Morgunblaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 24
24|Morgunblaðið Stelpurnar á Hár-Expó á Laugaveginum hafa alltaf nóg að gera, og nú eru ferming- argreiðslurnar farnar að hellast yfir þær. „Yfir höfuð finnst mér fermingarbörn í dag vera með sídd í hári, bæði strákar og stelpur,“ segir Gunnella Jónasdóttir hár- greiðslumeistari. „Stelpurnar eru farnar að vilja fá liði aftur í hárið, eftir mikla notkun á sléttujárnum undanfarið. Stórir liðir eru að koma mikið aftur í tísku og beyglur, sem eru ekki mjög formaðar krullur. Mér finnst aðalatriðið vera að hafa fermingargreiðslurnar frekar lát- lausar og reyna að halda stelpulega útlit- inu, sakleysinu og hreinleikanum.“ Gunnella segir greiðslurnar mun ein- faldari en oft áður, ekki miklar uppsetn- ingar heldur er hárinu leyft að njóta sín. Fléttur séu enn í tísku og blóm séu sígild, en meira um að hafa þau minna áberandi og frjálslegar í hárinu. „Svo er að koma mikið aftur inn að hafa glitrandi skraut í hárinu, alls konar litaða steina, perlur, spennur með hangandi perlum og fleira,“ bætir Gunnella við. – Eru ekki allar fermingarstelpur með sítt hár? „Í ár eru það langflestar því sítt hár er svo mikið í tísku. Og mér finnst þær ekki mikið tala um að láta klippa sig eftir á.“ – En strákarnir? „Þeir eru með meiri sídd en oft áður og mikla sídd í toppnum. En það verður að passa upp á að hárið beri þá ekki ofurliði, það bera ekki allir svona mikla sídd,“ leggur Gunnella áherslu á. „Það er minna blásið og mótað núna, þeir vilja bara vax eða gel og forma það létt og frjálslega.“ – Hvað með strípur og liti? „Oft fá þau sínar fyrstu strípur eða fyrsta skol rétt um ferminguna. Þá er að- alatriðið að hafa það nógu eðlilegt. Í allri þessari sídd verður að líka passa að hafa hárið snyrtilegt og sem náttúrulegast á þessum stóra degi og á þessum aldri þeg- ar þau eru svo fersk og sæt,“ segir Gunn- ella að lokum. Förðunin Ína Lilja hjá Lancôme farðaði þrjár stelpnanna fyrir myndatökuna. Hún segir að förðun fyrir fermingarstúlkur eigi að vera náttúruleg og sem eðlilegust. „Fal- legast er að nota litað dagkrem, sólar- púður, augnblýant, maskara og gloss,“ segir hún. Hún notaði eftirfarandi snyrti- vörur: Perla: Vinéfit naturel litað dagkrem, Mat finish-púður nr. 04, Star bronzer- sólarpúður nr. 01, Khol-augnblýantur gris bleu, Color focus-augnskuggi nr. 301, Hypnôse svartur maskari, Juicy tubes- varagloss nr. 22. Dagbjört: Color ID nr. 010, Mat finish- púður nr. 04, Star bronzer-sólarpúður nr. 01, Khol-augnblýantur gris métal, Color focus-augnskuggi nr.103, Hypnôse svart- ur maskari, Juicy tubes-varagloss nr. 45 Sólveig: Color ID nr. 010, Poudre Maj- eur-púður 04, Star bronzer-sólarpúður nr. 01, Khol-augnblýantur gris bleu, Color focus-augnskuggi nr. 301, Hypnôse- maskari svartur, Juicy tubes-varagloss nr. 19. Morgunblaðið/Þorkell Á Bryndísi Láru tók Gunnella hárið frá andlitinu. Hún fléttaði fjórar fléttur sem hún faldi undir hárinu að aftan. Bylgjaði síðan hárið til að ná hreyfingu í síddina. Skreytti svo fallega rautt hárið með hárauðum blómum. Fersk og sæt með sídd Gunnar Ingi vildi halda allri sídd, svo Inga Hrönn mýkti línuna, þynnti hárið og bætti styttum í það. Ragnar Dagur hélt síddinni og Ella leyfði því styttunum að njóta sín um leið og hárið er haft sem frjálslegast. Heiður liðaði hárið á Sólveigu með krullujárni, setti fasta fléttu öðrum megin og greiddi toppinn þungt fram til hliðar. Gunnella krullaði Dagbjörtu inn á milli náttúrulegu krullnanna með stóru krullu- járni. Hárið fékk að njóta sín sem náttúrulegast með smá blómaskrauti. Inga Hrönn setti bylgjuliði í hárið á Perlu og lét það njóta sín. Setti síðan fasta fléttu frá hlið og niður að eyra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.