Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 41

Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 41 UMRÆÐAN Okkar bestu bo›! Vaskar og handlaugar Ver› 29.900 19.900 Ver› 29.900 19.900 Handklæ›aofnar 60 x 60 sm 60 x 120 sm Ver› 39.900 29.900 Ver› 29.900 19.900 Salerni Ver› 58.000 39.900 Ver› 24.900 19.900 Hur›irMjög gott úrval af innihur›um Spónlagt Mahony: ver› 25.900 Eik, Hlynur, Mahony, Hnota. 70, 80 og 90 sm. 19.900 Sturtuhausar Ver› frá 7.990 2.990 Margar stær›ir og ger›ir Victory sturtuklefar Ver› 92.900 49.900 Ver› 92.900 49.900 Gólfflísar Frábært úrval Ver› frá 1.790 30 x 60 sm 30 x 30 sm 45 x 45 sm Ver› 29.000 14.900 Ver› 28.900 14.900 Ver› 12.900 9.999 Ver› 15.900 9.999 Ver› 7.990 4.900 -flegar flú kaupir gólfefni Parketúrvali› er í Har›vi›arvali BEYKI 60cm 1.990 BEYKI Country 60cm BEYKI 60cm 1.990 BEYKI Natur 60cm BEYKI 60cm 1.990 ik 60cm BEYKI 60cm 3.990 Eik Tundra s ellt BEYKI 60cm 2.490 ik Natur BEYKI 60cm 2.690 Eik Rusti al Me› hljó›einangrandi undirlagi og gólflistum Vi›arfliljur Ver› 1.690 1.290 Ver› 1.600 1.290 Ver› 11.900 7.900 Ver› 19.990 9.900 Blöndunartæki Ver› frá 1.790 Veggflísar á ba›herbergi og eldhús E i n n t v e i r o g þ r í r 2 8 7 .0 4 1 13 x 260 sm 20 x 25 sm Ver› 29.000 14.900 ÚR ÞVÍ sem komið er virðist undirrituðum fyrrverandi frétta- manni á fréttastofu Útvarpsins að- eins ein lausn á fréttastjóraklúðr- inu hjá RÚV. Hún er sú, að nýráðinn fréttastjóri, Auðun Georg Ólafsson, segi sig frá starfinu og verði maður að meiri. Allir sem þekkja málið gera sér grein fyrir því, að ráðningin er fullkomin della og brot á lýðræð- islegum leikreglum, jafnvel á mælikvarða fyrri vinnubragða hins alræmda útvarpsráðs. Ég vil með þessum greinarstúf vekja sérstaka athygli á lýðræð- ishefð í flestum siðuðum löndum, sem hefur aldrei átt upp á pall- borðið hjá Íslendingum. Þessi lýð- ræðishefð gengur út á það, að ekki eigi né megi halda lokaða meiri- hlutafundi í opinberum nefndum og ráðum og taka bindandi ákvarð- anir þar án þess að minnihluti hafi hugmynd um fundinn. Upphaf fréttastjóraklúðursins var einmitt fólgið í því, að Gunn- laugur Sævar Gunnlaugsson, for- maður útvarpsráðs, tilkynnti í upp- hafi fyrirtöku dagskrárliðarins „Staða fréttastjóra útvarps“ á fundi ráðsins, að meirihluti sjálf- stæðismanna og framsóknarmanna hefði þegar ákveðið að mæla með Auðuni Georg Ólafssyni í starf fréttastjóra! Meirihluti útvarpsráðs hafði þannig greinilega haldið leynifund á bak við luktar dyr og komið sér saman um að mæla með Auðuni nema að málið hafi verið afgreitt í síma, sem er engu betra! Þessi leynifundur meirihlutans er beinlínis brot á lýðræðislegum leikreglum og aðferð til að koma sér hjá opinni umræðu í útvarps- ráði, þar sem fundir eru færðir til bókar. Víðast í Bandaríkjunum t.d. færu slíkir leynifundir meirihluta opinberra nefnda eða ráða gegn lögum um opna fundi og lýðræð- isleg vinnubrögð og eru bannaðir. Klúður númer tvö var að minni- hlutinn skyldi ekki mæla með ein- hverjum þeirra fimm fréttamanna, sem Bogi Ágústsson, for- stöðumaður fréttasviðs