Morgunblaðið - 19.03.2005, Side 66
66 LAUGARDAGUR 19. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
BÁRA K. Kristinsdóttir hefur
starfað sem auglýsinga- og iðn-
aðarljósmyndari um árabil en
einnig sýnt ljósmyndir í listrænu
samhengi, hún hefur haldið einka-
sýningar og tekið þátt í samsýn-
ingum en sýningin Heitir reitir er
fyrsta stóra listræna verkefni
hennar í nokkurn tíma. Myndefni
Báru er gróðurhús og í blátt áfram
og upplýsandi bæklingi með sýn-
ingu sinni segir hún frá vinnunni
við sýninguna, frá tækninni sem
hún notaði og fram kemur að hún
ferðaðist vítt og breitt um landið
til að taka myndir. Sýningin er öll
unnin eingöngu á filmu, engin staf-
ræn tækni er notuð.
Heitir reitir er heillandi sýning,
myndir Báru birta fjölbreytilegan
heim og hver þeirra segir sína
sögu. Viðfangsefni hennar býr yfir
miklum möguleikum en það þarf
líka næmt og reynt auga til að
fanga þau augnablik sem hún ger-
ir. Gróðurhús eru sérstakt fyr-
irbæri og búa yfir ákveðnum töfr-
um, þau hýsa viðkvæman og oft
framandlegan heim fjölbreytts
gróðurs sem ekki þrífst utandyra
hér á landi og minna að auki á lið-
inn tíma, á glerbyggingar nítjándu
aldar sem urðu til með framförum
í byggingartækni þess tíma.
Hringrás lífsins er sérstaklega
augljós í gróðurhúsum, rotn-
unarlyktin liggur jafnan í loftinu
ásamt þungum gróðurilmi. Gróð-
urhús í vetrarlandslagi vekja alltaf
athygli, birtan innandyra sker sig
frá umhverfinu. Ég man eftir
fyrstu flugferð minni til Hollands,
þegar flugvélin lækkaði flugið og
við blöstu allar þessar byggingar
upplýstar með dularfullri appels-
ínugulri birtu, ég hafði ekki vitað
til þess að svo mörg gróðurhús
væru þar á bæ.
Myndir Báru eru hver annarri
forvitnilegri. Það eina sem truflaði
að mínu mati upplifun áhorfandans
á sýningunni var fjöldi mynda, án
efa hefði að ósekju mátt sleppa
nokkrum þeirra. Þær hanga full
þétt saman og speglun áhorfand-
ans í glerinu er hvimleið. Hnitmið-
aðri framsetning hefði ef til vill
skilað enn sterkari sýningu. En
Báru tekst vel að birta ákveðið
andrúmsloft, sumar sýna fram-
andleg blóm og koma kannski
minnst á óvart, aðrar fanga óráðn-
ar stemningar þar sem gróðurinn
er að visna upp og gefast upp fyrir
hélu og kulda, eða að lifna við,
eitthvað millibilsástand. Sumar
minna á auðar sviðsmyndir þar
sem einhver atburðarás hefur átt
sér stað eða er ekki enn hafin, eru
frjór bakgrunnur sögusviðs. And-
stæður birtu og myrkurs, hita og
kulda eru einnig ráðandi, en í
heildina nær Bára að birta hug-
myndina um viðkvæmt líf, sem
eins og segir í bæklingnum aðeins
fimm millimetrar skilja frá dauð-
anum. Þessi tilfinning lyftir sýn-
ingu hennar yfir hversdagslega
upplifun og nær að tengja mynd-
irnar við stærri hugmyndir um
hringrás lífsins, líf og dauða. Sýn-
ingin er aðgengileg og kveikir í
ímyndunaraflinu, það er fengur í
því þegar íslenskir ljósmyndarar
ná að fanga einhvern þátt í okkar
daglega umhverfi og birta okkur
hann á skapandi og eftirminnileg-
an hátt. Ljósmyndarar skapa jú
alltaf með verkum sínum ákveðna
mynd af umhverfinu og aukin fjöl-
breytni í viðfangsefnum og nálgun
er kærkomin. Hér myndar Bára
íslenskt fyrirbæri en tekst að
skapa úr því sýningu sem vísar
langt út fyrir viðfangsefnið sjálft.
