annar hef-
ur meðhöndlað töskuna eftir að lagt
var hald á hana í september.
Fundu 4.000 skammta
af LSD falda í tösku
Hollenska lögreglan hafði misst af eiturlyfjunum
LSD-spjöld í vörslu lögreglunnar.
MIKIL og góð veiði hefur verið
hjá Grindavíkurbátum undan-
farnar vikur og hátíðar-
stemmning á bryggjunni þegar
bátarnir hafa verið að koma
drekkhlaðnir að landi. Gamla
vertíðarstemmningin mætt, að
sögn manna sem voru þar. Í
gær kom hver báturinn á eftir
öðrum að landi með metafla.
Örn Rafnsson, skipstjóri á
Hópsnesi GK 77, sem er 15
tonna bátur, stóð í ströngu
þegar Morgunblaðið náði tali
af honum í gærkvöldi. Hóps-
nesið kom drekkhlaðið með 13
tonn að landi.
Uppistaðan í afla
bátanna er þorskur
„Þetta er svona um 60 pró-
sent þorskur og svo er þetta
ýsa, keila og langa,“ sagði Örn
og bætti við að sumir væru að
fá miklu meira en hann á
hvern bala. T.d. hefði línubát-
urinn Daðey GK 777 verið með
tíu tonn á tuttugu og tvo bala,
sem er meira en 450 kíló á
bala.
Stærri bátarnir, eins og
Ágúst GK 95 og Valdimar GK
195, eru líka að mokfiska og
hafa á undanförnum vikum
náð aflaskammtinum á tveimur
til þremur dögum.
Þeim eru sett ákveðin tak-
mörk, aflaskammtur, fyrir því
hvað má veiða í hverri veiði-
ferð. Í stað þess að veiða afla-
skammtinn á tæpri viku fæst
hann nú á 2–3 dögum. Ekki
vildu sjómenn í Grindavík, sem
Morgunblaðið ræddi við, reyna
að útskýra þetta góða fiskirí
með neinum hætti en voru
sumir hógværir í tali.
Athygli vekja skemmtileg
númer bátanna sem hér koma
við sögu, en Hópsnes er GK 77
og Daðey GK 777. Hins vegar
er Ágúst GK 95 en Valdimar
GK 195. Spurningin er hvort
góð aflabrögð megi rekja til
skemmtilegrar samsvörunar í
skráningarnúmerum bátanna.
Ljósmynd/Þorsteinn Kristjánsson
Hátíðarstemmning þegar
bátarnir komu drekkhlaðnir
Karlar voru kátir í Grindavíkurhöfn í gærkvöldi, enda búið að vera mokfiskirí undanfarna daga hjá Grindavíkurbátum. Hópsnesið GK var að
landa metafla og vertíðarstemmning lá í loftinu. Um borð í Hópsnesi voru að fylgjast með lönduninni Regin Grímsson, sem smíðaði Hópsnesið,
Davíð Reginsson, Hermann Ólafsson útgerðarmaður, Örn Rafnsson skipstjóri, Rafn Arnarsson og Sveinbjörn Sæmundsson bátsverjar.
TRYGGINGAFÉLÖGIN þrjú,
Sjóvá-Almennar, TM og VÍS, þurfa
að greiða alls 60,5 milljónir kr. í
stjórnvaldssektir fyrir ólögmætt
samráð í tengslum við innleiðingu
nýs kerfis við mat á bílatjónum á
árinu 2002. TM og VÍS una sekt-
unum en Sjóvá fellir sig ekki við nið-
urstöðu samkeppnisráðs og hefur
ákveðið að áfrýja henni til áfrýjun-
arnefndar samkeppnismála.
Samkeppnisráð komst að þeirri
niðurstöðu í gær að Sjóvá hefði
brotið 10. gr. samkeppnislaga með
því að hafa átt í verðsamráði við TM
og VÍS. Hæstu sektina fær Sjóvá, 27
milljónir króna, en VÍS fær 15 millj-
ónir kr. og TM 18,5 milljónir kr.
Af hálfu VÍS viðurkenndi félagið
brot á 10. gr. samkeppnislaga og
segir Jóhann Jóhannsson deildar-
stjóri tjónaskoðunardeildar að menn
hafi farið „óvart yfir strikið.“
Hvað varðar aðild TM segist
Gunnar Felixson forstjóri ekki sam-
mála samkeppnisráði um að efnis-
atriði málsins ættu að leiða til
stjórnvaldssekta eins og raunin
varð. Félagið hafi þó tekið þá
ákvörðun að gera sátt til að eyða
ekki fé og fyrirhöfn í frekari mála-
ferli.
Þorgils Óttar Mathiesen forstjóri
Sjóvár segist munu fara með málið
fyrir dómstóla ef þurfa þykir og tel-
ur að gögn málsins sýni fram á sak-
leysi félagsins. Þorgils tekur fram
að Sjóvá hafi ekki haft neinn fjár-
hagslegan ávinning af samvinnu
tryggingafélaganna þriggja.
Tryggingafélögin sektuð um 60 millj-
ónir króna fyrir ólögmætt samráð
Sjóvá áfrýjar
úrskurðinum
SKULDIR heimilanna við innlánsstofnanir,
þ.e. viðskiptabanka, sparisjóði og innlánsdeild-
ir kaupfélaga, í formi útlána og markaðsverð-
bréfa, jukust um rúma 24 milljarða í janúar síð-
astliðnum, samkvæmt bráðabirgðatölum frá
Seðlabanka Íslands. Frá janúar 2004 til janúar
2005 jukust útlán og markaðsverðbréf innláns-
stofnana til heimilanna um tæpa 147 milljarða.
Lán heimilanna 325 milljarðar
Seðlabankinn hefur einnig flokkað stöðu út-
lána innlánsstofnana eftir atvinnugreinum. Þar
kemur fram að í lok janúar síðastliðins skuld-
uðu heimilin í landinu verðtryggð skuldabréf
upp á 214 milljarða, gengisbundin skuldabréf
upp á 24 milljarða, önnur skuldabréf upp á 27
milljarða og yfirdráttarlán heimilanna námu 57
milljörðum. Samtals voru útlán innlánsstofn-
ana til heimilanna 325 milljarðar./6
Yfirdráttur
heimila 57
milljarðar
♦♦♦
♦♦♦
SIGURJÓN Sighvatsson er um
þessar mundir að framleiða
átta kvikmyndir víðs vegar um
heiminn. Segist hann í viðtali
við Viðskiptablað Morgun-
blaðsins í dag aldrei hafa verið
með fleiri kvikmyndaverkefni
í gangi. Sigurjón segir orðið
mjög dýrt að gera kvikmyndir í Hollywood
og fólk sé farið að færa sig út um allan heim í
þeim erindum. Ísland segir hann henta ágæt-
lega til að framleiða myndir af miðstærð, upp
á 10–12 milljónir dollara og ekki með of
mörgum leikurum./B4
Sigurjón með
átta myndir