Morgunblaðið - 19.03.2005, Síða 2

Morgunblaðið - 19.03.2005, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FISCHER ÍSLENDINGUR Allsherjarnefnd Alþingis sam- þykkti samhljóða í gær að leggja til við Alþingi að Bobby Fischer fái ís- lenskan ríkisborgararétt. John Bosnitch, formaður stuðnings- mannahóps Fischers í Japan, og Miyoko Watai, unnusta Fischers, segjast fagna tíðindunum. Vildi Watai koma þökkum til allra á Ís- landi sem lögðu baráttunni lið. Tækin aftengd Dómari í Flórída úrskurðaði í gær að aftengja bæri tæki sem haldið hafa lífi í 41 árs gamalli konu, Terri Schiavo, í mörg ár en hún er með heilaskaða. Eiginmaður hennar vildi að tækin yrðu aftengd en for- eldrar konunnar voru því andvígir og nutu meðal annars stuðnings margra repúblikanaþingmanna. Talið er að konan deyi eftir eina eða tvær vikur. Tjón af völdum óveðurs Mikið tjón varð á raflínum á Austurlandi í óveðrinu í fyrrinótt. Brotnaði talsvert af staurum í kringum Egilsstaði, þar á meðal svonefndar stæður í flutningslínum sem eru mjög sterkbyggðar. Trufl- anir urðu á rafmagni allt frá Beru- firði til Vopnafjarðar vegna þessa. Seldi Saddam eiturefni Hollenskur kaupsýslumaður, Frans van Anraat, var í gær ákærð- ur fyrir að selja stjórn Saddams Husseins í Írak eiturefni sem notuð voru gegn Kúrdum. Tvö lítil álver til skoðunar Fimm álfyrirtæki hafa sýnt því áhuga að reisa álver á Norðurlandi. Til þessa hefur verið reiknað með einu stóru álveri en skv. heimildum Morgunblaðsins er einnig verið að skoða möguleika á því að reisa tvö lítil álver. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 37/42 Fréttaskýring 8 Forystugreinar 38 Úr verinu 15 Kirkjustarf 43/47 Viðskipti 18/19 Minningar 48/57 Erlent 22/23 Skák 58 Akureyri 26 Dagbók 62 Suðurnes 26 Víkverji 62 Árborg 28 Staður og stund 64 Landið 29 Velvakandi 63 Menning 30/31 Menning 65/73 Daglegt líf 32/33 Ljósvakamiðlar 74 Ferðalög 34/35 Veður 75 Úr vesturheimi 36 Staksteinar 75 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " #            $         %&' ( )***                   HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær Hákon Eydal í 16 ára fangelsi fyrir manndráp með því að hafa orðið Sri Rhamawati, barns- móður sinni, að bana á heimili sínu í Reykjavík 4. júlí 2004. Þá var Há- kon dæmdur til að greiða þremur börnum hinnar látnu tæpar 22 milljónir króna í bætur, þar af því yngsta fæddu árið 2002, 10,1 millj- ón kr. Ákærði mun áfrýja málinu til Hæstaréttar. Ákærði var sakfelldur af ákæru fyrir að hafa veist að Sri, slegið hana fjögur högg með kúbeini í höf- uð svo að af hlutust lífshættulegir höfuðáverkar, og vafið taubelti þrí- vegis um háls hennar og þrengt að með þeim afleiðingum að hún lést af völdum kyrkingar. Við réttarhöld játaði ákærði brot- ið en verjandi hans krafðist sýknu við aðalmeðferð málsins á þeirri forsendu að ákærði hefði verið í miklu andlegu ójafnvægi vegna sambands síns við Sri. Var því hald- ið fram að ákærði hefði sætt slíkum misgerðum og ranglæti af hálfu Sri að geðsmunir hans hefðu verið með þeim hætti er hann framdi brotið að hann hefði ekki verið í sakhæfu ástandi. Dómurinn féllst ekki á þetta sjónarmið enda talið að gögn máls- ins styddu í engu þær ásakanir. Þá yrði ekki séð af skýrslum ákærða