Morgunblaðið - 19.03.2005, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 63
DAGBÓK
FRÍMERKJAKAUP
Notuð íslensk frímerki á pappír óskast. Klippið frímerkin
af umslögunum og sendið þau til okkar. Við borgum ca
2 krónur á stk., upp að ca 10 þúsund kg.
Scandinavian Philatelic Company
P.O. Box 61, DK-3940 Paamiut, Grænland.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
TVÆR ÍBÚÐIR
Skólavörðurstígur 28 - tvær hæðir og ris
Efri hæð og ris
5 herb 123 fm hæð ásamt risi í fallegu húsi, teiknuðu af Guðjóni Samúelssyni.
Hæðin skiptist í stofu, 4 herbergi, þar af eitt forstofuherbergi, eldhús, búr og
snyrtingu. Verð 29,9 millj.
Neðri hæð og bílskúr
5 herbergja neðri hæð ásamt litlum 16,5 fm bílskúr (geymslu). Hæðin skiptist í
stofu, 4 herbergi, þar af eitt forstofuherbergi, eldhús, búr og snyrtingu.
Í íbúðunum er mikil lofthæð og eru gifslistar í loftum. Hæðirnar hafa verið nýttar
sem skrifstofuhæðir og bjóða upp á mikla möguleika. Verð 25,5 millj. 4849
OPIÐ HÚS VERÐUR SUNNUDAGINN 20. MARS KL. 13.00-15.00.
Dansleikur í kvöld
í Ásgarði, Glæsibæ
Hljómsveit Hjördísar Geirs
leikur gömlu og nýju dansana
frá kl. 22 til 02
Mætum öll með góða skapið
Glæsibær, Álfheimum 74, sími 568 0600
Vantar Smart og Sisu
Á SELFOSSI er hannyrðaversl-
unin Skrínan og veit ég að mjög
margir eru óánægðir með að þar
skuli ekki fást garntegundirnar
Smart og Sisu. Þessar tvær teg-
undir eru mikið notaðar eins og allir
vita og þar sem þetta er hann-
yrðaverslun finnst mér að þetta
ætti að vera til þar. Að vísu fæst
þetta í prjónahorninu í Nóatúni en
þar er ekki mikið úrval af litum.
Ég skora á innflytjendur og
Verslunina Skrínuna að bæta úr
þessu og hafa þessar vörur til sölu.
230642-3549.
Sviðin á Hvammstanga
Í FRÉTT segir að sviðin á
Hvammstanga seljist ekki. Unga
fólkið vill ekki svið. Á elliheimilum í
landinu eru hrundruð gamalmenna
sem fegin vildu fá svið í matinn.
Lofið okkur gamla fólkinu að fá svið
og rófur í matinn.
Virðingarfyllst,
Sigurveig Guðmundsdóttir,
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Framsókn og ESB
LJÓST er að skiptar skoðanir eru
orðnar á afstöðu framsóknarmanna
til Evrópusambandsins (ESB), ef
marka má niðurstöðu flokksþings
Framsóknarflokksins nýverið. Vek-
ur þetta furðu, ekki síst þegar horft
er til þess úr hvaða jarðvegi flokk-
urinn er sprottinn, og hvert hann
hefur löngum sótt fylgi sitt.
Hinir fjölmörgu andstæðingar að-
ildar að ESB og sem stutt hafa
Framsóknarflokkinn í þeirri góðu
trú að þar væri á ferð ábyrgur og
þjóðlegur stjórnmálaflokkur, hljóta
því nú að íhuga alvarlega stuðning
sinn við flokkinn, ef fram heldur
sem horfir. Menn hljóta að skipa sér
í stjórnmálaflokka m.a. eftir því
hver stefna þeirra er í Evrópu-
málum. Spurningin um aðild Ís-
lands að ESB á eftir að verða eitt
stærsta pólitíska hitamálið á Íslandi
á komandi árum. Verður Ísland
áfram frjálst og fullvalda ríki, með
óskert yfirráð yfir sínum dýrmætu
auðlindum? Eða verður það lítil
áhrifalaus hjáleiga í komandi Sam-
bandsríki Evrópu? Um þetta verður
hart tekist á í íslenskum stjórn-
málum næstu ár.
Guðm. Jónas Kristjánsson,
Funafold 36, Rvík.
