Morgunblaðið - 03.04.2005, Page 18
18 SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sigurbjörn í samtali við Morgun-
blaðið. „Ég er þeirrar skoðunar að
sú upphæð sem ríkið tekur frá til
endurmenntunar lækna verði fyr-
irfram ákveðin og ekki litið á það
sem kostnað sem verður til ef
læknar nýta sér réttindin sín. Og
að þeir fjármunir sem fara ekki til
þessarar einstaklingsbundnu sí-
menntunar fari í sameiginlegan
sjóð til ráðstöfunar.“
Sigurbjörn gerir athugasemdir
við að aðilar, aðrir en þeir sem
kaupi þjónustu lækna, kosti sí-
menntun þeirra. Sérstaklega
þeirra lækna sem eru í aðstöðu til
að taka ákvarðanir sem eru í þágu
annarra heldur en sjúklinga sinna.
Í Noregi eru mjög skýrar línur í
þessu sambandi, að hans sögn. Sú
endurmenntun sem læknar njóta
og telur til menntunar sem þeir
eru skyldugir að afla sér, getur
lyfjaiðnaðurinn ekki fjármagnað.
„Þarna er um endurmenntun að
ræða sem varðar réttindi
læknanna og almannahagsmuni,“
sagði Sigurbjörn á fræðslufundi
læknaráðs LSH um símenntun
lækna nýverið.
Einar Magnússon, skrifstofu-
stjóri heilbrigðisráðuneytisins,
nefnir sem dæmi að í Svíþjóð hafi
nýverið verið settar mun ítarlegri
reglur um samskipti lækna og
lyfjafyrirtækja en eru í gildi hér á
landi. Í þeim sé farið mun ná-
kvæmar ofan í hvað læknum sé
leyfilegt að þiggja frá fyrirtækj-
um. Þar er gert ráð fyrir því að
læknar greiði alltaf sjálfir meira
en helming af kostnaði við boðs-
ferð lyfjafyrirtækis. „En ég held
að það megi segja að við séum al-
veg á réttri leið,“ segir Einar um
þær reglur sem hér gilda. „Menn
verða að taka þetta í áföngum.“
Skráning símenntunar
Læknafélagið hefur lagt til að
Fræðslustofnun lækna haldi utan
um símenntun lækna. Útbúið verði
punktakerfi fyrir þá menntun sem
læknar sækja sér og hún skráð.
Læknum verði umbunað fyrir að
ná símenntunarmarkmiðum og
verði kveðið á um það í kjarasamn-
ingum.
„Við höfum áhuga á að fjöldi
námskeiða og innihald þeirra verði
skráð og við teljum að Lækna-
félagið eigi að halda utan um
þetta,“ segir Sigurbjörn. „Þetta er
ekki ný hugmynd. Í Bandaríkj-
unum og Noregi þurfa læknar að
halda sér við og geta misst leyfið
ef þeir gera það ekki. Þessu viljum
við alveg halda aðskildu frá
fræðslustarfsemi lyfjafyrirtækja.
Það á að vera samkomulag við
vinnuveitandann og á ekki að fjár-
magnast af hagsmunaaðilum.“
Sigurbjörn kom inn á þetta í
grein sinni í Læknablaðinu fyrir
ári. Sagðist hann telja að stefna
bæri að sólarlagi fræðslustarfs
lyfjaframleiðenda fyrir lækna. Það
væri þó ekki einfalt mál og yrði
ekki hrundið í framkvæmd nema
með stuðningi heilbrigðisyfirvalda.
Sagði hann m.a. að læknar myndu
eiga erfitt með að sætta sig við
samdrátt í fræðslustarfi nema eitt-
hvað kæmi í staðinn.
Heilbrigðisráðherra hefur sagt
að hann telji ekki ástæðu til að
setja lög um námsferðir lækna í
boði fyrirtækja og kveðst treysta
læknum til að setja sjálfum sér
reglur og fylgja þeim. Í sama
streng tekur landlæknir í grein í
Læknablaðinu. „Boltinn í þessum
leik er á vallarhelmingi lækna. Við
getum með skýrari siðferðilegri
sýn tekið á þessu máli. Að öðrum
kosti er líklegt að löggjafinn sjái
um það.“
Umræða í yfir tuttugu ár
Umræða um tengsl lyfjaiðnaðar-
ins og lækna hefur staðið yfir hér
á landi í meira en tuttugu ár.
