Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14.
Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum Clint
Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk.
Besta mynd hans til þessa.
Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun LEONARDO DiCAPRIO
H.L. Mbl. Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6 og 9.10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
Yfirnáttúrulegur spennutryllir af bestu gerð sem
vakið hefur gríðarleg viðbrögð og slegið
rækilega í gegn í USA og víðar.
Varúð: Ykkur á eftir að bregða.
B.i 16 ára
SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5.30, 8 OG 10.30.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 5.30, 8 og 10.30.
Kvikmyndir.is
DV
GOLDEN GLOBE
VERÐLAUN
Besti leikari - Jamie Foxxti l i i i
J A M I E F O X X
kl. 5.30, og 8.30 B.i. 12.
Sýnd kl. 8 og 10.30. Sýnd kl. 5.30.
A Very Long Engagement
Kvikmyndir.is
Ó.H.T. Rás 2
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
Kvikmyndir.is. S.V. Mbl.
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
Kvikmyndir.isS.V. Mbl.
J.H.H. Kvikmyndir .com
6 11T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A• BESTA MYND • BESTI LEIKSTJÓRI • BESTI AÐALLEIKARI T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A• BESTA MYND • BESTI LEIKSTJÓRI • BESTI AÐALLEIKARI • BESTI AUKALEIKARI
2 tilnefningar til Óskarsverðlauna
Djassklúbburinn hefur veriðvið góða heilsu undanfarnamánuði og í kvöld stígur
þar á svið sveitin GRAMS en hana
skipa Jóel Pálsson (blástur og raf-
hljóð), Davíð Þór Jónsson (hljóm-
borð, flautur og „raddir að hand-
an“) og Helgi Svavar Helgason
(trommur og hristingur). Tónleik-
arnir fara fram á Hótel Borg að
vanda og hefjast þeir klukkan
21.00.
Jóel Pálsson er án efa einn afokkar fjölhæfustu djössurum
og spilar jöfnum höndum örgustu
sýru og fágaðan, hefðbundinn
djass. Helgi
og Davíð
eru þá lík-
lega til-
raunaglöð-
ustu og athafnamestu djassistar
sinnar kynslóðar. Í tilkynningu er
talað um GRAMS sem pönk-
elektró-djasstríó en stefnurnar sem
koma inn í hræring GRAMS eru þó
mun fleiri samkvæmt Jóel en allt
er galopið hjá Grömsurum.
„Auk þessa er enginn hljómsveit-
arleiðtogi eins og svo algengt er í
djassinum. Þetta er bara hljóm-
sveitin okkar,“ segir Jóel í samtali
við blaðamann. GRAMS hefur nú
starfað um nokkurra mánaða
skeið, leikið á ýmsum stöðum í höf-
uðborginni og komið fram á Ice-
land Airwaves, á Oslo Jazzfestival
og á Jazzhátíð Reykjavíkur. Það
segir sitthvað um fjölbreytileika
GRAMS að á Jazzhátíð Reykjavík-
ur slógust í lið með sveitinni þeir
Seamus Blake, Friðrik Theodórs-
son, skipuleggjandi hátíðarinnar,
og Rassi prump, meðlimur Trab-
ant.
Jóel segir takmarkið meðGRAMS að geta leikið hömlu-
laust og öllu því sem meðlimir hafa
einhverju sinni snert á er blandað
saman í kássu. „Útkoman getur því
orðið nokkuð furðuleg,“ segir Jóel.
„Þetta er blanda af skrifaðri tónlist
og spuna með snertiflöt við djass,
raftónlist, pönk, popp, frjálsan
spuna og kirkjutónlist. Þetta er
fyrst og fremst mjög frjálslegt, það
er t.d. mismunandi hvaða lúðra ég
tek með mér og svo nýtum við okk-
ur líka kjöltutölvuna í botn.“ Jóel
segir kjöltutölvuna nýtast frábær-
lega sem hljóðfæri og það sé um að
gera að nýta sér slík tól til fulln-
ustu. „Tölvurnar hafa galopnað
heim með óendanlegum mögu-
leikum og eru í raun hljóðfæri nú-
tímans. Það er því sjálfsagt að nýta
þær í djass og spunatónlist eins og
önnur hljóðfæri. Að nota þetta ekki
er eins og Mozart hefði forðast að
nota píanóið á sínum tíma.“
Plata með GRAMS er á stefnu-skránni, tónlistin er til, en allir
eru eins og venjulega „geðveik-
islega bissí“ eins og Jóel orðar það.
Höfundi greinar finnst eins og
hann hafi orðið var við ákveðna
spennu á milli eldri og yngri kyn-
slóðar djassista og það fari hrein-
lega í taugarnar á þeim sem að-
hyllast „hefðbundinn“ djass að
yngri hæfileikamenn skuli vera að
sóa hæfileikunum í eitthvert rugl.
Jóel skrifar hins vegar ekki undir
þetta.
