Morgunblaðið - 05.03.2005, Síða 73
Morgunblaðið |73
glossaðir varalitir í mildum bleikum og
berjalitum eru áberandi í sumar. Einnig
ljósgylltir og gulgylltir skuggar og heitasti
sumarliturinn á augun er lime-grænn!“
segir hún.
Nokkur ráð um húðumhirðu
Gott er að hreinsa húðina með Green Gel
Cleanser kvölds og morgna. Green Gel
Cleanser er mildur gelhreinsir sem er til-
valinn fyrir unga húð. Oil Control Lotion er
borið á hreina húð til að mýkja og gefa
raka. Einnig er fallegt að bera á Strobe-
krem sem gefur húðinni ljóma og mikinn
raka.
Gegnsær farði sem gefur góðan raka er
tilvalinn fyrir fallega unga húð. Farðinn
gefur léttari og náttúrulegri áferð en þekj-
andi púðurfarði, sem ungu stúlkurnar leita
gjarnan í. Einnig gefur farðinn raka en
púður þurrkar og getur ert húðina og þar
af leiðandi kallað fram meiri roða!
Farðann er gott að bera á með meik-
bursta eða svampi. Ef svampur er notaður
er mikilvægt að þvo hann oft og endurnýja
reglulega því svampar eru gróðrarstíur
fyrir bakteríur, og það er ekki gott fyrir
unga húð sem er gjörn á útbrot. Ef farði er
borinn á með bursta er gott að snúa honum
í hringi til þess að forðast skil og rákir.
Burstinn er tilvalinn fyrir ungar stúlkur
sem eru að byrja að farða sig!
Sólarpúðri er dustað létt í kringum and-
litið, sérstaklega undir kinnbein; hálfpart-
inn í C frá enni og undir kinnbein. Bjartur
kinnalitur er settur fremst á eplin á kinn-
unum og örlítið á gagnaugu og yfir auga-
brúnir, bara rétt til þess að kinnaliturinn
nái að styrkja augnlitinn. Loks eru auga-
brúnir snyrtar með glæru augabrúnageli
sem heldur lögun þeirra,“ segir Margrét
R. Jónasar förðunarmeistari að lokum.
Hárgreiðsla: Elísabet Oddsdóttir, Deb-
enhams.
Sjá fleiri ráðleggingar um förðun og um-
hirðu húðar: www.margret.is
Augnskuggi og kinnalitur sem valdir voru á Helgu
Gabríelu.
Hyljari í túpu er blandaður saman við Strobe-krem
til að fá létta og fallega áferð.
Bjartur lime-grænn augnskuggi í túpu er borinn
yfir allt augnlokið.
Dökkbrúnn litur er borinn á með pensli undir og
inni í augnhárarótina, til þess að ramma inn augun.
Það þéttir augnhárin og einnig þarf að nota minni
maskara fyrir vikið.
Ljósbrúnn skuggi er borinn inn á milli neðri augn-
hára og náttúrulegur maskari í svarbrúnum lit er
settur létt á.
Skærbleikur kinnalitur er borinn létt á kinnar og
bleikt gloss er borið á varirnar, en enginn vara-
blýantur.
Kremaugnskuggar eru mikið í tísku núna og lime-
grænn heitasti tískuliturinn í sumar.
Helga Gabríela
Kringlan
sími 588 7230 www.leonard.is
Nú er hægt að fá rafrænt fermingargjafa-
kort í verslun Leonard í Kringlunni.
Hægt er að nota inneign kortsins að
hluta eða í heild sinni. Athuga má stöðu
og bæta við inneign á kortið hjá
starfsfólki verslunarinnar.
FERMINGARGJAFAKORT
RAFRÆNT