sjálfs frekar en öðrum sakargögn- um að konan hefði misboðið honum þennan afdrifaríka morgun. Loks þætti útlistun ákærða á hugar- ástandi sínu þegar hann framdi brotið vera mótsagnakennd og því ósannfærandi Að mati dómsins var atlaga ákærða að Sri Rahmawati heiftar- leg og bersýnilegt að ákærði ætlaði sér að svipta hana lífi. Ekki þætti þó sannað að hann hefði ásett sér það fyrr en skömmu fyrir voðaverk- ið og yrði að byggja á þeim fram- burði hans að hann hefði ráðist á konuna eftir að þeim varð sundur- orða. Reyndi að afmá öll merki um afbrot sitt Þá segir í dóminum að ákærði hafi reynt að afmá öll merki um brot sitt og meðferð hans á líkinu hafi verið smánarleg. Einnig hafi komið fram hjá honum að hann hafi einsett sér að vera lögreglunni erf- iður þótt hann vissi að upp um hann hlyti að komast. Hann hafi neitað sök framan af lögreglurannsókninni og reynt um skeið, eftir að hann ját- aði verknaðinn, að villa um fyrir lögreglu í leitinni að líkinu. Þá gæfi framganga hans við rannsókn máls- ins, þ.á m. undir geðrannsókninni, og skýrsla hans fyrir dómi til kynna að hann væri ekki mjög sakbitinn eftir verkið. Ákærði kvaðst viss um að hann hefði slegið Sri nokkrum sinnum með kúbeini þótt hann myndi ekki eftir því. Einnig viðurkenndi hann að hafa brugðið belti um háls hennar og hert að. Hann viðurkenndi einnig að hafa sett líkið í poka og komið því fyrir í hraungjótu í nágrenni Hafnarfjarðar. Við þingfestingu málsins mót- mælti ákærði ekki rúmlega 20 millj- óna króna bótakröfum barna hinnar látnu. Frá dóminum dregst 254 daga gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá handtöku. Málið dæmdu héraðsdómararnir Pétur Guðgeirsson sem dómsfor- maður, Helgi I. Jónsson og Sigrún Guðmundsdóttir. Verjandi ákærða var Brynjar Níelsson hrl. og sækj- andi Ragnheiður Harðardóttir frá ríkissaksóknara. Helga Leifsdóttir var réttargæslumaður barnanna þriggja. Hákon Eydal dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir morðið á Sri Rhamawati Atlaga ákærða að hinni látnu heiftarleg að mati dómsins AÐ sögn Helgu Leifsdóttur, réttargæslumanns barna Sri Rhamawati, munu börnin ekki fá nema um sex milljónir króna í bætur af 22 milljóna króna bótakröfu. Hún segir afar litlar líkur á því að börnin fái bæturnar greiddar að fullu enda ljóst að Hákon Eydal sé ekki borgunarmaður fyrir bótakröfunum. Kröfunar eru tvíþættar, þ.e. krafa um miskabætur og svo krafa um bæt- ur vegna missis framfæranda. Gerðar voru miskabótakröfur upp á fimm milljónir króna vegna tveggja eldri barnanna og sjö milljónir fyrir það yngsta. Helga segir ríkissjóð ekki ábyrgjast miskabætur nema fyrir um 600 þúsund krónur fyrir hvert barn. „Síðan ábyrgist ríkissjóður tvær og hálfa milljón að hámarki fyrir missi framfæranda,“ segir Helga og bætir því við að þar sé miðað við meðlags- greiðslur á mánuði til 18 ára aldurs. Hún segir eldri börnin fá það að fullu bætt en hærri krafa hafi verið gerð handa yngsta barninu og óvíst hvort það verði að fullu bætt. Fá aðeins sex milljónir af 22 milljóna króna kröfu HLUTI þaks á útihúsi á bænum Sæ- bóli í Önundarfirði fauk í gríð- armiklu suðvestan hvassviðri seint í fyrrakvöld og voru björg- unarsveitir fengnar á staðinn til að fergja þakplötur og hluta útihúss- ins