Stjórn Félags íslenskra heimilis-
lækna samþykkti árið 1987 leið-
beinandi reglur um samskipti
lækna og lyfjaiðnaðarins. Sigur-
björn segir að margt hafi lagast
við setningu þessara leiðbeininga
hvað varðar samskipti lyfjafyrir-
tækja og lækna, „en kannski hafa
menn sofnað á verðinum í gegnum
árin,“ segir hann. Málið hefur þó
áfram verið rætt á aðalfundum LÍ
og nefndir voru skipaðar sem
komu með tillögur að umgengn-
isreglum. Átök urðu um tillögurn-
ar en að endingu samþykkti stjórn
LÍ leiðbeinandi reglur árið 1993.
Síðan árið 2000 var gerður samn-
ingur við Samtök verslunarinnar
(nú Félag íslenskra stórkaup-
manna, FÍS) og gildir hann til árs-
loka 2005.
Heilbrigðisráðuneytið er nú með
átak í gangi í lyfjamálum heil-
brigðisstofnana og á mörgum
þeirra hafa þegar verið settar leið-
beinandi reglur um samskipti
lyfjaiðnaðarins og lækna út frá
forsendum stofnananna sjálfra.
Reglurnar eiga m.a. að sjá til þess
að öll samskipti fari í gegnum yf-
irmenn læknanna. Hins vegar
bendir Einar Magnússon, skrif-
stofustjóri ráðuneytisins, á að utan
stofnana, t.d. hjá þeim læknum
sem eru með stofu, og í frítíma
þeirra, gildi reglurnar ekki.
Einar segir að viðbrögð heil-
brigðisstofnana við reglunum hafi
almennt verið mjög góð. Reglurn-
ar hafi vakið fólk til umhugsunar
og valdið hugarfarsbreytingu.
„Menn horfa á þetta öðrum aug-
um,“ segir Einar. „Mönnum finnst
alveg sjálfsagt að setja þessar
reglur en það þótti ekki sjálfsagt
þegar við vorum að byrja á þessu
fyrir tveimur árum. Menn eru
miklu opnari fyrir því núna,“ segir
Einar og telur það m.a. skýrast af
aukinni umræðu um málið að und-
anförnu. Einar segir að viðbrögð
lyfjafyrirtækjanna við reglunum
hafi einnig verið góð. Hann telur
að tekist hafi að setja reglurnar í
góðu samstarfi við lyfjaiðnaðinn.
Unnið er að endurskoðun samn-
ings LÍ og FÍS og gætu drög að
nýjum samningi verið tilbúin fljót-
lega. Samningurinn hefur m.a.
þann galla að ekki er kveðið á um
neinn samráðsvettvang aðila
samningsins um framkvæmd hans.
Þá hefur verið bent á að engin
ákvæði eru í samningnum til að
veita aðhald, eins og t.d. er uppi á
teningnum í Danmörku. Engin við-
urlög eru við brotum á greinum
samningsins né öðrum leiðbeinandi
reglum um samskipti lækna og
lyfjafyrirtækja. Bæði landlæknir
og formaður Læknafélagsins hafa
látið þá skoðun sína í ljós að þeir
vildu forðast slík viðurlög.
Einnig hefur verið rætt um það
að samningur LÍ við FÍS verði
ekki endurnýjaður heldur að
læknar setji sér einhliða siðaregl-
ur að þessu leyti. Verður þetta
efni eitt af höfuðviðfangsefnum
formannafundar Læknafélagsins
nú um miðjan apríl.
