Morgunblaðið - 03.04.2005, Síða 22

Morgunblaðið - 03.04.2005, Síða 22
Núorðið er hann kunnasturfyrir að hafa leikið Bleikapardusinn. Hið rétta er aðhann lék hinn úrræðagóða en víðáttu vitgranna Clouseau lög- regluvarðstjóra sem eltist við dem- antaþjófinn alræmda Bleika pardus- inn í samnefndri grínmyndaröð sem enn þann dag í dag nýtur almanna- hylli. En í eina tíð, einkum á 7. og 8. áratug síðustu aldar, var Peter Sell- ers þekktur fyrir annað og meira. Hann var þekktur fyrir að vera eitt- hvert mesta kameljón kvik- myndanna, gamanleikari af guðs náð sem gat brugðið sér í allra kvikinda líki og verið svo óbærilega fyndinn að áhorfendur verkjaði í hlátur- taugar og maga. En um leið voru kenjar hans og flókinn persónuleiki alkunna. Hversu ólíkur hann var þessum bráðfyndnu persónum sem hann lék á hvíta tjaldinu. Hversu erf- iður hann var í umgengni, hvort sem var við samstarfsfólk eða sína nán- ustu. Og það var mönnum hulin ráð- gáta hvernig hann gat verið svona óhamingjusamur og ómögulegur þessi maður sem bjó að of stórum skammti af guðs gjöf, gekk allt í hag- inn á framabrautinni, gat valið úr viðfangsefnum og kvonfangi og naut vímunnar og villtra meyja. Þótt ekki séu nema 25 ár síðan Sellers lést af völdum hjartabilunar hafa nú þegar verið ritaðar ótal ævisögur um hann þar sem markmiðið er oftar en ekki að reyna að draga upp skýrari mynd af þessum torskilda einstaklingi, freista þess að skilja hvaðan hann kom og hvert hann var að fara – nokkuð sem flestir virðast hafa kom- ist að niðurstöðu um að hann hafi síst vitað sjálfur. Sellers-mynd um Sellers Hugmyndin um að gera kvikmynd um viðburðaríkt og þyrnum stráð lífshlaup Sellers hefur vafalítið oft komið upp en enginn var eins ein- arður og fylginn sér um að slíka mynd yrði að gera og Stephen nokk- ur Hopkins, breskur kvikmynda- gerðarmaður fæddur á Jamaíka. Hopkins þessi hóf feril sinn sem kvikmyndagerðarmaður í Ástralíu og á að baki nokkrar misjafnlega vel lukkaðar Hollywood-myndir á borð við Predator 2, Lost in Space, Under Suspicion og Ghost in the Darkness. Það var þó trúlega ekki fyrr en hann stýrði fyrstu klukkustundunum í hin- um margverðlaunaða spennumynda- flokki 24 sem hæfileikar hans fengu notið sín til fulls. Það breytir þó ekki þeirri augljósu staðreynd að drama byggt á ævi frægrar kvikmynda- stjörnu er viðfangsefni sem gæti vart verið ólíkara þeim spennu- og has- armyndum sem Hopkins hefur feng- ist við fram að þessu. Og því lék manni forvitni á að vita hvað komið hefði til. „Ég kem inn í verkefnið sem ein- lægur Sellers-aðdáandi,“ sagði Hopkins við blaðamann Morgun- blaðsins á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí í fyrra þar sem kvik- myndin The Life and Death of Peter Sellers var frumsýnd í aðalkeppninni um Gullpálmann. „Það var búið að skrifa handritið þegar ég kom til sögunnar þar sem stuðst var við ævisögur, viðtöl, heim- ildamyndir og annað efni þar sem reynt hefur verið að draga upp mynd af lífi Sellers. Mínar hugmyndir fengu svo einfaldlega hljómgrunn meðal framleiðenda, sem féllu fyrir því að gerð yrði Peter Sellers-mynd um Peter Sellers. Ég sá fyrir mér að reyna eftir fremsta megni að gera eins mynd um líf hans og hann sjálf- ur hefði viljað hafa hana.