RÚV, taldi hæfasta eða í það minnsta vísað í bókun sinni í að fara bæri eftir því faglega mati um umsækjendur, sem lægi fyrir fundinum. Þannig hefði útvarpsstjóri haft valkost, sem hefði gert honum auðveldara að komast að rökréttri niðurstöðu í stað þess að skýla sér á bak við falsrök og gefa skít í eðlilegan framgangsmáta starfsmanna hjá RÚV, þ.e. eðlilegt mat á starfs- reynslu og virða eðlilegar frama- vonir starfsmanna. Þessi klaufaskapur minnihlutans afsakar þó í engu ákvörðun Mark- úsar Arnar Antonssonar, sem var í lófa lagið að velja einn hinna fimm hæfustu skv. mati Boga Ágústs- sonar, sem reyndar hefði mátt vera skorinorðari í umsögn sinni um þá hæfustu. Pólitíkin í þessu máli er augljós, sama hvað framsóknarmenn og sjálfstæðismenn segja um það mál. Það skiptir engu hvort viðkomandi maður er í Framsóknarflokknum eða Sjálfstæðisflokknum. Það sem er hér á ferð er að tiltekinn um- sækjandi, sem er langt frá því að vera hæfastur, fær stuðning tiltek- inna pólitískra afla og á að sitja í skjóli þeirra. Þeir sem hafa reynt að verja ákvörðun Markúsar Arnar Antons- sonar útvarpsstjóra hafa gjarnan sagt að farið hafi verið að lögum. Það má svo sem vel vera, þótt hæglega hefði mátt komast hjá þessari dómadags- vitleysu. Nú eiga fleyg orð við sem aldrei fyrr: Ákvörðunin var lögleg en siðlaus og þeim sem að henni stóðu til ævarandi skammar. Hér skal tekið lítið dæmi um viðbrögð Andr- ésar Björnssonar, fv. út- varpsstjóra, rólyndis- manns, sem blöskraði hvernig meirihluti útvarpsráðs tók sig sam- an einu sinni sem oftar og hafnaði reyndasta umsækjandanum um starf fréttamanns. Þetta var fyrir fjölmörgum árum. Þessi umsækjandi var reyndar lausráðinn frétta- maður og nokkrum mánuðum síðar sótti hann um aft- ur, þegar önnur staða staða losnaði. Til að koma í veg fyrir, að þessi um- sækjandi yrði út- skúfaður aftur, greip Andrés til þess fáheyrða ráðs að standa upp í byrjun útvarps- ráðsfundar, þar sem hann tilkynnti ráðinu, að hann hygðist ætla að ráða „útskúfaða“ fréttamanninn, hvernig svo sem at- kvæði féllu! Útvarpsráðsmenn misstu málið, móðguðust og við atkvæðagreiðsl- una sátu þeir hjá og viðkomandi fréttamaður, sem Andrés ætlaði að ráða, fékk eitt atkvæði í ráðinu! Þetta dæmi sýnir, að útvarps- stjóri hefur ýmis ráð í ráðning- armálum og þarf aldeilis ekki að liggja kylliflatur fyrir meirihluta útvarpsráðs. (Til öryggis skal tekið fram, að hér er ekki verið að varpa rýrð á Auðun Georg, sem er sjálfsagt hinn vænsti piltur. Samkvæmt því lofi sem á hann hefur verið hlaðið ætti hann að vera búinn að átta sig á því, að hann á ekki skilið starf fréttastjóra og ætti að hafa vit á að bjarga eigin sálarheill, afþakka starfið og komast hjá þeirri kvöl og pínu, sem annars bíður hans á fréttastofunni). Ólýðræðislegt pólitískt klúður Halldór Halldórsson fjallar um fréttastjóramálið á RÚV ’Ákvörðunin var löglegen siðlaus og þeim sem að henni stóðu til ævar- andi skammar.‘ Halldór Halldórsson Höfundur er blaðamaður og fv. frétta- maður á útvarpinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.