Kettlingar fást gefins
TVÆR yndislegar kisustelpur, 8
vikna, óska eftir góðu framtíð-
arheimili. Upplýsingar í síma
553 7054 og 861 2646.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Tónlistarleikhúsið Hugstolinn, eða Spell-bound – The Raven Rhapsody, hefur lagtupp í fyrsta áfanga sýningarferðalags tilNorðurlanda. Fyrsti viðkomustaður er
Færeyjar en þar verður sýningin færð upp í Norð-
urlandahúsinu á morgun. Í september mun hóp-
urinn síðan halda í síðari hluta ferðarinnar, til
Grænlands og Álandseyja.
Að sögn Kristínar Mjallar Jakobsdóttur verk-
efnisstjóra hlaut Operarctic-leikhópurinn, sem
stendur að sýningunni, styrk frá Norræna menn-
ingarsjóðnum til ferðalagsins og mun sýna Hug-
stolinn í samvinnu við Norrænu stofnanirnar í
Þórshöfn, Nuuk og Mariehamn.
Hvað er Hugstolinn?
„Hugstolinn er tónlistarleikhússýning – musical
drama – eftir franska leikstjórann Janick Moisan
við tónlist íslenskra og norrænna tónskálda. Sýn-
ingin er hugverk hennar, byggð á upplifun hennar
á náttúru Íslands, sögnum og dulhyggju norð-
urslóða. Hún er unnin í samvinnu við Sigurð Hall-
dórsson, tónlistarstjóra verksins, tónskáld og flytj-
endur en þar er tvinnað saman þjóðlegum stefjum
og tónverkum samtímatónskálda. Úr spinnst
töfrandi þráður um dulrænan þroskaferil ungrar
stúlku sem nýtur aðstoðar tveggja furðufugla,
Hugins og Munins.
Flytjendur eru altsöngkonan Marta Hrafns-
dóttir, Sigurður Halldórsson á selló, og Daníel Þor-
steinsson á píanó. Leikmynd, leikmunir og bún-
ingar eru hönnuð af Rannveigu Gissurardóttur og
lýsingu annast Benedikt Axelsson. Janick Moisan
er leikstjóri og Sophie Khan er dramatúrg.“
Hvar hefur verkið verið sýnt áður?
„Tónlistarleikhússýningin Hugstolinn var frum-
sýnd á síðustu Listahátíð í Reykjavík, á Nýja sviði
Borgarleihússins í samstarfi við Leikfélag Reykja-
víkur. Hún var endursýnd í nóvember í tenglsum
við Fjórða ráðherrafund Norðurskautsráðsins.
Síðast var hún sýnd í Belgíu, á tónlistarhátíðinni
Etoiles Polaires (Pólstjörnur) í desember á veg-
umVooruit Kunstencentrum í Gent, og fyrir tilstilli
Listahátíðar í Reykjavík og Evrópuverkefnisins
Menning 2000.
Þess má einnig geta að í tengslum við sýningar-
ferðalagið verður unnið að gerð heimildarmyndar.
Stephané Labat, doktor í mannfræði og sérfræð-
ingur í shamanisma, mun ásamt aðstoðarmönnum
festa sýninguna á filmu og líf þátttakenda á ferða-
laginu.“
Tónlist | Tónlistarleikhússýningin Hugstolinn á leið í ferðalag um Norðurlönd
Dulræn þroskasaga
Kristín Mjöll Jakobs-
dóttir er fædd í Reykja-
vík árið 1965. Hún út-
skrifaðist sem fagott-
leikari frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík
árið 1987 og lauk mast-
ersgráðu frá Yale-há-
skóla í Bandaríkjunum
árið 1989.
Kristín Mjöll starfar
við fagottleik og
-kennslu, situr í stjórn FÍT og hefur verið verið
verkefnisstjóri fyrir ýmis tónlistarverkefni.
Hún á eina dóttur, Halldóru.
Íslandsmótið.
Norður
♠--
♥ÁG984
♦ÁKD84
♣K42
Vestur Austur
♠863 ♠107542
♥D1065 ♥2
♦G1095 ♦762
♣G6 ♣10985
Suður
♠ÁKDG9
♥K73
♦3
♣ÁD73
Spil dagsins er frá 7. umferð Ís-
landsmótsins. Alslemma í grandi lítur
vel út í NS, en hún var þó aðeins meld-
uð á 15 borðum af 40. Skýringin liggur
í fjarveru hjartadrottningarinnar –
hjartað er eini hugsanlegi tromplit-
urinn og þeir svartsýnu fundu það út
að vörnin var með drottninguna og létu
því sex hjörtu duga án þess að íhuga
möguleikann á þrettán slögum í
grandi.