“ Enginn annar en Rush Hopkins setti þó eitt skilyrði fyrir því að hann leikstýrði, að hann fengi alfarið að ráða því hver léki Sellers. Ástæðan var einföld, hann var þá þegar búinn að gera það upp við sig hver væri sá eini sem í hans huga réði við svona krefjandi hlutverk; ástralski leikarinn Geoffrey Rush. Þá þegar hafði annar leikstjóri sem tengst hafði verkefninu verið búinn að reyna að fá Rush til að taka að sér hlutverkið en Rush þverneitað. En Hopkins er sem fyrr segir fylginn sér og tók að ganga á eftir Rush, enda taldi hann verkefnið von- laust án hans. „Ástæðan fyrir því að ég taldi Rush hinn eina rétta er sú að ætlun okkar var ekki bara að búa til mynd um fígúruna Peter Sellers, þennan grínista sem við öll elskum og dáum, heldur ekki síst að sýna allar hinar hliðar hans og þær kröfðust leikara með verulega reynslu og hæfileika á dramatíska sviðinu. Ég þurfti að fá mann sem eins og Sellers getur brugðið sér í allra líki, þar á meðal líki Sellers og einnig Sellers að leika, ekki bara hinar þekktu kvikmynda- persónur, heldur einnig persónur úr einkalífi hans. Sú var nefnilega leiðin sem við kusum að fara, að setja Sell- ers í spor sinna nánustu í því skyni að reyna að kanna persónuleika hans og skýra hann, sem var nokkuð sem hann sjálfur hafði aldrei getað.“ En enda þótt Rush þrífist að eigin sögn á áskorunum sem þessari neit- aði hann þráfaldlega að taka að sér hlutverkið, jafnvel þótt honum fynd- ist handritið snilldarvel skrifað. „Ég var bara svo fullkomlega meðvitaður um og smeykur við þá goðsögn sem maðurinn er. Þetta var tvímælalaust erfiðasta og mest krefj- andi hlutverk sem mér hafði staðið til boða. Ég leikarinn að fara að túlka annan og mér miklu hæfari leikara. Og ekki bara það heldur einnig að þurfa að túlka mann sem ætíð var tímanna tákn. Var rakið af- sprengi Bretlands eftirstríðsáranna og þeirra breytinga sem þá áttu sér stað en þó ekki síst 7. áratugarins þegar hann var orðinn sönn stjarna og virtist bergmála alla þá útflúruðu geðveiki sem þá einkenndi tíðarand- ann. En eftir að hafa átt í bréfa- skriftum við Hopkins þar sem hann fékk færi á að kynna fyrir mér hug- myndir sínar sá ég um síðir að ég gæti ekki látið þetta tækifæri mér úr greipum ganga.“ Hræddur við hlutverkið Geoffrey Rush er 53 ára gamall og var alinn upp í borginni Brisbane í Ástralíu. Framan af leikferli vann hann alfarið í leikhúsi og náði að skapa sér orð sem einn helsti sviðs- leikari Ástrala. Hann var orðinn þrí- tugur er hann fékk loks sitt fyrsta kvikmyndahlutverk sem var smá- hlutverk í myndinni Hoodwink. Fyrsta stóra kvikmyndahlutverkið kom svo ekki fyrr en fimm árum síð- ar í myndinni Twelfth Night en hann hélt sig þó eftir sem áður að mestu á leiksviðinu. Árið 1992 fékk Rush vægt taugaáfall sökum vinnuálags og varð að draga sig í hlé til að safna kröftum og endurmeta feril sinn. Hann ákvað þá að snúa sér í frekara mæli að kvikmyndaleiknum og vakti fyrst heimsathygli árið 1996 fyrir túlkun sína á píanósnillingnum ein- hverfa David Helfgott í myndinni Shine. Fyrir túlkun sína fékk hann sín fyrstu Óskarsverðlaun en síðan hefur hann leikið í fjölda kunnra mynda á borð við Shakespeare in Love, Elizabeth, Les Misérables, Quills, The Taylor of Panama, Pirat- es of the Caribbean og Intolerable Cruelty og fengið tvær Óskarstil- nefningar til (fyrir Shakespeare in Love og Quills), auk fjölda annarra verðlauna. Í þann stutta tíma sem blaðamað- ur ræddi við Rush kom hann fyrir sem hinn mesti séntilmaður, var kurteisið uppmálað, léttur í lundu og lagði sig fram, frekar en margar aðr- ar stjörnur af hans stærðargráðu, um að kynnast blaðamanni og mynda