Morgunblaðið - 05.03.2005, Side 43
Morgunblaðið |43
Ásdís Rósa Hafliðadóttir gengur í Linda-
skóla í Kópavogi og ætlar að fermast
borgaralegri fermingu í Háskólabíói 17.
apríl nk. og er mjög ánægð með þá
ákvörðun.
„Fræðslan er svona eins og lífsleikn-
itímar. Við erum að læra að hafa skoðun á
alls konar málum og málefnum, spjalla
saman um hlutina og svo eiga víst ein-
hverjir gestir eftir að koma í heimsókn.
Þetta er líka fíkniefnafræðsla, og við lær-
um eitthvað nýtt í hverjum tíma.“
Gaman að fræðast um
fleiri trúarbrögð
„Þetta er rosalega skemmtilegt. Mér
finnst lítill spenningur fyrir fermingar-
fræðslu en mér finnst gaman að fara í
tíma.
Þetta eru miklir spjalltímar. Þeir sem
búa úti á landi koma á helgarnámskeið og
nokkrir gera þetta í gegnum tölvupóst því
þeir búa í útlöndum.“
– Af hverju valdir þú þessa leið?
„Bróðir vinkonu minnar fermdist
borgaralegri fermingu.
Ég veit ekki nógu mikið um önnur
trúarbrögð og finnst of snemmt að þurfa
að játast inn í trúfélag þegar er til fullt af
þeim. Kristin trú er sú eina sem ég þekki
vel og ég trúi svosem alveg á Guð en það
verður gaman að fræðast um fleiri trúar-
brögð líka. Ég er ekkert að loka mig úti
frá kristninni og mér finnst siðfræðin í
kristnum boðskap mjög fín, eins og t.d
boðorðin tíu. Hins vegar finnst mér
möguleikinn um borgaralega fermingu
ekki nægilega vel kynntur og krakkarnir í
skólanum vita lítið um hann. Ég er viss
um að miklu fleiri myndu hugsa sig tvisv-
ar sig um ef þau vissu um þetta.“
Maður verður sjálfstæðari
– Hvernig bregst fólk við þessari
ákvörðun þinni?
„Sumir hvá og vilja sem minnst af
þessu vita, en flestir eru opnir og áhuga-
samir um borgaralega fermingu.
Aðrir eru alveg ákveðnir í að annað-
hvort fermist maður kristilega eða ekki.
En þetta er bara önnur leið og mjög fínt
að hún skuli vera til.“
– Hvað er það besta sem þú hefur lært í
fræðslunni?
„Maður verður sjálfstæðari og vill ekki
endilega gera eins og allir aðrir.
Maður lærir að hugsa sig betur um áð-
ur en maður dæmir fólk, og við lærum að
spá meira í hlutina, ekki taka þá sem
gefna. Ég er búin að læra voða mikið.“
– Þú vildir ekki sleppa því að fermast?
„Nei, mig langaði að fara í gegnum ferl-
ið, ljósmyndatökuna, veisluna, greiðsluna
og allt þetta, sem er svo skemmtileg
stemning í kringum.
Ef ég hefði ekki fermst borgaralega
hefði ég áreiðanlega fermst kristilega. En
mér finnst þetta miklu betri leið.“
Hátíðleg skemmtun
„Foreldrar mínir sögðu strax að ég
mætti alveg ráða þessu sjálf. Ég kíkti á
heimasíðu Siðmenntar, og okkur leist öll-
um rosalega vel á þetta.“
– Hvernig fer athöfnin fram?
„Það er bara ein ferming fyrir alla en
við erum samt alveg yfir 100 sem ferm-
umst svona. Þetta er eins og mjög hátíð-
leg skemmtun.
Yfirleitt eru krakkarnir með atriði og
sýna hæfileika sína. Svo halda einhverjir
foreldrar ræður. Við stjórnum því mikið
sjálf hvernig við höfum þetta.“
– Ætlarðu að halda veislu?
„Já, en bara litla veislu fyrir nánustu
ættingja. Svo ætlum við mamma út í viku,
tíu daga og við höldum upp á þetta þann-
ig.“
– Hvað er á óskalistanum?
„Ég á nú alveg nóg, he, he … ég er eig-
inlega ekki að búin að spá í það ennþá.“
– Þú ert þá ekki að fermast vegna gjaf-
anna?
„Nei, þetta er bara allt svo skemmti-
legt. Gjafirnar eu samt líka plús,“ segir
Ásdís Rósa og brosir.
www.siðmennt.is
Ég trúi alveg á Guð
Börn sem fermast borgaralegri fermingu hjá Sið-
mennt vilja taka þátt í manndómsvígslu eins og allir
aðrir. Þess er krafist að þau virði rétt annarra til að
vera öðru vísi og að þau séu heiðarleg.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Allt fyrir ferminguna!
gardheimar.is/fermingar