Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
ÍSLANDSBANKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ
20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
I I I I Í L F
20 F L F I I
Áður en hún finnur frið verður hún að heyja stríð
Fædd til að berjast þjálfuð til að drepa
Frá
fram
leiða
nda
Tra
ining
day
Miðasala opnar kl. 15.30
Yfir 30.000 mannsfir .
Ó.Ö.H. DV
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 5.45 og 10.20. B.i. 14 ára.
3000 km að heiman. 10 eftirlifendur
Mögnuð spennumynd um baráttu
upp á líf og dauða
Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 4 og 6. B.i. 14 ára
Ein vinsælasta grínmynd allra tíma
þrjár vikur á toppnum í USA!
CLOSER
JULIA ROBERTS
JUDE LAW CLIVE OWEN
NATALIE PORTMAN
2 ÓSKARSVERÐLAUNATILNEFNINGAR
A MIKE NICHOLS FILM
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i.16 ára. Sýnd kl. 3.50. KR 400.
Ef þú trúir á ást við fyrstu sýn,
hættir þú aldrei að horfa
Kvikmyndir.is.S.V. Mbl.
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
J A M I E F O X X
S.V. MBL.
Ó.Ö.H. DV
3000km. að heiman. 10 eftirlifendur. Aðeins eitt tækifæri!
Mögnuð spennumynd um baráttu upp á líf og dauða
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
JULIA ROBERTS JUDE LAW CLIVE OWEN NATALIE PORTMAN
CLOSER
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára.
kl. 5.40, 8 og 10.20.
Ef þú trúir á ást við fyrstu sýn, hættir þú aldrei að horfa
Ó.Ö.H. DV
S.V. MBL.
03.03.05
HITCH
Will Smith
sem einhver stærsti skellur bíósög-
unnar.
Á pappírum leit alltaf út fyrir að
hún yrði fremur erfið í meðhöndlun;
jarðbundin söguleg úttekt úr vestr-
inu, gerð á tímum þegar vestrar
eiga almennt undir högg að sækja,
handrit sem hafði lengi þvælst um
milli manna í Hollywood þar sem
margir lýstu áhuga en enginn beit á
agnið og umtalið því orðið neikvætt
löngu áður en tökur hófust, leik-
stjóri með litla reynslu af gerð stór-
mynda (John Lee Hancock) og bara
þokkalega þekktir leikarar en alls
engar risastjörnur – Billy Bob
Thornton (Davy Crockett), Dennis
Quaid (Sam Houston), Jason Patric
(James Bowie) og Patrick Wilson
(William Travis).
BARDAGINN við Alamo-virki er
einhver goðsagnakenndasti atburð-
ur í sögu vestursins. Ótal kvikmynd-
ir hafa verið gerðar um þessi sögu-
frægu átök sem urðu árið 1836 er
Texas-búar – jafnt „kúrekar“ sem
„tex-mexar“ – fylktu liði og börðust
fyrir sjálfstæði ríkisins gegn mex-
íkanska einræðisherranum og hers-
höfðingjanum Antonio Lopez de
Santa Ana. Lokaátökin fóru fram
við Alamo-virkið fyrir utan borgina
San Antonio, þar sem 183 hvítir
Bandaríkjamenn og nokkrir af Tej-
ano-uppruna vörðust gegn 2 þúsund
manna her Santa Ana.
Ein meginástæðan fyrir þessum
mikla áhuga kvikmyndagerð-
armanna á nákvæmlega þessum
bardaga hlýtur öðru fremur að telj-
ast sú að lið Texas-búa var eins og
„hver er hver“ í vestrinu villta;
sögufrægar hetjur á borð við Davy
Crockett, Jim Bowie, Sam Houston
og William Travis.
Af ótal myndum, heimild-
armyndum og leiknum sem gerðar
hafa verið bæði fyrir hvíta tjaldið og
sjónvarpsskjáinn, er trúlega fræg-
ust þeirra The Alamo frá 1960, hvar
í „Hertoginn“ sjálfur, John Wayne,
lét sér ekki nægja að leika Davy
Crockett, heldur leikstýrði henni
einnig.
Erfið fæðing
Í fyrra var svo frumsýnd metn-
aðarfyllsta kvikmyndin af þeim öll-
um. Stjörnum hlaðin Hollywood-
framleiðsla sem kostaði yfir 100
milljónir dala að gera. Reyndar seg-
ir sagan að Óskarsverðlaunahafinn
Ron Howard hafi fyrst ætlað að
gera hana en hætt við þegar fram-
leiðandinn Disney neitaði að láta
hann fá þær 200 milljónir dala sem
hann fór fram á. Kannski eins gott
því myndin kolféll á endanum og er
nú skráð í kvikmyndasögubækur
Fyrstu viðbrögðin voru líka eftir
því, þegar myndin var frumsýnd
komu aðeins 9 milljónir dala í kass-
ann fyrstu sýningarhelgi og æði
misjafnir dómar, þannig að þeir hjá
Disney vildu helst gleyma Alamo
sem allra fyrst.