Hún hefur komið sér á kortið sem
ljósmyndari sem vert er að fylgj-
ast með og vonandi verður áfram-
hald á listrænum verkefnum henn-
ar.
Dularfull sögusvið
MYNDLIST
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Til 22. maí. Opið 12–19 virka daga,
13–17 um helgar.
Heitir reitir
ljósmyndir, Bára ljósmyndari
„Sýningin er aðgengileg og kveikir í ímyndunaraflinu, það er fengur í því
þegar íslenskir ljósmyndarar ná að fanga einhvern þátt í okkar daglega
umhverfi og birta okkur hann á skapandi og eftirminnilegan hátt.“
Ragna Sigurðardóttir
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 ● sími 551 3930 GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Lau 2/4 kl 14 – AUKASÝNING
Su 3/4 kl 14 – AUKASÝNING
Lokasýningar
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Su 20/3 kl 20,
Su 3/4 kl 20
Ath: Miðaverð kr 1.500
SEGÐU MÉR ALLT -
Taumlausir draumórar?
AMERICAN DIPLOMACY
eftir Þorleif Örn Arnarsson
Í samstarfi við Hið lifandi leikhús
Fi 31/3 kl 20,
Fö 1/4 kl 20
Síðustu sýningar
15:15 TÓNLEIKAR - SÓLÓ
Tinna Þorsteinsdóttir
Í dag kl 15:15
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Í kvöld kl 20,
Lau 2/4 kl 20, Lau 9/4 kl 20
Síðustu sýningar
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana
Mi 23/3 kl 20,
Fi 24/3 kl 15,
Fi 24/3 kl 20, Lau 26/3 kl 15, Lau 26/3 kl 20
SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur
Í kvöld kl 20,
Su 20/3 kl 20.
Fö 1/4 kl 20.
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Í kvöld kl 20 - UPPSELT,
Su 20/3 kl 21, - Breyttur sýningartími!
Mi 23/3 kl 20, Fi 24/3 kl 20,
Fö 1/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 2/4 kl 20 - UPPSELT
Fi 14/4 kl 20,
Fö 15/4 kl 20 - UPPSELTHÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar
eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Fi 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20,
Lau 16/4 kl 20,
Su 17/4 kl 20, Fi 21/4 kl 20,
Fö 22/4 kl 20, Lau 30/4 kl 20
DRAUMLEIKUR eftir Strindberg
Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Í kvöld kl 20,
Su 20/3 kl 20,
Lau 9/4 kl 20, Su 10/4 kl 20,
Síðustu sýningar
Mögnuð fjölskyldusýning sem sameinar
leikhús, sirkús og töfrabrögð
Tryggðu þér miða í síma 568 8000
23. mars kl. 2024. mars kl. 1524. mars kl. 2026. mars kl. 1526. mars kl. 20
Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878
Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar
í kvöld
sýnir
PATATAZ
fjölmenningarlegan
fjölskylduleik
Höfundur: Björn Margeir
Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson
Sýnt í Stúdíó 4,
Vatnagörðum 4
Í kvöld lau. 19. mars
Mið. 23. mars
Mán. 28. mars
Sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðapantanir í s. 551 2525
midasala@hugleikur.is
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„Fjarskalega
leiftrandi og
skemmtileg
sýning“
H.Ö.B. RÚV
Óliver! Eftir Lionel Bart
Lau. 26.3 kl 14 Örfá sæti laus
Lau. 26.3 kl 20 Örfá sæti laus
Allra síðustu sýningar
Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega!
Pakkið á móti Eftir Henry Adams
Fös. 15.4 kl 20 Frums. UPPSELT
Lau. 16.4 kl 20 Örfá sæti laus
Fim. 21.4 kl 20 Örfá sæti laus