Morgunblaðið - 05.03.2005, Side 60
60|Morgunblaðið
Sængurfataverslun,
Glæsibæ • Sími 552 0978 • www.damask.is
Ný munstur - Nýir litir
Fínt fyrir fermingarbarnið
Sængur, koddar og rúmfatnaður
Ljós og Ilmur
Bíldshöfða 12
www.kapp.is
sími 517 2440
Magic Sing Karaoke-kerfið
Beint í sjónvarp og á skjáinn
Stórskemmtilegt
Einfalt og meðfærilegt
Innbyggð um 800 lög
Æfingin skapar meistarann og
stykrir sjálfsmyndina
Fermingartilboð
Aðeins 39.500 staðgreitt
Bjóðum
útleigu á
Karaoke-tækjum
Vertu þín eigi
n Idol-stjarna
517-2440
Fermingargjöfin sem slær í gegn!
Vöffluveisla er frábær kostur fyrir þá sem
hafa lítinn tíma, jafnvel ekki of mikið af
peningum, en vilja samt að allir veislugest-
ir fái eitthvað við sitt hæfi og skemmti sér
vel.
Þá eru bakaðar heill haugur af vöfflum
og alls konar meðlæti borið fram með
þeim, bæði sætt og saltað, hollt og óhollt
og allt þar á milli. Síðan fá gestirnir sér
sjálfir og allir er ánægðir með sitt, svo
lengi sem meðlætið er sæmilega fjölbreytt.
Stemningin er alltaf góð í vöffluveisl-
unum, enda hafa gestirnir um nóg að
spjalla: fékkstu þér bláber með beikoninu?
Góð hugmynd, ég ætla að prófa það næst.
Ekki er verra fyrir stemninguna ef
fermingarbarnið sjálft leggur fram upp-
skrift að þeirri vöfflu sem það mælir með.
Vaffla dagsins – ekki spurning.
Þrenns konar vöfflur
Hér koma þrjár uppskriftir að vöfflum.
Ein er hin venjulega grunnuppskrift sem
ætti að henta öllum. Síðan lét Sólveig Ei-
ríksdóttir mathönnuður okkur frá tvær
mjög spennandi. Önnur er glútín-, eggja-,
mjólkur-, soja-, ger- og sykurlaus ef þið
vitið að einhver gestanna á við óþol eða of-
næmi að stríða, og hin er með spelti fyrir
þá sem forðast hvítt hveiti eða vilja prófa
eitthvað nýtt. Það er mjög gott að gera
deigið daginn fyrir veisluna, og svo er fínt
ef sem flestir fjölskyldumeðlimir hjálpast
að við að steikja svo einn missi ekki alveg
af stuðinu. Spurning hvort fermingar-
barnið sé stikkfrí? Jú, er það ekki?
Grunnuppskrift að 12 vöfflum
370 g hveiti
4 tsk lyftiduft
1 tsk salt
4 tsk sykur
4 egg, skilin
5 dl mjólk
180 g brætt smjör
Ef ætlunin er að bjóða upp á saltar vöffl-
ur, má nota þessa sömu uppskrift og
sleppa sykrinum.
Setjið hveiti, lyftiduft og salt í skál, sigt-
ið ef þið viljið. Síðan er sykurinn hrærður
saman við. Gott er að láta eggjarauður,
mjólk og smjör í aðra skál og hræra vel áð-
ur en því er blandað vel saman við þurr-
efnin. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið
saman við deigið.
Óþarfi ætti að vera að smyrja járnið.
Setjið ausu af deigi á mitt járnið og steikið
þar til vöfflurnar tútna út og verða hæfi-
lega brúnar. Fínt er að nota gaffal til að
taka vöfflurnar upp, raðið þeim á fat og
berið fram hið snarasta.
Vöffluveisla
virkar vel
Hverjum þykja vöfflur ekki góðar? Vöfflur í ferm-
ingarveislunni kunna allir gestir að meta, bæði börn
og fullorðnir, gikkir sem matgæðingar. Og stuðið er
garanterað.
Morgunblaðið/Jim Smart