Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 16
Blönduós | Systurnar Helga Sólveig, 3 ára, og María Rut Ómarsdætur, sem er eins árs, nutu veðurblíðunnar úti á götu í heimabænum sínum, Blönduósi, með vinkonum sín- um þeim Elísabetu Krist- mundsdóttur og Önnu Sigríði Valgeirsdóttur. Undanfarnir dagar hafa verið dýrlegir á öllu Norður- landi. Bjartir, stilltir og mildir og hreinlega hrifsað fólk út úr hýbýlum sínum. Veður- spámenn segja að lítið lát verði á þessu allra næstu daga og því meiri líkur en minni á að maður hitti mann. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Maður hittir mann Veðurblíðan Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úttekt á strandsiglingum | Stórauknir þungaflutningar á vegum í kjölfar þess að strandsiglingar lögðust af valda forsvars- mönnum í Sveitarfélaginu Skagafirði og á Siglufirði miklum áhyggjum. Á sameig- inlegum fundi byggðarráðs Skagafjarðar og bæjarráðs Siglufjarðar sem haldinn var í Sólgarðaskóla í Fljótum fyrr í mánuðinum og sagt er frá á vef Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar var samþykkt ályktun. Þar er lýst yfir áhyggjum af stórauknum þungaflutningum á þjóðvegum sveitarfélag- anna í kjölfar þess að strandsiglingar lögðust af. Þessi breyting á flutningum af sjó og á land hafi í för með sér verulega aukna slysa- hættu, mengunarhættu og gríðarlegt aukið slit á vegum. Skorar fundurinn á yfirvöld að láta gera ítarlega úttekt á hagkvæmni strandsiglinga í samanburði við landflutn- inga og rannsaka vandlega aukna slysa- og mengunarhættu sem skapast hefur. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Vilja skólabúninga | Mikill meirihluti foreldra barna í Gerðaskóla í Garði vill að börnin klæðist skólabúningum. Er þetta niðurstaða könnunar sem gerð var og kynnt nýlega á fundi skólanefndar Garðs. Fram kemur á vef Sveitarfélagsins Garðs að góð þátttaka var í könnuninni, þar sem 72% foreldra svöruðu. Niður- staðan varð sú að 82% þátttakenda vildu taka upp skólabúninga. Fram kom á fund- inum að skólabúningar verða ekki til auk- ins kostnaðar við Gerðaskóla, nemendur og foreldrar þurfa að greiða kostnaðinn við þá að fullu. Háskóli Tálknafjarðar | Fjarnámsver Tálknfirðinga hefur fengið inni í húsnæði sem áður hýsti skrifstofur Hraðfrystihúss Tálknafjarðar. Til stendur að eldri borg- arar fái einnig aðstöðu í hluta húsnæðisins. Tálknafjarðarhreppur keypti húsið á síð- asta ári og hefur starfsmaður hreppsins unnið að lagfæringum og breytingum. Fram kemur á vef Tálknafjarðarhrepps að fjarnemarnir eru þegar búnir að koma sér fyrir í verinu og segjast ánægðir með aðstöðuna. Telja þeir að næst þurfi að huga að tölvubúnaði fjarnámsverins en hann er kominn nokkuð til ára sinna. Á vefnum er vakin athygli á þeirri skemmtilegu tilviljun að nafn fyrirtækisins sem átti húsnæðið var skammstafað HT og hún sé einnig notuð í fjarnámsverinu fyrir „Háskóla Tálkna- fjarðar“. Biskupsstóllinn ogskólahald á Hólumí Hjaltadal eiga 900 ára afmæli árið 2006. Af því tilefni hefur stjórn Guðbrandsstofnunar, m.a. í samráði við Hólanefnd, ferðamáladeild og Hóla- rannsóknina, unnið að áætlun og hugmyndum að dagskrá ársins. Á vef Hólaskóla kemur fram að gert er ráð fyrir því að af- mælisdagskráin spanni allt árið, en nái þó hámarki við Hólahátíð í ágúst. Settar verða upp sýn- ingar sem varða sögu og menningu staðarins. Með- al annars áætlar Hóla- rannsóknin að standa fyrir þremur sýningum sem tengjast þeim miklu forn- leifa- og sagnfræðirann- sóknum sem stundaðar hafa verið á Hólum, Hofi, Keldudal og Kolkuósi und- anfarin ár. Þá verður vönduð listadagskrá allt árið, einkum í tónlist og leiklist. Afmælishald Sett hefurverið uppsýning í útibúi Lands- banka Íslands á Húsavík á mynd- um ungra lista- manna af leikskól- unum Bestabæ og Bjarnahúsi. Sig- urður Árnason útibússtjóri sagði þetta vera í annað sinn sem börnin sýna í bankanum. „Við prófuðum þetta á síðasta ári og það tókst vel. Þetta var ánægju- leg tilbreyting, bæði fyrir okkur starfsmenn úti- búsins sem og við- skiptavini þess, og það var því sjálfsagt að halda þessu áfram.