Morgunblaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Heilsukoddar Heilsunnar vegna Opi› í dag laugardag frá kl. 11-16 HLJÓMSVEITIN Jakobínarína var sigurveg- ari Músíktilrauna Tónabæjar og Hins hússins en úrslit fóru fram í Austurbæ í gærkvöldi. Þetta var í 23. skipti sem tilrauninar voru haldnar. Í öðru sæti varð hljómsveitin Hello Norbert og The Dyers urðu í því þriðja. Hljómsveitin We Painted the Walls var valin athyglisverð- asta hljómsveitin. Alls tóku 11 hljómsveitir þátt tímar í endurgerðum Hljóðrita og 10.000 kr. úttekt í 12 tónum. Ýmis önnur vegleg verðlaun eru veitt fyrir besta hljóðfæraleik, sigurvegarar fá allir 20.000 kr. úttekt í hljóðfæraverslunum. Til viðbótar við þetta velja aðstandendur Tíma hljóðvers þá hljómsveit sem þeir telja at- hyglisverðasta og fullvinna með henni eitt lag í hljóðveri sínu. í úrslitakvöldinu en 50 hljómsveitir hvaðanæva af landinu tóku þátt í ár. Sigurvegararnir fá að launum 20 hljóðverstíma í hljóðveri Sigur Rós- ar, Sundlauginni, ásamt hljóðmanni og að auki 20.000 kr. úttekt í 12 tónum og myndband við eitt lag sem Filmus gerir. Verðlaun fyrir annað sæti eru tuttugu tímar í stúdíói Sýrlandi og 15.000 kr. úttekt í 12 tón- um og fyrir þriðja sæti fást tuttugu hljóðvers- Morgunblaðið/Björg Jakobínarína sigurvegari KONA á sjötugsaldri situr nú í gæsluvarðhaldi vegna tilraunar til að smygla um 800 grömmum af kókaíni til landsins um sl. helgi. Kókaínið var falið undir hárkollu konunnar en hárkollan var fest við hár hennar. Grunur leikur á að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem konan kemur til landsins. „Þetta er einhver djarfasta og jafnframt ósvífnasta smygltilraun sem við höfum upplýst,“ segir Jó- hann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli. Konan er hollenskur og banda- rískur ríkisborgari. Að sögn sýslu- manns kom hún frá Amsterdam sl. laugardag og var tekin í hefðbundna úrtaksleit í tollhliði en tollverðir áttu í erfiðleikum með að eiga samskipti við konuna þar sem hún er verulega heyrnarskert. Hjá tollverði vaknaði grunur um að ekki væri allt með felldu og leitaði hann því að fíkniefn- um á konunni án árangurs. Annar tollvörður var þá kallaður til og ákvað að þreifa á hári konunnar og kom þá í ljós að konan var með hár- kollu og undir henni voru einhverjar pakkningar. Konan var því handtek- in vegna gruns um fíkniefnasmygl og flutt til Reykjavíkur. Jóhann segir tilraunina afar ósvífna, í þessu tilviki hafi smyglarar notast við fatlaðan eldri einstakling sem að eigin sögn býr við bág kjör í Hollandi. Að sama skapi sé árvekni tollvarðanna aðdáunarverð. Konan var úrskurðuð í gæsluvarð- hald til 1. apríl og tók lögreglan í Reykjavík við rannsókn málsins sem miðast m.a. að því upplýsa um sam- verkamenn hér á landi. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeild- arinnar, segir fullvíst að konan hafi verið að flytja efnin fyrir aðra. Aðrir hafa ekki verið handteknir. Kona í gæsluvarðhaldi vegna smygls Kókaínið saumað inn í hárkolluna MIKIÐ tjón varð á raflínum á Aust- urlandi í óveðrinu í fyrrinótt. Brotn- aði talsvert af staurum í kringum Egilsstaði, þar á meðal svonefndar stæður í flutningslínum, það eru tveir staurar með burðarkrossi á milli, sem eru mjög sterkbyggðir. Að sögn Ástvalds Erlingssonar, verkfræðings hjá RARIK og rekstr- arstjóra raforkunetsins á Austur- landi, brotnuðu 11 stæður í röð ofan við Grímsá í fremur nýlegri 132 kW flutningslínu. Hún liggur frá byggð- arlínustöðinni á Hryggstekk að Ey- vindará. „Þetta eru það sterkar línur að maður hélt að þær brotnuðu bara alls ekki. Þetta var mjög sérstakt og ég hef aldrei lent í þessu áður,“ sagði Ástvaldur, en hann hefur unnið í tíu ár hjá RARIK fyrir austan. Þá fóru átta stæður við Fossgerði í flutn- ingslínunni frá aðveitustöð Egils- staða við Eyvindará að Lagarfossi. Einnig urðu miklar skemmdir á dreifiraflínum, sem bornar eru uppi af einföldum staurum. Sagði Ást- valdur að meira en 40 slíkir staurar hefðu brotnað hér og þar á Héraði. Aðstoð barst frá Hvolsvelli og Akureyri Truflanir urðu á rafmagni allt frá Berufirði til Vopnafjarðar. Þannig varð rafmagnslaust á Egilsstöðum, Neskaupstað, Eskifirði, Vopnafirði og Borgarfirði eystri allt frá einni og upp í fjórar stundir. Dísilknúnar varaaflstöðvar voru gangsettar á Vopnafirði og Neskaupstað en víða var rafmagnslaust þegar fólk vakn- aði í gærmorgun. Í gær tókst að laga raforkukerfið til bráðabirgða og var rafmagni kom- ið á allt svæðið í gærkvöldi. Viðgerð- arefni fyrir flutningslínurnar var væntanlegt í nótt. Í gær komu flokk- ar frá Akureyri og Hvolsvelli til að- stoðar og verður 30 manna lið að gera við raforkukerfið um helgina. Mikið tjón á raflínum víða á Austurlandi Ljósmynd/Guðlaugur Valtýsson BANDARÍSKA rokksveitin Velvet Revolv- er mun halda tónleika í Egilshöll 7. júlí næstkomandi, að því er Ragnheiður Han- son tónleikahaldari staðfesti við Morg- unblaðið í gærkvöldi. Sama fyrirkomulag verður á tónleikunum og á tónleikum Iron Maiden í júní, þ.e. húsinu verður skipt í A- og B-svæði. Miðasala verður auglýst síðar. Velvet Revolver er skipuð Scott Wei- land, fyrrverandi söngvara Stone Temple Pilots, þríeykinu Slash, Duff McKagan og Matt Sorum, sem áður voru í Guns n’ Ros- es og David Kushner úr Wasted Youth. „Velvet Revolver er stórt nafn og þetta verða stórir tónleikar. Þeir taka mest- megnis Guns n’ Roses- og Stone Temple Pilots-lög á tónleikum sínum, auk eigin efnis,“ segir Ragnheiður en Velvet Revolv- er hefur sent frá sér eina breiðskífu, Contraband, sem inniheldur m.a. lögin „Slither“ og „Fall To Pieces“. Velvet Revolver leikur í Egilshöll „ÚT frá mínum bæjardyrum séð á flugvöll- urinn að víkja sem fyrst,“ segir Salvör Jóns- dóttir, sviðsstjóri skipulags- og bygginga- sviðs Reykjavíkurborgar, í samtali í Lesbók. „Vatnsmýrin er allt of dýrmætt land til þess að hafa þar flugvöll. Okkur munar um hvern fermetra af þessu nesi sem borgin stendur á. Ég skil hagræðið sem er af því fyrir landsbyggðarfólk að hafa flugvöllinn svo nálægt miðbænum en þau rök eiga ekki jafnmikið við nú og áður. Leiðin til Keflavík- ur er alltaf að styttast. Það verður líka að hafa í huga að 80% þjóðarinnar búa á höf- uðborgarsvæðinu eða innan klukkustundar akstursfjarlægðar frá borginni.“ Flugvöllurinn á að fara sem fyrst  Lesbók ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.