Morgunblaðið - 19.03.2005, Síða 48
48 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Barnastarfið
í Selfosskirkju
BARNAGUÐSÞJÓNUSTA er hald-
in í Selfosskirkju á hverjum sunnu-
degi kl. 11.15. Guðspjall dagsins er
útlistað í máli og myndum, bænir
kenndar, sálmar og barnasöngvar
sungnir og sögur sagðar.
Aðsókn að þessum sam-
verustundum hefur aukist jafnt og
þétt að undanförnu. Börnin fá
verðlaun, þegar ákveðnu sókn-
armarki er náð.
Sérstök ástæða er til þess að
benda á, að barnastarfið í Selfoss-
kirkju heldur áfram til vors, og
það jafnt fyrir því, þótt ferming-
armessur verði sungnar í kirkj-
unni frá 20. mars og allt fram í
maímánuð. Barnaguðsþjónust-
urnar falla því ekki niður þessar 8
til 10 vikur.
Athafnirnar fara fram í lofti
Safnaðarheimilis Selfosskirkju og
best er að ganga þangað upp úr
anddyri á suðurhlið kirkjunnar.
Ég vil leyfa mér að benda for-
eldrum, og sömuleiðis öfum og
ömmum, á þessar ánægjulegu sam-
verustundir. Ég hvet alla aðstand-
endur ungra barna til þess að taka
þátt í hinu uppbyggilega starfi.
Það eru þær Eygló J. Gunn-
arsdóttir, djákni, og cand. theol.
Guðbjörg Arnardóttir, sem hafa
veg og vanda af guðsþjónustum
barnanna í Selfossprestakalli, auk
þess sem Sigfús Ólafsson, tónlist-
arkennari, leikur undir sönginn
með mikilli hind. Hittumst heil!
Gunnar Björnsson,
sóknarprestur.
Davíð Oddsson les 50.
og síðasta Passíusálm
í Grafarvogskirkju
„Á LEIÐINNI heim“ er helgistund
í Grafarvogskirkju alla virka daga
föstunnar kl. 18:00. Lestrarnir hóf-
ust 9. febrúar og verða út föstuna
21. mars les Valgerður Sverr-
isdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra. 22. mars les Björgvin G.
Sigurðsson alþingismaður. 23.
mars les Davíð Oddsson utanrík-
isráðherra.
Passíusálmarnir verða svo lesnir
í Grafarvogskirkju á föstudaginn
langa þann 25. mars kl. 13:30–
19:00. Læknar lesa. Milli lestra er
tónlistarflutningur. Hörður Braga-
son á píanó, Hjörleifur Valsson á
fiðlu og Birgir Bragason á bassa.
Grafarvogskirkja.
Æðruleysismessa
í Dómkirkjunni
Á SUNNUDAGINN kl. 20 er
Æðruleysismessa í Dómkirkjunni.
Þar verður leikið á trúarstrengi
hlýleikans að vanda. Um tónlistina
sjá Gunnar Gunnarsson píanóleik-
ari og organisti og með honum í
liðssveit verða Tómas R. Einarsson
á kontrabassa og Þorvaldur Þor-
valdsson syngur einsöng og leiðir
hann einnig almennan söng Séra
Jakob Ágúst Hjálmarsson flytur
hugleiðingu og sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir leiðir bæn. Samkom-
unni stýrir sr. Hjálmar Jónsson.
Þessi kvöldmessa dregur nafn
sitt af svonefndri Æðruleysisbæn:
Guð gefi mér æðruleysi til að
sætta mig við það sem ég fæ ekki
breytt, kjark til að breyta því sem
ég get breytt og vit til að greina
þar á milli.
Þeir sem geta tekið undir þessi
bænarorð geta líka gert sér ferð í
Dómkirkjuna á sunnudagskvöldið
kl. 20.
Verið velkomin.
Þorvaldur
í Seljakirkju
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 20. mars
verður guðsþjónusta kl. 20 í Selja-
kirkju. Sr. Bolli Pétur Bollason
þjónar að orði og borði. Tónlistin
er í umsjá Þorvaldar Halldórs-
sonar. Verið velkomin.
Kolaportsmessa
HELGIHALD þarfnast ekki hús-
næðis heldur lifandi fólks. Kirkja
Jesú Krists er ekki steypa, heldur
lifandi steinar, manneskjur af
holdi og blóði. Þess vegna er hægt
að fara út úr kirkjubyggingum
með helgihald og fagnaðarerindið
og mæta fólki í dagsins önn.