fram eftir nóttu. Elísabet Pét- ursdóttir, ábúandi á Sæbóli, átti sér einskis ills von þegar járnplata af útihúsinu kom fljúgandi og lenti á íbúðarhúsinu með hvelli eftir 200 metra flug. „Það var búið að vera gott veður og sunnan- og suðaust- anátt en síðan sneri vindur sér snögglega í vestrið,“ sagði hún. Plöturnar eru af þaki hlöðu sem byggð var á fjórða áratugnum og er elsti hluti fjárhússins á Sæbóli. Björgunarsveitir víðar á landinu höfðu í nógu að snúast vegna veð- urs og færðar. Björgunarsveitir á Seyðisfirði og Egilsstöðum voru kallaðar út til að aðstoða ökumann bíls sem lenti í vandræðum í ófærð á Fjarðarheiði. Á Kjalarnesi þurfti einnig aðstoð björgunarsveita við að fergja spýtnabrak við leikskóla og þurftu björgunarsveitarmenn að festa lausan þakkant á húsi við Búa- grund. Þá var björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli kölluð út vegna skemmda á gróðurhúsi. Járnplötur skullu á íbúðar- húsi í ofsaroki EFNT var til afmælisfagnaðar hjá Landhelgisgæslunni í gær í tilefni af því að varðskipið Týr er 30 ára um þessar mundir. Týr var formlega afhentur Landhelg- isgæslunni 14. mars 1975 í Danmörku og kom til Reykjavíkur 24. mars. Sigurður Steinar Ketilsson skip- herra segir Tý vera happaskip og það hafi alltaf fylgt því valinn maður í hverju rúmi enda margir í áhöfn starfað hjá Landhelgisgæslunni í áraraðir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fögnuðu 30 ára afmæli Týs VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnað- arráðherra sagði í ræðu sinni á árs- fundi ÍSOR, Íslenskra orkurann- sókna, sem fram fór í Svartsengi í gær, að áhugi fyrirtækja á olíuleit á Jan Mayen-svæðinu væri vaxandi. Af þremur svæðum á íslenska land- grunninu þætti þetta svæði álitleg- asti kosturinn. Valgerður sagði vaxandi áhuga olíufyrirtækja að nokkru leyti tengjast háu olíuverði um þessar mundir og framgangi olíuleitar við Færeyjar og Hjaltland. „Rétt virðist að gera ráð fyrir því að aðstæður geti skapast innan fárra ára til að bjóða fram leyfi til rannsóknar og vinnslu olíuefnasam- banda á Jan Mayen-svæðinu. Iðn- aðarráðuneytið hefur látið taka saman yfirlit um þann undirbúning sem fram þarf að fara til þess að unnt sé að veita slík leyfi og er stefnt að því að hann fari fram á næstu tveimur árum. Að honum loknum verður hægt að taka ákvörðun um hvort bjóða skuli fram leyfi á svæðinu með tiltölulega skömmum fyrirvara,“ sagði Val- gerður á ársfundinum. Hún fjallaði einnig um rannsókn- ir á landgrunni Norðurlands. Þær hefðu sýnt fram á að kolagas gæti verið að finna í setlögum á svæðinu og verið væri að ljúka við áfanga- skýrslu um rannsóknirnar. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra á ársfundi ÍSOR Vaxandi áhugi olíufyrirtækja BOBBY McFerrin heldur tónleika hér á landi í Háskólabíói hinn 9. ágúst. McFerrin flytur tónlist með röddinni einni og þykja hæfileikar hans á því sviði ótrúlegir. Hann er jafnvígur á djass, klassík og popp en er þó þekktastur fyrir lagið „Don’t Worry, Be Happy“ sem naut mikilla vinsælda víða um heim árið 1988. McFerrin mun njóta fulltingis Kammerkórs Langholtskirkju, undir stjórn Jóns Stefánssonar, á tónleikunum./70 Bobby McFerrin til Íslands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.