Morgunblaðið - 05.03.2005, Qupperneq 26
26|Morgunblaðið
Fimm krakkar fóru í greiðslu fyrir ferm-
ingarblaðið. Þegar myndatakan fór fram
var bara Perla Kolka búin að kaupa
fermingarfötin. Pilsið var keypt í Old
Navy í Boston, skórnir í versluninni
Friis Company og jakkinn er frá French
Connection.
Ragnar Dagur, Gunnar Ingi, Dagbjört
Rósa og Sólveig Klara fóru því í versl-
unina 17 á Laugavegi og létu dressa sig
upp fyrir myndatökuna. En hvað finnst
þeim um fötin sem þau voru klædd í?
Sólveig Klara var í svartri buxna-
dragt, hvítum bol og skóm. „Mér finnst
dragtin fín, hún er klæðileg og ætti að
passa öllum. Hún er bæði sparileg og
flott. Hún er samt frekar látlaus fyrir
minn smekk. Ég ætla að fermast í kjól
og grænum jakka. Það gefast svo fá
tækifæri til að vera fín í kjól að ég vil
endilega nota það,“ segir Sigrún Klara.
Dagbjört Rósa var sett í hvítar buxur
og golftreyju, tvo boli, einn vínrauðan,
hinn hvítan. „Mér finnst þessi föt allt í
lagi. Bolirnir eru flottir en ég hefði frek-
ar viljað vera í pilsi við þá, ég fíla ekki
þessar buxur. Sjálf keypti ég mér pils-
dragt í Bandaríkjunum.“
Gunnar Ingi var í svörtum jakkaföt-
um, með svart bindi og í rauðri skyrtu.
„Mér finnst jakkafötin mjög flott og það
kemur vel út að vera í rauðri skyrtu við
svona svört jakkaföt. Ég keypti mér hins
vegar blá flauelsjakkaföt í Retro, en mig
langaði alltaf til að fermast í jakkafötum,
það er bæði flott og klæðir mann betur.“
Ragnar Dagur var mjög ánægður með
ljósbrúnu flauelsjakkafötin sem hann
fékk lánuð og skyrtuna sem var hvít
með bláum röndum. „Ég hefði alveg ver-
ið til í fermast í þessum fötum, frændi
minn á svona. Hins vegar keypti ég
jakkaföt í Retro ekki ósvipuð þeim sem
Gunnar Ingi er í á myndunum, nema
þau eru teinótt.“ Ragnar Dagur segist
endilega vilja fermast í jakkafötum.
„Mér finnst það flott og ég vil vera
fínn,“ segir hann.
Viljum vera flott og fín
Morgunblaðið/Þorkell
Kristín Jóhannsdóttir fermdist á
pálmasunnudegi 3. apríl 1966 í
Laugarneskirkju. Veislan var
haldin á heimili hennar á
Sporðagrunni og mikið í hana
lagt.
Veisluborðið sjálft var í svefn-
herbergi foreldranna og rúmin
„tekin upp“ einsog kallað var.
Boðið var upp á snittur, smurt
brauð og kokteilávexti með
rjóma sem var mikið í tísku þá
og þótti mjög fínt. Sátu karlarnir
í borðstofunni en konurnar í
betri stofunni.
Kristín var í heimasaumuðum
kjól sem hún hannaði sjálf, og
það er ekki spurning að í dag
gæti hvaða fermingarstúlka sem
er verið fín og stolt í þessum kjól,
svo vel tókst til við hönnunina.
Og ekki eru skórnir af verri end-
anum, támjóir með slaufu.
Að öllum líkindum tók Ólafur
K. Magnússon þessar myndir, en
hann var föðurbróðir Kristínar.
Kristín ásamt
foreldrum sín-
um, Jóhanni
Magnússyni
og Margréti
Sigurðar-
dóttur sem
eru látin.
Kvennasamsæti í
betri stofunni:
Margrét Sigurðar-
dóttir yngri, móð-
irin Margrét Sig-
urðardóttir eldri,
Kristín, föður-
amman Kristín
Hafliðadóttir, litla
systirin Áslaug og
Guðrún Beinteins-
dóttir.
Karlmennirnir í
borðstofunni voru
óneitanlega
minna frumlegir í
klæðaburði en
fermingarbarnið.
Hannaði
klassískan
kjól