Í tilefni af því bjóðum við til
guðsþjónustu í Kolaportinu næsta
sunnudag 20. mars, Pálmasunnu-
dag, kl. 14:00. Jóna Hrönn Bolla-
dóttir miðborgarprestur flytur
hugleiðingu og þjónar ásamt Irmu
Sjöfn Óskarsdóttur presti og verk-
efnastjóra á Biskupsstofu.
Tónlistarmaðurinn Þorvaldur
Halldórsson mun leiða lofgjörðina
og Laufey Geirlaugsdóttir mun
syngja einsöng. Þá er hægt að
leggja inn fyrirbænarefni til þeirra
sem þjóna í guðsþjónustunni áður
en stundin hefst.
Í lok guðsþjónustunnar verður
blessun með olíu. Guðsþjónustan
fer fram í kaffihúsinu Kaffiport í
Kolaportinu, þar er hægt að kaupa
sér kaffi og dýrindis meðlæti og
eiga gott samfélag við Guð og
menn.
Það eru allir velkomnir.
Miðborgarstarf KFUM&K og
Þjóðkirkjunnar.
Páskaeggjabingó
í Grafarvogskirkju
HIÐ ÁRLEGA páskaeggjabingó á
vegum Safnaðarfélags Grafarvogs-
kirkju verður haldið í safnaðarsal
kirkjunnar mánudaginn 21. mars
kl. 20:00.
Vinningar eru sem fyrr páska-
egg af mörgum stærðum. Verð á
bingóspjöldum er kr. 200. Mætum
öll í páskaskapi og tökum alla fjöl-
skylduna með.
Stjórnin.
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Selfosskirkja
Elsku Hafdís vin-
kona mín, þú hefðir
orðið 28 ára í dag, 19.
mars.
Ég hugsa til þín
með söknuði og sorg.
Mér finnst svo sárt að hafa ekki
getað haldið í hönd þína síðustu
stundina. Mér finnst svo sárt að
hafa ekki getað kvatt þig og fylgt
þér síðasta spölinn á þessari jörð.
En það er nú bara þannig að að-
stæður ráða oft meira en maður
HAFDÍS LÁRA
KJARTANSDÓTTIR
✝ Hafdís LáraKjartansdóttir
fæddist í Keflavík 19.
mars 1977. Hún lést
á Landspítalanum í
Fossvogi 16. febrúar
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Keflavíkurkirkju
25. febrúar.
óskaði sjálfur. En sár-
ast finnst mér þó að
hafa ekki getað eytt
fleiri stundum með þér
og börnunum þínum
yndislegu, Kolfinnu
Björk og Sindra Frey,
og kynnst þínu nýja
lífi með Begga. Því eft-
ir að ég flutti til Nor-
egs fyrir 7 árum síðan
hittumst við alltof
sjaldan. En er ég þó
þakklát fyrir að við
héldum reglulega sam-
bandi. Og er ég ævin-
lega þakklát honum
Begga fyrir að hafa verið svona
góður við þig því þú áttir alla þá
lukku og hamingju skilið. Guð
blessi þig, Beggi.
Minningarnar streyma fram frá
því í gamla daga. Við höfðum alltaf
svo gaman og þú varst án efa fjör-
ugasta og skemmtilegasta mann-
eskja sem ég hef nokkurn tímann
kynnst. Það var aldrei lognmolla í
kringum þig og við vorum alltaf að
bralla eithvað sniðugt. Mér er sér-
staklega minnisstætt þegar þú
komst einu sinni heim til mín í æs-
isham hoppandi og hrópandi að þú
hefðir hitt hljómsveitarmeðlimina
úr Guns’n Roses. Við, sérstaklega
ég, héldum svo uppá þá. En ég trúði
þér ekki því þú varst alltaf svo mik-
ill spaugari og djókari, ekki fyrr en
mamma þín elskuleg, blessuð sé
minning hennar, staðfesti það. Ég
varð alveg græn úr öfund en um
leið þá unni ég þér að sjálfsögðu
þessa gleðistund. Síðan þá hugsa ég
alltaf til þín þegar ég heyri í þeim
og mun alltaf gera.
Minningarnar eru svo margar,
Hafdís mín, og mun ég varðveita
þær í hjarta mínu um alla eilífð. Þú
varst svo falleg og tignarleg og
hafðir ótrúlega útgeislun, góðhjört-
uð varstu og traust vinkona.
