Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 18
18 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands
námu í gær 11.269 milljónum króna,
mest með hlutabréf eða fyrir um
3.714 milljónir en næst mest með
ríkisbréf fyrir 3.357 milljónir. Mest
hlutabréfaviðskipti urðu með bréf
Össurar hf. eða fyrir um 2.506 millj-
ónir króna. Mesta hækkun dagsins
varð á bréfum Kögunar hf. en þau
hækkuðu um 1,5%. Bréf Og fjar-
skipta hf. lækkuðu aftur á móti mest
eða um 1,7%. Hlutabréf í helstu
kauphöllum Evrópu hækkuðu al-
mennt í gær.
Mikið verslað
með Össur
„SÚ gamalkunna aðferð við að halda
niðri verðbólgu með gífurlegum
vaxtahækkunum er sannkölluð
hrossalækning. Einu merkjanlegu
áhrifin af vaxtahækkunum Seðla-
bankans að undanförnu eru þau að
gengi íslensku krónunnar hækkar
enn,“ sagði Vilmundur Jósefsson,
formaður Samtaka iðnaðarins, á Iðn-
þingi sem haldið var í gær.
„Þótt margt hafi breyst til batn-
aðar í starfsumhverfi íslenskra fyr-
irtækja þurfum við enn að burðast
með íslensku krónuna, hina örsmáu
og óstöðugu mynt sem er sannkall-
aður gallagripur,“ sagði Vilmundur
og tiltók að undanfarinn áratug hefði
atvinnulíf okkar breyst svo um mun-
aði. „Þótt viðskiptasveiflan á Íslandi
sé orðin meira samstiga þeirri al-
þjóðlegu hafa sveiflur í þjóðarbú-
skap Íslendinga verið meiri en víða
erlendis, m.a. vegna ofþenslu og mis-
vægis í kjölfar stóriðjufjárfestinga.“
Hann sagði stóran hóp hagfræð-
inga og stjórnmálamanna vera far-
inn að átta sig á því að íslensk fyr-
irtæki gætu ekki unað við
stórkostlegar sveiflur í gjaldmiðlun-
um. Viðurkennt væri að sameiginleg
mynt gerði allt í senn, að draga úr
gengissveiflum, auka og auðvelda
viðskipti og minnka kostnað. Vil-
mundur sagði lausn vandans þekkta:
„Tökum upp evruna, sameiginlega
mynt Evrópuríkja.“
Vilmundur sagði Samtök iðnaðar-
ins hafa bent á mikilvægi hátækni-
framleiðslu enda ættu fyrirtæki sem
samnýta menntun og tækni meiri
möguleika en önnur í samkeppni á
alþjóðamarkaði. „Haldbesta leiðin til
að skapa fleiri hátekjustörf í framtíð-
inni er að efla hátæknigreinar og
auka efnahagslegan stöðugleika með
fjölbreyttari undirstöðum efnahags-
lífsins.“
Markaðstorg sprotafyrirtækja
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, boðaði í ræðu
sinni frumvarp um svokallað mark-
aðstorg sem ætlað væri að koma til
móts við þarfir sprotafyrirtækja.
„Með slíkum markaði yrði komið
skipulagi á viðskipti sem nú fara
fram utan markaða og fyrirtækjum
gert auðveldara og ódýrara að fá
skráningu en á hinum skipulega
verðbréfamarkaði. Jafnframt er með
þessu stuðlað að aukinni upplýsinga-
gjöf smærri fyrirtækja og bættum
viðskiptaháttum með hlutabréf
þeirra. Er vonast til að þessi nýi
markaður geti orðið nokkurs konar
brú á milli áhættufjárfesta og
sprotafyrirtækja,“ sagði Valgerður.
Valgerður gerði einnig stóriðju-
framkvæmdir að umtalsefni og sagði
nú talað um Ísland sem best geymda
leyndarmálið í Evrópu meðal ál-
framleiðenda. Nú þegar hefðu 6
heimsþekkt álfyrirtæki sýnt áhuga á
að fjárfesta í nýjum álverum á Ís-
landi á næstu árum. Sagði hún um-
fangsmikla markaðsvinnu á síðasta
áratug við að vekja athygli erlendra
fjárfesta á ágæti landsins til þess að
reisa orkufrekan iðnað hafa skilað
sér á undraverðan hátt.
Þurfum enn að burðast
með íslensku krónuna
Morgunblaðið/Þorkell
Best geymda leyndarmálið Valgerður Sverrisdóttir upplýsti á Iðnþingi
að sex heimsþekkt álfyrirtæki hefðu sýnt áhuga á að fjárfesta í
nýjum álverum á Íslandi á næstu árum.
