Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 37
MINNINGAR
framkvæmd. Margt var rætt til
heilla landi og þjóð því hugur Guð-
mundar var frjór. Ekki þekki ég
ævistarf hans svo að ég kunni að
rekja það svo vel fari en mér er
kunnugt um að hann kom að því
verki að setja á stofn Kaupfélag
Kjalnesinga og var í stjórn þess.
Guðmundur studdi okkur sem unn-
um að stofnun Framleiðslusam-
vinnufélags rafvirkja með hvatningu
og góðum ráðum. Meðal þess sem
átti hug hans þau ár sem við störf-
uðum saman 1971 til 1974 voru vind-
rafstöðvar og núna eru þær þegar í
mikilli notkun víða um lönd. Meðal
annars munu þær einar fullnægja
orkuþörf byggðarinnar norðan við
Limafjörð í Danmörku.
Guðmundur tók ástfóstri við lúp-
ínuna og stóð í því að koma henni á
legg þar sem hann átti aðgang að
landsvæði. Guðmundur var sam-
vinnuhugsjónarmaður þeirrar gerð-
ar að ég segi með stolti og gleði, ég
þekkti Guðmund Tryggvason. Hann
var líka glaðsinna, sem dæmi um
glettni hans var þegar við fórum til
Vestmannaeyja í gosinu, þá gekk
hann frá líf- og slysatryggingu fyrir
okkur og Þráin Valdimarsson við
Friðjón Guðröðarson hjá Samvinnu-
tryggingum. Úti í Eyjum komnir inn
á vegarslóða sem lá að Eldfellinu
sem stöðugt gaus, lauk ferðinni við
búkka mikinn sem á var hættumerki
og bann við umferð. Við vorum búnir
hjálmum en Guðmundur fór inn fyr-
ir búkkann, tók ofan hjálminn og
sagði taktu nú mynd og láttu eld-
fjallið sjást í baksýn. Myndin tókst
vel og Guðmundur fékk hana stækk-
aða og gaf síðan Friðjóni hana með
undirrituninni „Það er alltaf öruggt
að vera tryggður hjá Samvinnu-
tryggingum“. Friðjón var einn af
mörgum vinum Guðmundar sem
ávallt fengu í nefið þegar þeir litu
inn. Til marks um vinsældir Guð-
mundar má geta þess að það lá í loft-
inu að það væru forréttindi að fá í
nefið hjá honum. Fyrir mig er það
einn af ljósu punktunum í lífi mínu
að fá að kynnast Guðmundi
Tryggvasyni. Ættingjum hans votta
ég samúð mína, en verið viss, hann
mun fagna okkur glaður í bragði
þegar þar að kemur.
Kristinn Snæland.
Forsjónin hefur af örlæti gefið
mér allnokkra merkilega samferða-
menn sem hafa með gáfum, velvilja
og umhyggju gert líf mitt betra og
litríkara en annars hefði orðið og
það án þess að ég hafi mikið lagt á
móti.
Sá maður sem hér er minnst er
einn af þessu merka fólki.
Guðmundur Tryggvason lifði nær
alla síðustu öld og sá morgunbjarm-
ann af þeirri sem nú er nýhafin.
Hann var glæsilegur maður, leiftr-
andi greindur, prýði í hverjum hóp
og lyfti jafnan umræðum á hærra
plan.
Hugmyndaríki og eldhugur voru
honum í blóð borin og fyrirhafnar-
laust gat hann vitnað í ljóðmæli
helstu skálda máli sínu til stuðnings
og skrauts.
Okkar leiðir lágu saman í fáein ár,
þegar við unnum báðir á skrifstofu
Framsóknarflokksins við Rauðarár-
stíg í Reykjavík. Við töluðum saman
nánast sérhvern dag og unun var að
hlusta á hann segja frá.
Hann hélt mönnum hugföngnum
með frásagnarlist sinni og hafði
næmt auga bæði fyrir því sem
spaugilegt var og ekki síður smáat-
riðum, sem blésu lífi, meiningu og
lærdómi í frásögnina.
Ekki taldi hann eftir sér að leið-
beina ungum mönnum um lífið og til-
veruna og hætt er við sá sem þetta
skrifar hafi aldrei þakkað sem skyldi
það gagn og gaman sem hann hafði
af samvistunum við Guðmund.
Guðmundur var einlægur sam-
vinnumaður sem missti ekki sjónar á
aðalatriðum og var kjarkmaður í
pólitísku mótlæti og manna glaðast-
ur þegar vel gekk. Hann var án efa
einn merkilegasti maður sem ég hef
kynnst.