“ Það var margt um manninn í afgreiðslusal bankans þegar sýningin opnaði. Þar á meðal voru myndlist- armennirnir sjálfir og hér er einn þeirra, Emilíana Brynjúlfsdóttir, að sýna ömmu sinni, Emilíu Friðriks- dóttur, verk sín. Börnin sýna í bankanum Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Kristján Bersi Ólafs-son fékk fréttirfrá Bretlandi: Um það skal ég ekki fást eða falla í stafi, þótt Kalli sína æskuást aftur fundið hafi. Einar Kolbeinsson heyrði af því þegar hagyrðingur vildi bæta upp tvíræða vísu með því að gera brag- arbót: Þegar vísan verður ljót, og vondan boðskap færir, þá skal gera bragarbót, sem bara enginn lærir. Slíkt jú getur vænlegt virst, en víst ef skoðar náið, er að vísan fagra fyrst, mun falla í gleymskudáið. Við afglöp förum ekki á svig, ég engan tel þó galla, að ljóta vísan lifir þig, og líkast til oss alla. Sigrún Haraldsdóttir frétti hvernig konur ættu að forðast hjartaáfall: Konan þarf að röfla og rífast, rasa út og kvarta Mun þá hennar milda þrífast móður blíða hjarta. Æskuástin lifir pebl@mbl.is Bolungarvík | Heimamenn í Bolung- arvík munu yfirfara boðunaráætlanir með Neyðarlínunni svo tryggt sé að all- ar upplýsingar um boðleiðir séu skýrar, stuttar og aðgengilegar öllum þeim sem koma til aðgerða, hjálpar og aðstoðar í neyðartilvikum. Var þetta niðurstaða fundar sem stjórnendur Heilbrigðis- stofnunar Bolungarvíkur boðuðu til með Þórhalli Ólafssyni, forstjóra Neyðarlín- unnar, í kjölfar boðunar sjúkrabifreiðar frá Ísafirði í stað Bolungarvíkur þegar óskað var eftir lækni og sjúkrabifreið í Bolungarvík sunnudaginn 13. þessa mánaðar. Á fundinn mættu einnig fulltrúar frá lögreglustjóraembættinu í Bolungarvík, formaður björgunarsveitarinnar Ernis og bæjarstjórinn í Bolungarvík. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Heilbrigð- isstofnuninni að forstjóri Neyðarlínunn- ar gerði ítarlega grein fyrir hvernig staðið var að boðuninni, hvað betur mátti fara og nauðsyn þess að allir að- ilar, bæði Neyðarlínan og heimaaðilar, lærðu af þeim mistökum sem urðu við boðunina. Fagna nýju fyrirkomulagi á skráningu sjúkraflutninga Auk þess sem ákveðið var að yfirfara boðunaráætlanir fögnuðu fundarmenn því samkomulagi sem gert var milli Landlæknis, Neyðarlínunnar, sjúkra- flutningaráðs, Landspítala – háskóla- sjúkrahúss og stærstu sjúkraflutnings- aðila um nýtt fyrirkomulag á skráningu sjúkraflutninga og verklagsreglur. Skorað var á viðkomandi aðila að hraða sem kostur er heimsóknum til sjúkra- flutningsstofnana og kynna og ræða stöðu þessa mikilvæga máls. „Öllum má vera ljóst að hlúa þarf að þýðingar- og ábyrgðarmiklu starfsviði Neyðarlínunnar og starfháttum hennar og heimaaðila með þeim hætti að íbú- arnir geti treyst á skjót og rétt við- brögð hverju sinni er á þarf að halda,“ segir í tilkynningu Heilbrigðisstofnun- arinnar. Fram kemur í frétt á vef Bæjarins besta á Ísafirði að fulltrúar Slökkiliðs Ísafjarðar, sem önnuðust umræddan flutning, voru ekki boðaðir á fundinn og kveðst Þorbjörn Sveinsson slökkviliðs- stjóri óánægður með það. Hann tekur fram að fundurinn hafi verið tímabær. Farið verður yfir boðunar- áætlanir með Neyðarlínunni Orkuþing skóla í Perlunni 25.–27. febrúar Helgina 25. til 27. febrúar n.k. fer fram Orkuþing skóla í Perlunni í Öskjuhlíð Föstudaginn 25. febrúar er dagskrá fyrir skóla kl. 10-14 • Fyrirlestrar um orku og áhrif orku, vetnishús, sólarrafhlöður • Sýnitilraunir • Kynningar frá skólum • Málþing skólanema • Orkuleikur • Getraunir • Kynningar á verkefnum sem hafa verið unnin í skólum • Sýningar á veggspjöldum, listaverkum, stuttmyndum o.fl. • Sýningar frá orkufyrirtækjum • Kynning frá Námsgagnastofnun Opið fyrir almenning kl. 14-16 Laugardaginn 26. febrúar er dagskrá fyrir almenning kl. 11-15 • Fyrirlestrar um orkuforða í jöklum og áhrif loftslagsbreytinga, virkjanir og auðlindagarða, orku og áhrif orku, vetnishús, sólarrafhlöður o.fl. • Sýnitilraunir • Kynningar frá skólum • Málþing skólanema • Orkuleikur • Getraunir • Kynningar á verkefnum sem hafa verið unnin í skólum • Sýningar á veggspjöldum, listaverkum, stuttmyndum o.fl. frá skólum • Sýningar frá orkufyrirtækjum o.fl. • Kynning frá Námsgagnastofnun Sunnudaginn 27. febrúar kl. 11-15 opið hús • Sýningar á veggspjöldum, listaverkum o.fl. frá skólum • Sýningar frá orkufyrirtækjum o.fl. Starfshópur um eflingu náttúruvísinda í skólum, NORDLAB, stendur fyrir þinginu í samvinnu við Orkustofnun, Orkusjóð, Samorku, Hitaveitu Suðurnesja, Ísor, Orkuveitu Reykjavíkur, Landsvirkjun, Landvernd, Nýorku, Olíufélagið Esso, Rarik og Sorpu.      
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.