Morgunblaðið - 24.02.2005, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Mig langar til að
minnast hennar Magn-
eu frænku í örfáum
orðum. Sem ungur
drengur var ég mikið
hjá ömmu og afa í Reykjavík, á
Brekkustígnum, á sumrin. Magnea,
móðursystir mín, bjó þar líka en hún
var á þessum tíma þerna á m/s
Mánafossi. Síðar þegar kom að því
að hún hóf búskap keypti hún efstu
hæðina á Brekkustíg 8 af afa. Ég var
þá orðinn nógu gamall til að ráða við
pensil og málaði með henni íbúðina.
Í lok þess sumars, sem laun fyrir
hjálpina, bauð hún mér með sér í
siglingu á Mánafossi til Felixstowe
og Hamborgar. Þetta var mín fyrsta
ferð til útlanda og er mér mjög
minnisstæð. Þegar skipið valt mikið
þá var einfaldlega best að gera sér
upp magapínu og liggja í koju og láta
Magneu stjana við sig, sem hún
gerði með bros á vör.
Mér er minnisstætt frá þessum
árum hvað það var framandi að
koma á Brekkustíginn til hennar,
þar var alltaf til sælgæti frá „útlönd-
um“ eitthvað sem maður fékk ekki
annars staðar og einnig ýmislegt
annað góðgæti sem var ekki á borð-
um þar sem ég og við systkinin kom-
um á þessum árum. Eftir að ég fór
að vinna á Króknum urðu ferðirnar í
bæinn stopulli en þegar ég kom til
Reykjavíkur hélt ég alltaf til á
Brekkustígnum hjá ömmu og afa og
á loftinu hjá Magneu og Rúnari. Oft
vantaði okkur eitthvað norður á
Sauðárkrók sem þurfti að útvega í
hvelli. Þá var alltaf hægt að hringja í
Magneu og hún bjargaði því og sendi
norður. Þegar ég síðan flutti til
Reykjavíkur 1984 bjó ég á Brekku-
stígnum fyrst og styrktust þá böndin
enn frekar. Þegar ég síðan hafði
stofnað fjölskyldu hér sinnti hún
börnunum mínum eins og þau væru
hennar ömmubörn og náði hún að
tengjast sterkum böndum við þau.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
fengið að kynnast henni á þann hátt
sem ég hef gert og að börnin mín
hafa fengið að njóta hennar líka.
Fjöldinn allur af fleiri minningum
hrannast upp, t.d. tengdum gamlárs-
kvöldi en þeim höfum við eytt saman
undanfarin ár og Magnea hefur þá
eldað kalkún, skorið hann og sagt
sömu söguna á meðan við mikil
hlátrarsköll þó allir vissu hvað kæmi
næst. Á mínu heimili er Magnea
syrgð mikið, og undravert að sjá
hversu náin hún hefur verið börn-
unum mínum þó sérstaklega Ingu
Valdísi. Í því sannast málshátturinn
að „enginn veit hvað átt hefur fyrr
en misst hefur“. Hugur okkar er hjá
ykkur, Rúnar, og strákunum ykkar,
Rúnari og Tomma, missirinn er mik-
ill en við stöndum saman og kom-
umst yfir hann þannig. Rúnar, oft
hefur gefið á bátinn hjá þér í gegn-
MAGNEA DAGMAR
TÓMASDÓTTIR
✝ Magnea DagmarTómasdóttir
fæddist í Reykjavík
2. nóvember 1946.
Hún andaðist á
Landspítalanum við
Hringbraut hinn 6.
febrúar síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Bústaða-
kirkju 15. febrúar.
um tíðina, stundum
hefur skollið á þig brot
í lífsins ólgusjó fyrir-
varalaust en þú hefur
staðið þau af þér til
þessa og gerir það
einnig nú.
Tómas Dagur,
Sigurbjörg, Pálmar,
Inga Valdís og
Íris Arna.
Kveðja frá
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur
Magnea Tómasdóttir var ein af
þeim íslensku kjarnakonum sem
gengu til hvers starfs með brenn-
andi áhuga á verkefninu, ákveðin og
fumlaus. Hún byrjaði ung að árum
að vinna hjá Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, fyrst í fylgd með móð-
ur sinni, þá barn að aldri, og allar
götur síðan. Hún þekkti söguna og
var óþreytandi að miðla af þekkingu
sinni sem kom sér vel í önn dagsins.
Henni fylgdi ferskur andblær og
gott var að eiga hana að þegar á móti
blés.