Elsku Hafdís mín, nú kveð ég þig
með tárvot augu og sorg í hjarta,
vertu blessuð í bili.
Svava Sandra.
✝ Freddý FriðrikÞórhallsson
fæddist í Reykjavík 6.
ágúst 1979. Hann lést
í Grindavík fimmtu-
daginn 10. mars síð-
astliðinn. Foreldrar
hans eru Fanný
Laustsen, f. 26.7. 1948
og Þórhallur Stefáns-
son, f. 16.2. 1945. For-
eldrar Fannýjar eru
Sigurlín Andrésdótt-
ir, f. 26.9. 1924 og
Freddý Laustsen, f.
17.8. 1916. Foreldrar
Þórhalls voru Sigríð-
ur Guðmundsdóttir, f. 18.2. 1911,
d. 27.6. 1997 og Stefán Guðnason
frá Karlskála við Reyðarfjörð, f.
13.8. 1903, d. 8.3. 1976. Systkini
Freddý eru: a) Arnfríður Eva Jóns-
dóttir, f. 2.9. 1965, maki Atli Örn
Jónsson, f. 8.10. 1960. Synir þeirra
eru Daníel Örn og Andri Þór. b)
Þór Fannar Þórhalls-
son, f. 26.2. 1970,
sambýliskona Suz-
anne Bieshaar, f. 4.4.
1974. Sonur þeirra er
Willum Stefán. c)
Melkorka Dögg Þór-
hallsdóttir, f. 22.6.
1978. d) Heiðar Þór-
hallsson, f. 21.6.
1970, sambýliskona
Ragnheiður Ásgeirs-
dóttir, f. 6.3. 1978.
Sonur Heiðars er Al-
exander.
Freddý fæddist í
Reykjavík en bjó síð-
an í Grindavík, að undanskildum
tveimur árum sem fjölskyldan bjó
á Akureyri. Hann starfaði hjá ýms-
um fyrirtækjum í Grindavík og á
Keflavíkurflugvelli.
Útför Freddý verður gerð frá
Grindavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Þú ert fallegur, blíður og bestur.
Ekki hefði verið hægt að eignast
meiri ljúfling en þig. Þú verður allt-
af í hjartastað okkar þaðan sem
enginn getur tekið þig í burtu,
elsku englabossi. Drottinn almátt-
ugur leiði þig í ljós kærleiks og frið-
ar.
Þú hvarfst mér eins og lítið fagurt ljós,
sem lítið sólarbros, er kom og fór,
sem bliknað lauf, er blöðin fellir rós,
sem blóm,er hylur kaldur vetrarsnjór.
Þú komst og fórst sem óorkt æskuljóð,
en eftir varð hin sára, ljúfa þrá.
Eg geymi þig í mínum minjasjóð,
en mun þig aldrei – aldrei framar sjá.
(Margrét Jónsdóttir.)
Við elskum þig að eilífu.
Mamma og pabbi.
Já. Þannig er lífið;
æ hverfult og undarlegt.
Í dögun það ljúflega leikur við þig
– svo leggst yfir myrkur …
Og víst er erfitt að
eiga ekki ljósið lengur sitt,
og engan samastað.
Á ögurstundu virðast sundin lokuð.
En lífið, það heldur þó áfram, viti menn.
Og sólin mun baða geislum að morgni.
Og nýr eldur mun loga glatt og senn.
Fram streymir.
– En allir eiga sér drauma.
Já. Þannig er lífið;
lygnt haf eða ólgusjór.
Það ber ekki allt upp á sama dag.
Hve sárt er að sakna …
(Stefán Hilmarsson.)
Ég kveð þig, elsku Freddý, með
þessum línum sem mér finnst segja
svo margt.
Þær veita mér huggun og trú á
að nú sértu kominn á þann stað þar
sem ljósið er eilíft.
Þar munu draumar þínir rætast.
Arnfríður (Addý systir).
Fimmtudagurinn 10. mars sl.
rann upp bjartur og fagur. Ekkert
benti til þess að hann yrði eitthvað
sérstakur eða frábrugðinn hefð-
bundnum sunnudegi. Það breyttist í
einni svipan. Fregnin um að Freddý
frændi minn hefði dáið um nóttina
breytti því. Birtan breyttist, sorg-
armistur lagðist yfir. Við stóðum
hnípin og ráðalaus.
Freddý var ljúfur og elskulegur,
átti sinn vinahóp, kannski ekki svo
stóran en því tryggari og traustari.
