Morgunblaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 70
70 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 12.30
2 vikur
á toppnum
í USA & Íslandi
Sýnd kl. 8
Will Smith og
Kevin James
(King of Queens)
í skemmtilegustu
gamanmynd
ársins!
Will Smith er
J.H.H. kvikmyndir.com
SV mbl
Hann trúir ekki að
vinur hennar sé til
þar til fólk byrjar
að deyja!
MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM MAGNAÐA
SPENNUTRYLLI MEÐ ROBERT DE NIRO
SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA
Hann trúir
ekki að
vinur
hennar sé
til þar til
fólk byrjar
að deyja!
MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM MAGNAÐA
SPENNUTRYLLI MEÐ ROBERT DE NIRO
SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA
Yfir 17.000 gestir!
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSI I I
Sýnd kl. 2, 4 og 6 m. Ísl tali
jamie kennedyi Alan cummingl i
CLOSER
Sýnd kl. 10 B.i. 14 ára.
Ó.Ö.H. DV
S.V. MBL.
M.M.J. Kvikmyndir.com
ATH! GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNA
Ó.H.T. Rás 2
A MIKE NICHOLS FILM
“…það mátti því búast við því að Closer væri góð
mynd en hún er gott betur en það.”
Þ.Þ. FBL
Sýnd kl. 1, 2, 3, 4, 6 og 8 m. ísl. tali
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 m. ensku tali
Sýnd kl. 2 m. ísl. tali, VERÐ 400 KR.
Sýnd kl. 4 , 6 m. ísl. tali,
Sýnd kl. 6, 8 og 10 m. ensku tali Sýnd kl. 10.10
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
kl. 3, 5.40, 8 og 10.20.
Will Smith er Will Smith ogKevin James
(King of Queens)
í skemmtilegustu
gamanmynd
ársins!
2 vikur á toppnum
í USA & Íslandi
J.H.H. kvikmyndir.com
SV mbl
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Yfir 17.000
gestir!
JULIA ROBERTS JUDE LAW CLIVE OWEN NATALIE PORTMAN
S.V. MBL.
S.V. MBL.
Frábær grínmynd
fyrir alla fjölskyldunai ll l l
Sýnd kl. 2 Ísl tal, VERÐ 400 KR.
Sýnd kl. 4 Ísl tal,
Frábær grínmynd
fyrir alla fjölskylduna
Fr r rí y
fyrir l fj lskyl un
Alan cummingl ijamie kennedyj i
Frábær grínmynd
fyrir alla fjölskylduna
r r rí
f rir ll fj l l
ÞAÐ hlýtur að vera pirrandi fyrir
Bobby McFerrin, söng- og rödd-
unarsnilling, djassista, stjórnanda,
kennara og margt, margt fleira, að
nafn hans sé að eilífu tengt einu
grípandi popplagi, „Don’t Worry,
Be Happy“. Það lag er ágætt fyrir
sinn hatt en er ekki nema brotabrot
af ferli þessa hæfileikaríka tónlist-
armanns.
McFerrin er nú væntanlegur til
Íslands og mun hann koma fram í
Háskólabíói 9. ágúst. Kammerkór
Langholtskirkju, undir stjórn Jóns
Stefánssonar, mun taka lagið með
McFerrin en tónleikar hans eru
með fjölbreyttu sniði og er áhorf-
endum iðulega gert að taka þátt í
þeim. Guðbjartur Finnbjörnsson
(Kris Kristofferson, Beach Boys)
flytur McFerrin inn.
McFerrin er djassisti að upplagi
en er jafnvígur á sígilda tónlist,
djass og popp en áðurnefndur
smellur var tilraun í þeim geir-
anum, grín sem var kokkað upp á
staðnum er upptökur á plötunni
Simple Pleasures (’88) stóðu yfir.
McFerrin kom fyrst fyrir augu
almennings árið 1984 þegar platan
The Voice kom út, tímamótaverk í
djassi þar sem aðeins er að finna
rödd McFerrin. Raddsviðið er frá
dýpstu bassanótum upp í hæstu
falsettu og stundum er líkt og þrír
menn séu að syngja samtímis. Þessi
einstæða nálgun McFerrin hefur
haft áhrif á seinni tíma lista-
menn, sjá t.d. taktkjafta „beat-
box“ eins og Rahzel (vann með
Björk að Medúllu), en „beatbox“
tónlistin er orðin að sérstakri
tónlistarstefnu innan hipp hopps
í dag.