Magnea barðist við erfiðan sjúk-
dóm. Hún kvartaði aldrei, sagði að
það gæti verið verra.
Samstarfskonur í Mæðrastyrks-
nefnd kveðja kæra vinkonu með
söknuði og þakka samfylgdina.
Ragnhildur G. Guðmunds-
dóttir, formaður.
Fallin er frá eftir stutt veikindi
mikil sæmdarkona, Magnea Dagmar
Tómasdóttir. Hún hafði að vísu lengi
þurft að kljást við sykursýki en síð-
ustu áföllin voru snörp og drógu
hana skyndilega og óvænt til dauða.
Við vorum sem ein fjölskylda í
Tali og á því heimili voru húsmæð-
urnar lengstan tímann tvær, Valdís
og Magnea. Í mínum huga voru þær
eitt. Þær umvöfðu okkur starfsmenn
og vildu allt fyrir okkur gera. Í
fyrstu sá reyndar Valdís ein um okk-
ur en þegar umsvif jukust í Tali var
ljóst að bæta þurfti við starfskrafti í
mötuneytinu. Ég bað þá Valdísi að
líta í kringum sig eftir liðsauka.
Henni væri best treystandi til að
velja með sér samhentan liðsmann.
Enda fór það svo að frá fyrsta degi
er Magnea kom til okkar varð hún
ein af hópnum. Meðal ungra starfs-
manna í nýju fyrirtæki þarf mikla
handleiðslu og ögun. Þá var eldhúsið
og mötuneytið fasti punkturinn. Þar
voru vikulegu starfsmannafundirnir
haldnir, þangað var allur viðurgjörn-
ingur til gesta sóttur, þar sóttum við
okkar kaffi og hittumst á matmáls-
tímum, þar var hægt að ræða lands-
ins gagn og nauðsynjar. Við bjugg-
um þröngt og alloft voru fundir því
haldnir í matsalnum og þurfti allt að
ganga upp til að ekki rækist á mat-
málstíma. Þarna var Magnea í ess-
inu sínu, lagði gott til mála og fylgd-
ist með. Þær Valdís voru líka með
okkur í öllu, jafnt uppátækjum með
starfsmannafélaginu sem og sigrum
í samkeppnisbaráttunni. Fóru með
okkur og köllunum sínum góðu í
ferðir og á skemmtanir á vegum fyr-
irtækisins. Við starfsmennirnir
fylgdumst með þeim KR-ingunum í
baráttunni, en Magnea var öflugur
liðsmaður á þeim bæ.
Það var fyrst eftir að ég hætti að
starfa með Magneu í Tali og gerðist
borgarstjóri sem ég kynntist sumum
öðrum hliðum hennar. Hún sinnti
sjálfboðaliðsstarfi hjá Mæðrastyrks-
nefnd og líknarstörfum hjá Hvíta-
bandinu af mikilli fórnfýsi. Á báðum
stöðum starfaði hún af eðlislægri
þörf fyrir að láta gott af sér leiða.
Þegar skjótt skipast veður í lofti,
eins og nú á þessari vetrartíð, erum
við enn á ný minnt á hverfulleika
mannlegs lífs. Hve stundin á jörðu er
dýrmæt og hve mikilvægt er að
rækta sinn garð. Okkur finnst að
alltof fljótt sé klippt á strenginn
hennar Magneu, sem gaf svo mikið
þar sem hún starfaði. Megi góður
Guð vera með Rúnari, börnum henn-
ar, ættingjum og vinum. Við sem eft-
ir erum eigum minningu um góða
konu sem vann sínum og vandalaus-
um vel og af heilindum.
Þórólfur Árnason.
Okkur langar í örfáum orðum, að
kveðja vinkonu okkar, hana Magneu
Tómasdóttur, sem svo sviplega var
hrifin á brott, langt fyrir aldur fram.
Ekki hvarflaði að undirrituðum,
er við fórum í eina af mörgum leik-
húsferðum okkar í gegnum árin þ.
29. jan. s.l. og áttum saman notalega
kvöldstund með þeim hjónum, eins
og svo oft áður, að það yrði okkar
síðasta samverustund með Magneu.
En enn og aftur sannast hið for-
kveðna, að enginn veit sína ævina
fyrr en öll er.
