Morgunblaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 44
44|Morgunblaðið GALDRAKVER Ráð til varnar gegn illum öflum þessa og annars heims Ögmundur Helgason bjó til prentunar. Íslensk galdrahandrit á skinni má næstum telja á fingrum annarrar handar. Í því handriti - frá 17. öld - sem hér um ræðir er að finna margs konar varnarráð. Eru það ýmsir galdrastafir í anda þjóðtrúarinnar, sem og blóðstemmuvers, að viðbættum himnabréfum og fleiri hjálparráðum. Þar er m.a. blandað saman latínu og grísku og jafnvel hebresku úr kabbala-dulfræðum miðalda. Kverið sjálft er ljósprentað og fylgir því stafrétt útgáfa og texti á nútíma stafsetningu, auk þýðinga á dönsku, ensku og þýsku. Hluti upplagsins er tölusettur. Erummeðmikið úrval fermingargjafa. Vandaðar vörur í hæsta gæðaflokki DÓRA JÓNSDÓTTIR - GULLSMIÐUR FRAKKASTÍG 10 SÍMI 511 3160 OPIÐ VIRKAR DAGA FRÁ KL. 14 - 18 OG LAU. 11.00 - 14.00Gjafakort Se nd um í pó st kr öf u Elín er kraftmikil stelpa og þó nokkur töffari. Hún er stútfull af orku og því er sjaldan lognmolla þar sem hún fer. Hún er nýflutt úr höfuðborginni í sveit- ina á Kjalarnesi þar sem fjölskyldan býr með hestana sína. Helst myndi El- ín vilja vera á hestbaki frá morgni til kvölds, því hestar eru hennar líf og yndi. Reyndar þykir henni vænt um öll dýr enda er hún einstaklega hjartahlý stelpa. Heimilistíkin Skessa er mikill vinur Elínar en Guð er líka góður vinur hennar. Hún kynntist Guði þegar hún var sex ára. „Þá buðu tvær færeyskar vinkonur mínar mér að koma með sér í barnastarf hjá Akrinum sem er kristi- legt samfélag. Mér fannst mjög gaman þar, við vorum alltaf að gera eitthvað skemmtilegt, föndra og syngja og svo fengum við að fræðast um Guð. Ég fór í fyrsta skipti í sumarbúðirnar þeirra á Ástjörn í fyrra, en það er norður í landi og var mjög skemmtilegt.“ Ekkert mál að missa af veislu og gjöfum Elín segir að venjan sé sú að krakk- arnir í Akrinum fermist ekki. „Af því að við förum eftir því sem stendur í biblíunni og þar stendur ekkert um það að við eigum að fermast, það er eitt- hvað sem við mennirnir höfum tekið upp á. En engum er bannað að fermast ef hann vill það og þar sem ég er skráð í þjóðkirkjuna ætlaði ég að fermast eins og flestir krakkar sem ég þekki. Ég byrjaði að ganga til prestsins í ferm- ingarfræðslu en komst fljótt að því að ég vildi ekki fara þessa leið. Guð talaði til mín og ég ákvað að sleppa þessu. Sumir krakkar halda að ég ætli ekki að fermast af því að ég trúi ekki á Guð, en það er ekki málið. Ég kann bara betur við mig í trúar- starfinu hjá Akrinum.“ En finnst henni ekkert leiðinlegt að missa af stórri veislu, flottum fötum og öllum gjöf- unum sem fylgja flestum fermingum? „Nei, alls ekki. Ég veit um marga krakka sem láta ferma sig aðallega út af öllu tilstandinu en ekki út af trúnni og mér finnst það ekki gott.“ Alveg sama hvað öðrum finnst Elín finnur mikinn styrk í trúnni og segist nýlega hafa fundið vel fyrir því hvað það er gott að eiga Guð að vini. „Þegar við vorum nýflutt hingað í sveitina var keyrt á Stúf, hundinn sem við áttum og hann dó. Mér þótti rosalega vænt um Stúf og ég tók þetta mjög nærri mér. Ég talaði mikið við Guð í sorginni og það hjálp- aði mér mjög mikið og ég veit að hann tók vel á móti Stúfi.“ Aðspurð segist Elín ekkert láta það á sig fá þótt krökkum í kringum hana þyki eitthvað hallærislegt að hún trúi á Guð. „Ég reyni að fá sem flesta krakka með mér í Akurinn. Guð tekur á móti öllum og hann elskar alla. En ef þau reyna að gera lítið úr mér fyrir það að trúa á Guð þá labba ég bara í burtu og hlusta ekki á þau,“ seg- ir galvaska hestakonan Elín Ösp, sem ætlar að halda áfram að vera með í starfinu hjá Akrinum þótt hún komist sjaldnar til þeirra eftir að hún flutti í sveitina. Guð er vinur minn þótt ég ætli ekki að láta ferma mig Morgunblaðið/Jim Smart Þeim finnst gaman að leika saman, Elínu og tíkinni Skessu. Elín Ösp Grétarsdóttir er trú Guði í hjarta sínu. Og hún veit vel hvað hún vill. Hún ætlar ekki að fermast í vor.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.