Gjafir lyfjafyrirtækja til lækna
Samkvæmt erlendum rannsókn-
um geta samskipti lækna og lyfja-
fyrirtækja verið allt frá tiltölulega
saklausum smágjöfum á borð við
penna og gula límmiða með lyfja-
nafni, yfir í samskipti sem eru ekki
talin viðunandi siðferðilega. Segir
m.a. frá samantekt á þessu í grein
landlæknis í Læknablaðinu nýver-
ið. Dæmi um ósiðleg tengsl má
nefna ritun greina í nafni lækna
þótt þeir séu ekki höfundar þeirra,
há laun fyrir fyrirlestra og ráðgjöf
til leiðtoga í læknastétt fyrir að tí-
unda ágæti lyfjafyrirtækis, lúxus-
ferðir á fjarlæga ferðamannastaði
og uppihald með glæsiveislum.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um
hvernig slíkri risnu hefur verið
háttað hér á landi en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins eru
gjafir og önnur risna sem íslenskir
læknar hafa fengið frá lyfjafyr-
irtækjum m.a. reiknivélar, útvörp,
veitingar á fundum, að borga
fræðslufundi, að borga fyrir er-
lenda fyrirlesara hingað til lands,
ferðalög til útlanda á ráðstefnur
sem eru t.d. haldnar af lækna-
félögum, eða á ráðstefnur eða
fundi þar sem aðeins er fjallað um
eitt tiltekið lyf. Þekkt eru dæmi
um að læknar fari utan átta sinn-
um á ári í boði lyfjafyrirtækja.
Einnig að læknum sé boðið á
kynningar á eldri lyfjum sem hafa
átt undir högg að sækja. Ýmist er
læknum boðið til leiks eða að þeir
hafa sjálfir samband við lyfjafyr-
irtækin og sækjast eftir þessari
samvinnu. Þá má nefna að nú fyrir
páska dreifði t.d. lyfjafyrirtæki
páskaeggjum til lækna.
„Lyfjafyrirtækin eru ekki að
gefa neitt,“ segir einn heimildar-
maður Morgunblaðsins. „Þetta er
markaðssetning og verið að reyna
að skapa sér viðskiptavild.“
Annar heimildarmaður Morgun-
blaðsins bendir á að verulega hafi
dregið úr gjöfum til íslenskra
lækna frá lyfjafyrirtækjum und-
anfarin misseri. En að allar gjafir
séu mýkjandi aðgerðir af hálfu
fyrirtækjanna og ætlaðar í mark-
aðslegu tilliti. Fyrirtækin gangi
eins langt og þeim sé leyfilegt í því
augnamiði að koma sinni vöru á
framfæri. Segir hann að lyfjafyr-
irtækin reyni að ná til lækna sem
eru í þeirri aðstöðu að hafa áhrif á
lyfjaávísanir. Einnig er til í dæm-
inu að læknar hafi verið beðnir að
taka þátt í rannsókn á lyfi án þess
að ljóst sé að niðurstaða hennar
bæti einhverju við þá þekkingu
sem fyrir er. En með þessu móti
er hægt að koma stórum sjúk-
lingahópi á bragðið, ef svo má
segja, undir yfirskyni rannsóknar.
Læknarnir setja þá sjúklinga sína
frekar á eitt lyf en annað í þágu
rannsóknar. Í staðinn býðst lækn-
unum t.d. fjármögnun á ráðstefnu.
Samskiptin séu uppi á borðum
Einar Magnússon hjá heilbrigð-
isráðuneytinu segir að ráðuneytið
vilji færa samskipti lyfjafyrirtækja
og lækna sem allra mest upp á yf-
irborðið. Það sé öllum í hag, lækn-
um sem lyfjafyrirtækjum. Morg-
unblaðið leitaði til þriggja
lyfjafyrirtækja, Actavis, Vistor og
IcePharma, um upplýsingar um
hvernig lyfjakynningum gagnvart
læknum væri háttað á þeirra veg-
um. Sögðust öll fyrirtækin fara
eftir samningi FÍS og LÍ varðandi
samskipti lyfjafyrirtækja og
lækna.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
bjargar Alfreðsdóttur hjá Vistor
er fjöldi ferða lækna á vegum ein-
stakra fyrirtækja trúnaðarupplýs-
ingar viðkomandi fyrirtækja. „Við
sem Vistor borgum ekki fyrir
neinar ferðir en kostnaður er bor-
inn af viðkomandi framleiðenda,“
en Vistor er fulltrúi fyrir mörg
lyfjafyrirtæki sem starfa sjálf-
stætt. Hún segir langflestar ferðir
farnar á fundi um sjúkdóma og
meðferð á þeim. Farið er yfir með-
ferðarmöguleika og þau lyf og úr-
ræði sem til eru í hverju tilfelli.
