Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 6
BÚAST má við verulegum töfum á
umferð vegna framkvæmda við nýja
Hringbraut í vor og sumar en reiknað
er með því að búið verði að opna fyrir
báðar akstursstefnur á nýju Hring-
brautinni hinn 19. júlí. Helstu lokanir
á götum verða á Njarðargötu, Hring-
braut og Snorrabraut, segir Haraldur
Tryggvason, deildarstjóri á fram-
kvæmdasviði Reykjavíkurborgar.
Njarðargata verður lokuð milli
nýju og gömlu Hringbrautarinnar frá
29. mars til 19. apríl en þá verður
skipt um jarðveg, lagðar leiðslur og
lagning göngubrúar yfir götuna und-
irbúin. Reiknað er með að þessi lokun
verði auglýst á næstunni.
Mestar tafir munu þó verða á
tveggja vikna tímabili, frá 1. maí til
15. maí, en þá verður syðri akbraut
gömlu Hringbrautarinnar lokað og
tvístefna á nyrðri akbrautinni. Því
verður bara ein akrein opin í hvora
átt og segir Höskuldur að búast megi
við talsverðum töfum vegna þessa,
sérstaklega á annatímum. Þá sé
möguleiki að fara frekar Sæbrautina
til að létta á umferð um Hringbraut-
ina en engu að síður megi búast við
miklum töfum þessar tvær vikur. Á
sama tíma verður einnig tengingu af
Vatnsmýrarvegi á Bústaðaveg lokað.
Í verkáætlun er gert ráð fyrir því
að nýja Hringbrautin verði opnuð til
austurs hinn 16. maí og þá verða tvær
til þrjár akreinar í gangi í hvora átt
eftir nýju Hringbrautinni og þeirri
gömlu. Hinn 19. júní verður svo um-
ferð hleypt á hinn hluta nýju Hring-
brautarinnar.
Snorrabraut verður lokuð frá 19.
júní til 8. september, á milli Hring-
brautar og Eiríksgötu, en þá þarf að
grafa og sprengja fyrir undirgöngum
undir götuna og leggja lagnir. Hösk-
uldur segir að þar þurfi menn að velja
sér aðrar leiðir sem vissulega geti
valdið töfum. „Eiríksgatan verður op-
in svo menn geta komist framhjá með
því að fara Rauðarárstíginn og Flóka-
götuna. Eins verður opnuð tenging
inn á Landspítalalóðina svo þeir sem
eru að fara þangað geta komist þar.
Eins geta menn farið Barónsstíginn
og þá leið,“ segir Höskuldur.
Dagana 9. til 30. september verður
svo unnið við hringtorg á mótum
Njarðargötu og Sóleyjargötu og
göngubrú yfir Njarðargötuna, og á
því tímabili verður Sóleyjargötu lok-
að eitthvað, fyrst til austurs og síðar á
tímabilinu til vesturs, og Njarðargata
verður alveg lokuð á milli nýju og
gömlu Hringbrautarinnar.
Talsverðar lokanir verða vegna flutnings Hringbrautar
!"#
"
$
%
& #"
'
%
& #"
'
("
)*
+
)
,
Miklar tafir á Hring-
braut í byrjun maí
Morgunblaðið/Eyþór
Vinna við tvær göngubrýr yfir Hringbrautina er hafin.
6 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Páskaeggjaleit
Félag sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi efnir til árlegrar
páskaeggjaleitar í dag á Ægisíðunni kl. 14:00.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, ræsir leitina.
Leitað verður að fagurlega skreyttum eggjum og börnin fá súkkulaðiegg frá Nóa-Síríus.
Leiktæki og hoppukastali verða á staðnum.
Keppt verður í húllakeppni og boðið verður upp á andlitsmálun.
Munið að taka með körfur eða poka undir eggin.
Á Ægisíðunni við Grásleppuskúrana í dag, laugardag kl. 14!
Krakkar, mömmur, ömmur, pabbar og afar!
Hittumst hress
Allir velkomnir
Stjórnin
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, verður ásamt konu
sinni, Dorrit Moussaieff, heiðurs-
gestur og aðalræðumaður á árleg-
um hátíðarkvöldverði í kvöld hjá
The Explorers Club, stofnun land-
könnuða, í New York. Er forsetinn
fyrsti erlendi þjóðhöfðinginn sem
er heiðursgestur á þessum vett-
vangi en áður hafa tveir forsetar
Bandaríkjanna gegnt því hlut-
verki.