við hann eins góð tengsl og mögulegt er á tuttugu mínútum. Virðist nettur sveimhugi, afslappað- ur og lítt áhugasamur þegar kemur að frama hans og frægð. Hann er klárlega með gott jarðsamband, talar frjálslega um eigin breyskleika og takmörk. Talar hressilega umbúða- laust um viðfangsefni sín og skoð- anir, kærir sig kollóttan um öll markaðsleg fyrirmæli sem gefin hafa verið. Það býr nettur og skemmti- legur púki í honum. „Ef ég á að segja þér alveg eins og er þá var ég hræddur við að taka þetta hlutverk að mér. Hræddur við að klúðra því. Ég vildi ekki að mín yrði minnst sem leikarans sem klúðraði Peter Sellers-hlutverkinu. Sem er reyndar alveg óskaplegur hé- gómi í mér. Ég sá það í hendi mér hversu auðvelt það yrði að misstíga sig og það kauðslega ef maður næði ekki tökum á þessu hlutverki. Ég meina, í hinum enskumælandi heimi er maðurinn algjör guð. Því sann- færði ég mig um það í fyrstu að það væri ekki hægt að leika hann. Og því hafnaði ég hlutverkinu í fyrstu.“ Ári síðar kom annað kall og nú frá nýjum leikstjóra (Hopkins), en þá segist Rush hafa verið í miðjum tök- um á ævintýramyndinni Sjóræningj- um Karíbahafsins. „Það var alveg frábært, ekki mis- skilja mig. Johnny Depp alveg pott- þéttur náungi og ég að skemmta mér konunglega, mikill hamagangur, skylmingar og læti, sem var nýtt fyr- ir mér því ég hef aldrei verið mikill íþróttamaður. En síðan fór ég að velta fyrir mér að þetta væri kannski fullauðvelt allt saman. Þegar ég var kominn með hattinn og apann á öxl- ina þurfti ég lítið meira að gera, fannst mér. Samviska leikarans fór þá að láta á sér kræla og sagði: „Ekki verða of latur, þetta er góður tími fyrir þig til að taka áskorunum.“ Tilboðið kom um svipað leyti og þessar vangaveltur bærðust í höfði mínu þannig að ég ákvað að slá til og taka þá bara afleiðingunum, að eiga það á hættu að hrasa. Hvaða máli skiptir það í stóra samhenginu? Svo fór ég líka að velta fyrir mér hversu oft svona tækifæri muni bjóð- ast mér, að leika aðalhlutverk í kvik- mynd sem er ólík öllum öðrum sem gerðar hafa verið, kannski að und- anskildum myndum Dennis Potters.“ Sjö sneiðar af hráu kálfakjöti Rush segist hafa þurft að leggja mjög mikið á sig til þess að ná að til- einka sér fas Sellers, gríntilburði hans, talanda og hreim. Hann segist ekki vera þeim kostum gæddur sem leikari að eiga auðvelt með að tala með öðruvísi hreim og því njóti hann aðstoðar góðra talþjálfara. „Sumir leikarar hafa þennan með- fædda hæfileika að geta hermt eftir öllu mögulegu og talað með hvaða hreim sem hugsast getur. Hæfileikar Sellers á þessu sviði voru næsta óhugnanlegir, enda gat hann svo gott „Ég hata allt sem ég geri,“ sagði hann jafnan, einhver merk- asti og dáðasti grínleikari sögunnar, Peter Sellers. „Ég hata líka flest sem ég geri. Og sumt sem ég geri er mér líka veru- lega á móti skapi. Það er trúlega það eina sem við eigum sameiginlegt,“ segir Geoffrey Rush í samtali við Skarphéð- in Guðmundsson þar sem hann m.a. viðurkennir að hafa efast stórlega um að hann réði við að leika þennan marg- flókna grínsnilling í myndinni Líf og dauði Peters Sellers. Geoffrey Rush er óspar á lofsyrðin þegar talið berst að mótleikkonu hans, Charlize Theron, sem fer með hlutverk annarrar eiginkonu Sellers, sænsku leik- konunnar Britt Ekland, í myndinni Líf og dauði Peters Sellers. Glíman við Sellers Mörg andlit Geoffrey Sellers 22 SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.