Einnig eru niðurstöður nýrra
rannsókna birtar og kynntar. Ein-
hver dæmi eru um fundi um eitt
lyf. Í ferðunum er greitt fyrir far-
gjald, það ódýrasta sem völ er á,
ráðstefnugjald, þar sem það á við,
gistingu og stundum einn kvöld-
verð en það fer eftir lengd fund-
arins. Önnur risna fylgi ekki ferð-
um fyrirtækisins. Fulltrúi frá
viðkomandi lyfjafyrirtæki innan
Vistor fer næstum alltaf með í
slíkar ferðir enda er um mikilvæga
fræðslu og endurmenntun að ræða
fyrir fulltrúa sem sér um upplýs-
ingagjöf, segir Guðbjörg.
Segir hún farið eftir ákvæði
samskiptareglnanna um að gjöfum
skuli stillt í hóf. Gjafir lyfjafyr-
irtækja innan Vistor séu því
óverulegar, t.d. pennar, skrif-
blokkir, dagbækur og því um líkt.
Guðbjörg segir að áður en ferð á
vegum fyrirtækisins sé farin sé
haft samband við yfirlækni við-
komandi sviðs/deildar og ákveðið í
samráði við hann hverjum sé boðið
í ferðina. Þetta gildi einnig um
flestar aðrar stofnanir og heilsu-
gæslustöðvar. Mjög mismunandi
er hvaða sérgrein er áhugaverð
fyrir hvert og eitt fyrirtæki enda
starfa þau á mismunandi sviðum
læknisfræðinnar, segir Guðbjörg.
Fyrir komi að læknar eða annað
heilbrigðisstarfsfólk óski eftir
stuðningi við ferðir á alþjóðlegar
ráðstefnur.
Actavis býður ekki til útlanda
Harpa Leifsdóttir, sviðsstjóri
markaðssviðs hjá Actavis, segir að
engir læknar hafi farið á vegum
fyrirtækisins til útlanda á síðasta
ári. „Við leggjum það ekki í vana
okkar að bjóða læknum til útlanda,
frekar tökum við þátt í að styrkja
innlend þing í samráði við lækna-
félög sem og norræn þing sem
haldin eru hér á landi. Þá sést
nafn fyrirtækisins fyrst og fremst
en það er ekki verið að kynna ein-
stök lyf,“ segir Harpa.
Hún segir Actavis aðila að
samningi sem FÍS gerði við
Læknafélagið og að í þeim samn-
ingi sé fjallað um gjafir vegna
markaðssetningar, þær megi ekki
kosta mikið og beri að stilla í hóf.
„Þessu fylgir Actavis og kostnað-
urinn tengdur þessu er mjög lítill.“
Flestar lyfjakynningar Actavis
fara að sögn Hörpu fram á heil-
brigðisstofnunum og heilsugæslu-
stöðvum þar sem kynnt er fyrir
hópi lækna. Einstaklingskynningar
séu aðallega fyrir sérfræðinga ef
þeir eru ekki á stofum með öðrum
en í langflestum tilfellum séu
kynningarnar fyrir fleiri en einn
lækni.
Hún segir augljóst að læknar
þurfi að fara utan til að afla sér
þekkingar þar sem framboðið hér-
lendis sé mjög takmarkað, þó
stundum séu haldin hér þing sem
þá fleiri íslenskir læknar geti nýtt
sér. „Actavis hefur eins og áður
segir styrkt innlend þing og gefið
fleiri læknum kost á að mæta en
FLESTIR læknar Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss (LSH) nýta sér samningsbundin
réttindi til námsferða erlendis á hverju ári.