Eftir ægivinsældir „Don’t
Worry, Be Happy“ lét McFerrin
lítið fyrir sér fara, hafði lítinn
áhuga á að fylgja poppvinsældum
sínum eftir. Þess í stað hóf hann
að nema hljómsveitarstjórnun,
m.a. hjá Leonard Bernstein.
Hann hefur síðan gefið út plötur
með sellóleikaranum Yo-Yo Ma,
djassistanum Chick Corea og
stjórnað fílharmóníusveitum í
New York, Philadelphiu og Vín
og sinfóníusveitum Chicago og
Cleveland. Hann hefur þá sinnt
kennslu, unnið með kórum og er
tífaldur Grammy-verðlaunahafi.
Jón Stefánsson segir í samtali
við blaðamann að McFerrin hafi
beðið sig að senda sér eitt lag, sem
hann gæti svo unnið með á tónleik-
unum.
„Ég og Gunnar Gunnarsson, org-
anisti og píanóleikari, erum í sam-
starfi með þetta og erum að hugsa
um að senda honum „Vikivaka“ eft-
ir Jón Múla,“ segir Jón sem auk
þess lýsir McFerrin sem „algjörum
snillingi“.
„Þessi maður er alveg ótrúlegur
og fólkið í kórnum hjá mér tók and-
köf þegar það heyrði að hann væri
væntanlegur hingað. Þau þekktu
feril hans ágætlega, ekki bara þetta
eina lag sem hann er þekktur fyrir.
McFerrin er eins konar „radda-
fimleikamaður“ en býr bless-
unarlega yfir tónlistarlegri smekk-
vísi um leið, enda mjög svo greini-
lega með tónlistina í blóðinu.“
Jón segir að McFerrin ætli að
leggja áherslu á að spinna á tón-
leikunum og mun hann „leika“ á
kórinn og svo áhorfendur.
Tónlist | Bobby McFerrin til Íslands
Bobby McFerrin er jafnvígur á popp,
klassík og djass og brautryðjandi í
notkun raddarinnar sem hljóðfæris.
„Röddin“
www.bobbymcferrin.com
arnart@mbl.is
BÚIÐ er að ákveða að Jón Ólafs-
son stýri upptökum á fyrstu
plötu Hildar Völu Einarsdóttur,
sigurvegara Idol-Stjörnuleitar á
Stöð 2 í ár. „Aðalvinningur í
keppninni er plötusamningur við
Senu (sem áður hét Skífan) og til
hafði staðið að Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson myndi stýra upp-
tökum á fyrstu plötu sigurveg-
arans, en að höfðu samráði allra
hlutaðeigandi hefur verið ákveð-
ið að Jón Ólafsson mun stýra
upptökum á plötunni,“ segir í
fréttatilkynningu frá Senu.
Þar kemur líka fram að það sé
ekki síst að frumkvæði Þorvald-
ar Bjarna sem þessi ákvörðun sé
tekin. Hann er sagður hafa nóg
að gera vegna þátttöku í
Evróvisjón og starfsemi fyrir-
tækis síns, Reykjavík Music Pro-
ductions. Til viðbótar hefur hon-
um verið úthlutað listamanna-
launum til hálfs árs, til að semja
nýjan söngleik ásamt Kristlaugu
Sigurðardóttur en þau sömdu
Ávaxtakörfuna saman.
Líka samið við Heiðu?
„Líkur eru á því að Sena semji
einnig við Heiðu, sem lenti í 2.
sæti í Idol-Stjörnuleit, um útgáfu
plötu í haust og þar mun Þor-
valdur Bjarni stýra upptökum,“
segir ennfremur í tilkynning-
unni.
Upptökur undir stjórn Jóns á
plötu Hildar Völu hefjast strax í
byrjun apríl en undirbúningur
stendur nú yfir og stefnt er að út-
gáfu snemma í maí.
Fyrsta lagið með Hildi Völu
verður frumflutt á miðvikudag
en það er útgáfa hennar á lagi
Jóns og Stefáns Hjörleifssonar
„Líf“, sem hún söng einmitt í úr-
slitaþættinum.
Tónlist | Upptökustjóri ráðinn
fyrir Hildi Völu
Jón Ólafsson í stað
Þorvaldar Bjarna
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hildur Vala
heillaði marga
upp úr skónum
með þátttöku
sinni í Idol-
Stjörnuleit
2005.