Hann var fríður sýnum og brosið
hans var svo einlægt. Við spyrjum
okkur samt enn, var þar kannski
líka einhver depurð og þreyta? Eitt
er víst að sjúkleiki sá er varð hon-
um að aldurtila er einn sá versti og
erfiðasti viðureignar sem maðurinn
á við að glíma. Við munum Freddý
sem lítinn dreng – ungling – ungan
mann. Návistin við hann framkall-
aði kærleika og hjartahlýju, honum
fylgdi góð ára. Þungur harmur er
að foreldrum hans kveðinn, systk-
inum. Frændfólki og vinum. Við
biðjum góðan Guð að blessa ykkur
öll og styrkja í þungri sorg.
Sólin rís á ný með birtu og yl og
sorgin sem nú er svo sár breytist
með tímanum í ljúfar minningar
sem enginn fær frá okkur tekið.
Með hughreystandi kveðju.
Guðni frændi og Guðbjörg.
Það liggur við að maður hafi
heyrt í ljá hins slungna sláttumanns
sem engu blómi hlífir. Það einhvern
veginn slökknaði á deginum. Elsku
Freddý, ég man svo vel þegar við
vorum uppi á lofti hjá ömmu Terrý
og allir voru búnir að glíma við
naglaþrautina sem engum tókst að
leysa, en þú þurftir bara aðeins að
horfa á hana og á augabragði varstu
búinn að leysa hana, eins þýddi lítið
að gera við þig spilagaldur, þú sást
við honum um leið. Þess vegna
botnar maður ekkert í því að
þrautakóngurinn sjálfur hafi tapað
fyrir lífsins þraut. En við vorum
heppin og allir þeir sem fengu að
upplifa þann frábæra mann sem að
Freddý hafði að geyma.
Elsku Melkorka og fjölskylda.
Þótt ég finni til frá dýpstu hjarta-
rótum, þá er lífsins ómögulegt að
setja sig í ykkar spor. Megi góður
guð vera með ykkur í þessari miklu
sorg sem ristir svo djúpt.
Teresa Bangsa.
Elsku Freddý.
Ég man þegar við hittumst fyrst.
Þú fékkst að horfa á okkur spila, þú
sast út í horni og fylgdist með af
áhuga, allt í einu út af engu fékkstu
óstöðvandi blóðnasir, þú fékkst smá
bréf sem þú settir fyrir nefið og
hélst áfram að horfa. Stuttu eftir
það byrjaðir þú að spila með okkur
og varst einn af mínum bestu vin-
um.
Þú varst fyndinn, náðir alltaf að
láta mig hlæja og svo varstu fullur
af fróðleik sem enginn af okkur
hafði hugmynd um og frábær spila-
félagi.
Þú varst æðislegur vinur og ég
mun ávallt sakna þín.
Brynjar Davíð Þorsteinsson.
Elskulegan Freddý sá ég fyrst á
Fæðingarheimilinu í Reykjavík í
ágúst 1979 þar sem við Fanný lág-
um á sama tíma með strákana okk-
ar. Við fundum fljótlega út að við
værum tengdar þar sem við
Þórhallur erum bæði ættuð frá
Karlskála við Reyðarfjörð. Ég bjó
lengi erlendis en eftir nokkur ár hér
heima, ákvað ég að flytja til Grinda-
víkur. Þar rekst ég aftur á Fanný
og fannst okkur ánægjulegt að leið-
ir okkar skyldu liggja saman á ný.
Hún sagði að þau hjónin hafi ætlað
að dvelja þar í eitt til tvö ár, en nú
væru þau orðin 20! Kynni okkar
Freddý voru stutt á fæðingardeild-
inni en þarna fékk ég tækifæri til
að kynnast honum betur. Ég fann
aldrei annað en mikinn hlýleik frá
honum og ógleymanlegt bros. Það
var mér ómetanlegt að hafa fjöl-
skylduna mér við hlið á stað þar
sem ég þekkti engan fyrir. Und-
anfarin ár hefur Freddý þjáðst af
sykursýki sem tók sinn toll af heilsu
hans og þoli. Ég sá hann síðast þeg-
ar hann kom til mín að sækja bíl-
lyklana en hann hafði boðist til að
draga snjófastan bílinn minn ásamt
föður sínum og kvaddi mig með
sínu blíða brosi.
Guð blessi minningu þessa ljúfa
drengs.
Helga Guðmundsdóttir.
FREDDÝ FRIÐRIK
ÞÓRHALLSSON
KIRKJUSTARF