„Að sjálfsögðu sé ég ekki það
sem við erum að gera sem eitthvert
„rugl“,“ segir hann og brosir. „Þar
fyrir utan þrífst ég sem tónlist-
armaður á því að prófa eitthvað
nýtt og fjölbreytt. Mjög margir ís-
lenskir djasstónlistarmenn koma
víða við í sinni sköpun og það er
einfaldlega vegna þess að mark-
aðurinn hérlendis er pínulítill og
maður er því í nálægð við alls kyns
strauma og stefnur. Ég tel að það
séu þessar aðstæður sem gera ís-
lenska tónlist svolítið sérstaka. Er-
lendis er þessu öðruvísi farið, – þar
geta menn hæglega sinnt ein-
hverjum einum geira eingöngu.“
Engar hömlur
’Það segir sitthvað umfjölbreytileika GRAMS
að á Jazzhátíð Reykja-
víkur slógust í lið með
sveitinni þeir Seamus
Blake, Friðrik Theo-
dórsson, skipuleggjandi
hátíðarinnar, og Rassi
prump, meðlimur Trab-
ant.‘
AF LISTUM
Arnar EggertThoroddsen
arnart@mbl.is
FRANSKA hljómsveitin NoJazz
kann að hafa djasstónlist sem und-
irstöðu en ofan á hana hleður hún
áhrifum frá margvíslegum áttum
þannig að úr verður nokkuð sér-
stæð blanda, eins og nafnið gefur til
kynna. Djassinn svo gott sem horf-
inn en eftir stendur blanda af
djassi, poppi, rokki, fönki, dans- og
heimstónlist. Allt er þetta svo bund-
ið saman með mjög svo taktföstu og
dansvænu „grúvi“.
Sveitin er væntanleg hingað til
spilamennsku um helgina og leikur
á tvennum tónleikum á NASA
ásamt Jagúar. Blaðamaður ræddi
af tilefninu við Pascal Reva,
trymbil, gítar- og bassaleikara
sveitarinnar.
Dómgreind
Sveitina skipa auk Pascals þeir
Philippe Sellam (saxafónn), Guill-
aume Poncelet (trompet), Philippe
Balatier (hljómborð og hljóð-
smölun) og Mike Checkli (plötu-
snúður). Meðlimir komu úr ólíkum
áttum þegar þeir stofnsettu sveitina
við aldahvörf en áttu sameiginlega
þá hugsjón að snúa hugmyndinni
um djasstónlist á haus. Fyrsta plata
sveitarinnar, samnefnd henni, kom
úr árið 2002 á vegum Warner Jazz í
Frakklandi og framfylgdi sveitin
þar því sem lagt var upp með í upp-
hafi. Í fyrra kom svo út endur-
hljóðblöndunarskífan NoLimits.
Frumburður NoJazz var unninn í
New York undir handleiðslu Teo
Macero, goðsagnar úr djassheim-
inum sem unnið hefur með lista-
mönnum á borð við Miles Davis,
Charles Mingus og Thelonious
Monk. Macero stýrði t.a.m. upptöku
Kind of Blue og Bitches Brew!
NoJazz gerir út frá París en hef-
ur gert lítið af því að spila í Frakk-
landi undanfarin ár heldur ferðast
víðsvegar um heim þar sem hún
hefur náð að heilla með sprell-
fjörugri sviðsframkomu sinni.
Pascal segir það hafa verið at-
hyglisverða reynslu að vinna við
Macero.
„Við höfðum hugsað okkur að
fara meira út í raftónlist fyrst, hafa
þetta meira tæknó og meira vír-
aðra. Þegar við komum til New
York varð þetta meira lifandi spila-
mennska og platan varð að sam-
þættingu á því og tölvuvinnslu.
Macero lét okkur spila á fullu og
splæsti þessu svo saman. Við sett-
um traust okkar á hans dómgreind
en venjulega voru þetta ekki meira
en tvær til þrjár tökur á lag.“
Þá er það vesturströndin
Pascal segir sveitina nú í miðju
kafi í vinnu við plötu númer tvö.
„Nýju plötuna vinnum við á vest-
urströnd Bandaríkjanna en ekki
austurströndinni eins og síðast. Það
er kannski helsti munurinn! Við
vinnum hana með Maurice White úr
Earth, Wind & Fire en við kom-
umst í kynni við hann í gegnum
Macero. Þetta er nú kosturinn við
það að vera á stóru merki. En þetta
er mikið til vinna á forsendum
„gamla skólans“ ef svo má segja.
Mikil áhersla að spila þetta hrátt
sem hljómsveit.“
Pascal er hressilega hreinskilinn
þegar hann talar um París, þar sem
sveitin hefur herbúðir sínar.
„Æi, Parísarbúar og þetta
bransalið þar getur verið ansi stíft.
Það er líklega sama uppi á ten-
ingnum í öðrum stórborgum. Það er
næstum fyndið að við spilum miklu
meira erlendis í dag en í heimaland-
inu.“
NoJazz hefur getið sér orðs fyrir
einstaklega hressilega sviðs-
framkomu og litríkan klæðnað sem
henni fylgir.
„Já, vanalega verður allt vitlaust
á sviðinu. Við dönsum eins og fífl og
hoppum og hlaupum um sviðið
(hlær). Svona er að vera djass-
geggjari!“
Tónlist | Franska sveitin NoJazz spilar á NASA á morgun og hinn
Tónleikar NoJazz og Jagúar fara
fram föstudags- og laugardags-
kvöld og hefjast báðir klukkan
23. Aðgangseyrir er 700 krónur.
Forsala miða er í NASA og í Alli-
ance Française, Tryggvagötu 8.
www.nojazz.net
www.jaguar.is
http://af.ismennt.is/
arnart@mbl.is
Hvað ertu, djass?
NoJazz-liðar fara bakdyramegin að djassinum.