Í frétt frá skrifstofu forseta Ís-
lands kemur fram að aðrir ræðu-
menn séu Steve Fosset sem nýlega
flaug fyrstur manna umhverfis
jörðina án millilendingar og James
D. Watson nóbelsverðlaunahafi,
annar þeirra vísindamanna sem
uppgötvuðu byggingu DNA-erfða-
efnisins. Íslenskt lambakjöt verður
aðalréttur hátíðarkvöldverðarins.
„Explorers Club er þekkt stofn-
un en í honum er fjölmargt afreks-
fólk frá Bandaríkjunum og öðrum
ríkjum heims á sviði könnunar í
lofti, á láði og í legi sem og geim-
ferðum.
Vestur-Íslendingurinn og land-
könnuðurinn Vilhjálmur Stefáns-
son var meðal fyrstu forseta stofn-
unarinnar sem nú er rúmlega 100
ára gömul,“ segir m.a. í frétt for-
setaskrifstofunnar.
Íslandsdeild stofnuð
Íslandsdeild Explorers Club var
stofnuð á Bessastöðum 14. mars
og eru stofnfélagar 20 Íslendingar
sem tengjast fjölbreyttri vísinda-
starfsemi.
Í stjórn hennar eru Haraldur
Örn Ólafsson, Ari Trausti Guð-
mundsson, Rannveig Rist, dr.
Sturla Friðriksson og Unnur Þóra
Jökulsdóttir.
Forsetinn heiðursgest-
ur hjá Explorers Club
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt 23 ára karlmann í 14 mán-
aða fangelsi fyrir margítrekaða bíl-
þjófnaði í fyrra og félaga hans í 4
mánaða fangelsi fyrir aðild að
þjófnaði á verkfærum í Hafnarfirði.
Sá fyrrnefndi var sakfelldur fyrir
að hafa tekið á þriðja tug bíla, ekið
þeim í heimildarleysi og stolið mun-
um úr sumum þeirra. Bílana tók
ákærði á höfuðborgarsvæðinu.
Voru bílarnar skemmdir þegar að
var komið. Ákærði á að baki nokk-
urn sakaferil og rauf skilorð fyrri
dóms. Var því ekki hægt að setja
hann á skilorð að þessu sinni. Með-
ákærði sem er tvítugur á einnig að
baki sakaferil og rauf skilorð.
Ásgeir Magnússon héraðsdómari
dæmdi málið. Herdís Hallmars-
dóttir hdl. varði eldri manninn en
hinn var ekki með verjanda. Sækj-
andi var Kolbrún Ólafsdóttir frá
lögreglustjóranum í Reykjavík
14 mánaða
fangelsi fyrir
fjölda bílþjófnaða
ÞROSKAÞJÁLFAFÉLAG Íslands
skrifaði undir kjarasamninga við
Launanefnd sveitarfélaga þann 25.
febrúar og við Reykjavíkurborg
þann 4. mars sl. Báðir samingarnir
hafa verið samþykktir.
Um 98% samþykktu kjarasamn-
inginn við Launanefnd sveitarfé-
laga, en 82 voru á kjörskrá. Alls
greiddu 54 atkvæði og sögðu 53 já
en einn sagði nei. Um 83% sam-
þykktu kjarasamninginn við
Reykjavíkurborg. Alls voru 76 á
kjörskrá en 46 greiddu atkvæði. 38
sögðu já og sjö sögðu nei. Einn seð-
ill var auður og/eða ógildur.
Þroskaþjálfar
samþykkja
kjarasamninga
FRAMKVÆMDIRNAR við Hring-
braut eru á áætlun þegar á heildina
er litið, um 60% af heildarverkinu
er lokið og verklok áætluð um miðj-
an október, segir Haraldur
Tryggvason, deildarstjóri á fram-
kvæmdasviði Reykjavíkurborgar.
Nýlega hófst vinna við að steypa
tvær af þremur göngubrúm sem
liggja munu yfir Hringbraut og
tu, og er reiknað með að
þær verði tilbún í byrju sumars.