Ekki nota þó nærri því allir þau til fulls, þ.e.
mennta sig erlendis í 15 daga árlega, eins og
mögulegt er samkvæmt kjarasamningi. Flest
námskeið eru aðeins 3–5 dagar og meirihluti
læknanna fer í eina slíka ferð árlega. Flugfar-
gjald sem LSH greiðir fyrir hvern og einn er
nú að hámarki 100 þúsund á ári. Sviðstjóri
getur heimilað að greitt sé fyrir fleiri en eitt
fargjald ef læknir nær hagstæðu verði. Dag-
peningar fyrnast á tveimur árum. Aðeins eitt
þátttökugjald, t.d. til að taka þátt í ráðstefnu
eða námskeiði, er greitt. Er það að hámarki
um 840 dollarar árlega. Margir læknar sem
fara á dýrari námskeið leggja sjálfir út fyrir
mismuninum.
Möguleikar á fleiri ferðum aukist
Með tilkomu lágflugfargjaldafélaga má
segja að möguleikar lækna til að fara í fleiri
en eina stutta námsferð hafi aukist. Lækn-
um er það í sjálfsvald sett hvort þeir nýti sér
þjónustu slíkra flugfélaga og eru þeir að sögn
aðstoðarlækningaforstjóra, Niels Chr. Niel-
sen, óbeint hvattir til þess. Með því móti geta
þeir farið í fleiri ferðir á kostnað sjúkrahúss-
ins eða sparað sjúkrahúsinu peninga, eftir því
hvernig á það er litið.
Miðað við uppreiknað hámark heimilda er
fjármagn nýtt að hluta eða um 60% á síð-
asta ári. Ekki er stefnt að því af hálfu sjúkra-
hússins að sá hluti sem ekki sé nýttur fari
t.d. í sameiginlegan fræðslusjóð lækna eins
og t.d. formaður Læknafélagsins og fleiri hafa
vakið máls á. Niels bendir á að um sé að ræða
heimild til utanferðar en ekki heimild til
ákveðinnar peningaupphæðar. Ekki hafi kom-
ið til umræðu að breyta því.
Ekki er haldið utan um samanlagðan fjölda
námsferða lækna á sjúkrahúsinu, hvorki í
boði fyrirtækja né þær námsferðir sem
sjúkrahúsið greiðir fyrir. Er nýting réttinda
reiknuð út frá bókhaldsupplýsingum sjúkra-
hússins. Hvert svið heldur utan um ferðir
sinna lækna en fjöldi ferða er ekki tekinn
saman í heildina. Nýtt bókhaldskerfi, sem
verið er að innleiða á sjúkrahúsinu, gæti þó
orðið til þess að í framtíðinni verði hægt að
nálgast slíkar upplýsingar á aðgengilegri hátt.
Enginn munur eftir sviðum sjúkrahússins
Enginn munur virðist vera á nýtingu
námsréttinda milli sviða sjúkrahússins, sam-
kvæmt upplýsingum Niels. Heilmikill munur
er hins vegar á tölum lyfjafyrirtækja og tölum
sem aflað var á LSH um ferðir lækna á veg-
um lyfjafyrirtækjanna í tengslum við fyr-
irspurn Ástu Ragnheiðar á þinginu nýverið.
Samkvæmt samanlögðum tölum sem aflað
var frá sviðum sjúkrahússins voru ferðir
lækna í boði lyfjafyrirtækja 126 á síðasta ári
en tölur fyrirtækjanna sjálfra segja fjölda
ferða lækna LSH í þeirra boði vera 289. Segir
Niels að munurinn geti t.d. legið í því að
læknar fari í ferðirnar í sínum frítíma. Þess
má geta að ekki öll lyfjafyrirtækin svöruðu
fyrirspurninni. Bendir Niels á að yfirlæknar
segi ferðir lækna LSH á vegum lyfjafyrirtækj-
anna fyrst og fremst farnar á viðurkenndar
fagráðstefnur en ekki þangað sem verið sé að
kynna einstök lyf. Á sumum sviðum hafi ver-
ið tekin sú ákvörðun að yfirlæknar fari ekki í
slíkar boðsferðir og er það gott fordæmi að
mati Niels.
„Það er hagur okkar skjólstæðinga að
læknar haldi menntun sinni við,“ bendir Niels
á. „Það skiptir verulegu máli og áhersla á það
er sífellt að aukast. Það er hægt að gera það á
margan hátt, t.d. að fá fyrirlesara hingað
heim. Það verður að meta í hvert skipti.“
Nýting réttinda til
námsferða erlendis á LSH