Morgunblaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 78

Morgunblaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 78
78|Morgunblaðið Nú líður að fermingum og þeim und- irbúningi sem þeim fylgir. Nokkuð al- gengt hefur verið að fermingarbörn fari í ljósabekki til að verða brún. Þessi brúni húðlitur hefur verið tengdur úti- veru og hreysti en er í raun merki um þá óhollu athöfn sem ljósabekkjanotkun er. Sem betur fer eru tímarnir að breytast og æ færri fermingarbörn fara í ljósabekki fyrir fermingu. Með því minnkar hætta þeirra á húðkrabba- meinum seinna á ævinni, hrukkumynd- un og blettóttri húð. Tískan hefur einn- ig breyst á þann veg að fyrirmyndir ungmenna, til dæmis kvikmyndastjörn- ur og poppstjörnur, vilja fæstar vera brúnar lengur. Sólböð Útivera og hreyfing er nauðsynleg fyrir flesta og er auðvitað af hinu góða. Fólk á hins vegar ekki að liggja í sól- böðum til að verða brúnt. Sérstaklega eiga börn og unglingar ekki að stunda sólböð og alls ekki að brenna í sólinni. Sólbruni þýðir að húðfrumurnar hafa skemmst og við sólbruna er stundum lagður grunnur að húðkrabbameini sem kannski kemur ekki í ljós fyrr en eftir nokkur ár eða áratugi. Sérstaklega á að vara sig á sólinni þegar hún er hæst á lofti um hádegið en þá eru geislarnir sterkastir. Þeir sem eru úti í sólinni eiga að bera á sig sólvörn með sólvarnarstuðli 25 eða hærri á berskjaldaða húð. Yfirleitt dug- ar ein teskeið á andlit og háls en sól- vörnina þarf að bera á sig á tveggja til þriggja klukkustunda fresti. Í sól- inni á að klæðast léttum þéttofnum klæðnaði sem hlífir húðinni fyrir geisl- unum. Ljósabekkir Ljósabekkir gefa frá sér sterka útfjólubláa geisla af gerðinni UVA. Rannsóknir benda til að þessir geislar geti valdið sortuæxlum. Flestir læknar sem hafa kynnt sér þessi mál mæla með að fólk noti ekki ljósa- bekki til að verða brúnt. Ungmenni undir 18 ára aldri ættu aldrei að nota ljósabekki. Þetta er vegna þess að ónæmiskerfi húð- ar hjá börnum og ungling- um er ekki eins þroskað og hjá fullorðnum. Stundum eru læknar spurðir hversu marga ljósatíma sé óhætt að fara í áður en hætta á húð- krabbameini skapist. Þessu getur enginn svarað frekar en spurningunni um hversu margar sígar- ettur sé óhætt að reykja áður en hætta verði á lungnakrabbameini. Brúnkukrem og brúnkuvökvar inni- halda efni sem gerir ysta lag húð- arinnar brúnt. Efnið heitir di-hydrox- yacetone (DHA). Þetta efni er talið skaðlaust og á því að vera óhætt að nota það. Ókostir eru að stundum verð- ur húðin tímabundið flekkótt og í sum- um tilfellum getur myndast ofnæmi fyr- ir efninu. Liturinn sem verður á húðinni eftir notkun brúnkukrema er alveg óskyldur brúna litnum sem verður eftir sólböð. Hann getur enst í nokkra daga en stundum lengur. Þeir sem sækjast eftir að vera brúnir ættu því frekar að nota brúnkukrem og vökva en að stunda sólböð eða ljósabekki. Sólin og hrukkurnar Fyrir utan að stuðla að myndun húð- krabbameina valda útfjólubláir geislar ýmsum öðrum skemmdum í húð. Segja má að hver og einn hafi sinn sólarkvóta. Hann er misstór eftir því hversu næm húðin er fyr- ir sólinni. Þegar kvótinn klárast verður húðin hrukkótt og mislit, brúnir blettir myndast. Húðin verður þunn og sumir frá tugi rauðra hreistrandi bletta sem eru forstigs- breytingar fyrir flögu- þekjukrabbamein. Þeir sem eru næmastir fyrir útfjólubláum geislum byrja að verða hrukkóttir og flekkóttir á þrítugs- aldri. Þetta á sérstaklega við þá sem hafa ljósa húð og hafa verið mikið í sól- böðum og/eða ljósabekkj- um. Sortuæxli Síðustu 15 ár hefur tíðni sortuæxla aukist mikið á Íslandi sem og í öðrum vestrænum lönd- um. Sortuæxli eru lífs- hættuleg húðkrabbamein en séu þau skorin burtu á frumstigi eru batahorfur mjög góðar. Mesta aukn- ing á Íslandi hefur orðið hjá ungum konum. Áhætta að fá sortuæxli er meiri hjá þeim sem hafa mjög marga fæðing- arbletti, hafa svokallaða óreglulega fæðingarbletti, hafa ljósa húð sem verður seint brún, hafa sól- brunnið, hafa notað ljósa- bekki eða hafa verið mik- ið í sól. Sortuæxli eru oft mjög dökkir blettir sem eru óreglulegir. Þau eru oft- ast stærri en 6 millimetr- ar og með óskarpa kanta. Þau geta verið með tveimur eða fleiri litum og fólk klæjar stundum í þau eða það vessar úr þeim. Sortuæxlin skera sig oft úr öðr- um fæðingarblettum á sama ein- staklingi í útliti. Af framangreindu er ljóst að mikilvægt er að forðast áhættu- hegðun eins og sólböð og ljósabekkja- notkun. Fylgjast þarf vel með fæðing- arblettum og láta lækni skoða sig ef grunur um illkynja blett vaknar. Sól- vörn er mikilvæg. Ástralar hafa þegar náð talsverðum árangri með að upplýsa almenning um hvernig eigi að verjast sólinni og að fylgjast með blettum. Þeir hafa verið með áróður í þessa veru í meira en 25 ár og síðustu árin hefur tíðni sortuæxla í Ástralíu minnkað hjá ungu fólki og dánartíðni af völdum þeirra er hætt að aukast. Steingrímur Davíðsson húðlæknir. Sólbrún fermingarbörn Stundum eru læknar spurðir hversu marga ljósatíma sé óhætt að fara í áður en hætta á húðkrabbameini skapist. Því er ekki hægt að svara frekar en hversu margar sígarettur sé óhætt að reykja áður en hætta verði á lungnakrabbameini. w w w .d es ig n. is '2 00 4 Fæst um land allt Dreifingara›ili: Tákn heilagrar flrenningar Til styrktar blindum Tilvalin fermingargjöf Videoupptökur Pantanir í s. 848 3219 Netfang: music@mmedia.is Tek upp fermingar Set á VHS og DVD Stafrænt hljóð og mynd Vídeóupptökur Föstudaginn 11. mars kl. 16-19, laugardaginn 12. mars kl. 11-17. Föstudaginn 18. mars kl. 16-19, laugardaginn 19. mars kl. 11-17. Upplýsingar í síma 552 1783 — Netfang: s.orn@isl.i Fermingarstyttur Himneskir herskarar verða með tálgaðar fermingarstyttur á Garðatorgi:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.