Morgunblaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIKIL landbúnaðarsýning stendur um þessar
mundir yfir í Sydney í Ástralíu. Margt er þar til
gamans gert og í gær var efnt til hindr-
unarkapphlaups svína. Sýningin er árlegur við-
burður og nota framleiðendur matvæla þá tæki-
færið til að kynna vöru sína en ekki fylgdi það
með fréttinni hvort þátttakendur í hindr-
unarhlaupinu hefðu hlotið þau örlög að enda á
veisluborði sýningargesta.
Reuters
Síðasta hindrunin í grísahlaupi
FJÖLMIÐLAR í
Bandaríkjunum
greindu frá því í gær
að George F. Kennan,
sem hafði meiri áhrif á
utanríkis- og hernað-
arstefnu Bandaríkj-
anna á tuttugustu öld-
inni en flestir aðrir,
væri látinn. Hann var
101 árs að aldri.
Langt er um liðið
síðan Kennan setti
fram kenningar sínar,
sem kallaðar hafa ver-
ið innilokunarstefna
(e. containment) en á
henni byggðu átta forsetar Banda-
ríkjanna stefnu sína í kalda stríð-
inu. Má rekja framlag Kennans til
stefnumótunar Bandaríkjamanna
aftur til febrúarmán-
aðar 1946 en hann var
þá um það bil að yf-
irgefa Moskvu, höfuð-
borg Rússlands, og
halda aftur heim eftir
nokkurra ára störf í
sendiráði Bandaríkj-
anna. Beiðni barst um
það frá Washington
að einhver í sendi-
ráðinu skrifaði grein-
argerð um þá ógn
sem stafaði af Sovét-
ríkjunum og féll það í
skaut Kennans að
setja nokkrar hugsan-
ir á blað. Fimm þúsund orða grein-
argerð Kennans varð seinna kunn
sem „langa skeytið“ en þar kynnti
Kennan hugmyndir sem hann síðan
útfærði betur í tímaritinu Foreign
Affairs ári síðar undir nafninu „X“,
en hann gat sem starfsmaður utan-
ríkisþjónustu Bandaríkjanna ekki
komið fram undir nafni. Undir lok
ævi sinnar sagðist Kennan telja að
of mikið hefði verið gert úr fram-
lagi sínu með skeytinu og vildi að
sín yrði minnst fyrir ýmis önnur
störf í þágu þjóðarinnar.
Bandaríkin „endingarbetri“
Kennan dró enga dul á að hann
teldi kommúnista í Sovétríkjunum
beita harkalegum aðferðum við
stjórn mála þar og að þeir vildu
auka áhrif sín hvarvetna í heim-
inum, útbreiða kommúnismann.
Hann setti hins vegar fram þá
skoðun að Bandaríkin væru „end-
ingarbetri“ en Sovétríkin og að
hægt yrði að sigra Sovétríkin í
hinu kalda stríði án þess að ráðast
í hernaðaraðgerðir, sem hugsan-
lega hefðu haft hörmulegar afleið-
ingar fyrir allt mannkyn. Trúði
hann því að hugmyndir þær sem
Bandaríkin byggðust á, sá styrkur
sem Bandaríkin bjuggu yfir og sú
nána samvinna sem Bandaríkja-
stjórn átti við nokkur ríki á Vest-
urlöndum og víðar, myndi á end-
anum leiða til þess að Sovétríkin
liðu undir lok.
Kennan þjónaði sem sendiherra
Bandaríkjanna í Moskvu, 1952-53,
og í Júgóslavíu, 1961-63. Hann
vann Pulitzer-verðlaunin tvívegis,
fyrir bók sína Russia leaves the
War 1956 og aftur 1967 fyrir end-
urminningar sínar, Memoirs, 1925-
1950.
Höfundur innilokunar-
stefnunnar látinn
George F. Kennan
Kennan lagði grunninn að þeirri stefnu Bandaríkjamanna gagnvart
Sovétríkjunum í kalda stríðinu að hefta útbreiðslu kommúnismans
SAMEINUÐU þjóðirnar og hjálp-
arstofnanir vöruðu í gær við yfirvof-
andi neyðarástandi í Nepal. Þá voru
maóískir uppreisnarmenn og örygg-
issveitir konungs hvattar til að
tryggja aðgang að hjálpargögnum
og gæta öryggis óbreyttra borgara.
Sameinuðu þjóðirnar og tengdar
hjálparstofnanir sem starfa í Nepal
hafa skorað á stríðandi fylkingar í
landinu að tryggja óheftan flutning
hjálpargagna um vegi landsins.
Maóistar hafa háð blóðuga upp-
reisn gegn stjórnvöldum í Nepal
síðan 1996 í þeim tilgangi að binda
enda á konungdæmið og koma á
kommúnísku alþýðulýðveldi.
Í byrjun febrúar leysti Gyan-
endra konungur ríkisstjórnina frá
störfum þar sem hann taldi hana
ófæra um að berja niður uppreisn-
ina sem kostað hefur um 11.000
manns lífið á síðustu árum. Í kjöl-
farið stofnaði hann nýja 10 manna
ríkisstjórn sem hann stýrir sjálfur
en valdatakan hefur verð fordæmd
um allan heim. Ástandið í Nepal
hefur versnað til muna síðan kon-
ungur tók völdin og maóistar hafa
hert aðgerðir sínar,
m.a. með því að ógna vegfarend-
um í landinu. Átökin hafa sett stórt
strik í reikninginn fyrir hjálpar-
stofnanir sem eiga í erfiðleikum
með að koma lyfjum, mat og annarri
nauðsynjavöru til bágstaddra.
