Morgunblaðið - 05.03.2005, Side 68
68|Morgunblaðið
Skólavörðustíg 21 • Reykjavík • sími 551 4050
Til fermingargjafa
Úrval af fallegum og
vönduðum rúmfatnaði
Sængurfataverslun
með vandaða vöru
Snyrtistofan er opin
Mánudaga–fimmtudaga
Föstudaga
Laugardaga
Sunnudaga
8:00–21:00
8:00–20:00
9:00–18:00
10:00–16:00
Gerðu góðan dag enn betri
NordicaSpa er með fyrsta flokks snyrtistofu þar sem boðið er upp á fjölmargar
snyrtimeðferðir og förðun.
Við bjóðum upp andlitsböð, húðhreinsun fyrir unglinga, hand- og fótsnyrtingu, litanir
og brunkumeðferðir fyrir líkama og andlit með Air-brush og margt fleira.
Innifalið í öllum snyrti- og nuddmeðferðum er aðgangur að heilsulindinni þar sem
eru tveir nuddpottar. Þar er boðið er upp á herðanudd og slökunarlaug. Hjá pottunum
eru einnig tvær vatnsgufur með ilmi og hvíldarherbergi og úti á veröndinni er sauna.
Umahro að hafa þetta einfalt fyrir ykkur
sem viljið sjálf standa að veislunni, eða
finnst gaman að prófa eitthvað nýtt. Og
auðvitað eru uppskriftirnar upplagðar
fyrir ykkur sem eruð meðvituð um hvað
þið setjið ofan í ykkur og börnin og viljið
halda þeirri línu svona í grunnatriðum,
jafnvel á tyllidögum.“
Bankabygg – fyrir fjóra
… einsog það ætti alltaf að vera og
jafnvel betra! Bankabygg verður bragð-
gott, létt og ljúffengt þegar það er mat-
reitt varlega. Passar vel að njóta á hátíð-
um og í faðmi fjölskyldunnar á huggulegu
kvöldi. Ef þið viljið hafa það enn flottara
bætið þá við himneskum fínthökkuðum
þurrkuðum tómötum sem eru maríner-
aðir í extra-jómfrúolíu, t.d. frá La Selva
sem er með allt lífrænt og mjög þægilegt.
Í réttinn notum við að sjálfsögðu extra-
jómfrúólífuolíu í staðinn fyrir þá „venju-
legu“.
Það getur vel verið að unga fólkið mót-
mæli bygginu og fullyrði að það sé forn-
aldarmatur fyrir fólk sem kveðst á en tal-
ast ekki við í gegnum sms. En segið þeim
þá að bygg sé mjög í tísku og að sífellt
fleira ungt fólk í London og New York
noti bygg í stað hvítra hrísgrjóna og
franskra!
Af hverju? Þau vita að lágur sykurstuð-
ullinn geri þau skýrari í kollinum og
grennri. Mjög einfalt!
3 dl bankabygg frá Móður Jörð
6 dl vatn
1 msk edik (brúnhrísgrjóna-, epla- eða
balsam) eða ferskpressaður sítrónusafi.
safi og fíntrifinn börkur af ½ lífrænni
sítrónu
½ tsk vanilluduft (ekki vanillusykur!)
1 msk extra-jómfrúólífuolía
sjávar- eða steinsalt
nýmalaður svartur pipar
1. Komið bygginu fyrir í skál ásamt
vatni og ediki eða sítrónusafa og setjið í
ísskáp yfir nótt.
2. Setjið bygg og vatn í pott, látið
suðuna koma upp, lækkið hitann á
minnsta og látið byggið krauma í u.þ.b. 15
mín með loki á pottinum þar til allur vökv-
inn er horfinn. Takið pottinn af hitanum
og látið bíða í 15–20 mín. með loki á.
3. Hrærið nú varlega olíu, sítrónusafa
og -berki, vanillu, salti og pipar í byggið.
Döðlu- og myntufyllt
lambalæri
Fyrir u.þ.b. tíu manns / tvö stór læri
Íslensk lömb gera lítið annað en að
tyggja gras og villtar jurtir í grasbölum
Morgunblaðið/Árni Sæberg Morgunblaðið/Árni Sæberg