Breyskir þjóðernissinnar
Þótt almenningur kysi að sjá eitt-
hvað annað þá hreifst hinsvegar
margur gagnrýnandinn af myndinni
og þótti t.d. Roger Ebert mikið til
hennar koma og fagnaði því m.a. að
loksins væri búið að gera bíómynd
sem sýndi Davy Crockett og Jim
Bowie sem breyska menn í stað
upphafinna dýrðlinga. Þá hefur
myndinni verið hælt mjög fyrir allt
útlit, kvikmyndatakan og sviðsmynd
þótti tilkomumikil með afbrigðum,
fína leikframmistöðu, sérstaklega
hjá Thornton og flottar átakasenur.
Á hinn bóginn þykir hún renna á
rassinn þegar kemur að sögulegri
túlkun og hafa gagnrýnendur sér-
staklega haft á orði að enn og aftur
hafi þeir í Hollywood fallið í fen yf-
irgengilegrar þjóðernisdýrkunar –
nokkuð sem klárlega hafi ekki verið
meiningin í þessu tilfelli.
The Alamo hafnaði á ófáum list-
um yfir helstu skelli síðasta árs og
er hún flestum gleymd og grafin
þótt tiltölulega ný sé, en sjón er
sögu ríkari, sér í lagi fyrir áhuga-
menn um vestrann og bandaríska
sögu.
Kvikmyndir | Sannsögulegur vestri kominn á leigurnar
Hver man eftir Alamo?
!
"
#$%
!
#
&
&
&
$
Uppréttir Texas-búar við Alamo-virkið með Davey Crockett (Billy Bob
Thornton) fremstan í flokki.
The Alamo er komin út á mynd-
diski og myndbandi.
skarpi@mbl.is
ÞAÐ fer ekki á milli mála að hér er á
ferð rakin hrollvekja og ekkert ann-
að. Komið er inn á allar þær hroll-
vekjuklisjur sem
hugsast getur og
tilgangurinn klár-
lega að hræða líf-
tóruna úr áhorf-
andanum, helst
hneyksla hann
líka upp úr sóf-
anum.
Það tekst ekki.
Hér verða nefnd-
ar tvær ástæður fyrir því; hin fyrri
er sú að myndin lítur út eins og hvert
annað tónlistarmyndband með Mari-
lyn Manson eða Korn – er hvorki
frumlegri né meira ógnvekjandi en
það. og síðari er að hér er lögð fram
hreint frámunalega fordómafull og
gamaldags skilgreining á geðveiku
fólki – hugsið ykkur bara Gauks-
hreiðrið og margfaldið með hundrað.
Afar uppbyggjandi fyrir þá sem eiga
við þennan erfiða sjúkdóm að glíma
eða hitt þó heldur – jafnvel þótt hér
sé bara um „saklaust bíó“ að ræða.
Það eina sem fá má út úr mynd-
inni er því ágætlega vel heppnuð og
drungaleg umgjörð og flétta sem
heldur athyglinni – merkilegt nokk –
allt til enda.
Skemmandi
skrípalæti
KVIKMYNDIR
Myndbönd
Bandaríkin 2004. Leikstjórn og handrit
William Butler. Aðalhlutverk Joshua
Leonard. Jordan Ladd. (91 mín.) Sam
myndir. Bönnuð innan 16 ára.
Hælið (Madhouse)
Skarphéðinn Guðmundsson
TOM Cruise var örlátur þegar
verið var að taka upp endurgerð
myndarinnar War of the Worlds,
sem Steven
Spielberg leik-
stýrir. Hann lét
setja upp vís-
indatrúartjald,
en hann er einn
þekktasti fylg-
ismaður þeirrar
trúar í heim-
inum ásamt
John Travolta. Í
tjaldinu var prestur frá Vísinda-
kirkjunni og veitti þeim „aðstoð“
sem vildu, en „aðstoð“ er trúar-
athöfn vísindatrúarmanna. „Þetta
er gjöf frá Tom til tökuliðsins,“
segir talskona og systir Cruise,
Lee Anne De Vette.
Tom Cruise lét
setja upp vís-
indatrúartjald
Tom Cruise
JEDI-RIDDARANUM Obi-Wan Kenobi fannst síðustu Stjörnustríð óvið-
unandi. Réttara sagt þá var það Ewan McGregor, sá er lék Obi-Wan í
tveimur síðustu myndum og í þeirri væntanlegu, sem lýsti þessu yfir í við-
tali við breska kvikmyndaritið Total Film.
Þar segir skoski leikarinn:
„Bardagaatriðin í Episode II voru óviðunandi, að mínu mati. Bardag-
arnir voru ekki nærri því eins vel heppnaðir og þeir hefðu átt að vera og ég
þurfti ekki að láta nærri eins mikið til mín taka og í Episode I.“
McGregor hefur greinilega ákveðið að þetta sé besta leiðin til að kynna
næstu mynd, að setja út á þær fyrri því áður en Episode II var frumsýnd
þá setti hann heilmikið út á Episode I sem hann sagði hafa valdið sér „von-
brigðum“ og væri „flöt“.
Í viðtalinu segist hann hinsvegar miklu sáttari við Episode III: Revenge
of the Sith, lokamyndina í sexleiknum sem frumsýnd verður í maí. „Þar
verður bætt upp fyrir þetta. Bardagasenurnar eru svakalegar þar,“ segir
þessi 33 ára gamli opinskái leikari.
Obi-Wan rakkar
niður Stjörnustríðin
Obi Wan og Anakin; uppgjör í aðsigi – McGregor sáttur.