Neyðar-
ástand
yfirvofandi
í Nepal
Katmandú. AFP.
KONUNGUR Taílands, Bhumibol
Adulyadej, ætlar persónulega að
hafa yfirumsjón með verkefni sem
hefur það að markmiði að binda enda
á langvarandi þurrka í landinu.
Að sögn breska útvarpsins, BBC,
verður notuð aðferð sem hann á
einkaleyfi á, sem felur í sér að flugvél
er látin losa ákveðin efnasambönd í
ský til að framkalla rigningu. Tækn-
in er sögð sérstaklega árangursrík
því hægt sé að ákveða hvar skuli
rigna.
Aðgerðirnar miða að því að binda
enda á mestu þurrka sem þjakað
hafa íbúa landsins síðustu ár og hafa
haft áhrif á lífsskilyrði 8,3 milljóna
manna.
Kóngurinn
lætur rigna
PAKISTÖNSKU mennirnir
fjórir, sem dæmdir voru til
dauða fyrir hópnauðgun voru
hnepptir í gæsluvarðhald í gær
en þeim hafði verið sleppt úr
haldi á þriðjudag.
Nauðgunin var ákveðin af
ættbálkaráði þorpsins sem
refsing fyrir sakir bróður kon-
unnar. Handtakan var gerð að
kröfu forseta og forsætisráð-
herra landsins eftir að fórnar-
lambið, Mukhtiar Mai, hafði
krafist viðbragða af hálfu
stjórnvalda á blaðamannafundi
í vikunni. Sá síðarnefndi sagði
Mai fréttirnar sjálfur á fundi
þeirra í Islamabad í gær.
Krafa Mai um réttlæti í
þessu máli er nýlunda í Pak-
istan þar sem konur eru oft
látnar gjalda fyrir afbrot, sem
ættingjar þeirra, karlmenn,
hafa framið. Ætlar hún ekki að
láta þar við sitja, heldur beita
sér fyrir aukinni menntun
kenna.
Nauðgarar
handteknir
í Pakistan
Islamabad. AFP
♦♦♦
HOLLENSKUR kaupsýslumaður
var í gær formlega ákærður fyrir
að hafa selt stjórn Saddams Húss-
eins, þáverandi Íraksforseta, eitur-
efni. Maðurinn er sakaður um
þátttöku í þjóðarmorði.
Hollendingurinn heitir Frans
van Anraat og er 62 ára gamall.
Sækjendur í málinu segja að hann
hafi selt Írökum efni sem hann
fékk í Bandaríkjunum og Japan.
Efnin voru síðan notuð til að fram-
leiða tauga- og sinnepsgas. Fullyrt
er að efnin sem maðurinn seldi
hafi verið notuð þegar Saddam
Hússein fyrirskipaði efnavopnaá-
rás á Kúrdabæinn Halabja 16.
mars árið 1988. Rúmlega 5.000
manns, allt óbreyttir borgarar,
týndu lífi í þeirri árás.
Í ákærunni er m.a. stuðst við
upplýsingar sem fengust við yf-
irheyrslur yfir Ali Hassan al-Maj-
id, sem er betur þekktur sem
„Efnavopna Ali“ en hann fór fyrir
efnavopnaáætlun Íraka og er sak-
aður um að hafa skipulagt fjölda-
morðið. Saddam Hússein er líkt og
„Efnavopna Ali“ ákærður fyrir
þjóðarmorð vegna árásinnar á
Halabja.
Í ákærunni er fullyrt að Van
Anraat hafi verið fullkunnugt um
til hvers efnin sem hann seldi yrðu
notuð. Þessu hefur maðurinn jafn-
an neitað. „Ég varð fyrir áfalli
þegar ég sá myndirnar frá
Halabja. En ég gaf ekki fyrirskip-
un um árásina,“ sagði hann nýlega
í viðtali.
Grunur um eitursöluna féll á
Hollendinginn árið 1989. Að beiðni
Bandaríkjastjórnar var hann þá
handtekinn í Mílanó á Ítalíu. Hon-
um var síðar sleppt og flúði hann
þá til Íraks þar sem hann dvaldist
allt til ársins 2003 er Bandaríkja-
menn og stuðningsþjóðir þeirra
réðust inn í Írak. Sagt er að á
þessum árum hafi hann miðlað
upplýsingum um vígvæðingar-
áform Saddams til hollensku leyni-
þjónustunnar.
Van Anraat var handtekinn í
Hollandi 7. desember í fyrra og
var þá sýnilega að undirbúa land-
flótta.
Sérfræðingar Sameinuðu þjóð-
anna telja að Frans van Anraat
hafi selt Írökum mikið magn efna
til eiturvopnaframleiðslu. Skjalfest
er að frá honum fóru 36 sendingar
til Íraks á árunum 1984 til 1988.
Efnin voru keypt í Bandaríkjunum
og Japan en flutt um Antwerpen í
Belgíu og Aqaba í Jórdaníu til
Íraks.
Van Anraat á lífstíðardóm yfir
höfði sér verði hann sakfelldur.
Ákæran liggur nú fyrir en sjálfur
rekstur málsins hefst í nóvember-
mánuði.
Ákærður fyrir að hafa selt
Saddam Hussein eiturefni
Rotterdam. AFP.
Reuters
Kúrdísk stúlka við dómshúsið með
mynd af fórnarlömbum árásarinnar.