Morgunblaðið - 05.03.2005, Side 30
30|Morgunblaðið
Nonnabúð á Klapparstíg er ein vinsælasta fatabúðin í bænum, enda fæst þar rokkuð
hönnun á góðu verði. Búðin verður sífellt vinsælli hjá yngri viðskiptavinum, „yngri
systkini fastakúnnanna eru byrjuð að láta sjá sig“, segir Nonni sjálfur, Jón Sæmundur
Auðarson myndlistarmaður.
Dead-jakkarnir hans Nonna eru mjög vinsælir en líka skyrturnar og bindin, „t.d
hauskúpubindin, en þau eru kannski ekki mjög fermingarleg, svo ég ákvað að leggja í
nokkur Jesú- og tjáningarbindi“, segir hann.
Hver flík er listaverk
Nonni selur líka töskur og hettupeysur sem passa vel í fermingarpakkann enda er
hver flík frá Nonna listaverk sem listamaðurinn sjálfur handþrykkir og skrifar undir.
Hann var tilnefndur til menningarverðlauna DV 2005 fyrir Nonnabúð. „Eins og ég segi:
Ef þú vilt ekki klæðast flíkinni, þá geturðu bara hengt hana upp á vegg.“
Spekúlantar álíta búðina listaverk í
heildina, innsetningu á mörkum kitsch
og unglingamenningar þar sem Nonni
markaðssetur menninguna á nýjan og
frumlegan hátt.
– Hvernig krakkar koma?
„Það eru alls konar krakkar, en líka
mikið af rokkarastrákum með sítt hár
og í hljómsveit.“
– Hafa fermingarbörn komið?
„Já, alveg slatti og nokkrir eru að
bíða eftir jökkum, það fer mest af þeim.
Stelpurnar hafa líka verið hrifnar af
pilsunum, ég hef bara ekki auglýst þau
enn. En það er von á bæði fleiri pilsum
og kjólum í næstu viku,“ segir lista-
maðurinn Nonni að lokum.
Atli Dagur í Jesújakka og svartri skyrtu frá Dead, með tjáningarbindi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Telma er í
nýju Dead-
pilsi úr Rock
n’ Roll-lín-
unni, klass-
ískum Dead-
jakka með
tjáningar-
bindi og í
stutterma
Dead-skyrtu.
Gústaf í klass-
ískum Dead-
jakka með Jesú-
bindi, einnig
gallabuxum og
stutterma-
skyrtu frá
Dead.
Það er líka list
að klæða sig
Rokkarar finnast ávallt meðal fermingarbarna. Í
Nonnabúð má fá á þá fötin og líka listaverk í pakkann.