Magnea var mikill dugnaðarfork-
ur, og heil í öllu, sem hún tók sér fyr-
ir hendur, hún var félagi í hinum
ýmsu félagasamtökum, m.a. Mæðra-
styrksnefnd, og Hvítabandinu, þá
var hún mikill og einlægur fé-
lagsmaður KR og lét sig aldrei vanta
á KR-leikina, og var þá óspör á að
hvetja sína menn til dáða, ennfremur
var hún félagi og starfaði með KR-
konum. Með Magneu er horfin á
brott góð vinkona og mikill kven-
skörungur.
Viljum við hér með senda eftirlif-
andi eiginmanni hennar Rúnari og
sonunum Rúnari yngri, Tómasi og
fjölskyldum þeirra okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Af eilífðar ljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir,
vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Ben.)
Guðmundur og Erla,
Vilhjálmur og Helga Pála.
Kveðja frá Hvítabandinu
„Skjótt hefur sól brugðið sumri,“
kvað Jónas Hallgrímsson þegar
sorgin kvaddi dyra og dimmdi yfir.
Þessi ljóðlína kom mér í hug þegar
Magneu var kippt burt frá okkur svo
skyndilega og eftir sitjum við starfs-
systur hennar í Hvítabandinu, sorg-
mæddar og hnípnar.
Við sjáum nú á eftir dugmikilli fé-
lagskonu með miklum trega, sem féll
frá langt um aldur fram. Því þrátt
fyrir heilsuleysi síðustu ára brást
hún aldrei kvenfélaginu sínu, en
lagði því lið fram á síðasta dag.
Sjö ára gömul steig hún sín fyrstu
skref í þágu Hvítabandsins þegar
hún fór að selja merki félagsins með
móður sinni og öðrum félagskonum
og börnum þeirra sem stóðu frá
morgni til kvölds fyrir utan kjörstaði
hér í Reykjavík þegar kosið var til
alþingis eða í bæjarstjórn.
Einnig skokkaði hún með fundar-
boð eða prjónles og aðra handavinnu
milli félagskvenna sem voru að und-
irbúa basar, en það voru helstu fjár-
öflunarleiðir félagsins um áratuga
skeið, sala handavinnu félagskvenna
á bösurum og merkjasala.
Hvítabandið hefur starfað með
miklum blóma í 110 ár og er næst-
elsta kvenfélag sem starfandi er í
Reykjavík. Það vann fyrst að bind-
indismálum en síðar að líknarmálum
og hefur tekist að hrinda í fram-
kvæmd umfangsmiklum mannúðar-
og velferðarmálum. Þegar saga
Hvítabandsins er skoðuð kemur í
ljós hve hlutur kvenna hefur verið
stór í mótun félags- og heilbrigðis-
mála á Íslandi.
Móðir Magneu, Dagmar Sigurð-
ardóttir, var í hópi þeirra kraftmiklu
kvenna sem helguðu félaginu starfs-
krafta sín í um fjörutíu ára skeið.
Dagmar gekk í Hvítabandið 1953 og
starfaði þar af elju og ósérhlífni, sat í
stjórn þess frá 1972–1975 og var
snemma kjörin fulltrúi í Mæðra-
styrksnefnd og starfaði þar óslitið til
1990 að hún hætti þar fyrir aldurs
sakir.
Magnea fylgdi í fótspor móður
sinnar og fór lengi vel með henni á
fundi í Hvítabandinu án þess að vera
meðlimur. En hún gekk formlega í
félagið 1996 og var þá kjörin í stjórn
þess frá 1996–2002, fyrstu tvö árin
sem meðstjórnandi og síðar varafor-
maður í fjögur ár. Hún starfaði einn-
ig af miklum krafti sem fulltrúi
Hvítabandsins í Mæðrastyrksnefnd
allt til dauðadags.
Magnea var hávaxin og glæsileg
kona með dökk tindrandi brún augu,
rösk í fasi, hjálpsöm og tillögugóð.
Hún talaði oft af miklum eldmóði á
fundum svo að fundarkonur hrifust
með henni, en hún lá heldur ekki á
skoðunum sínum ef hún hafði aðra
skoðun á málum sem rædd voru,
enda hreinskilin og með mikla rétt-
lætiskennd.
Hún sá um bókhald félagsins síð-
ustu ár af mikilli trúmennsku, lærði
tölvubókhald og vann við það í sjálf-
boðavinnu eins og öll önnur störf
sem hún vann fyrir félagið. Fyrir
það viljum við þakka henni af heilum
hug.