& %'
(
) (
(%'
*+ )*,
!"#"$
% "&' (&
)* &# +&(&
)#&
,&' (& % "&'
-$"
-$'
$ !"#
.# /
01$/
01 !/ $ &#(
2
! 1 % "&'
3 &'
31 /&
4(&
,56& /7 &&
89$/
0%!
0" :"# 0"&'
0"1 ;
<;##  &
= && " &
>17 11 ?06($#
!
"#
(
! $"' @;//
,&' 51 % "&' <6 6
"$%
&'
AB@C
05
$
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
$; &#
; $
? ?
? ?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
D
EF
D ?EF
?
D EF
D ?EF
?
?
D EF
D EF
?
?
D ?
EF
?
D EF
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
3$ "'
'# &
< "( 5 " '# G
) 0"
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
= 5 *+
<3 H #&" !/"'
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
<3? I 1 1"'&' " "/
KAUPÞING Búnaðarbanki hf.
stækkaði um helming á síðasta ári í
kjölfar yfirtökunnar á danska bank-
anum FIH Erhvervsbank. Auk þess
varð umtalsverður innri vöxtur á
starfsemi bankans á síðasta ári.
Þetta kom fram á aðalfundi Kaup-
þings Búnaðarbanka hf. gær, sem
reyndar heitir nú Kaupþing banki
hf. en tillaga þess efnis var sam-
þykkt á fundinum. Sigurður Ein-
arsson, stjórnarformaður bankans,
sagði bankann hafa styrkt verulega
stöðu sína á lykilmörkuðum á síðasta
ári og um helmingur af tekjum
bankans hafi í fyrsta sinn komið frá
starfsemi utan Íslands.
Sigurður rakti á fundinum þau at-
riði sem höfðu hvað mest áhrif á
rekstur bankans á síðasta ári. Sagði
hann að í fyrsta lagi hefði yfirtakan á
FIH Erhvervsbank aukið stærð og
styrk bankans, enda væri Kaupþing
banki nú í fararbroddi á dönskum
fyrirtækjabankamarkaði. Sigurður
nefndi einnig góðan innri vöxt í
bankanum á síðasta ári, sem væri til-
kominn vegna samhents og hæfs
starfsfólks, góðra stjórnenda og
styrkra hluthafa sem bæru hag
bankans fyrir brjósti. Sigurður sagði
að í þriðja lagi hefði stofnun eign-
astýringarfyrirtækisins New Bond
Street Asset Management aukið
verðmæti viðskipta Kaupþings
banka og vænta mætti mikils af
þessari starfsemi í framtíðinni.
Sigurður sagði starfsemi Kaup-
þings banka á Íslandi hafa gengið
vel á síðasta ári og enn væri litið á
Ísland sem einn af lykilmörkuðum
bankans og yrði það áfram.
Fjárfestingarbankastarfsemi átti
að sögn Sigurðar hvað stærstan þátt
í velgengni Kaupþings banka á síð-
asta ári. Sagði hann að á næstu árum
yrði lögð enn meiri áhersla á al-
þjóðlega fjárfestingarbanka-
starfsemi, í ljósi alþjóðlegrar starf-
semi bankans og fjárhagslegs
styrks. Þetta ætti að geta skapað
bankanum sérstöðu á lykilmörk-
uðum hans.
Sigurður sagði gott útlit í rekstri
bankans jákvæðar horfur á lyk-
ilmörkum. Sagðist hann sannfærður
um að bankinn væri á réttri leið og
að stjórnendur hans væru stað-
ráðnir í að láta hendur standa fram
úr ermum á komandi árum.
220 þúsund króna kaupauki
Stjórn Kaupþings banka hefur
ákveðið að greiða öllum starfs-
mönnum bankans, sem ekki fá ár-
angurstengd laun, 220 þúsund króna
kaupauka fyrir vel unnin störf á síð-
asta ári.
Fundurinn samþykkti í gær að
greiða hluthöfum 3,3 milljarða króna
í arð eða um 5 krónur á hvern hlut.
Það eru um 21% af hagnaði síðasta
árs.
Stjórn Kaupþings banka var end-
urkjörin á fundinum í gær að öðru
leyti en því að Niels de Coninck-
Smith, forstjóri Ferrosan A/S í Dan-
mörku, tók sæti Peters Gatti í
stjórninni. Aðrir í stjórninni eru
Sigurður Einarsson, Hjörleifur
Jakobsson, forstjóri Olíufélagsins
ehf., Tommy Persson, forstjóri
Länsförsäkringar AB í Svíþjóð,
Gunnar Páll Pálsson, formaður
Verslunarmannafélags Reykjavíkur,
Brynja Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Norvik hf., Finnur
Ingólfsson, forstjóri VÍS, Ásgeir
Thoroddsen hrl, og Bjarnfreður
Ólafsson hdl.