En hvernig á að spila sjö grönd með
tígulgosa út?
Sagnhafi byrjar með 12 örugga slagi
og möguleika á viðbót í öllum litum.
Hins vegar er alls ekki einfalt að finna
leið sem tryggir 13 slagi í öllum legum.
Spilið rekur sig þó að mestu leyti sjálft:
Sagnhafi drepur á tígulás, spilar laufi
heim og tekur fjóra efstu í spaða. Úr
borði fara tvö hjörtu, einn tígull og eitt
lauf, en vestur hendir einu hjarta.
Næst er laufi spilað á kóng blinds og
KD í tígli tekin. Heima hendir sagnhafi
fyrst einu hjarta, síðan spaðaníu, sem
hefur þá lokið hlutverki sínu sem hót-
urnarspil. Hjarta er svo spilað á kóng
og laufið prófað. Ekki fellur það, en
vestur hefur neyðst til að henda hjarta,
svo hjartadrottningin skilar sér sjálf-
krafa. Reyndar sannast svíningin, því
austur er upptalinn með skiptinguna 5-
1-3-4. En með þessari tímasetningu
myndi slemman líka vinnast þótt blind-
ur væri með hund í hjarta í staðinn fyr-
ir gosann.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
70 ÁRA afmæli. Í dag, 19. mars, ersjötugur Stefán Karlsson,
vörubílstjóri, Borgarholtsbraut 39,
Kópavogi. Eiginkona hans er Karen
Karlsson. Þau verða heima síðdegis.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Félagsstarf
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur sunnudagskvöld Caprí-tríó leikur
fyrir dansi frá kl. 20.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Gönguhópur, létt ganga um nágrennið,
allir velkomnir, lagt af stað frá Kirkju-
hvoli kl. 10.30.
Gerðuberg | Félagsstarf. Opið er mán.,
þri. og mið. í næstu viku kl. 9–16.30 m.a.
vinnustofur og spilasalur, kóræfingar
falla niður mán. og mið. að afloknu
páskaleyfi kl. 14.30 mið. 30. mars.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Gönguhópur Háaleitishverfis
fer frá Hæðargarði 31 alla laugardags-
morgna hvernig sem viðrar. Boðið upp
á teygjuæfingar og vatn að göngu lok-
inni. Tilvalin samverustund fyrir alla
fjölskylduna. Upplýsingar í síma 568–
3132.
Kirkjustarf
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bæna-
stund alla laugardag kl. 20. Einnig er
bænastund alla virka morgna kl. 7–8.
Allir velkomnir.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
FYRSTA sýning ársins í menningarmið-
stöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði verður
opnuð í dag kl. 17.
Sýningin er samstarfsverkefni Skaft-
fells, Dieter Roth-akademíunnar og
Listaháskóla Íslands. Er þetta í fimmta
sinn sem nemendum Listaháskólans
gefst kostur á að nýta sér þá aðstöðu
sem bærinn hefur upp á að bjóða. Vél-
smiðjan Stálstjörnur, Netagerð Friðriks
Vilhjálmssonar hf., trésmiðir og aðrir at-
hafnamenn á Seyðisfirði hafa verið nem-
endunum innan handar sem faglegir leið-
beinendur.
Heiti sýningarinnar, „Austrumu kon-
takts,“ vísar í upplifun listafólksins á um-
hverfi Seyðisfjarðar og eru verkin unnin í
ólíka miðla, allt frá akademískum teikn-
ingum til myndbands og gjörningalistar.
Þeir listamenn sem sýna á „Austrumu
Kontakts,“ eru Heiða Harðardóttir, Hye
Joung Park, Karl Ómarsson, María Kjart-
ansdóttir, Ólöf Helga Helgadóttir og
Sunna Guðmundsdóttir frá Íslandi, Ilze
Zaceste og Zile Davidsone frá Lettlandi.
Listamennirnir kunna að sögn vel við
sig á Seyðisfirði og fyrir utan daglega
listsköpun stytta þeir sér stundir á
kvöldin með gamansögum og leikjum
undir dyggri handleiðslu Björns Roth.
„Austrumu Kontakts“ á Seyðisfirði