Innihaldsríku og annasömu lífi er
lokið. En við sem trúum því að við
förum á æðri svið eftir þetta líf, vilj-
um trúa því að hún hafi verið kölluð
til annarra hjálpar- og líknarstarfa.
Við kveðjum Magneu með ein-
kunnarorðum Hvítabandsins: Fyrir
Guð – heimilið – þjóðina. Blessuð sé
minning hennar.
Við sendum eiginmanni hennar og
fjölskyldu okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Erla Jónsdóttir, formaður.
Starfsfélögum Magneu Tómas-
dóttur hjá Og Vodafone var brugðið
þegar tilkynnt var um ótímabært
andlát hennar í upphafi síðustu
vinnuviku. Magnea var ein þriggja
dugnaðarkvenna er sinna mötuneyti
félagsins og hafði hún starfað óslitið
hjá félaginu í fimm ár þegar hún lést,
eða frá upphafi árs 2000.
Í desember síðastliðnum fór hún í
aðgerð á auga vegna afleiðinga syk-
ursýki og gerði ráð fyrir að mæta
aftur til vinnu í upphafi nýs árs. Af
því varð þó ekki þar sem hún þurfti
óvænt að undirgangast tvær augn-
aðgerðir í janúar og lést í kjölfar
seinni aðgerðarinnar.
Áður en Magnea kom til starfa hjá
Og Vodafone var hún um langt skeið
sjálfstætt starfandi. Hún rak lengi
vel söluturn í vesturbæ Reykjavíkur
og síðar kaffistofu í Síðumúlanum
með fram því sem hún annaðist
heimili og uppeldi tveggja sona í tíð-
um fjarvistum eiginmannsins, sem
var sjómaður til margra ára. Með
þessa reynslu í farteskinu kunni hún
að standa fyrir sínu. Hún veitti
birgjum sem mötuneyti félagsins
skipti við aðhald og hikaði ekki við að
láta birgjana vita teldi hún þá ekki
standa sig sem skyldi. Hún bjó yfir
ríkri réttlætiskennd og var ófeimin
við að hafa skoðanir á mönnum og
málefnum.
Magnea undi því vel að vera orðin
launþegi og laus undan áhyggjum og
amstri sem oft fylgir því að standa í
eigin rekstri. Hún sat þó ekki iðju-
laus utan vinnutíma því að afloknum
vinnudegi tóku félagsmálin við. Hún
var gallharður stuðningsmaður KR
og virkur þátttakandi í félagsskap
KR-kvenna. Það vissu ef til vill færri
að Magnea sat í stjórn Hvítabands-
ins um skeið og starfaði með Mæðra-
styrksnefnd. Magnea var vön því að
hafa mikið fyrir stafni og ef um
hægðist á einum vettvangi var aukið
við annars staðar.
Hjá Og Vodafone gekk Magnea til
starfa sinna af miklum dugnaði. Hún
kunni vel til verka í eldhúsinu en
sætti sig ekki við kyrrstöðu. Hún
vildi stöðugt bæta sig og hafði frum-
kvæði að því að auka við þekkingu
sína með því að sækja tölvunámskeið
og ýmis námskeið í matargerð. Lær-
dómurinn var vel nýttur, starfsmenn
nutu nýrra rétta og Magnea sá um
að koma vikulegum matseðlum
mötuneytisins á tölvutækt form.
Tölvuþekkingin nýttist Magneu
einnig til að fylgjast með því sem var
að gerast innan félagsins. Þegar færi
gafst frá amstrinu í eldhúsinu settist
hún fyrir framan tölvuna, fór á Netið
til að finna nýjar uppskriftir, skoðaði
innra net fyrirtækisins og las tölvu-
póstinn sinn.
Þó Magnea væri ekki gömul var
hún með eldri starfsmönnum Og
Vodafone og brá lit á lífið á vinnu-
staðnum með þroska sínum og
reynslu. Hún sýndi félaginu hollustu
með vel unnum verkum og talaði
jafnan um vinnustað sinn af stolti og
virðingu. Hún tók þátt í félagslífi
starfsmanna, hvort heldur um var að
ræða fínar árshátíðir eða óvissuferð-
ir með tilheyrandi slarki og hafði
ómælda ánægju af. Magnea hafði
góða kímnigáfu og hafði gaman af
því að ærslast þegar við átti. Á árleg-
um þrifa-/búningadegi félagsins í
fyrra naut hún þess að mæta til leiks
íklædd KR-búningi með hvíta hár-
kollu og andlitsmálningu.