Jákvæðar horfur
á lykilmörkuðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vöxtur Sigurður Einarsson ávarpar aðalfund Kaupþings banka hf. í gær.
● KAUPHÖLL Íslands hefur áminnt
Fiskmarkað Íslands hf. opinberlega
fyrir brot á reglum Kauphallarinnar.
„Málavextir eru þeir að ársuppgjör
félagsins var ekki birt fyrr en 2. mars
þrátt fyrir að stjórn hafi samþykkt
það 26. febrúar sl,“ segir í tilkynn-
ingu frá Kauphöllinni. Ennfremur
segir í tilkynningunni að félagið sé út-
gefandi hlutabréfa í Kauphöllinni og
beri því sem útgefanda að fylgja
reglum um upplýsingagjöf.
Kauphöllin áminnir
Fiskmarkað Íslands
● DANSKA fjárfestingarfélagið Will-
iam Demant Invest A/S hefur fest
kaup á 4,08% hlut í
Össuri hf. samkvæmt
flöggun í Kauphöll Ís-
lands í gær. Þar með
er hlutur William Dem-
ant orðinn 20,22% en
hann var áður
16,14%.
William Demant er nú orðinn
næststærsti einstaki hluthafi í Öss-
uri hf. en stærsti einstaki hluthafi
er sænska félagið Industrivärden
með 20,45% hlut.
Það var Mallard Holding, fyrirtæki
Össurar Kristinssonar, stofnanda
fyrirtækisins, sem seldi hlutina en
auk William Demant keypti Eyrir
fjárfestingarfélag 0,63% hlut.
William Demant eykur
hlutafé sitt í Össuri
INGVAR Kristinsson, formaður
Samtaka upplýsingafyrirtækja af-
henti á Iðnþingi í gær Valgerði
Sverrisdóttur iðnaðarráðherra
tilboð samtakanna til stjórnvalda
um að upplýsingatækni yrði meg-
instoð í verðmætasköpun og
gjaldeyristekjum Íslands árið
2010. Áætla samtökin að hreint
fjárflæði til ríkisins muni sam-
kvæmt tilboðinu nema um 3 millj-
örðum króna, þ.e. fjárfesting sé
áætluð um 2 milljarðar og hrein-
ar skatttekjur um 5 milljarðar
króna. Tilboðið hljóðar upp á að
gjaldeyristekjur af upplýs-
ingatækni verði tífaldaðar á
næstu sex árum, fari úr 4 millj-
örðum í 40 milljarða króna. Sam-
hliða er áætlað að störfum í
greininni muni fjölga um 3.000,
þar af verði allt að 2.000 ný störf.
Markmiðið er sagt að auka sölu
staðlaðra hugbúnaðarlausna sem
íslensk fyrirtæki hafa þróað og
munu þróa í framtíðinni.
Vilja tífalda gjaldeyris-
tekjur af upplýsingatækni
● HÆTT hefur verið við áform um
sameiningu Smyril Line og norska
skipafélagsins Fjord Line sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá Smyril
Line. Þess í stað munu Framtaks-
grunnur Føroya, Tryggingarfelagið
Føroyar og íslenska félagið Aust-
far fjárfesta fyrir 60 milljónir
danskra króna, sem samsvarar
tæplega 630 milljónum króna, í
rekstrinum.
Þótt hætt hafi verið við samein-
ingu félaganna tveggja eru uppi
áform um framtíðarsamstarf þeirra
í milli. Auk þess mun Smyril Line í
samstarfi við danska flutnings-
félagið Blue Water stofna nýtt
fragtskipafélag.
Jónas Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Austfars, segir að
ekki hafi náðst samningar að
þessu sinni en dyr séu enn opnar.
Óli Hammer, sem hefur verið
framkvæmdastjóri Smyril Line frá
stofnun árið 1982 hefur sagt
starfi sínu lausu. Hann var einn af
stofnendum félagins og var meðal
annars skipstjóri á ferjunni Smyrli.
„Það er kominn tími til þess að
leyfa yngri mönnum að taka við
stjórn félagsins. Ég hef verið fram-
kvæmdastjóri Smyril Line í meira
en 22 spennandi ár,“ segir Óli
Hammer í fréttatilkynningu.
Hætt við sameiningu
8 'J
0KL --(
-./
-.
E
E
!<0@
MN
/ / -.-
1-.
E
E
BB .-N
/--
2$/
1-.
-.0
E
E
)!N
8 $
0(
((-
-.
1-.
E
E
AB@N MO 4&$
0-2
-$0-
1-.
-.-
E
E