Ég er þakklátur fyrir vináttu hans
og leiðsögn.
Fjölskyldu hans sendi ég samúð-
arkveðjur og bið Guð að styrkja þau.
Atli Ásmundsson.
Ástkær eiginmaður minn,
FRIÐRIK ANDRÉSSON
múrarameistari,
Kirkjusandi 1,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstu-
daginn 25. febrúar kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurveig Valdimarsdóttir.
Ástkær sonur minn, bróðir, mágur og vinur,
ÓSKAR ÞÓR GUNNLAUGSSON,
lést aðfaranótt sunnudagsins 20. febrúar sl.
Jarðarförin fer fram frá Hvítasunnukirkjunni
Fíladelfíu, Hátúni 2, föstudaginn 25. febrúar
kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hvíta-
sunnukirkjuna Fíladelfíu.
Edda Axelsdóttir,
Hákon Hreiðarsson, Valgerður Guðjónsdóttir,
Eva Hovland, Björn Sigtryggsson,
Jane Quirk.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SVEINBORG JÓNSDÓTTIR
frá Núpi,
Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju föstu-
daginn 25. febrúar kl. 13.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Vinafélag Ljósheima á Selfossi.
Axel Þór Lárusson, Róslín Jóhannsdóttir,
Oddrún Helga Jónsdóttir, Gunnar Guðmundsson,
Andrea Jónsdóttir,
Ásrún Jónsdóttir, Ólafur Ragnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
SIGRÍÐAR G. AUÐUNSDÓTTUR
frá Dvergasteini.
Auðunn F. Kristinsson, Sigrún Inga Kristinsdóttir,
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir,
Kristinn L. Auðunsson,
Sigríður D. Auðunsdóttir,
Árni G. Kristinsson,
Júlíana M. Árnadóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
EIRÍKUR JÓNSSON
frá Berghyl,
Álftarima 20,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Hrunakirkju laugar-
daginn 26. febrúar kl. 13.30.
Guðrún Guðlaug Eiríksdóttir, Arnar Bjarnason,
Svanlaug Eiríksdóttir, Hörður Hansson,
Áslaug Eiríksdóttir, Eiríkur Kristófersson,
Jón Guðmundur Eiríksson, Anna María Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR BLÖNDAL,
Hlíðarhúsum 3,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunar-
heimilinu Eir fyrir hlýhug og umönnun.
Pétur Blöndal,
Theodór Blöndal, Björg S. Blöndal,
Gísli Blöndal, Erla Harðardóttir,
Ásdís Blöndal, Anton Antonsson,
Margrét Blöndal, Ólafur Einarsson,
Emelía Blöndal, Þórður G. Hjörleifsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlut-
tekningu við fráfall og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
AÐALHEIÐAR KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR,
Háeyrarvöllum 40,
Eyrarbakka.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima
Selfossi fyrir góða umönnun.
Elín Sigurðardóttir,
Jón Sigurðsson, Sigríður Magnúsdóttir,
Kristján S. Sigurðsson,
Aðalheiður Kristín Jónsdóttir,
Magnús Jóel Jónsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sendu
góðar kveðjur og blóm vegna andláts manns-
ins míns,
GUÐBRANDS SIGURGEIRSSONAR,
Furulundi 3c,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á lyfjadeild 1 á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fyrir frá-
bæra umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurlaug Jakobsdóttir og fjölskylda.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSA LILJA ARNÓRSDÓTTIR,
elliheimilinu Grund,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 25. febrúar kl. 13.00.
Sveinn Mýrdal Guðmundsson,
Sveinn Reynir Sveinsson, Naiyana Pornpadung,
Hörður H. Bjarnason,
Sigríður Ása Harðardóttir, Þröstur Hjartarson,
Bjarni Einar Harðarson, Ebru Gunaydin,
Katla Guðrún Harðardóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
ÓLI B. JÓNSSON
íþróttakennari,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 1. mars kl. 13.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á minn-
ingarsjóð Hrafnistuheimilanna.
Hólmfríður María Óladóttir, Guðmundur Hallvarðsson,
Jón Már Ólason,
Jens Valur Ólason, Ólöf Hjartardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir minn,
SIGGEIR GEIRSSON
frá Sléttabóli,
andaðist á dvalarheimilinu Klausturhólum
föstudaginn 18. febrúar.
Útför hans fer fram frá Prestbakkakirkju á
Síðu laugardaginn 26. febrúar kl. 14.00.
Sólveig Geirsdóttir.