Þriðja brúin verður svo fullkláruð í
haust. Jarðvegsskipti undir Hring-
braut n i sjálfri e u langt komin,
og búið að anga frá stoðveggjum
undir Bústaðavegsbrúnni.
Verkið á áætlun
KENNARAVERKFALLIÐ olli
talsverðri röskun á störfum foreldra
grunnskólabarna skv. könnun sem
IMG Gallup gerði fyrir jafnréttisráð,
en alls segja rúm 30% foreldra rösk-
unina hafa verið mjög eða frekar
mikla. Fram kemur að talsvert
hærra hlutfall kvenna en karla varð
fyrir röskun í starfi vegna verkfalls-
ins, eða 37% á móti 27%.
Starfsdagar, vetrarfrí og aðrir
dagar þar sem börnin sækja ekki
skóla valda hinsvegar almennt mun
minni röskun á högum foreldra eins
og ætla mætti. Enda um að ræða
mun færri daga og að auki er fyr-
irvarinn oftast nokkuð langur. Alls
sögðu 11% svarenda slíka daga valda
mjög eða frekar mikilli röskun
Spurningarnar voru hluti af
spurningavagni Gallup. Úrtakið var
1.350 manns, heildarsvörun 801 eða
60,9%. Ofangreindum spurningum
svöruðu þó aðeins 247 og 203, þar
sem þeim var eingöngu beint til
þeirra sem við átti.
Verkfallið
olli röskun á
starfi hjá
30% foreldra
♦♦♦
AÐALFUNDIR Mjólkursamsölunn-
ar (MS) og Mjólkurbús Flóamanna
(MBF) samþykktu tillögur stjórna fé-
laganna um sameiningu þessara sam-
vinnufélaga mjólkurframleiðenda.
Er stefnt að sameiningu fyrir-
tækjanna undir nýrri stjórn og nýju
nafni í vor, að því er segir í frétta-
tilkynningu. Vörumerkin MS og
MBF verða áfram í notkun. Stjórnir
MS og MBF hafa óskað eftir því við
Guðbrand Sigurðsson að hann gefi
kost á sér sem forstjóri hins nýja fé-
lags og leggja til við nýja stjórn að
hann verði ráðinn forstjóri þess.
Guðbrandur hefur kynnt drög að
breyttu skipulagi MS/MBF. Þar er
gert ráð fyrir því að undir forstjóra
heyri sex stoðsvið og fjögur afkomu-
svið. Framkvæmdastjórar og for-
stöðumenn verða Guðlaugur Björg-
vinsson, Birgir Guðmundsson, Leifur
Örn Leifsson, Einar Matthíasson,
Auðunn Hermannsson og Aðalbjörg
Lúthersdóttir.
Afkomusviðin verða Mjólkurbú
Flóamanna, Mjólkursamlagið í Búð-
ardal, Mjólkursamsalan og á hinu
fjórða verða dótturfélögin Emmess
ís, Samsöluvörur, Bitruháls og
Remfló. Mjólkurbússtjórar verða
Guðmundur Geir Gunnarsson, Sig-
urður Rúnar Friðjónsson og Pétur
Sigurðsson.
Sameining
MS og MBF
samþykkt
RÚMLEGA 66% þjóðarinnar eru
mjög eða frekar hlynnt sameiningu
sveitarfélaga, ef marka má við-
horfskannanir, sem IMG Gallup,
hefur gert fyrir félagsmálaráðu-
neytið. Ríflega 22% eru á hinn bóg-
inn mjög eða frekar andvíg slíkri
sameiningu. Rúm 11% eru hlutlaus.
Greint er frá niðurstöðunum á
vefnum felagsmalaraduneyti.is.
Fram kemur á vef ráðuneytisins
að meirihluti svarenda í könnuninni
sé hlynntur sameiningu. „Í öllum
aldurshópum mælist mikill meiri-
hluti með sameiningu,“ segir enn-
fremur á vefnum.
Alls voru 1.745 spurðir í könn-
uninni á þriggja mánaða tímabili.
Svarhlutfall var 66,1%, svarendur á
aldrinum 16 til 75 ára og var notast
við slembiúrtak úr þjóðskrá.
Rúmlega 66%
hlynnt sameiningu
sveitarfélaga