Morgunblaðið - 19.03.2005, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
SVÍÞJÓÐ er það Norðurlandanna sem mest er
heimsótt af ferðamönnum og hefur skotið Dan-
mörku ref fyrir rass, að því er fram kemur í Göte-
borgs Posten. Gistináttum hefur fækkað í Noregi og
Danmörku en fjölgað í Finnlandi og Svíþjóð. Ekki
er minnst á Ísland í frétt GP. Hlutur Svíþjóðar í er-
lendum gistinóttum á þessum fjórum Norðurlöndum
árið 2004 var 31,9% sem er örlítið meiri en hluti
Danmerkur, 31,5%. Hlutur Noregs var 22,2% og
Finnlands 14,5%.
Morgunblaðið/GolliFrá Gautaborg.
Flestir ferðamenn til Svíþjóðar
FLESTIR foreldrar þurfa að taka
börnin með sér þegar keypt er inn til
heimilisins og þá kemur sér vel að
geta sett barnið í sæti á inn-
kaupakerrunni. En þá þarf að hafa
hugfast að aldrei má skilja barnið
eitt eftir. Fyrir lítið barn að detta úr
innkaupakerru niður á steingólf
samsvarar því að fullorðinn detti of-
an af bílskúr niður á steypta stétt.
Sem skýrir hversu alvarlegir áverk-
arnir geta orðið við fall úr inn-
kaupakerru.
Í fyrravor var gerð rannsókn á
heima- og frítímaslysum barna á
aldrinum 0–4 ára sem komið höfðu á
slysadeildina árið 2003. Niðurstöð-
urnar sýndu að 5% barnanna, tæp-
lega 80 börn, höfðu slasast í versl-
unum. Einna alvarlegustu slysin
sem verða í verslunum eru fallslys
og þá flest vegna falls úr inn-
kaupakerrum. Sum þessara slysa
eru mjög alvarleg því flest börnin
hljóta höfuðáverka. Hvað geta for-
eldrar gert til að koma í veg fyrir
þessi slys?
Látið barnið alltaf sitja í þar til
gerðu sæti.
Athugið að barn sem er þyngra en
15 kíló á ekki að sitja í inn-
kaupakerru.
Börn eiga aldrei að sitja ofan í
körfunni sjálfri.
Ekki má yfirgefa smábarn eitt
augnablik í körfunni.
Veljið alltaf körfu sem er með
belti fyrir barnið, ef hún er til.
Hægt er að nota venjulegt beisli,
með smá breytingu, til að festa
barnið í sætinu.
Þegar kerra er valin er mikilvægt
að gæta þess að hjólin virki eðli-
lega.
Sé kerrunni ekið út á bílastæðið
gætið þess þá að forðast holur í
malbikinu.
Atriðin sem talin eru hér upp tengj-
ast öll slysum á börnum í inn-
kaupakerrum og með því að fara eft-
ir þessum ábendingum leggja
foreldrar og forráðamenn sitt af
mörkum til að koma í veg fyrir þessi
slys.
Hlutverk verslana
Í verslunum þarf líka átak til að
koma í veg fyrir þessi slys. Til dæm-
is mætti skilti vera í verslunum um
þessa hættu og einnig mætti fræða
starfsfólk um þetta svo það sé í
stakk búið til að benda foreldrum á
hætturnar. Mjög mikilvægt er að
verslanir sjái til þess að belti séu í
barnasætunum á innkaupakerr-
unum. Svo þarf að vera reglubundið
eftirlit með kerrunum, nokkur alvar-
leg slys má rekja til þess að kerran
var í ólagi, hjólin stóðu á sér eða að
grindin var skökk eftir að ekið hafði
verið á hana.
Nauðsynlegt er að lýsing á bíla-
stæðum og aðkoma að versluninni sé
í góðu lagi. Hálkuvörn verður að
vera en dæmi eru um að foreldrar
hafi dottið í hálku fyrir utan verslun
og við það hefur innkaupakerran
farið á hliðina og barnið kastast úr
henni. Sömuleiðis geta skemmdir og
holur í malbiki og fláa við inngang
verslana orsakað svona slys. Klaka
þarf líka að fjarlægja, því erfitt er að
keyra kerrur yfir hann sem getur
orsakað slys. Leggjumst öll á eitt til
að gera innkaupaferðina ánægjulega
og hættulausa börnum.
Morgunblaðið/Ásdís
Einna alvarlegustu slysin sem verða í verslunum eru fallslys og þá flest
vegna falls úr innkaupakerrum.
HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Lýðheilsustöð
80 börn höfðu
slasast í verslunum
Herdís L. Storgaard, verkefnastjóri
Árvekni-barnaslysavarna, Lýð-
heilsustöð.