Í annríki vinnudagsins gafst því
miður aldrei tími til að ræða æsku og
mótunarár. Ég veit þó að Magnea
var uppalin í Vesturbænum og leit
ávallt á sig sem Vesturbæing. Það
breyttist ekki þrátt fyrir langa bú-
setu í Kópavogi. Samviskusemi var
ríkur þáttur í hennar fari og í þau
fáu skipti sem hún var frá vinnu
vegna veikinda þótti henni það mjög
miður. Hún var með sykursýki á háu
stigi en sætti sig ekki við að sjúk-
dómurinn stýrði lífi sínu og gaf því
hvergi eftir. Sjúkdómurinn ágerðist
hratt og undanfarna mánuði mætti
hún stundum til vinnu sárlasin. Nú
nýtur hennar ekki lengur við.
Það er varla hægt að minnast á
Magneu án þess að nefna Valdísi,
samstarfskonu hennar hjá Og Voda-
fone og félaga í KR-konum, í sömu
andrá. Þær störfuðu hlið við hlið all-
an starfsaldur Magneu hjá félaginu
og er missir Valdísar mikill.
Fyrir hönd samstarfsfélaga hjá
Og Vodafone vil ég að leiðarlokum
þakka Magneu fyrir samstarf og
samveru. Ég sendi Rúnari eigin-
manni hennar og börnum þeirra
innilegar samúðarkveðjur. Blessuð
sé minning Magneu Tómasdóttur.
Ragnhildur Ragnarsdóttir.
Ég kynntist Magneu fyrst árið
1997, þegar ég byrjaði að vinna hjá
henni í Smábitanum. Þrátt fyrir ald-
ursmuninn varð strax mikill vin-
skapur með okkur og tíminn sem ég
vann hjá henni var mjög skemmti-
legur, enda var hægt að segja Magn-
eu allt. Umræðuefnin voru allt milli
himins og jarðar og iðulega átti
Magnea góð ráð í pokahorninu, þó að
við værum kannski ekki alltaf sam-
mála. Stundum varð okkur líka
sundurorða en það leystist sem bet-
ur fer alltaf strax, enda fljótt úr okk-
ur báðum. Hún var alltaf góð við
Viktoríu dóttur mína, sparaði hvorki
afmælis- né jólagjafir, enda dýrkaði
Viktoría hana.
Það kom líka fyrir að skroppið var
upp að Húsafelli, þar sem þau Rúnar
áttu bústað. Það voru skemmtilegar
ferðir, mikið spilað og spjallað. Einu
sinni bauð Magnea mér í minnis-
stæða ferð til London. Það var ein-
staklega ánægjulegt ferðalag og við
skemmtum okkur konunglega sam-
an.
Þó að það séu liðin næstum sex ár
síðan ég hætti að vinna hjá Magneu
héldum við alltaf góðu sambandi og
hún var dugleg að heimsækja mig.
Hún var dugleg að kippa mér með á
KR-leiki, sama hvort það var fótbolti
eða körfubolti, enda var hún mikill
KR-ingur. Þegar ég kynntist mann-
inum mínum þótti henni ekki verra
að hann skyldi halda með KR og
hringdi iðulega til að spyrja hvort
við ætluðum ekki á leikinn. „Þú veist
hvar ég verð,“ sagði hún, enda sat
hún alltaf á sama stað á KR-vell-
inum. Þóri fannst gaman að ræða við
hana um boltann en þau voru ekki
beinlínis samherjar í enska boltan-
um svo stundum urðu umræðurnar
býsna fjörugar!
Mér brá í brún þegar hringt var í
mig og mér sagt að Magnea væri
dáin. Það var erfitt að trúa því, en
því miður staðfesti Hrefna það
þegar ég hringdi í hana. Mér fannst
þetta ekki síður átakanlegt af því að
Hrefna og Tómas sonur Magneu eru
nýbúin að eignast dóttur. Lísa
Margrét dóttir Rúnars sonar hennar
var í miklu uppáhaldi og ekki að efa
að litla prinsessan hefði orðið það
líka og þá ekki síður barnið sem
Rúnar og Guðrún eiga von á núna í
febrúar.
Kæri Rúnar, Rúnar yngri, Guð-
rún, Tómas, Hrefna og barnabörn.
Ég sendi ykkur mínar innilegustu
samúðarkveðjur á erfiðum tímum.
Ég veit hvað missir ykkar er mikill.
Rakel Elín Garðarsdóttir.