Morgunblaðið - 05.03.2005, Page 8

Morgunblaðið - 05.03.2005, Page 8
Þorgerður Halldórsdóttir og Marta Ólafsdóttir eru nemendur í Árbæjar- skóla. Einu sinni í viku fara þær alla leið niður í miðbæ í fermingarfræðslu því þær ætla að fermast í Kvennakirkjunni. „Við fermumst allar sín í hverju lagi. Við fáum að ráða hvar og hvenær við fermumst því Kvennakirkjan er hluti af þjóðkirkjunni,“ segja þær, en enn ein stúlka fermist með þeim. Áður hafa fimm stúlkur fermst í Kvenna- kirkjunni. „Fermingin er mun persónulegri því maður getur líka valið hvaða lög eru flutt og sálm fyrir kór- inn, og það er séra Auður Eir sem fermir okkur,“ segir Marta. „Mér finnst það stórkost- legt tækifæri að fá að ferm- ast í Kvennakirkjunni,“ segir Þorgerður. Þær segja að ferming- arfræðslan sé mun frjálslyndari en í öðrum kirkjum. Og að við Auði Eir spjalli þær mikið um sjálfar sig, hvernig þeim líði, líf sitt og tilveru og hvaða álit þær hafi á hlutunum. Þær taki virkan þátt í fræðslunni í stað þess að sitja bara og hlusta. Þorgerður: Við tölum einnig um hvernig okkur finnst Jesús hafa hjálpað okkur með lífi sínu, viðhorfi og störfum. Marta: Við tölum mikið um kon- urnar sem fylgdu Jesú, því yfirleitt er mest fjallað um lærisveinana. Þetta voru Marta og María og fleiri konur sem ekki eru nefndar á nafn í Biblíunni því þær hafa ekki þótt mjög mikilvægar. Við tölum um hvað þær gerðu og af hverju svona lítið er minnst á þær. Þorgerður: En þær fylgdu líka Jesú og hjálpuðu til með störfum sínum. Marta: Og voru jafnmikilvægar lærisveinunum í augum Jesú og Guðs. Og það eru ekki nema ein eða tvær málsgreinar um þær í Biblíunni. Guð er þess vegna kynlaus – Hvað er kvennakirkjan? Marta: Hún er hreyfing innan kirkj- unnar sem vill benda á konurnar í lífi Jesú og á það að Guð sé ekki endilega karlkyns. Því ef Guð er karl, þá þýðir það að karlar séu skapaðir í Guðs mynd. Að þeir séu nær guði en kon- urnar og því mikilvægari. – Segið þið að Guð sé kona? Marta: Nei, en hún gæti alveg eins verið það. Kannski eitthvað mitt á milli, eiginlega bara kynlaus. Þorgerður: Kvennakirkjan eflir sjálfstraust okkar og hún segir að kon- ur séu jafn merkilegar og karlar og eigi jafnan rétt og þeir. Auður talar alltaf um „þau“ í staðinn fyrir „þeir“. Eins og „Sæl eru þau sem eru miskunnsöm.“ Marta: Og svo endurskrifaði hún einn af Davíðssálmunum svo hann mætti markmiðum allra. – Hvers vegna völduð þið Kvenna- kirkjuna? Þorgerður: Ég fer oft með mömmu minni í guðþjónustu Kvennakirkjunnar og það er svo gaman. Þar er hlegið, klappað og er allt öðruvísi en í öðrum kirkjum. Allt er mun tilfinninganæm- ara, skemmtilegra og söfnuðurinn tekur fullan þátt í guðþjónustunni í Kvenna- kirkjunni. Marta: Systir mín fermdist í kvenna- kirkjunni. Mér fannst það vera skemmtilegt svo ég ákvað að prófa. Og mér finnst það mjög gaman að fermast hér og Auður gerir fermingarfræðsluna svo skemmtilega. Þorgerður: Já, þetta er mjög per- sónulegt og við erum hluti af þessu. Og Auður Eir útskýrir allt svo vel. Aukið sjálfstraust og trú á Jesú – Hvar fermist þið? Þorgerður: Ég fermist 12. mars í Langholtskirkju. Ég hef alltaf verið svo hrifin af henni þótt hún sé ekki í mínu hverfi. Hún er svo falleg. Marta: Ég hugsa að ég fermist í Ár- bæjarkirkju en veit ekki alveg hvaða dag. En það verður þegar vinkonur mínar eru ekki að fermast svo að ég geti mætt í veislurnar þeirra og þær komið í mína. – Hvað er það mikilvægasta sem þið hafið lært? Þorgerður: Trú mín á Jesú Krist hef- ur aukist því nú skil ég verkin og kenn- ingar hans betur. Svona vil ég líka nefna aukið sjálfstraust sem kvenmað- ur. Marta: Mér finnst mikilvægast að Auður kennir okkur að trúa á Guð og sjálfan sig. Að geta treyst sjálfum sér og fylgt orðum Guðs án þess að það þurfi neitt að fara út í öfgar. – Langar ykkur að starfa með Kvennakirkjunni eftir fermingu? Þorgerður: Já, ég ætla að halda áfram að mæta í messu og ég vona að kvennakirkjan verði hluti af mínu lífi. Marta: Ég veit það ekki. Mér finnst mjög gaman hér, en við erum ekki mik- ið kirkjufólk. Förum stundum með bænir en förum ekki oft í messu. En ég kýs þessa kirkju frekar en aðrar. – Viljið þið benda stelpum á að ferm- ast í Kvennakirkjunni? Þorgerður: Mér finnst að allar stelp- ur sem vilja vaxa og þroska trú sína ættu að fermast hér. Manni líður svo vel og finnst maður svo sterkur. Marta: Svo er líka svo gaman. www.kvennakirkjan.is Morgunblaðið/Jim Smart Þorgerður og Marta læra um konurnar sem fylgdu Jesú. Að trúa á Guð og sjálfan sig Myndir/Hrafnhildur Bernharðsdóttir 8|Morgunblaðið Í fyrsta sinn hefur verið gefin út í einni bók eftirmynd af eina varðveita eiginhandarriti Hallgríms Péturssonar að Passíusálmunum ásamt prentuðum texta þeirra. Einn mesti dýrgripur á íslenskri tungu í fallegri útgáfu sem verður ævarandi eign þess er hýtur. Bókin er í stóru broti, bundin í alskinn og hvergi sparað til þess að innihaldið fái notið sín sem best. Gjöf sem vex með fermingarbarninu. Bókin fæst í Kirkjuhúsinu, Hallgrímskirkju, og Landsbókasafni (í Þjóðarbókhlöðu). Passíusálmarnir - vönduð gjöf Laugavegi 54, sími 552 5201 FERMING Í FLASH Kjólar • Pils Toppar • Jakkar Ótrúlegt úrval Guð er vinkona mín sem hefur aldrei brugðist mér. Hún gengur með mér niður Laugaveginn og Lækjarbrekku og sest á móti mér við gluggann. Hún uppörvar mig og ég fer að skilja ýmislegt sem ég skildi ekki áður. Hún er alltaf svona. Þótt mér finnist allt vonlaust segir hún að það sé alls ekki von- laust. Það er ólýsanlega gott að sitja á móti henni, ég er ekki lengur hrædd við fólk sem ég óttaðist áður. Ég fæ nýtt álit á sjálfri mér. Já, ég verð viss um að lífið sé gott og hún og ég verðum alltaf vinkonur. 23. Davíðssálmur Kvennakirkjan er hreyfing innan kirkjunnar sem vill benda á konurnar í lífi Jesú og að Guð sé ekki endi- lega karlkyns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.