L
íklega var það nátt-
úrufegurðin og frið-
sældin sem gerði út-
slagið,“ segir Ingibjörg
Þórhallsdóttir þegar
hún reynir að útskýra hvað það er
sem kom yfir hana og eiginmanninn,
Rúnar Karlsson, þegar þau ákváðu
að venda sínu kvæði í kross, breyta
um lífsstíl og
starfsvettvang og
flytjast til Spánar,
komin á miðjan
aldur eins og hún
orðar það.
„Við vorum
löngu búin að átta
okkur á því að lífs-
gæði felast í svo
mörgu öðru en að
eiga veraldlega
hluti. Synir okkar
eru orðnir full-
orðnir og fátt sem
bindur okkur
þannig á Íslandi.
Við höfum dvalið
töluvert í fríum á
Spáni og þar sem
við erum mikið
fyrir útivist og
hreyfingu
ákváðum við í
fyrravetur að fara
í skipulagða
gönguferð hjá
þessu ferðaþjón-
ustufyrirtæki, Els
Frares, í þorpinu
Quatretondeta í
Alicante-héraði.
Þorpið er í um klukkustundar akst-
ursfjarlægð frá Alicante-flugvell-
inum. Við vorum alveg heilluð af
þessu svæði og þegar við komumst
að því að eigendurnir voru að leita að
meðeigendum þá slógum við til, seld-
um fyrirtæki sem ég átti, sögðum
upp í vinnunni, seldum húsið og bíl-
ana og fluttum út með hundinn. Við
sáum að það var ekki seinna vænna
að gera róttækar breytingar á lífi
okkar og þarna var tækifærið kom-
ið.“
Sinna áhugamálinu í vinnunni
Ingibjörg segir að þó að þau hjónin
finni auðvitað fjárhagslegan mun á
því að fara úr hálaunastörfum á Ís-
landi í ferðaþjónustuna á Spáni þá
kemur svo margt annað í staðinn,
veðursældin, fegurðin og friðsældin
og nýr lífsstíll, að fá að vera svona
mikið úti og sinna áhugamálinu í
vinnunni eru náttúrlega óborganleg
forréttindi.
Ingibjörg bendir á að í fjalllendinu
á þessum slóð-
um séu hundruð
frábærra
gönguleiða, feg-
urðin í landslag-
inu sé ólýsanleg
og þetta litla
hótel sem þau
gistu á og eiga
nú helminginn í
hefur ótrúlegan
sjarma þar sem
það kúrir í þessu
litla 170 manna
fjallaþorpi.
Hótelið, sem
getur nú hýst 24
gesti, hyggjast
þau stækka á
árinu og einnig
veitingahúsið
sem þau reka
samhliða hót-
elinu. Veitinga-
staðurinn hefur
reyndar getið
sér gott orð og
fengið góða
dóma en mat-
reiðslan þar
miðast við að
nýta ferskt hrá-
efni úr næsta nágrenni eftir því sem
kostur er, en ferðaþjónustan til-
heyrir samtökunum „Responsible
travel“. Landið umhverfis hótelið er
gjöfult, þar eru ólífutré, möndlutré,
fíkjutré og ýmis ávaxtatré og berja-
runnar svo ekki sé nú talað um
kryddjurtirnar sem vaxa villt.
Bjóða Íslendinga velkomna
En ætla þau að bjóða Íslendingum
að taka þátt í skipulögðum göngu-
ferðum á þessu svæði?
„Já, það er meiningin. Fram að
þessu hafa Bretar verið stærsti við-
skiptahópurinn og flestir koma aftur
og aftur en okkur þætti mjög vænt
um að fá Íslendinga til okkar. Við
getum skipulagt gönguferðir við
allra hæfi, sælkeraferðir, afslöpp-
unar- og heilsuferðir og erum að
skoða hjólaferðir og hestaferðir. Við
sérsníðum svo ferðir fyrir átta
manna hópa og fleiri.“
Ingibjörg er meðal annars hjúkr-
unarfræðingur og hefur lengi starf-
LÍFSSTÍLL | Söðluðu um, sögðu upp vinnu á Íslandi, seldu húsið og
Friðsældin og
náttúrufegurðin
gerði útslagið
Þau eru rúmlega fimmtug, sögðu upp í vinnunni,
seldu húsið og bílana og keyptu helmingshlut í litlu
hóteli og ferðaþjónustufyrirtæki í 170 manna fjalla-
þorpi á Spáni. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir heill-
aðist af áræðninni og eldmóðinum.
Rúnar Karlsson og Ingibjörg
Þórhallsdóttir.
DAGLEGT LÍF